Fréttablaðið - 11.07.2008, Page 57
FÖSTUDAGUR 11. júlí 2008 33
„Þeir eru að spila á mjög stórum
stöðum úti í Svíþjóð,“ segir
Daníel Ólafsson - Danni Deluxe -
plötusnúður með meiru. Á
laugardagskvöld munu tveir
Svíar sem kalla sig B-line crew
spila á Prikinu ásamt Danna
Deluxe sjálfum. „Ég fór og spilaði
hjá þeim úti í Stokkhólmi fyrir ári
síðan og nú eru þeir að koma
hingað,“ segir Danni. Danni segir
þá félaga spila á öllum stærstu
skemmtistöðum Stokkhólms og
víðar. „Þeir eru almennt vel
séðir.“ Ekkert kostar inn á Prikið.
Sænskir
plötusnúðar
á Prikinu
DANNI DELUXE Stendur fyrir komu B-
line crew til Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL BERGMANN
Sienna Miller og nýi kærastinn
hennar, leikarinn Balthazar Getty,
eyddu saman nokkrum sólardög-
um á Ítalíu. Líkt og áður hefur
verið greint frá er Getty þessi
kvæntur og fjögurra barna faðir
og þó að það sjáist æ oftar til hans
og Siennu saman hefur hann þrætt
fyrir þann orðróm að þau séu
saman. Eiginkona Gettys er
skiljanlega mjög ósátt
með samband eigin-
mannsins við Siennu
og á að hafa flutt út
af heimili þeirra
hjóna með börnin
fjögur.
Gestur á
veitingastaðn-
um sagði að
Sienna og
Getty
hefðu
verið
mjög
ókurteis við
starfsfólk og að
Sienna hefði
keðjureykt yfir
matnum.
Hjónadjöfull-
inn Sienna
Verkið Superhero eftir Eyrúnu Ósk
Jónsdóttur hefur verið tekið upp að
nýju í Jaðarleikhúsinu í Hafnar-
firði. Leikari verksins, Erik Hakan-
son kom til landsins til að taka þátt
í Act alone á Ísafirði, en verkið var
frumsýnt í fyrra á Björtum dögum.
Eyrún talar vel um Erik. „Honum
var alltaf sagt að hann gæti ekki
orðið leikari en hann hélt sínu til
streitu og komst inn. Þegar ég
kynntist honum langaði mig að
semja leikrit fyrir hann, sem ég
gerði og úr varð Superhero. Það
fjallar um leitina að ofurhetjunni
sem er innra með okkur öllum.“
Þau kynntust í Rose Bruford-skól-
anum, en síðan þá hefur Eyrún
rekið Jaðarleikhúsið, leikið með og
leikstýrt Dan Kai Teatro-hópnum
og samið eigin verk.
Erik og aðalpersóna verksins,
Peter Brown eru líkir að mörgu
leyti. „Ég er öðruvísi en annað fólk
því ég, eins og Peter Brown, er
undir áhrifum frá teiknimyndasög-
um. Margir á okkar aldri hafa vaxið
upp úr hetjudýrkuninni en ekki
við.“ segir Erik. Hann telur marga
dreyma um ofurhæfileika. „Það er
ekkert að því að eiga sér draum og
leyfa honum að gefa sér innblást-
ur.“ Þeir eru samt ekki alveg eins.
„Peter hefur verið stjórnað af
foreldrum sínum allt sitt líf. Hann
hefur aldrei tekið sjálfstæðar
ákvarðanir. Ólíkt mér sem hef allt-
af haft stuðning foreldra minni og
getað komist að eigin niðurstöðum,
allavega eftir ákveðinn aldur.“ Erik
er hrifinn af landinu. „Mér þykir
vænt um Ísland, ekki bara af því að
það er fallegt og fólkið er yndislegt
heldur líka af því að fólk hér er
duglegt við að fara í leikhús. Ég er
ánægður að geta notað það sem ég
geri best til að tengjast því.“
Auk Superhero er Eyrún að vinna
kvikmynd tengda jafningjafræðslu
í Gamla Bókasafninu, Hafnarfirði
með 16-20 ára leikurum. Tökur
klárast á morgun. „Við fengum svo-
lítið af þjóðfrægum einstaklingum
til að koma og gefa vinnu sína og
taka þátt. Krakkarnir eru í öllum
aðalhlutverkum en Geir Ólafs,
Beggi og Pacas af Hæðinni og fleiri
sjást í aukahlutverkum,“ segir
Eyrún. Frumsýnt verður í septemb-
er.
Sýningar á Superhero verða í
kvöld, föstudags- og laugardags-
kvöld í Jaðarleikhúsinu. Hægt er
að panta miða í síma 867-2675 og
kostar 1200 krónur inn. Leikið er á
ensku. -kbs
Ofurhetja að innan
DREYMIR UM OFURHÆFILEIKA Erik
Hakanson segist líkur persónu sinni í
Superhero. MYND/EYRÚN