Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 23
[ ]Lautarferðir eru tilvaldar um helgar ef veðrið er gott. Hægt er að fara til dæmis í Öskjuhlíðina eða Heiðmörk, fjölskyldan saman, borða góðan mat og eiga skemmtilega stund.
Muggur á Bíldudal
MÁLVERK EFTIR MUGG VERÐA TIL
SÝNIS Í GAMLA BARNASKÓLANUM
Á BÍLDUDAL FRÁ OG MEÐ MORG-
UNDEGINUM.
Listasýning með verkum eftir
Mugg verður opnuð á Bíldudal
laugardaginn 12. júlí. Sýnd verða
málverk eftir Guðmund Þorsteins-
son, þar á meðal olíumálverk,
pastel- og vatnslitamyndir,
teikningar og ljósmyndir. Sýningin
verður haldin í gamla barnaskól-
anum á Bíldudal og er opin frá
klukkan 11 til 17 alla daga. Henni
lýkur sunnudaginn 27. júlí.
- mþþ
Hjóladagur fjölskyldunnar,
Tour de Hvolsvöllur, í Rangár-
þingi eystra verður endurvak-
inn næstkomandi laugardag.
Hjólaferðin hefst klukkan tíu við
Kaffi Langbrók í Fljótshlíð og
verður hjólað að félagsheimilinu
Hvoli. Hjólað verður eftir götunni
í fylgd lögreglunnar hluta vegar.
Reiknað er með að ferðin taki um
klukkutíma.
„Við erum í raun og veru að end-
urvekja gamla hefð,“ segir Þuríð-
ur Aradóttir, markaðs- og kynn-
ingarfulltrúi Rangárþings eystra.
„Það var árlega hjóladagur hérna.
Svo óx það og óx og þetta var orðið
heilt maraþon að lokum,“ segir
Þuríður og bætir við að þá hafi
farið að draga úr þátttöku hins
almenna borgara.
Að sögn Þuríðar er með þessari
hjólaferð verið að efla hreyfingu
og útivist. „Við erum að reyna að
hvetja til þess að fólk fari út að
hjóla,“ segir hún og bætir við að
hjálmanotkun sé skylda í ferð-
inni. - mmf
Tour de Hvolsvöllur
Hjólaferðin mun efla hreyfingu og
útivist. Mynd úr safni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kassagítarar verða áberandi á Húnavökunni
sem haldin er á Blönduósi nú um helgina.
„Við ætlum að slá Íslandsmet í kassagítarspili í
brekkusöng á laugardagskvöld og æfingar standa
yfir í öllum hornum. Felix Bergsson er gamall
Blönduósingur og hann ætlar að halda utan um þann
þátt en hátíðin byrjar í kvöld í íþróttahúsinu með
úrslitum í dægurlagakeppni sem efnt var til vegna
20 ára afmælis Blönduósbæjar. Þar stíga ýmsar
stjörnur á svið og geisladiskur er kominn út með
úrslitalögunum. Hann nefnist Vökulögin 2008.“ Þetta
segir Hulda Birna Baldursdóttir sem skipulagt
hefur Húnavökuna ásamt manni sínum, Einari Erni
Jónssyni.
Hátíðin er haldin nú í þriðja sinn að sumri til á
vegum Blönduósbæjar og þau hjón hafa haldið utan
um hana frá byrjun. Á morgun verður fjölskyldu-
skemmtun og meðal atriða er Idol-keppni barna sem
nefnist Míkró-húnninn. Gunni og Felix og Mercedes
Club leggja sitt af mörkum að sögn Huldu Birnu og
hún nefnir líka þrenna tónleika í kirkjunni, Blöndu-
hlaup og stuðdansleik með Sálinni hans Jóns míns.
Hinn íslenska safnadag ber upp á 13. júlí og frá kl.
14 á sunnudag verður dagskrá í Heimilisiðnaðar-
safninu. Þar verður kembt og spunnið, heklað,
gimbað, ofið og knipplað og gestum gefst kostur á að
spreyta sig við hin margvíslegu handbrögð. Félagar
úr Harmonikkuklúbbnum verða í safninu og taka í
nikkuna.
Húnavaka á sér langa sögu á Blönduósi sem menn-
ingarhátíð að vori til. Hún lagðist af fyrir um 20
árum en hefur nú verið endurvakin með þessum
hætti. - gun
Spilað og sungið á Húnavöku
Margt er til skemmtunar á Húnavökunni fyrir alla aldurshópa.
MYND/JÓN.SIG.
2360 MCP hvitt vesti stort 3x15.ai 6/24/08 2:45:37 PM
Útsalan
hefst í dag
30-50%
afsláttur
Taktu hjólið með
- settu það á toppinn.
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri
Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
Allar upplýsingar um er að finna á
vef Stillingar www.stilling.is
THULE ProRide 591
Einfaldar og stílhreinar hjólafestingar.
Auðveldar í notkun.
THULE OutRide 561
Fyrir þá sem eru vanir. Hjólið fest í framgaflinum.
Auglýsingasími
– Mest lesið