Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 54
22 2. júní 2008 MÁNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
14
12
14
7
SEX AND THE CITY kl. 5.15- 8 - 10.45
INDIANA JONES 4 kl. 5.40 - 8 - 10.20
14
12
SEX AND THE CITY kl. 5 - 8 - 10.50
SEX AND THE CITY LÚXUS kl. 8 - 10.50
INDIANA JONES 4 DOLBY DIGITAL kl. 5.20 - 8 - 10.40
INDIANA JONES 4 LÚXUS DOLBY D kl. 5.20
PROM NIGHT kl. 6 - 8 - 10
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.45 - 8 - 10.15
SUPERHERO MOVIE kl. 4
BUBBI BYGGIR Í VILLTA VESTRINU kl. 3.50
HORTON kl. 3.50 ÍSLENSKT TAL
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
14
12
14
7
SEX AND THE CITY kl. 7 - 10
INDIANA JONES 4 kl. 6 - 8.30 - 11
PROM NIGHT kl. 6 - 8 - 10
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 5.45 - 8 - 10.15
5%
SÍMI 551 9000
12
7
12
7
FORBIDDEN KINGDOM kl.5.30 - 8 -10.30
KICKIN ÍT OLD SKOOL kl.5.40 - 8 -10.20
HAROLD & KUMAR ESCAPE FROM GB kl.5.45 - 8 - 10.15
MADE OF HONOUR kl. 8 - 10.10
BRÚÐGUMINN kl. 6 ENSKUR TEXTI
SÍMI 530 1919
TILBOÐSVERÐ
GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR
MERKTAR MEÐ RAUÐU
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 12
HAROLD AND KUMAR 2 kl. 8 12
WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 10:10 L
SEX AND THE CITY kl. 8 - 10:45 14
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 12
FORBIDDEN KINGDOM kl. 8 - 10:10 16
NIM´S ISLAND kl. 8 12
NEVER BACK DOWN kl. 10:10 12
FORBIDDEN KINGDOM kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
INDIANA JONES 4 kl. 5:30 - 8D - 10:40D 12
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:40 VIP
LOVE IN TIME OF CHOLERA kl. 8 7
NEVER BACK DOWN kl. 10:40 14
NIM´S ISLAND kl. 5:30 L
IRON MAN kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
VALLEY OF ELAH síð. sinn kl. 8 16
THE HUNTING PARTY síð. sinn kl. 10:40 12
U2 3D síð. sinn kl. 6/3D L
SEX AND THE CITY kl. 5 - 8 - 10:50 14
INDIANA JONES 4 kl. 6:30D - 9D - 11:30D 12
NEVER BACK DOWN kl. 11:30 14
IRON MAN kl. 6:30 - 9 12
DIGITAL
3-D DIGITAL
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SEX AND THE CITY kl. 3, 6 og 9 14
INDIANA JONES 4 kl. 4.30, 7 og 10 12
HAROLD & KUMAR 2 kl. 8 12
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 6 12
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 4 7
1/2
SV MBL
- V.J.V., Topp5.is / FBL- Þ.Þ., DV
- J.I.S., film.is
STEL
PUR
NAR
ERU
MÆ
TTA
R Á
HVÍT
ATJA
LDIÐ
Hljómsveitin Dátar er fræg fyrir
smellinn Gvendur á eyrinni, en
ekki síður fyrir örlög hljómsveit-
armeðlima. Af þeim sex sem störf-
uðu í bandinu er aðeins einn á lífi í
dag, bassaleikarinn Jón Pétur
Jónsson, sem býr í útlöndum. Þrír
Dátar styttu sér aldur, einn lést í
bílslysi og einn lést úr krabba-
meini.
Perla Svandís Hilmarsdóttir er
dóttir gítarleikarans Hilmars
Karlssonar og hefur hún nú sett
upp netsíðu tileinkaða hljómsveit-
inni á datar.blog.is.
„Mér hefur fundist sem umfjöll-
unin um Dáta hafi verið frekar
neikvæð og ég vildi bara gera eitt-
hvað gott fyrir hljómsveitina og
minningu pabba míns,“ segir
Perla. „Ég var reyndar bara níu
ára þegar hann lést svo ég á ekki
margar minningar sjálf.“
Áður óbirtar myndir af hljóm-
sveitinni í leik og starfi má sjá á
síðunni. „Þetta er hægt og rólega
að koma hjá mér. Ég bæti við eins
og ég hef tíma til. Það eru til miklu
fleiri ljósmyndir og ég set þær inn
smátt og smátt. Hljómsveitin gaf
bara út átta lög en ég veit um konu
sem á heimaupptökur með hljóm-
sveitinni. Það er aldrei að vita
nema það efni verði líka aðgengi-
legt á síðunni. Ég vildi gjarnan fá
fleiri komment frá þeim lesendum
sem muna eftir bandinu,“ segir
Perla að lokum. - glh
Minnist Dátans, pabba síns
MINNIST PABBA SÍNS MEÐ NETSÍÐU
Perla Svandís er dóttir Hilmars Karlsson-
ar, fyrsta gítarleikara Dáta.
EIN AF ÁÐUR ÓBIRTUM MYNDUM AF
DÁTUM Hilmar, Jón Pétur og Rúnar
Gunnarsson taka lagið í Aðalstræti sirka
1966.
Um síðustu helgi birtist viðtal við
Margréti Árnadóttur, hönnuð
prjónalínunnar M-Design.
Ermaslár hennar hafa notið
mikilla vinsælda síðastliðna
mánuði og selst afar vel. Vitlaus
mynd var birt af Margréti með
greininni, þar sem hún klæddist
annarri flík, en hér má sjá hana í
ermaslánni vinsælu.
Ermasláin
vinsæla
MARGRÉT ÁRNADÓTTIR Ermaslár Mar-
grétar hafa selst eins og heitar lummur.
Whitney Houston ku
áforma að syngja
dúett með bresku X-
factor-söngkonunni
Leonu Lewis.
Houston áformar nú
endurkomu í tónlistar-
heiminn, eftir að hafa
verið fjarverandi
árum saman á meðan
hún tókst á við eitur-
lyfjavanda sinn, og
sendir meðal annars
frá sér plötu síðar á
árinu. Til þess að
kynda enn undir
áhuga aðdáenda
vill Clive Davis,
lærifaðir henn-
ar og leiðbein-
andi, að Hous-
ton syngi með
Lewis.
Frá því að
Leona vann
X-factor í
Bretlandi
fyrir
tveimur
árum hefur frægðar-
stjarna hennar farið
rísandi, og það á
miklum hraða. Smá-
skífa hennar, Bleed-
ing Love, hefur geyst
upp vinsældalista
bæði vestanhafs og
austan, sem hefur
orðið til þess að henni
hefur verið líkt við
söngdívur á borð
við Houston
sjálfa og
Mariuh Carey.
Dúett með Leonu
SYNGUR MEÐ
NÆSTU WHITNEY
Whitney Houston
hyggst syngja dúett
með Leonu Lewis,
sem einmitt hefur
verið kölluð næsta
Whitney Houston.
Það er ekki oft sem afrískar hljóm-
sveitir spila í Reykjavík, en miðað
við aðsóknina á tónleika Super
Mama Djombo á Listahátíð þá
mætti það gerast oftar. Uppselt
var á tónleikana á föstudagskvöld-
ið og salurinn á Nasa orðinn pakk-
fullur þegar hljómsveitin steig á
svið nokkrar mínútur yfir tíu.
Super Mama Djombo var skipuð
tólf meðlimum á föstudagskvöld-
ið, fjórum söngvurum (tveimur
körlum og tveimur konum), tveim-
ur gítarleikurum, tveimur
saxófónleikurum, bassaleikara,
trommuleikara, ásláttarhljóð-
færaleikara, og hljómborðsleik-
ara. Tónlist sveitarinnar er létt-
leikandi og dansvænt gumbe, en
það orð er notað yfir það sérstaka
sambland af þjóðlegri gíneskri
tónlist og kreól sem sveitin spilar.
Inn á milli koma svo rólegri lög
þar sem áhrifa gætir frá annarri
tónlist, til dæmis blús, kúbanskri
og portúgalskri tónlist.
Það var mikil stemning strax frá
byrjun á tónleikunum á Nasa og
greinilegt að tónleikagestir voru
komnir til að skemmta sér. Margir
dönsuðu, klöppuðu og sveifluðu
sér í takt við tónlistina og sá hópur
fór stækkandi eftir því sem leið á
kvöldið. Hljómsveitin spilaði mikið
af efni af nýju plötunni, Ar Puro,
en líka gamla gumbe-smelli frá
fyrri tíma. Á meðal eftirminni-
legra laga sem sveitin tók má
nefna Alma, N’Tchintche og lagið
No Festa, en í því söng Egill Ólafs-
son með sveitinni. Hann tók með
henni annað lag, negrasálminn
Swing Low, Sweet Chariot sem
fluttur var í hálfgerðri reggíút-
gáfu. Hljómsveitin spilaði látlaust
í tæpa tvo tíma og endaði á magn-
aðri útgáfu af laginu Tchatcha Li
Tchatcha af nýju plötunni. Þegar
þarna var komið var stemningin
orðin gríðarleg og allt á suðu-
punkti. Sveitin fékk afhenta blóm-
vendi og þakkaði fyrir sig og hvatti
gesti til að koma aftur kvöldið á
eftir, en fagnaðarlætin voru slík að
hún kom aftur á svið og spilaði í
hálftíma í viðbót. Í þeim hluta voru
meðlimir allir kynntir og líka
helstu aðstandendur sem voru í
salnum, til dæmis hljómsveitar-
stjórinn og lagasmiðurinn Adriano
Atchutchi, viðskiptaráðherra
Gíneu og „Ar Puro sjálfur“ Hreinn
Loftsson sem hefur unnið mikið
fyrir sveitina. Ar Puro þýðir að
sjálfsögðu „hreint loft“.
Á heildina litið voru þetta mjög
skemmtilegir tónleikar. Margir
hljóðfæraleikaranna sýndu snilld-
artakta, til dæmis trommuleikar-
inn Zé Manuel og bassaleikarinn
Valdir Delgado. Gítarleikararnir
tveir gerðu líka mjög góða hluti.
Af söngvurunum var ég hrifnast-
ur af söngkonunni Dulce Neves.
Hún er búin að vera í sveitinni
síðan á áttunda áratugnum og
hefur einstaklega bjarta og sér-
staka rödd. Best var sveitin í hrað-
ari gumbe-lögunum. Þar náði
stemningin líka hámarki. Það er
greinilegt að sveitin hefur fengið
góða tilsögn í íslensku poppara-
máli. Framburðurinn á „Takk
fyrir“, „Klappa“ og „Eru ekki allir
í stuði“ var óaðfinnanlegur.
Trausti Júlíusson
Rífandi stuð hjá Super Mama
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Super Mama Djombo á Nasa
Vestur-afríska stórsveitin Super
Mama Djombo gerði allt vitlaust
á Nasa á föstudagskvöldið á stór-
skemmtilegum tónleikum.
★★★★