Fréttablaðið - 02.06.2008, Síða 59
MÁNUDAGUR 2. júní 2008 27
Akranesvöllur, áhorf.: 1082
ÍA Fylkir
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–11 (3–4)
Varin skot Esben 1 – Fjalar 1
Horn 4–7
Aukaspyrnur fengnar 14–18
Rangstöður 1–1
FYLKIR 4–5–1
Fjalar Þorgeirsson 6
Andrés Már Jóhannes. 7
Kristján Valdimarsson 7
*Valur Fannars. 8
Þórir Hannesson 6
Peter Gravesen 6
Guðni Rúnar Helgas. 7
Ian Jeffs 6
Ólafur Skúlason 6
(46. Allan Dyring 6)
Halldór Hilmisson 5
Jóhann Þórhallsson 6
*Maður leiksins
ÍA 4–4–2
Esben Madsen 6
Heimir Einarsson 6
Árni Thor Guðmund. 6
Dario Cingel 7
Guðjón Heiðar Sveins. 5
Þórður Guðjónsson 5
(83., Andri Júlíusson -)
Helgi Pétur Magnús. 6
Bjarni Guðjónsson 6
Jón Vilhelm Ákason 5
Björn Bergmann 6
Vjekoslav Svadumovic 6
0-1 Ian Jeffs (6.)
1-1 Björn Bergmann Sigurðars. (25.)
1-2 Peter Gravesen (29.)
1-3 Guðni Rúnar Helgason (65.)
2-3 Vjekoslav Svadumovic (67.)
2-3
Kristinn Jakobsson (8)
Valbjarnarvöllur, áhorf.: 550
Þróttur Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–10 (7–7)
Varin skot Bjarki Freyr 4 – Ómar 4
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 10–14
Rangstöður 3–3
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 5
Guðjón Árni Anton. 6
Guðm. Viðar Mete 5
Kenneth Gusafsson 5
Nicolaj Jörgensen 4
(71., Hörður Sveins -)
Hólmar Örn Rúnarss. 6
Hans Yoo Mathiesen 5
(88. Jón Gunnar -)
Hallgrímur Jónasson 6
Símun Samuelsen 4
Patrik Ted Redo 6
Guðm. Steinarsson 5
(80. Þórarinn Kristj. -)
*Maður leiksins
ÞRÓTTUR 4–5–1
Bjarki Freyr Guðm. 5
Eysteinn Lárusson 5
(72., Jón Ragnar -)
Þórður Hreiðarsson 7
Michael Jackson 7
Kristján Ómar Björn. 7
Rafn Andri Haralds. 7
Dennis Danry 7
Hallur Hallsson 6
Haukur Páll Sigurðss. 7
(77., Magnús Már -)
Adolf Sveinsson 7
Ismael Silva 4
(56. *Hjörtur Hj. 8)
1-0 Michael Jackson (17.)
1-1 Guðjón Árni Antoníusson (31.)
2-1 Adolf Sveinsson (76.)
3-1 Hjörtur Júlíus Hjartarson (85.)
3-2 Hólmar Örn Rúnarsson (87.)
3-2
Örvar Sær Gíslason (8)
FÓTBOLTI Fjölnir hafði aðeins
tapað einum heimaleik af síðustu
átján í báðum deildum en nýlið-
arnir lágu í valnum gegn Blikum
í gær. Mikið rok setti sterkan
svip á leikinn en Blikar leiddu
verðskuldað í hálfleik. Þeir voru
fyrri til að átta sig á vindinum,
sem þeir spiluðu á móti í fyrri
hálfleik, og Prince Rajcomar
skoraði með hárnákvæmu skoti
snemma leiks.
Sóknarleikur Fjölnis bar lítinn
árangur, langspyrnur þeirra fóru
þvers og kruss um völlinn í vind-
inum. Þeir ógnuðu Blikamarkinu
lítið sem ekkert á meðan Rajcomar
var síógnandi hinum megin.
Blikar voru grimmari og mun
skynsamari í rokinu. Leikurinn
var þó ekki mikið fyrir augað
enda aðstæður afar erfiðar.
Árni Kristinn Gunnarsson
skoraði gull af marki þegar hann
smellti boltanum í samskeytin
utan vítateigs snemma í síðari
hálfleik en Fjölnismenn komust
lítt áfram. Þegar Ómar og Eyþór
Atli komu inn lifnaði þó yfir
heimamönnum og sá fyrrnefndi
skoraði gott mark skömmu eftir
að hann kom inn á.
Það var skammgóður vermir
og aðeins í stutta stund ógnuðu
heimamenn. Þeir héldu boltanum
illa og ógnuðu lítið. Blikar áttu
fína spretti undir lokin og fóru að
lokum með 2-1 sigur af hólmi.
Ásmundi Arnarssyni, þjálfara
Fjölnis, fannst sigur Blika sann-
gjarn. „Þeir voru grimmari og ég
er helst ósáttur með baráttuand-
ann og vinnsluna í mínu liði. Við
vorum of lengi á boltanum og
þeir bara átu okkur. Blikarnir
voru þéttir og vel skipulagðir,“
sagði Ásmundur.
Markaskorarinn Árni Kristinn
Gunnarsson var skælbrosandi
eftir leik. „Hefurðu einhvern
tíman séð svona flott mark?“
spurði Árni glettinn og glaðbeitt-
ur eftir leik. „Ég hef bara skorað
svona mörk á æfingum en ég fann
auðvitað vindinn með mér og
ákvað því að láta vaða,“ sagði
Árni, sem er réttfættur en skoraði
með vinstri fæti. „Ég hef alltaf
verið talinn jafnfættur.“ Honum
fannst sigurinn sanngjarn.
„Við spiluðum skynsamlega í
fyrri hálfleik og þeim gekk mjög
erfiðlega að senda þessar löngu
sendingar. Þeir komust ekki
nálægt markinu í fyrri hálfleik
en við féllum aðeins of langt frá
mönnum í þeim síðari. Heilt yfir
var þetta sanngjarnt og við
vorum eðlilega ákveðnir í að
koma sterkir til baka eftir
skellinn heima síðast,“ sagði
Árni. - hþh
Breiðablik hirti öll stigin í rokinu á Fjölnisvelli í Landsbankadeild karla í gær:
Skynsamir Blikar sóttu öll stigin
FRÁBÆRT MARK Árni Kristinn Gunn-
arsson skoraði frábært mark í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fylkir er nú í vænlegri
stöðu í Landsbankadeild karla
eftir að hafa unnið sinn þriðja
sigur í röð í miklum rokleik gegn
ÍA í gær. Alls voru fimm mörk
skoruð í leiknum og spilaði vindur-
inn vissulega stórt hlutverk í
minnst einu þeirra. Skagamenn
sóttu stíft í lokin en tókst ekki að
jafna metin og fögnuðu Fylkis-
menn 3-2 sigri.
Gestirnir byrjuðu að spila
undan vindinum í fyrri hálfleik.
Það hafði sitt að segja strax á
sjöttu mínútu er Ian Jeffs skoraði
með föstu skoti beint úr auka-
spyrnu. Fylkismenn stjórnuðu
leiknum fyrsta stundarfjórðung-
inn en eftir það fóru Skagamenn
að eflast eftir því sem þeir vönd-
ust aðstæðunum. Þeir áttu nokkr-
ar ágætar sóknir en jöfnunar-
markið kom einnig eftir
aukaspyrnu.
Aftur kom vindurinn við sögu í
öðru marki Fylkis því Peter
Gravesen skoraði beint úr horn-
spyrnu á 29. mínútu.
Síðari hálfleikur byrjaði frekar
rólega en hvorugu liði tókst að
sækja að einhverju ráði. Það kom
flestum á óvart að það voru Fylkis-
menn sem voru fyrri til að skora í
síðari hálfleik. Stuttu síðar minnk-
aði þó ÍA muninn. Skagamenn
gerðust aðgangsharðir við mark
Fylkis eftir þetta en án þess þó að
ná að jafna leikinn.
„Við getum ekki ætlast til þess
að vinna ef við gefum andstæð-
ingnum tvö mörk,“ sagði Bjarni
Guðjónsson, fyrirliði ÍA, eftir
leik. Hann segir að vindurinn hafi
ekki skipt miklu máli í leiknum.
„Þeir voru með vindinn í bakið í
fyrri hálfleik og við í þeim síðari
og það er því engin afsökun. En
þetta var ekki sanngjarn sigur hjá
þeim því mér fannst við þola það
betur að spila á móti vindinum.
Við fengum líka fleiri færi, en
þeir skoruðu fleiri mörk og það er
það sem telur.“ Bjarni hefur engar
áhyggjur af gengi ÍA. „Nei, alls
engar. Við eigum heilmikið inni.“
Valur Fannar Gíslason, leik-
maður Fylkis, var vitanlega
kampakátur með sigurinn. „Þessi
leikur snerist um allt annað en
fótbolta en við höfðum þetta. Við
börðumst og vorum skipulagðir
við erfiðar aðstæður,“ sagði Valur.
„Ég held að okkur hafi langað
meira í sigurinn og það er auðvit-
að algjör snilld að hafa unnið þrjá
leiki í röð.“ - esá
Fylkir vann sinn þriðja leik í röð í gær en Skagamenn töpuðu sínum fyrsta leik á heimavelli í sumar:
Fylkir hafði betur í rokinu á Skipaskaga
ENN EITT MARKIÐ ÚR HORNI Boltinn sést hér kominn í net Skagamanna eftir horn frá
Peter Gravesen. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
FÓTBOLTI Nýliðar Þróttar gerðu sér
lítið fyrir og lögðu topplið Kefla-
víkur að velli, 3-2, á Valbjarnar-
velli í gærkvöld.
Leikurinn fór rólega af stað og
leikmenn liðanna tóku sér sinn
tíma í að átta sig á erfiðum
aðstæðum í miklum vindi á Val-
bjarnarvelli. Heimamenn skor-
uðu fyrsta mark leiksins þegar
rúmur stundarfjórðungur var lið-
inn af leiknum. Michael David
Jackson átti þá þrumuskot neðst í
hægra markhornið eftir frábær-
an undirbúning Rafns Andra Har-
aldssonar.
Keflvíkingar voru þó ekki af
baki dottnir og náðu að jafna
metin eftir rúman hálftíma með
smá hjálp frá veðurguðunum.
Guðmundur Steinarsson átti þá
háa sendingu frá hægri kantinum
sem Bjarki Freyr Guðmundsson
markvörður misreiknaði og bolt-
inn barst fyrir fætur Keflvíkings-
ins Guðjóns Árna Antoníussonar
sem renndi boltanum yfir mark-
línuna af stuttu færi. Staðan var
jöfn, 1-1, í hálfleik.
Það dró svo til tíðinda á 75. mín-
útu þegar Þróttarinn Adolf Sveins-
son, fyrrverandi leikmaður Kefla-
víkur, komst einn inn fyrir vörn
Keflvíkinga eftir góða sendingu
frá varamanninum Hirti Hjartar-
syni. Adolf skoraði af öryggi og
við markið fengu Þróttarar byr í
seglin og börðust eins og ljón inni
á vellinum. Þeir komust svo í 3-1 á
85. mínútu þegar Hjörtur átti
skalla sem lak í hliðarnetið en
markvörðurinn Ómar Jóhannsson
og varnarmaðurinn Guðmundur
Viðar Mete voru í boltanum.
Hólmar Örn Rúnarsson minnk-
aði muninn fyrir Keflavík á 87.
mínútu en fékk svo að líta rauða
spjaldið fyrir harða tæklingu
stuttu síðar og ljóst að mótlætið
var farið að fara í taugarnar á
Keflvíkingum. Lokatölur urðu 3-
2 og Gunnar Oddsson, þjálfari
Þróttar, var ánægður með fyrsta
sigur liðs síns í Landsbankadeild-
inni í sumar.
„Við vorum þéttir, baráttu-
glaðir og duglegir og ég get ekki
verið annað en sáttur. Hungrið í
þessi þrjú stig gerði gæfumuninn
þegar allt kemur til alls,“ sagði
Gunnar kátur og markaskorarinn
Hjörtur Hjartarson var að sama
skapi ánægður.
„Ég var náttúrulega hundfúll
með að vera settur á bekkinn og
var harðákveðinn í að standa mig
og sýna að ég eigi heima í byrjun-
arliðinu,“ sagði Hjörtur.
Kristján Guðmundsson, þjálf-
ari Keflavíkur, var svekktur í
leikslok en hrósaði Þrótti fyrir
góðan leik.
„Ég er mjög óhress með mína
menn og mér fannst við einbeit-
ingarlausir og það vantaði eitt-
hvað upp á að við værum tilbúnir
að spila þennan leik og Þróttarar
voru einfaldlega hungraðri,“
sagði Kristján.
omar@frettabladid.is
Þróttarar voru hungraðri í sigur
Þróttur vann sinn fyrsta leik í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið sigraði topplið Keflavíkur sem var
að sama skapi að tapa sínum fyrstu stigum í sumar. Baráttuglaðir Þróttarar voru vel að sigrinum komnir.
GÓÐUR GEGN GÖMLU FÉLÖGUNUM Þróttarinn Adolf Sveinsson lék vel gegn sínum
gömlu félögum úr Keflavík og skoraði meðal annars annað mark Þróttarliðsins í
leiknum. FRÉTTABLADID/ANTON