Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 30
fatastíllinn
Margrét Rós Sigurjónsdóttir háskólanemi
Margrét Rós hefur kvenlegan
og elegant fatastíl hvort sem
hún er í skvísufötum eða í flís-
peysu. Hún á ekki langt að
sækja það því móðir hennar er
Björg Ingadóttir, fatahönnuð-
ur í Spaksmannsspjörum.
Fyrir hverju fellur þú alltaf?
„Fötunum í Spaksmannsspjör-
um sem ég hef notað síðan ég
var 11 ára. Ég er enn þá að
blanda elstu flíkunum saman
við það nýjasta.“
Af hverju áttu mest í fataskápn-
um? „90% af fötunum mínum
eru úr Spaksmannsspjörum og
eru fylgihlutir nokkuð áber-
andi, enda getur góður fylgi-
hlutur gert kraftaverk.“
Hvað eyðir þú miklum pen-
ingum í föt á mánuði? „No
comment!“
Hefur þú alltaf haft
gaman af fötum? „Já,
mamma leyfði mér
að ráða hvernig ég
setti fötin mín saman
þegar ég var krakki
og var ég oft mjög
skrautleg. Ég kláraði
þetta tímabil um
10 ára aldurinn
og hef upp frá því
verið frekar smart
til fara.“
Áttu einhverja tísku-
fyrirmynd? „Maður
lítur auðvitað upp
til flottra kvenna eins og
Madonnu og mömmu. Konur
sem kunna að endurnýja stíl-
inn sinn en samt er alltaf ein-
hver rauður þráður í gegn-
um allt sem gerir þær að þeim
sem þær eru – svalar og þær
sjálfar.“
Uppáhaldsefn-
ið? „Öll ekta efni
hvort sem þau eru
ný eða slitin.“
Uppáhaldsverslun-
in? „Spaksmanns-
spjarir.“
Uppáhaldshönnuðurinn?
„Björg og Vala í Spaksmanns-
spjörum, Stella McCartney og
Balenciaga.“
Hvernig er uppáhaldslitapall-
ettan þín? „Þegar ég ætla að
vera töff og sexí klæðist ég
svörtu með rauðum varalit.
Þegar ég ætla að vera klár og
elegant fer ég í náttúruliti og
þegar ég er sjúskuð og þreytt
heima fer ég í skæra liti svo
ég týnist ekki.“
Þegar þú horfir til baka, hvaða
tískutímabil myndir þú ekki vilja
ganga í gegnum aftur? „Aldrei
aftur tark-buxur!“
Hvernig er heimadress-
ið þitt? „Joe Boxer-náttbux-
ur og skærlitir hlýrabolir sem
hressa mig við þegar ég er
ómáluð.“
Hvað dreymir þig um að eign-
ast núna? „Mig vantar flott
útivistarföt.“
Hvaða flík gerir öll föt að
skvísufötum? „Engin sérstök
flík heldur nóg af sjálfsör-
yggi.“
martamaria@365.is
1. Í kjól úr H&M, skóm frá Dr. Martins með kraga, grifflur, vesti og blóm frá Spaksmanns-
spjörum. 2. Í samfestingi frá Spaksmannsspjörum. 3. Taska frá Sonia Rykel sem Margrét
Rós keypti í París. 4. Belti og hálsfestar frá Spaksmannsspjörum. 5. Trefill með kristöllum
frá Spaksmannsspjörum. 6. Vesti og buxur úr Spaksmannsspjörum. Skór úr Zöru. 7. Það
er nauðsynlegt fyrir allar prinsessur að eiga svefngrímur. Þessi er úr smiðju Spaksmanns-
spjara. 8. Skór frá Sport Max úr Max Mara-versluninni. 9. Þessi jakki er úr Spaksmanns-
spjörum. 10. Bolur frá Spaksmannsspjörum. 11. Ullarvesti úr Spaksmannsspjörum.
1
6
Nóg sjálfsöryggi gerir
öll föt að skvísufötum
10
11
9
2
8
5
7
4
3
F
Ö
S
T
U
D
A
G
U
R
/V
A
L
L
I
6 • FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008