Fréttablaðið - 11.07.2008, Side 55
FÖSTUDAGUR 11. júlí 2008 31
Söngkonan Lily Allen hefur tekið
á ný saman við fyrrverandi
kærasta sinn Ed Simons. Parið
staðfesti samband sitt á svipaðan
hátt og Lindsay Lohan og Samantha
Ronson, þau nýttu sér tæknina og
breyttu upplýsingunum á
upphafssíðu sinni á Facebook úr
„einhleyp“ yfir í „í sambandi“.
Lily missti ömmu sína fyrir stuttu
og leitaði huggunar hjá Ed og
virðist sem að þá hafi lifnað í
gömlum glæðum. Samkvæmt The
Sun á Ed að hafa skrifað skilaboð á
Facebook síðu Lily þar sem hann
segist vera mjög ánægður með að
vera í sambandi á ný.
Ánægð í sambandi
ÁNÆGÐ Lily og Ed hafa tekið saman á
ný
Opnunartími:
mán - fim 10:30 - 18:00
fös 10:30 - 19:30
laugardaga 10:30 - 18:00
Laugavegi 7 101 Reykjavík
Sími 561 6262 www.kisan.is
Heimsþekkt vörumerki
eins og Sonia Rykiel,
Bonpoint, Jamin Puech,
Orla Kiely og fleiri ...
Útsalan er hafin
Bræðurnir Gunnar og Kristján reka
verslunina Kjötborg á Ásvallagötu. Þeir
og verslunin voru viðfangsefnið í nýlegri
heimildamynd en þeir bræður kannast þó
ekki við að vera orðnir stjörnur.
Í heimildarmyndinni Kjötborg er fylgst með lífi og
starfi bræðranna Gunnars og Kristjáns sem saman
reka litla hverfisverslun á Ásvallagötu. Heimildar-
myndin vann til verðlauna á Skjaldborgarhátíðinni í
ár og fékk mjög góða aðsókn í kvikmyndahúsum
borgarinnar og mætti því segja að bræðurnir séu
orðnir hálfgerðar stjörnur. Gunnar vill þó ekki
kannast við það og tekur vinsældum myndarinnar
með miklu jafnaðargeði. „Við eru ekki orðnir stjörnur,
ég held að maður þurfi nú að gera miklu meira en
bara það að vera maður sjálfur til þess að geta talist
stjarna í dag. Það eru aðallega viðskiptavinir okkar
sem minnast á myndina við okkur þegar þeir koma í
búðina,“ segir Gunnar um nýfengna frægð. Sjálfum
finnst honum myndin mjög góð, þótt honum hafi
fundist undarlegt að horfa á sjálfan sig á kvikmynda-
tjaldinu. „Myndin náði að fanga vel andann sem ríkir
hér hjá okkur. Þetta hefði geta orðið mjög þurr mynd
en Helga og Hulda unnu mjög vel úr öllu þessu efni.“
Gunnari og Kristjáni var boðið á sérstaka forsýn-
ingu myndarinnar en aðeins Gunnar gat mætt þar sem
Kristján stóð vaktina í Kjötborg. „Við erum bara tveir
sem vinnum hérna og við leysum hvor annan af þegar
þess þarf. Búðin er bara lokuð ellefu daga á ári,“ segir
Gunnar. Bræðurnir hafa rekið Kjötborg síðan 1981 og
segja viðskiptin ganga ágætlega. „Þetta er ekkert
bullandi gróðadæmi heldur meira spurning um
sjálfstæði og lífsstíl. Þetta er greinilega eitthvað í
genunum í okkur, að vilja ráða sér sjálfur.“
Gunnar segir að smákaupmennska sé liðin tíð, í
Reykjavík hafi eitt sinn verið kaupmaður á hverju
götuhorni en nú séu verslunarkeðjur ríkjandi á
markaðnum. Bræðurnir þekkja flesta viðskiptavini
sína með nafni. Margir koma við í versluninni
nokkrum sinnum í viku oft til þess eins að fá sér gos
og spjalla um daginn og veginn. „Maður lærir að
þekkja fólkið og áhugamál þess, sumir sem versla hér
eru miklir íþróttaunnendur, aðrir hafa gaman af
pólitík og sumir leita til okkar með ráðleggingar í
einkalífinu. Kúnnanum finnst gott að við þekkjum
hann og að hann geti beðið um sígarettur og við vitum
hvaða tegund hann reykir.“
Fyrir stuttu var haldin sérstök sýning á myndinni á
elliheimilinu Grund, en margir viðskiptavinir
Kjötborgar eru einmitt búsettir þar. Gunnar segir að
íbúarnir á Grund hafi margir lýst yfir ánægju með
myndina og sagst hafa haft gaman af sýningunni.
„Fólkið á Grund hefur verslað hjá okkur lengi og ég
held að það brjóti upp daginn hjá þeim að kíkja hingað
yfir til okkar. Hér hittir það líka annað fólk og fær
víðari þverskurð á mannlífinu en venjulega.“
Þeir Kjötborgarbræður eru uppaldir í Fossvoginum
og segjast vera Víkingar í húð og hár. „KR-ingar eru
okkar höfuðviðskiptavinir, Víkingarnir eru blessunar-
lega í annarri deild en KR núna en samvinnan við þá
hefur þó alltaf verið góð,“ segir Gunnar um kúnna-
hópinn sinn. Aðspurður um hvort hann mundi leika
sjálfan sig aftur ef framhaldsmynd yrði gerð hlær
hann við: „Kjötborg 2, það er skemmtileg hugmynd.
Ég á ekki von á því að það gerist en það er aldrei að
vita. Annars var allt fólkið sem kom að myndinni svo
yndislegt og gott að ég væri alveg til í að vinna með
því aftur.“ sara@frettabladid.is
Stjörnurnar í Kjötborg
KAUPMENN AF GAMLA SKÓLANUM Gunnar og Kristján loka
Kjötborg aðeins ellefu daga á ári FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þungarokkarar landsins geta
farið að snyrta kleinuhringina því
þýska „thrash“-sveitin Contrad-
iction er mætt á klakann og ætlar
að hýða hljóðfærin sín opinber-
lega á næstu dögum. Hljómsveit-
in kemur frá Wuppertal í Þýska-
landi og var stofnuð árið 1989.
Fimm breiðskífur, aragrúi minni
útgáfna og ótal tónleikar liggja
eftir sveitina og hún hefur verið
að komast inn fyrir þröskuld
þungarokksins með síðustu plötu,
The Warchitect. Platan hefur
fengið afburða dóma og sveitin
hefur túrað með Overkill og Sac-
red Reich, sem ásamt böndum
eins og Slayer og Metallica (í upp-
hafi ferilsins) teljast til helstu
risa „thrash metalsins“.
Contradiction lofar ógleyman-
legum þungarokkstónleikum og
spilar á Eistnaflugi á Neskaups-
stað í kvöld. Svo er það Gamli
baukur á Húsavík á sunnudags-
kvöldið þar sem Dark Harvest,
Atrum og Disturbing Boner sjá
um forleikinn ásamt Húsavíkur-
sveitinni Innvortis, sem er að
spila í fyrsta sinn í heimabænum í
langan tíma. Síðustu tónleikarnir í
Íslandsferð Contradicition verða
svo í höfuðborginni, í Hellinum,
TÞM, á mánudagskvöldið ásamt
Severed Crotch, Dark Harvest og
Músiktilraunasigurvegurunum í
Agent Fresco. Ekkert aldurstak-
mark er á tónleikunum 13. og 14.
júlí og það kostar þúsundkall inn.
Húsið opnar kl. 18 í bæði skiptin
og fyrsta band fer á svið hálftíma
síðar. Athygli er vakin á að tón-
leikarnir í Reykjavík eru búnir
snemma, eða um klukkan 21, enda
þarf þýska bandið að komast í
flug síðar um kvöldið.
- glh
Þýskar hýðingar á Íslandi
EKKERT PÍKUPOPP Contradicition spilar
thrash og ekkert kjaftæði.