Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 58
26 2. júní 2008 MÁNUDAGUR
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1340
Fjölnir Breiðablik
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–13 (3–6)
Varin skot Þórður 4 – Casper 2
Horn 6–4
Aukaspyrnur fengnar 19–15
Rangstöður 2–2
BREIÐAB. 4–3–3
Casper Jakobsen 5
*Árni Kristinn 7
Guðmann Þórisson 6
Srdjan Gasic 6
Kristinn Jónsson 7
Nenad Petrovic 6
Olgeir Sigurgeirsson 5
Arnar Grétarsson 7
Steinþór Freyr Þorst. 5
(90., Nenad Zivanovic -)
Prince Rajcomar 7
(78. Magnús Páll -)
Jóhann Berg Guðm. 6
(63. Haukur Baldvins. 5)
*Maður leiksins
FJÖLNIR 4–3–3
Þórður Ingason 5
Magnús Ingi Einarss. 4
Kristján Hauksson 4
Óli Stefán Flóventss. 5
Gunnar V. Gunnars. 4
Ágúst Gylfason 5
Ásgeir Aron Ásgeirs. 3
(66. Eyþór Atli 5)
Gunnar Már Guðm. 6
Ólafur Páll Snorrason 4
Pétur Georg Markan 4
(88., Davíð Þór Rún. -)
Tómas Leifsson 3
(66. Ómar Hákonar 7)
0-1 Prince Rajcomar (13.)
0-2 Árni Kristinn Gunnarsson (60.)
1-2 Ómar Hákonarson (71.)
1-2
Garðar Örn Hinriks.(8)
Forkeppni Ólympíuleikanna:
Ísland-Svíþjóð 29-25 (13-13)
Mörk Íslands (skot): Ólafur Stefánsson 6 (11),
Guðjón Valur Sigurðsson 5 (8), Arnór Atlason 4
(9), Róbert Gunnarsson 3 (4), Alexander Peters-
son 3 (6), Snorri Steinn Guðjónsson 3/1 (9/2),
Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 (2), Sigfús Sigurðsson
2 (5), Vignir Svavarsson 1 (2).
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 20/2
(46/4, 43%), Birkir Ívar Guðmundsson 1/1 (3/3,
33%),
Hraðaupphlaup: 10 (Alexander 3, Ólafur 2,
Arnór 2, Sigfús 2, Vignir).
Fiskuð víti: 2 (Ólafur, Róbert).
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Svíþjóðar (skot): Jan Lennartsson 7/2
(14/3), Robert Arrhenius 5 (8), Martin Boquist
5 (10), Jonas Kallman 4 (7), Jonas Larholm 2/2
(4/3), Mattias Gustafsson 1 (1), Henrik Lund-
ström 1 (4) .
Varin skot: Tomas Svensson 10 (27/1, 37%),
Peter Gentzel 7 (23/0, 30%).
Hraðaupphlaup: 3. Utan vallar: 8 mínútur
Pólland-Argentína 26-28 (11-13)
STAÐAN:
Pólland 3 2 1 0 84-76 5
Ísland 3 2 0 1 93-86 4
Svíþjóð 3 1 1 1 80-72 3
Argentína 3 0 0 3 74-97 0
Hinir riðlarnir:
RIÐILL 2 Í PARÍS
Túnis-Spánn 28-29 (14-16)
Noregur-Frakkland 23-28 (15-13)
STAÐAN:
Frakkland 3 3 0 0 90-72 6
Spánn 3 2 0 1 86-87 4
Noregur 3 0 1 2 84-91 1
Túnis 3 0 1 2 83-93 1
RIÐILL 3 Í ZADAR, KRÓATÍU
Japan-Rússland 31-44 (13-19)
Alsír-Króatía 26-37 (13-14)
STAÐAN:
Króatía 3 3 0 0 100-72 6
Rússland 3 2 0 1 107-69 4
Japan 3 1 0 2 91-108 2
Alsír 3 0 0 3 65-114 0
Liðin á ÓL í Peking 2008:
Heimalið: Kína
Heimsmeistarar: Þýskaland
Evrópumeistarar: Danmörk
Undankeppni Asíu: Suður-Kórea
Afríkumeistarar: Egyptaland
Ameríkumeistarar: Brasilía
Forkeppni Ólympíuleikanna:
Riðill 1: Pólland og Ísland
Riðill 2: Frakkland og Spánn
Riðill 3: Króatía og Rússland
Ísland er komið á Ólympíuleikana í sjötta
sinn en strákarnir voru einnig með í München
1972, í Los Angeles 1984, í Seúl 1988, í
Barcelona 1992 og í Aþenu 2004.
TÖLFRÆÐIN
HANDBOLTI Svíar hafa ákveðið að
kæra úrslit leiksins á móti Íslandi
í gær og heimta að leikurinn fari
fram að nýju.
Svíar segja að löglegt mark
Roberts Arrhenius í fyrri hálfleik
hafi ekki verið tekið með og Svíar
hafi því átt að vera 14-13 yfir í
hálfleik. Svíar segjast hafa gert
athugasemd í hálfleik en hún hafi
verið hunsuð en nú ætla þeir með
málið alla leið. - óój
Svíar segja mark hafa horfið:
Svíar hafa kært
HANDBOLTI „Þetta er alveg ólýsan-
leg tilfinning. Það eru allir búnir
að leggja mikið á sig og við trúð-
um á þetta allan tímann. Við viss-
um ekki hvort það kæmi gegn Pól-
verjum eða Svíum en við ætluðum
svo sannarlega á Ólympíuleikana.
Við ætluðum að láta drauminn
rætast og við gerðum það,“ sagði
Guðmundur og gleðin skein úr
andliti hans.
„Þessi leikur var ótrúlega vel
útfærður. Ótrúlegur varnarleikur
sem braut þá niður og gerði þá
óörugga. Markvarslan var síðan
stórkostleg. Sóknarleikurinn var
svo allan tímann fjölbreyttur,
agaður og mikið í gangi. Við viss-
um að við áttum mikið inni og það
sýndi sig. Að vera þátttakandi í
svona leik er hreinlega ólýsanlegt
en ég get ekki neitað því að síðari
hálfleikur var mjög langur. Þessi
leikur er eitt það stórkostlegasta á
mínum ferli.“
Guðmundur tók að sér starf
landsliðsþjálfara við erfiðar
aðstæður og hefur unnið sitt verk
frábærlega. Hann gat ekki neitað
því að árangurinn skipti hann
miklu máli persónulega.
„Ég er rosalega stoltur og leyni
því ekki neitt. Ég vissi sem var að
verkefnið var erfitt og gat farið á
báða vegu. Mér rann blóðið til
skyldunnar og ég sé ekki eftir því
í dag. Þetta var ögrandi verkefni
sem tókst með þrotlausri vinnu
frábærs hóps,“ sagði Guðmundur.
- hbg
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari réð sér vart fyrir kæti eftir sigurleikinn á móti Svíum í gær:
Er rosalega stoltur og leyni því ekki neitt
ÁNÆGÐUR ÞJÁLFARI Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fagnar sigrinum
rétt áður en hann fer í sjónvarpsviðtal. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
HANDBOLTI Íslenska landsliðið
sýndi frábæran karakter í Hala
Stulecia-höllinni í gær er það lagði
Svía og tryggði sér um leið farseð-
ilinn á Ólympíuleikana. Strákarnir
okkar mættu gríðarlega einbeittir
til leiks og svo sannarlega með
viljann að vopni. Ísland var betri
aðilinn allan tímann og hefði vel
getað unnið stærri sigur og klárað
leikinn fyrr en raun varð.
Guðmundur byrjaði leikinn í
gær með 5-1 vörn þar sem Guðjón
Valur skyggði á Kim Andersson
og Hreiðar byrjaði í markinu eftir
stórleik gegn Pólverjum. Vörnin
hjá íslenska liðinu svínvirkaði því
það var mikill vandræðagangur á
sænska sóknarleiknum. Sóknin
hjá íslenska liðinu gekk vel en
Tomas Svensson var íslenska lið-
inu erfiður ljár í þúfu einu sinni
sem oftar. Markvarsla hans varð
þess valdandi að leikmenn fóru að
skjóta framhjá eða yfir í stað þess
að skjóta í hann.
Engu að síður var leikurinn í
járnum en Svíar oftar en ekki
skrefinu á undan. Hreiðar datt
síðan í gírinn og líkt og fyrr gaf
það liðinu kraft. Eftir að hafa verið
undir nánast allan hálfleikinn
sýndi íslenska liðið nýja hlið á sér
í stöðunni 10-10 þegar það var
manni fleiri. Þann kafla vann liðið
2-0 og kom sér í ágæta stöðu.
Svensson hélt uppteknum hætti og
sá til þess að Svíar komust aftur í
leikinn og jöfnuðu fyrir hlé, 13-13.
Ef ekki hefði verið fyrir stórleik
hans hefði íslenska liðið leitt í leik-
hléi með nokkrum mörkum.
Íslenska liðið byrjaði síðari hálf-
leik af miklum krafti og náði fljót-
lega þriggja marka forskoti, 18-
15. Þegar Svíar nálguðust aftur
sýndu strákarnir mikinn karakter
með því að stíga aftur á bensínið.
Næst komust Svíar í stöðunni 21-
20 en þá náðu strákarnir aftur upp
forskoti og litu aldrei til baka á
taugatrekkjandi lokamínútum. Þá
fór Hreiðar Guðmundsson algjör-
lega á kostum og varði eins og ber-
serkur. Hann sá einfaldlega til
þess að Svíar náðu aldrei aftur í
skottið á íslenska liðinu, sem steig
stríðsdans á fjölum Hala Stulecia-
hallarinnar í leikslok.
Frammistaða liðsins í þessum
leik var í einu orði sagt stórkost-
leg. Varnarleikurinn líklega einn
sá besti sem liðið hefur sýnt í árar-
aðir. Svíar voru teknir úr sam-
bandi strax í byrjun og áttu engin
svör. Sóknarleikurinn var fjöl-
breyttur og agaður. Ekkert panikk
á mönnum heldur grimmd og þol-
inmæði.
Þess utan var stemningin,
ákveðnin, grimmdin og hungrið í
liðinu með ólíkindum og þegar
allir leggjast á eitt og hafa trú á
verkefninu er uppskeran ríkuleg
líkt og í gær. Eins og oft hefur
verið sagt getur þetta lið unnið öll
lið en tapað fyrir flestum líka.
Guðmundur Guðmundsson á
skilið mikið klapp á bakið. Hann
hefur unnið frábærlega með þetta
lið og gert á því breytingar sem
virka. Hann tók að sér starfið
þegar aðrir annað hvort gátu ekki,
vildu ekki eða þorðu ekki í slag-
inn. Guðmundur er því aftur á leið
á Ólympíuleika og ég er sannfærð-
ur um að honum á eftir að takast
betur upp með liðið nú en síðast.
Endanlega mokað yfir Svíagrýluna
Strákarnir okkar eru á leið á Ólympíuleikana í Peking eftir stórkostlegan sigur á Svíum, 29-25, í Wroclaw í
gær. Frábær varnarleikur og mögnuð markvarsla skópu sanngjarnan og sannfærandi sigur.
HANDBOLTI Hreiðar Guðmundsson
átti hreint út sagt magnaðan leik í
gær og hélt liðinu nánast á floti á
erfiðum köflum.
„Ég er mjög sáttur við mína
frammistöðu. Ég hugsaði bara
þegar tólf mínútur voru eftir að ef
ég myndi taka nokkra bolta núna
þá værum við með þennan leik og
á leiðinni til Peking. Mikilvægasti
hlutinn hjá markverði er að halda
haus undir lokin og taka boltana
sem skipta mestu máli,“ sagði
Hreiðar en hann gat vart komið
orðum að því hvernig það væri að
vera á leið til Kína.
„Tilfinningin er eiginlega bara
rugl. Ég veit ekki hvað ég á að
segja. Ég var á blaðamannafundi
áðan og átti bara erfitt með mig.
Fór nánast að gráta. Þetta er alveg
geggjað,“ sagði Hreiðar. - hbg
Hreiðar Levý Guðmundsson, hetja íslenska liðsins:
Fór næstum að gráta
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson
var hrókur alls fagnaðar eftir
leikinn og sló á nokkuð létta
strengi þegar blaðamaður náði
loksins í skottið á honum.
„Ég vil fá Pálma Rafn í lands-
liðið. Hann er hreyfanlegur og
að taka menn til sín. Les leikinn
vel og við þurfum á slíku að
halda. Ég vil því fá Pálma Rafn
í landsliðið fyrst Hlynur
Bæringsson ætlar ekki að
koma,“ sagði Ólafur en frægt er
þegar hann hringdi í Hlyn á
sínum tíma og viðraði við hann
þá hugmynd að koma í hand-
bolta og eiga um leið möguleika
á að komast á Ólympíuleika
með landsliðinu.
„Fyrir fjórum árum var ég
sár með níunda sætið á Ólympíu-
leikunum því ég taldi okkur
geta gert betur. Ég ætlaði jafn-
vel að hætta og sagðist ekki
ætla að vera með í Túnis. Ég var
líka ekkert með í Túnis; það var
einhver gaur þarna sem líktist
mér en það var ekki ég.
Fyrirgefðu Viggó, en ég
mætti til Sviss og síðan hef ég
haldið mér í góðu formi og verið
mikið að hugsa um Peking í eitt
ár. Hef verið minna að hugsa
um litlu firmamótin eins og
Meistaradeildina og svona. Ég
er kominn þangað núna og ég
kem ekki til Guðmundar aftur
fyrr en á fimmtudaginn. Ég
kannski verð í Magdeburg með
liðinu en ég verð samt ekki þar,“
sagði Ólafur og hljóp í gleðina
með félögum sínum. - hbg
Landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson gantaðist og lék á alls oddi eftir leikinn:
Vil fá Pálma Rafn í landsliðið
UNDANKEPPNI ÓL
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
skrifar frá Póllandi
henry@frettabladid.is
HETJAN Hreiðar Levý Guðmundsson átti stórleik gegn Svíum og varði alls tuttugu
skot. Hér fagnar maður leiksins í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
LÉTTUR Ólafur Stefánsson tók af skarið
á mikilvægum tímapunktum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
EITT AF 20 Hreiðar Levý ver einn bolta í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
HANDBOLTI Sigfús Sigurðsson
mætti til blaðamanns íklæddur
íslenska fánanum og ljómaði eins
og lítið barn á afmælisdeginum
sínum.
„Það var bara sigur eða dauði.
Við Vignir fundum okkur vel í
vörninni, Hreiðar var frábær á
bak við okkur. Við sýndum í
þessum leik að þegar við spilum
eins og lið og erum á fullu allan
leikinn á ekkert lið möguleika í
okkur,“ sagði Sigfús, sem vildi
þakka öllum í kringum liðið, sem
og íslensku þjóðinni.
„Í svona leik þá erum við
fulltrúar þjóðarinnar og ég vil
þakka þjóðinni fyrir að gefa
okkur þennan kraft í dag sem við
fundum fyrir. Takk fyrir það
kærlega og ég segi bara: Peking,
hér komum við,“ sagði Sigfús
kátur. - hbg
Sigfús Sigurðsson lék vel:
Þjóðin gaf
okkur kraft
SIGURKOSS Sigfús Sigurðsson gefur
Ólafi Stefánssyni sigurkoss eftir leikinn í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC