Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 33
borgin mín ÓSLÓ
KJARTAN HENRY FINNBOGASON knattspyrnumaður
MORGUNMATURINN:
Ég fæ mér alltaf kanilbollur á Statoil-bensín-
stöðvunum. Þær eru alltaf heitar og fínar og
mjög góðar með kókómjólk. Statoil er líka
stærsta bensínstöðvakeðjan hérna svo það
er alltaf auðvelt að nálgast bollurnar.
SKYNDIBITINN:
Það er virkilega góður hamborgarastaður hér
sem er svolítið eins og Hamborgarabúllan
á Íslandi. Ég man nú ekki alveg hvað hann
heitir, en hann er á götu sem heitir Bogstad-
veien og er svolítið eins og Skólavörðustíg-
urinn. Gatan liggur niður að Karl Jóhann-göt-
unni, sem er nokkurs konar Laugavegur. Á
Bogstadveien eru langflottustu búðirnar og
kaffihúsin svo búllan er á góðum stað.
RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA:
Það er staður sem við fórum á í fyrsta skipti
nýlega sem var bara nokkuð rómó. Hann
heitir Liborus, og var alveg rosalega góður.
Þriggja rétta máltíð með góðri steik virkaði
vel. Þarna er samt ekkert sérstakt matar-
þema og hægt að fá alls konar mat.
LÍKAMSRÆKTIN:
Ósló er ekkert svo ósvipuð Kaupmannahöfn,
það eru hjólaleigur hér og þar og mjög gott að
hjóla um. Maður kynnist líka borgum á annan
hátt þegar maður hjólar um þær. Annars er ég
ekkert mikið í líkamsrækt fyrir utan æfingar.
UPPÁHALDSVERSLUNIN:
Það eru tvær búðir sem berjast um það, og
þær eru báðar á Bogstadveien. Sú fyrri heitir
Volt, hún er reyndar líka á Karl Jóhann-göt-
unni, og svo er rosalega flott Tiger of Swed-
en-búð neðst á Bogstadveien.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ:
Ég myndi segja Frognerparken. Það er svona
eins og Hljómskálagarðurinn sinnum fimmt-
án. Þar erum við búin að vera mikið í góða
veðrinu, kaupum einnota grill og pulsur og
svona og liggjum á teppum í steikjandi hita.
Þar er fullt af fólki og við erum búin að eyða
mjög miklum tíma þar.
BEST VIÐ BORGINA:
Mér líður alltaf rosalega vel í þessari borg
og finnst hún mjög notaleg. Fyrir mig er það
besta að hafa fullt af Íslendingum og góðum
vinum í borginni. Það skiptir öllu máli.
sneri að sviðsframkomunni svo
þetta var frekar mikið stress,“
segir Rebekka og minnist þess að
hafa fengið hálfgert veruleika-
sjokk áður en hún steig fyrst á
svið með hljómsveitinni.
„Þegar ég var baksviðs, rétt
áður en ég fór á svið í Laugar-
dagslögunum í fyrsta skipti hugs-
aði ég bara hvað ég væri komin
út í. Ég sem hafði bara verið að
syngja á Grandrokk stuttu áður
var allt í einu að fara að koma
fram fyrir alþjóð í sjónvarpinu,”
segir Rebekka og hlær við, en er
sannfærð um að stífar æfingar
og mikil þjálfun hafi skilað sér á
sviðinu.
Ánægð með annað sætið
Annað sætið í undankeppni
Evróvisjón virðist hafa komið
sér vel fyrir Merzedes Club því
eftir keppnina hefur hljómsveit-
in haft nóg að gera. Þau hafa leik-
ið í auglýsingum fyrir Símann
og komið fram á ótal skemmtun-
um víðs vegar um landið. Fyrsta
plata bandsins, I wanna touch you,
kemur út í dag og fram undan er
ferð til Portúgal þar sem hljóm-
sveitin mun troða upp ásamt
nýrri bakraddasöngkonu á Club
Kiss í lok mánaðarins. En var allt-
af ákveðið að hljómsveitin myndi
halda áfram eftir þátttökuna í for-
keppninni?
„Þetta átti náttúrlega bara að
vera eitt lag í upphafi. Það varð
miklu vinsælla en við höfðum
ímyndað okkur og fyrir úrslita-
kvöldið var búið að bjóða okkur
plötusamning hjá Senu. Stuttu
eftir keppnina var því farið að
ræða framhaldið,“ útskýrir Re-
bekka og segir hópinn ná mjög vel
saman.
„Egill, Hans og Gassi koma úr
sama vinahópnum en við Hlynur
komum svolítið úr öðrum áttum.
Þetta eru alveg frábærir strák-
ar og við hittumst náttúrulega
oft í kringum æfingar og heyr-
umst í síma varðandi það sem við
erum að gera,“ segir Rebekka sem
sækir reglulega tíma í raddþjálf-
un hjá Hildi Guðnýju Þórhalls-
dóttur, kennara hjá FÍH, auk þess
að æfa með hljómsveitinni.
Aðspurð hvort hún stundi lík-
amsrækt af krafti með hljóm-
sveitarmeðlimum sínum, segir Re-
bekka svo ekki vera. „Ég má varla
hnerra án þess að missa tvö kíló
og ef ég verð lasin og missi mat-
arlystina í smá tíma hrynja kílóin
af mér. Mér finnst það alveg óþol-
andi og fer í ræktina til að bæta á
mig og stækka vöðvana. Fita virð-
ist bara ekki setjast utan á mig og
fáir átta sig kannski á því að það
er alveg jafnleiðinlegt og að eiga
erfitt með að grenna sig. Ég hef
alltof oft fengið að heyra „óskap-
lega ertu horuð“ en ég passa mig
að sleppa ekki úr máltíð og drekka
prótínsjeik til að verða ekki of
grönn,“ segir Rebekka.
Framtíðin óráðin
Með nýútkomna plötu og utan-
landsferð í spilunum leikur for-
vitni á að vita hver framtíðaráform
Merzedes Club eru, en Rebekka
vill lítið sem ekkert gefa upp um
framhaldið. „Valli Sport og Barði
sjá algjörlega um þetta, en það er
aldrei að vita hvort við förum eitt-
hvað meira út fyrir landssteinana.
Það eru ýmsar hugmyndir í loft-
inu en hvað verður kemur bara í
ljós,“ segir Rebekka sposk á svip.
„Þetta hefur allt gerst svo hratt
að ég hef varla náð að átta mig, en
ég er samt búin að njóta hverrar
mínútu til hins ítrasta. Draumur-
inn er náttúrlega að lifa á tónlist-
inni,“ segir Rebekka að lokum.
11. JÚLÍ 2008 FÖSTUDAGUR • 9