Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 52
28 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Snillingurinn Beck er búinn
að senda frá sér sína átt-
undu breiðskífu. Gripurinn
nefnist Modern Guilt og til
liðs við sig hefur hann feng-
ið enga aðra en Cat Power
og Danger Mouse. Steinþór
Helgi Arnsteinsson at-
hugaði hvort Beck sé enn
eini maðurinn með viti í
Vísindakirkjunni.
Óhætt er að fullyrða að Beck David
Campbell, sem flestir þekkja sem
Beck Hansen, sé með áhrifamestu
og farsælustu tónlistarmönnum síð-
ustu fimmtán ára. Allt frá því að
Loser skaut honum upp á stjörnu-
himininn árið 1994 hefur Beck sann-
að að hann er einmitt andstæðan.
Mellow Gold, Odelay og Sea
Change eru allt plötur sem geta
haldið nafni skapara síns á lofti um
ókomna tíð. Hinar fimm plötur
Becks hafa líka margt gott til
brunns að bera þó svo að þær séu
ekki eins mikil meistaraverk og
fyrrnefndar þrjár plötur.
Síðustu verk drullugóð
Næstnýjasta breiðskífa Becks, á
eftir Modern Guilt auðvitað, nefnd-
ist The Information og leit dagsins
ljós á seinni hluta ársins 2006. Plat-
an var tekin upp af samferðarmanni
Becks til margra ára, Nigel Godrich,
og þrátt fyrir að hafa ekki verið
alveg nógu sterk þegar á heildina
var litið innihélt hún mörg fantafín
lög. Best þeirra var ofurslagarinn
Nausea sem verður að teljast með
betri lögum Becks frá upphafi.
Annað lag sem má setja í hillu
með hinum frábæru lögum Becks
er Timebomb sem kom út sem stök
smáskífa í fyrra. Lagið inniheldur
dynjandi harðan takt og na-na-na-
na viðlag og endaði á því að færa
Beck eitt stykki Grammy-tilnefn-
ingu, takk fyrir.
Bomba eða helíumblaðra?
Timebomb og Nausea eru samt ekk-
ert í líkingu við lögin á nýju plöt-
unni. Hljómurinn er miklu tærari
og lífrænni en samt mjög Beck-
legur. Handbragð mannsins á tökk-
unum, Danger Mouse, er nokkuð
auðþekkjanlegt og saman fara hann
og Beck í „nostalgíuferð“ til „sæka-
delíu“ sjöunda áratugarins.
Samt fær maður það alltaf meira
og meira á tilfinninguna að snilli-
gáfa Danger Mouse sé að útvatnast.
Allavega er hann ekki að gera nærri
eins ferska hluti og heyrðust í upp-
hafi frá honum. Þrátt fyrir að sam-
starf Becks og Danger Mouse líti
feikilega vel út á pappírunum þá
kemur ekkert á óvart að útkoman
sé örlítil vonbrigði.
Vísindakirkjan svertir orðsporið
Ekkert skemmir samt jafn mikið
fyrir Beck eins og sú staðreynd að
hann er sóknarbarn í Vísindakirkj-
unni en það hefur hann verið frá
blautu barnsbeini. Hvernig getur
svona velþenkjandi tónlistarmað-
ur tekið þátt í svona vitleysu? Auð-
vitað á maður samt ekki að dæma
Beck fyrir hans trúarskoðanir en
það er vissulega erfitt að líta fram
hjá þessari staðreynd. Beck er
eftir sem áður ekki búinn að missa
það algjörlega eins og nokkrir
aðrir listamenn innan Vísinda-
kirkjunnar og það samþykkja
gagnrýnendur.
Nýja platan kom nokkuð eins og
þruma úr heiðskíru lofti og aðdá-
endur fengu stuttan fyrirvara. Því
miður er þruman þó máttlítil. Plat-
an fær þokkalega dóma meðal
pressunnar, flesta jákvæða en það
er enginn slefandi. Lögin á plöt-
unni eru tíu og ekkert þeirra er
lélegt. Samt eiga flestir eftir að
skipta fljótt um Beck-plötu í spil-
aranum um leið og þeir hafa lokið
sér af með Modern Guilt.
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Dennis Wilson var í miðjunni af Wilson-bræðrunum þremur í Beach
Boys. Hann spilaði á trommur og þótti standa þeim Brian og Carl
nokkuð að baki hvað tónlistarhæfileika varðaði þótt hann væri þeirra
duglegastur á brimbrettinu og djammaði stíft.
Dennis drukknaði sem kunnugt
er síðla árs 1983, en sex árum
fyrr sendi hann frá sér sína
fyrstu og einu sólóplötu. Hún
kom mikið á óvart og sýndi að
það leyndist hæfileikaríkur
tónlistarmaður í kvennagullinu
og partíljóninu Dennis Wilson.
Platan, Pacific Ocean Blue, hefur
ekki verið endurútgefin fyrr en
nú og þó að hörðustu Beach
Boys-aðdáendum hafi verið
kunnugt um ágæti hennar þá
verður þessi nýja endurútgáfa
eflaust stór uppgötvun fyrir
marga.
Dennis gerði Pacific Ocean
Blue með félaga sínum til
margra ára, Gregg Jakobsen. Platan er fremur róleg og alvarleg og
mjög heilsteypt og vel heppnað verk, ríkulega útsett og tilkomumikil.
Nýja útgáfan af plötunni er tvöföld og hlaðin aukaefni. Það hefur
greinilega verið farið yfir allar upptökur sem til voru og valið úr það
besta. Auk upphaflegu Pacific Ocean Blue-laganna eru fjögur
aukalög frá gerð hennar á fyrri disknum, en seinni diskurinn
inniheldur upptökur af annarri sólóplötu Dennis Wilson, Bambu, sem
hann náði aldrei að klára, enda hafði hann misst tökin vegna langvar-
andi áfengis- og eiturlyfjaneyslu þegar þar var komið sögu.
Með Pacific Ocean Blue var Dennis fyrstur Wilson-bræðra til að
senda frá sér sólóplötu. Margir vilja líka halda því fram að platan sé
besta sólóplata Beach Boys-meðlims. Ekki ætla ég að leggja dóm á
það, en þetta er hörku plata svo mikið er víst.
Enduruppgötvað meistaraverk
DENNIS WILSON Útgáfan á Pacific
Ocean Blue er stórviðburður fyrir Beach
Boys-aðdáendur.
Tónlistarkonan Lay Low fylgir eftir
sólóplötunni Please don‘t hate me með nýrri
plötu sem kemur út í október. Please don‘t
hate me kom út fyrir jólin 2006 og vakti
mikla athygli á Lay Low. Í fyrra kom svo út
tónlist úr leikritinu Ökutímar og Lay Low
tók einnig þátt í plötu Benny Crespo‘s Gang.
Lay Low tekur nú plötuna upp ásamt
enskum aðstoðarmönnum í Toe Rag
hljóðverinu í London. Þar er notast við
antikmuni til upptöku, meðal annars átta
rása segulband. Liam Watson, eigandi
hljóðversins, tekur plötu Lay Low upp, en
hann er eiginlega einn af innanstokksmun-
unum. Toe Rag-hljóðverið varð heimsfrægt
þegar hljómsveitin The White Stripes tók
þar upp plötuna Elephant, en meðal annarra
kúnna má nefna Supergrass, The Zutons og
The Kills. Útgáfudagur nýju Lay Low-
plötunnar er 16. október.
Lay Low tekur upp
> Plata vikunnar
Benni Hemm Hemm - Murta
St. Calunga
★★★★
„Þó að Murta St. Calunga
sé fulllík fyrri plötum Benna
Hemm Hemm þá er hún létt-
ari og skemmtilegri heldur en
síðasta plata. Góð lög og vel
heppnuð smáatriði í útsetn-
ingum lyfta henni upp.“ TJ
> Í SPILARANUM
Merzedes Club - I Wanna Touch You
The Hold Steady - Stay Positive
Black Kids - Partie Traumatic
Dr. Dog - Fate
CSS - Donkey
MERZEDES CLUB CSS
TEKUR UPP Á
FORNGRIPI Lay
Low snýr aftur í
október.
Vísindakirkjupopp Becks
HELSTU PLÖTUR BECKS
MELLOW GOLD 1994
★★★★
ODELAY 1996
★★★★★
MUTATIONS 1998
★★★
MIDNITE VULTURES 1999
★★★
SEA CHANGE 2002
★★★★★
GUERO 2005
★★★
THE INFORMATION 2006
★★★
MÁTTLÍTIL PLATA Beck
var að senda frá sér nýja
plötu sem hefur fengið
þokkalega dóma. Þó
margt forvitnilegt sé á
plötunni að finna virðast
þó flestir sammála um
að hún flokkist ekki með
hans bestu plötum.