Fréttablaðið - 04.07.2008, Side 51
FÖSTUDAGUR 4. júlí 2008 27
Einn af virtustu organistum Dana
um þessar mundir, Bine Katrine
Bryndorf, prófessor í orgelleik við
Konunglega Konservatoríið í Kaup-
mannahöfn og organisti við Vartov-
kirkju, kemur fram á tvennum tón-
leikum í Hallgrímskirkju nú um
helgina. Fyrst leikur hún á hádegis-
tónleikum á morgun kl. 12 og síðan
á kvöldtónleikum á sunnudag kl.
20.
Á hádegistónleikunum leikur
Bine Katrine Bryndorf verkið
L’Ascension eftir Olivier Messiaen.
Á þessu ári eru 100 ár síðan Messia-
en fæddist og þess vegna fær orgel-
tónlist eins af merkustu trúartón-
skáldum 20. aldarinnar aukið rými
á efnisskrám organista um allan
heim. Verkið hefur undirheitið fjór-
ar hugleiðingar fyrir hljómsveit
þar sem að Messiaen skrifaði það
fyrst sem hljómsveitarverk árið
1933 en umritaði það fyrir orgel ári
síðar. Verkið fjallar um uppstign-
inguna og tónskáldið valdi hverjum
kafla verksins ritningartexta. Þetta
verður í fyrsta skipti sem verkið er
flutt í heild sinni á tónleikum í Hall-
grímskirkju.
Efnisskrá sunnudagstónleikanna
er svo tvískipt. Í fyrri hlutanum
mynda fjögur verk eftir Johann
Sebastian Bach umgjörð um tvo
kafla úr L’Ascension eftir Olivier
Messiaen. Bach-verkin fjögur sem
um ræðir eru hvítasunnusálmurinn
Komm, heiliger Geist, Herre Gott,
altarisgöngusálmurinn Schmücke
dich, o liebe Seele og Tokkata og
fúga í F-dúr. Tokkatan er sérlega
áhrifamikil og einkennist af glæsi-
legum fótspilseinleik. Á síðari hluta
tónleikanna flytur Bryndorf Comm-
otio eftir danska tónskáldið Carl
Nielsen. Hann var vel að sér í verk-
um Buxtehudes og Bach og endur-
speglar Commotio það, því það
skiptist í frjálsa kafla og fúgur eins
og á dögum barokkmeistaranna. - vþ
Bine Katrine leikur á orgel
BINE KATRINE BRYNDORF Kemur fram á
tónleikum í Hallgrímskirkju um helgina.
Myndlistarsýning listamannsins
Ýmis stendur nú yfir í kjallara
Kaffi Hljómalindar að Laugavegi
23. Á sýningunni má sjá myndir
sem unnar eru upp úr fyrstu
breiðskífu hljómsveitarinnar
Slugs. Breiðskífan inniheldur ell-
efu lög og er hver mynd unnin
upp úr einu lagi þannig að
myndirnar eru einnig ellefu tals-
ins. Myndirnar á sýningunni eru
til sölu og eru verðlagðar eftir
nokkuð sniðugu og rökréttu kerfi;
fyrsta myndin kostar 1.000 kr.
önnur 2.000 kr. og svo framvegis,
þannig að síðasta myndin kostar
11.000 kr. Sýningin stendur til 12.
júlí. - vþ
Ýmis verk eftir Ými
Gallerí Íbíza Bunker slær hvergi
af í framkvæmdagleðinni. Þar
verður opnuð í dag kl. 17 samsýn-
ingin „aftur og aftur ... hring eftir
hring ...“. Á henni eiga verk lista-
mennirnir Anna Hrund Másdóttir
og Bergdís Hörn Guðvarðardóttir.
Þær stöllur eru nemar af öðru og
þriðja ári myndlistardeildar Lista-
háskóla Íslands. Anna og Bergdís
vinna meðal annars með bjarta og
sterka liti, form, endurtekningar,
vöxt, með stærðfræðilegar og líf-
rænar skírskotanir.
Á sýningunni ber að líta innsetn-
ingu þar sem þessir þættir taka á
leik saman í rýminu. Klukkan 18.00
mun lúðrasveitin Mokkasína spila
fyrir gesti.
Gallerí Íbíza Bunker er til húsa í
kjallaranum í Þingholtsstræti 31.
Allir eru velkomnir á opnunina. - vþ
Opnun í Íbíza Bunker
RAGNHEIÐUR KÁRADÓTTIR OG SIGRÍÐUR TULINIUS Þessar framtakssömu ungu
konur starfa við gallerírekstur í sumar.
Sumartónleikar við Mývatn hefja
sitt tuttugasta og annað starfsár
nú um helgina. Tónleikar verða á
laugardagskvöldum í Reykja-
hlíðar kirkju, en einnig verða tón-
leikar á fleiri stöðum í sveitinni.
Tónleikarnir standa flestir í um
eina klukkustund og er aðgangur
ókeypis.
Nýafstaðin er Kórastefnan við
Mývatn og því skyldi engan undra
að kórar eru í aðalhlutverki sumar-
tónleikaraðarinnar í þessari söng-
elsku sveit. Kórarnir eru sannar-
lega ekki af verra taginu heldur
glæsilegir fulltrúar kvenna og
karla; annars vegar íslenskar ung-
meyjar og hins vegar rússneskir
kuflsöngvarar sem munu gleðja
tónleikagesti í Þingeyjarsýslu.
Fyrst hljómar einn af kórum Jóns
Stefánssonar við Langholtskirkju,
Graduale Nobili, sem hefur hlotið
mikið lof og fjölmargar viðurkenn-
ingar, meðal annars tilnefningu
sem Bjartasta vonin 2008 hjá
Íslensku tónlistarverðlaununum.
Karlakór St. Basil-dómkirkjunnar
í Moskvu heimsækir Ísland í þriðja
sinn í ár. Kórinn sló í gegn á Lista-
hátíð 2004, og nú syngur hann í
annað sinn á Reykholtshátíð og svo
við Mývatn á tvennum tónleikum
26. júlí. Þessi karlakór býður jafnt
upp á hæstu og lægstu tóna sem
heyra má, auk óviðjafnanlegrar
rússneskrar karlakóratónlistar.
Fyrstu tónleikar raðarinnar fara
fram í Reykjahlíðarkirkju á morg-
un kl. 21. Þar mun Graduale Nobili
koma fram og gleðja eyru við-
staddra með fögrum söng. - vþ
Sumartónar við Mývatn
KARLAKÓR ST. BASIL-KIRKJUNNAR Í MOSKVU Tekur þátt í tónleikaröðinni Sumartónleikar við Mývatn.
Í kvöld verður bænastund í nafni
umburðarlyndis og kærleika í
Hljómskálagarðinum í Reykjavík.
Þetta er ekki hefðbundin bæna-
stund heldur er þetta bænastund
allra trúarbragða og er til hennar
stofnað að frumkvæði Snorra
Ásmundssonar myndlistarmanns.
Markmiðið er að fá sem flesta ein-
staklinga og hópa sem aðhyllast
mismunandi trúarbrögð til að taka
þátt í þessari sameiginlegu bæna-
stund. Bænastundin stendur yfir í
klukkutíma og hver og einn notar
sína aðferð við bænahaldið. Bæna-
haldið er öllum opið og er fólk ein-
dregið hvatt til að koma og taka
þátt í þessum atburði.
Snorri Ásmundsson myndlistar-
maður, sem undanfarin ár hefur
ferðast heimshorna á milli með
kærleikspíramídann sinn og beðið
fyrir ást og kærleik öllum til handa,
stendur fyrir þessum heimsvið-
burði. Snorri hefur undanfarin ár
lagt stund á gjörninga sem hafa
oftar en ekki beinst að helstu
feimnismálum almennings eins og
pólitík, kynlífi og trúmálum.
Borgarstjórnarframboð (Vinstri
hægri snú 2002), forsetaframboð
(2004), tilnefningar til heiðursborg-
ara og sala aflátsbréfa eru dæmi
um tiltektir hans. Hann hefur feng-
ist við að skoða viðbrögð umhverf-
isins, þ.e. viðbrögð fólks við því
þegar viðurkenndum gildum er
snúið á hvolf og þegar, annars valda-
laus, einstaklingur tekur sér vald
sem alla jafna er úthlutað eftir fyrir
fram gefnum reglum. - pbb
Bænastund í kvöld
MYNDLIST Snorri Ásmundsson
myndlistar maður.