Fréttablaðið - 11.07.2008, Síða 56
32 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR
Það er heill heimur inni
í honum sem heldur
honum gangandi!
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
7
12
12
MAMMA MIA kl. 6 - 8 - 10
HANCOCK kl. 8 - 10
BIG STAN kl. 6
12
12
MAMMA MIA kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MAMMA MIA LÚXUS kl. 5.30D - 8D - 10.30D
MEET DAVE kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ÍSL. TAL kl. 3.45 - 5.50
THE INCREDIBLE HULK kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
14
MAMMA MIA kl. 6 - 8.30 - 11
HANCOCK kl. 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA ENSKT TAL kl. 6 - 8 - 10
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
7
12
12
16
14
10
MEET DAVE kl. 6.10 - 8.30 - 10.40
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8
HAPPENING kl. 10.20
SEX AND THE CITY kl. 10.20
ZOHAN kl. 5.40 - 8
SÍMI 530 1919
FÍNASTA
SUMARSKEMMTUN
- V.J.V., TOPP5.IS/FBL
Þau komu langt utan úr geimnum
í fullkomnu dulargervi!
Þegar Barði Jóhannsson í Bang
Gang fékk tilboð frá Rúv um að
semja þrjú lög í forkeppni
Eurovision ákvað hann strax að
gera eitthvað sem hann hafði
aldrei gert áður. Skagfirska
sveiflan og múltíkúltí
friðarsöngur voru ekki að gera
sig en skondna eurotekknóið með
Merzedes Club svínvirkaði. Þótt
MC hafi ekki unnið Eurovision
var ekki aftur snúið,
auglýsingamógúllinn Valli Sport
var kominn í stuð og búinn að
kveikja á hinni ágætustu
monnímaskínu. Barði þurfti því
að gjöra svo vel að dæla út heilli
plötu fyrir krakkana.
Platan er bara 34 mínútur og
maður þarf að spóla yfir „Ho Ho“,
sem allir hljóta að vera komnir
með ógeð á, og „Meira frelsi“,
sem er líka komið fullnálægt
þolmörkunum. Restin er mjög
fínt popp með grípandi melódíum
og ágengum bítum. Ég sakna þess
reyndar að platan sé ekki harðari.
Vöðvatröll í poppi eiga að standa
fyrir eitilharða músik til að svitna
við í ræktinni, Rammstein og
svoleiðis eðal. Hér er reyndar
eitthvað nothæft í fitubrennsluna
en of stór hluti plötunnar er
blautur vettlingur sem minnir á
Aqua eða tónlistina í Latabæ.
Svissaðu Rebekku og Gillz út
fyrir Sollu stirðu í g-streng og
Íþróttaálfinn og þú ert ekki á
miklum villigötum.
Ég sakna þess líka að þetta
sniðuga lið, Gillz, krakkarnir og
Cerez 4, sem hefur samið frábæra
texta á pönkplötum sínum, hafi
ekki verið látið vinna harðar fyrir
kaupinu sínu. Nokkur kvöld þar
sem Barði og tröllin hefðu hist
yfir próteindrykkjum og farið á
flug hefði skilað sér í enn betri
plötu, held ég. Textinn í „Basscop“,
eina framlagi búntanna, er
vísbending um það sem hefði
getað orðið. Það lag ásamt „See
Me Now“, sem Haffi Haff syngur
af öryggi, og „Desire“, þar sem
Rebekka og gestahvíslarinn Inga
Wonder verða yxna, er frábært
stöff sem sýnir að Barði hefur
ekki kastað til höndum þótt hann
væri undir tímapressu að ná
sumarvertíðinni. Dr. Gunni
Solla stirða í G-streng
TÓNLIST
I Wanna Touch You
Merzedes Club
★★★
Fín poppplata, sem hefði getað orðið
sterkari ef meðlimir hljómsveitarinnar
hefðu tekið meiri þátt í henni. Platan
á frábæra spretti en hefði mátt vera
harðari.
Rokkhátíðin Eistnaflug
hófst í Egilsbúð á Neskaups-
stað í gær. Þetta er í fjórða
sinn sem hátíðin er haldin
og í ár lýkur henni með
tónleikum Ham aðfaranótt
sunnudagsins. Þetta eru
fyrstu tónleikar Ham síðan
um páskana í fyrra.
„Við erum búnir að æfa stíft og ég
er með hellur fyrir eyrunum eftir
hverja æfingu. Það er ekkert sleg-
ið af,“ segir Sigurjón Kjartansson,
forsöngvari og lagasmiður Ham.
„Við munum bjóða upp á „greatest
hits“ eða aðallega þau lög sem eru
okkur að skapi.“
Eins og vill gerast þegar menn
hittast á æfingum kvikna gamlar
glæður. „Í ár eru 20 ár síðan fyrsta
platan okkar, meistaraverkið
Hold, kom út og við erum að gæla
við þá hugmynd að endurútgefa
hana á tvöföldum vínyl. Mér sýn-
ist vínyllinn vera kominn aftur og
þótt ég eigi ekki góðan spilara
hlusta ég stundum á gömlu ris-
purnar. Við spilum mjög líklega í
bænum í haust og svo er alltaf
spennandi kostur að gefa út plötu
með nýju efni. Það hefur verið
hugsað í þá átt, en svo eru menn
náttúrulega uppteknir í öðru.“
Sjálfur hefur Sigurjón staðið í
miklu ati undanfarin misseri við
að skrifa fyrir nánast alla innlenda
dagskrárgerð í sjónvarpi. Hann
hafði yfirumsjón með handrits-
gerð grínþáttanna Ríkið sem Stöð
2 byrjar að sýna í ágúst og svo eru
þrjár aðrar þáttaraðir mislangt
komnar í framleiðsluferlinu: Lög-
fræðidramað Réttur, fjármála-
grínið Ástríður með Ilmi Kristj-
ánsdóttur og sakamála þættirnir
Svartir englar, sem Rúv tekur til
sýninga í september.
„Músíkin togar alltaf í mann en
hún er harður húsbóndi. Bæði
þáttagerðin og tónlistin eru
skemmtileg listform, en nei; ég
hef ekkert spáð í sjónvarpsþátta-
röð sem byggir á tónlist Ham!“
segir Sigurjón en bætir við fliss-
andi: „Það hefur reyndar komið til
tals að gera víkingasöngleik og
tónlist Ham myndi óneitanlega
passa vel í svoleiðis. Hugsaðu þér
bara hvað Hrafninn flýgur hefði
verið töff ef Ham hefði séð um
tónlistina!“
Hátt í fjörutíu hljómsveitir spila
á Eistnaflugi, allar þungar. Auk
Ham má nefna Mammút, Sólstafi,
Brain Police, Saktmóðíg, Ælu og
þýsku sveitina Contradiction.
gunnarh@frettabladid.is
Ham slær ekkert af
TVÖFALT HOLD Á VÍNYL, NÝ PLATA OG VÍKINGASÖNGLEIKUR? Hljómsveitin Ham er
tuttugu ára og spilar á Eistnaflugi á Neskaupsstað.
Nýlega var vefritið Bílar og sport
sett á laggirnar. Líkt og nafnið
bendir til fjallar vefritið um bíla,
mótorsport og ýmislegt annað sem
tengist þessum þarfasta þjóni
nútímamannsins. Vefritinu er
haldið úti af sömu mönnum og rit-
stýra samnefndu tímariti sem
hefur verið gefið út síðastliðin
þrjú ár. Ritstjóri tímaritsins, Þórð-
ur Freyr Sigurðsson, segir að það
hafi lengi staðið til að færa út
kvíarnar með þessum hætti.
„Við viljum geta boðið auglýs-
endum fleiri kosti á krepputímum
og koma á laggirnar góðum upp-
lýsingavef fyrir bílaáhugamenn, á
honum er til dæmis hægt að finna
upplýsingar um væntaleg mót og
þess háttar.“ Vefurinn er enn sem
komið er eini alhliða bílavefurinn
á landinu en á honum er einnig að
finna slóðir á aðrar bílasíður sem
einstaklingar og félagssamtök
halda úti.
Þórður segist sjálfur vera með
léttvæga bíladellu líkt og hinir
sem koma að útgáfu blaðins. „Ég
átti áður tímartitið Gróandinn sem
var garðyrkjutímarit, en ég sá
meiri möguleika fyrir tímarit eins
og Bíla og Sport til að dafna og
stækka enda hefur landinn meiri
áhuga á bílum en gróðurrækt,“
segir Þórður að lokum. - sm
Úr gróðurrækt yfir í mótorsport
ÚR GRÓÐRI Í BÍLA Þórður Freyr, ritsjóri
Bíla og Sports heldur úti alhliða bíla-
síðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SparBíó 550kr
í dag föstudag
NARNIA 2
kl. 5 í Álf., kl. 5:40 á Self.
kl. 6 í Kringlunni
MEET DAVE
kl. 4 í Kringlunni og
kl. 6 í Keflavík
KUNG FU PANDA
kl. 3:40 í Álfabakka með íslensku og kl. 4 með ensku tali
kl. 4 í Kringlunni með íslensku tali
kl. 6 á Selfossi, Akureyri og í Keflavík með íslensku tali
MAMMA MIA
kl. 3:40 í Álfabakka
kl. 5:40 á Selfossi
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 - 8 L
HANCOCK kl. 10:10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 - 8 L
NARNIA 2 kl. 5:40 7
WANTED kl. 8 12
MAMMA MÍA kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20D L
MAMMA MÍA kl. 5:40 - 8 - 10:20 VIP
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 3:40D- 6 L
KUNG FU PANDA m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANDCOCK kl. 8 - 10:10 12
WANTED kl. 5:40 - 8 - 10:20 16
NARNIA 2 kl. 5 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 12
THE BANK JOB kl. 10:20 16
MEET DAVE kl. 4 - 6 - 8 - 10 L
WANTED kl. 8D - 10:20D 16
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 4D - 6D L
NARNIA 2 kl. 6 - 9 7
DIGITAL
DIGITAL
MAMMA MÍA kl. 8 - 10:20 L
MEET DAVE kl. 6 - 8 7
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 L
HANCOCK kl. 10 12
Eddie Murphy er inn í Eddie Murphy í frábærri
gamanmynd fyrir alla fjölskylduna!
Þau komu langt utan úr geimnum í fullkomnu dulargervi!
- bara lúxus
Sími: 553 2075
MAMMA MIA - DIGITAL kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 L
HANCOCK kl. 6:10, 8 og 10 12
KUNG FU PANDA - ÍSl.TAL kl. 4 L
WANTED kl. 8 og 10.10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 5 7
M Y N D O G H L J Ó Ð