Fréttablaðið - 12.08.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
12. ágúst 2008 — 217. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Hljóðmaðurinn Bjarni Bra i Kjj
Leitar á nýjar slóðir
Bjarni Bragi Kjartansson hlakkar til að skipta um umhverfi og hefja nám á Bifröst.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hljóðfæranám er í senn skemmtilegt og þroskandi fyrir fólk á öllum aldri. Skráning stendur yfir í mörgum tónlistar-skólum víða um land en finna má upplýsingar um marga þeirra inni á vefnum www.musik.is. Skólarnir eru meðal annars flokkaðir eftir landshlutum þannig að auðvelt ætti að vera að finna hinn eina rétta.
Tungumálakunnátta verður sífellt nauðsynlegri í nútímasam-félagi og því er um að gera að byrja snemma að læra. Mímir símenntun býður upp á byrjendanámskeið fyrir börn á aldrinum 5-9 ára sem hefjast 23. september en skráning stendur nú yfir.
Köfun getur verið skemmtileg íþrótt en nauðsynlegt er að kunna réttu tökin. Köfunarskólinn býður upp á ýmis námskeið í köfun en nemendur læra á sínum eigin hraða í samráði við kennara. Nánari upplýsingar um köfunarnámskeið má finna á www.kofunar-skolinn.is.
BJARNI BRAGI KJARTANSSON
Aftur á skólabekk í
haust eftir langt hlé
• nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
sjávarútvegurÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 2008
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
LÁTTU DRAUMINN RÆTAST20-30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM INNRÉTTINGUMOG RAFTÆKJUM TIL 23. ÁGÚST.TILBOÐ SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF !20-30
%
nettoline.dk 20-30%
SJÁVARÚTVEGUR
Evrópureglur hægja á
þróun öryggisbúnaðar
Sérblað um sjávarútveg
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
REYNIR LYNGDAL
Hamarinn
festur á filmu
Tökur á spennuþáttaröðinni Hamarinn hafnar
FÓLK 30
Fjölskylduvandi
Faðir leikkonunnar
Hayden Panettiere
situr í gæsluvarðhaldi
vegna gruns um
heimilisofbeldi.
FÓLK 24
Ætlar að verða dansari
Halldóra Geirharðs er fertug í
dag. Fram undan eru
ferðalög og hugsan-
lega nýr starfsframi.
TÍMAMÓT 20
Frelsi Suður-Ossetíu?
„Það er erfitt að sjá hvers vegna
ríkisstjórnir sem hlupu til og viður-
kenndu sjálfstæði Kosovo ættu
ekki að viðurkenna fullveldi Suður-
Ossetíu,“ skrifar Sverrir Jakobsson.
Í DAG 16
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
FÓLK „Ég hlakka rosalega til,“
segir Kristján Jóhannsson, sem
mun syngja í óperu hér á landi í
fyrsta sinn í fjórtán ár þegar hann
tekur þátt í uppfærslu Íslensku
óperunnar á tveimur verkum. Það
eru Cavalleria Rusticana eftir
Pietro Mascagni og Pagliacci
eftir Ruggiero Leoncavallo.
Þetta verður jafnframt í fyrsta
sinn sem Kristján stígur á svið í
Íslensku óper-
unni, sem var
stofnuð á átt-
unda áratugn-
um. Frumsýn-
ing verkanna
beggja verður
19. september
og verða sýn-
ingarnar tíu
talsins.
Kristján söng síðast í óperu
hérlendis í Þjóðleikhúsinu þegar
Stefán Baldursson, núverandi
stjórnandi Íslensku óperunnar,
var við stjórnvölinn. „Vinur minn
Stefán Baldursson hafði samband
við mig. Honum fannst tími kom-
inn á að ég arkaði aftur upp á svið
á Íslandi,“ segir Kristján glað-
beittur.
- fb / sjá bls. 30
Kristján Jóhannsson stígur á svið Íslensku óperunnar í fyrsta sinn á ferlinum:
Hlakkar til að syngja í Óperunni
KRISTJÁN
JÓHANNSSON
HÆGVIÐRI Í dag verður hæg
breytileg átt. Hálfskýjað eða létt-
skýjað en líkur á síðdegisskúrum á
víð og dreif. Hiti 8-15 stig, hlýjast til
landsins SV-til.
VEÐUR 4
12
9
12
11
12
ÁNÆGÐIR MEÐ AFLABRÖGÐIN Þorgrímur Einarsson á Ígli HF 21 var stoltur af þessum myndarlega aldamótakarfa sem veiddist
á línu á Reykjaneshryggnum. Guðmundur Guðmundsson skipstjóri, sem sést með yfir fimmtíu kílóa stórlúðu á myndinni, telur
karfann vera um 25 til 30 ára gamlan. Ýmsir telja þó að elstu aldamótakarfarnir geti náð upp undir 100 ára aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÍSKA Guðrún Guðjónsdóttir
útskrifaðist nýlega úr fatahönnun
og textíl frá Instituto Europeo di
Design í Mílanó á Ítalíu með
hæstu einkunn sem gefin var.
Guðrún, sem er menntaður
klæðskerasveinn frá Iðnskólanum
í Reykjavík, kláraði þriggja ára
námið ytra á aðeins tveimur
árum. „Ég vann líka undankeppni
fyrir fyrirtækið Puma þannig að
það má segja að mér hafi gengið
vel,“ segir Guðrún, sem er
staðráðin í að reyna fyrir sér í
tískuheiminum erlendis.
- kka / allt í miðju blaðsins
Guðrún Guðjónsdóttir:
Náði frábærum
árangri á Ítalíu
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR HÖNNUÐUR
Vann undankeppni fyrir Puma og stefnir
á útlönd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skagamenn á niðurleið
Lánleysi ÍA heldur
áfram og eftir tap
gegn Keflavík í gær er
staða liðsins erfið.
Fjórir leikir voru í
Landsbankadeild
karla í gær.
ÍÞRÓTTIR 26 OG 27
VEÐRIÐ Í DAG
EFNAHAGSMÁL Vanskil fyrirtækja
við innlánastofnanir rúmlega tvö-
földuðust á öðrum ársfjórðungi
samanborið við fyrsta fjórðung
ársins. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Fjármálaeftirlitinu.
Vanskil einstaklinga jukust einnig
umtalsvert.
Í lok mars voru um 0,5 prósent
skuldbindinga fyrirtækja í van-
skilum. Í lok júní var hlutfallið 1,1
prósent, ríflega tvöfalt hærra.
Í lok júní var um eitt prósent af
skuldbindingum einstaklinga í
vanskilum, sem er 0,2 prósentu-
stiga aukning frá því í lok mars.
„Ég held að ástandið eigi eftir
að versna verulega, eftir því sem
líður lengra á haustið og vetur-
inn,“ segir Knútur Signarsson,
framkvæmdastjóri Félags
íslenskra stórkaupmanna (FÍS).
Hann segir borðleggjandi að
vanskil aukist þegar vextir séu
allt of háir, gengið falli og aðgang-
ur að lánsfé sé takmarkaður.
FÍS óskaði eftir aðgerðum frá
ríkisstjórninni í heilsíðuauglýs-
ingu í Morgunblaðinu fyrir um
mánuði. Knútur ítrekar þær óskir
og segir ríkisstjórnina ekkert hafa
aðhafst.
„Þetta endurspeglar ört versn-
andi rekstrarumhverfi fyrirtækja
undanfarna mánuði,“ segir Finnur
Oddsson, framkvæmdastjóri Við-
skiptaráðs. Hann segir brýnt að
aðilar vinnumarkaðar og atvinnu-
lífs leggist á eitt til að hér megi
sem fyrst ná niður verðbólgu og
lækka vexti. Hugmyndir um nýja
þjóðarsátt beri að kanna frekar.
Þrátt fyrir að vanskil fari vax-
andi verður að hafa í huga að þau
eru ekki mikil í sögulegu sam-
hengi, segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins. - bj, ikh / sjá síðu 12
Vanskil fyrirtækja og
einstaklinga aukast
Vanskil fyrirtækja hafa tvöfaldast frá fyrsta ársfjórðungi. Aukin vanskil endur-
spegla ört versnandi rekstrarumhverfi segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
SVÍÞJÓÐ Starfsmaður Karolinska
sjúkrahússins í Svíþjóð birti
myndir af sjúklingi í uppskurði á
Facebook-vefnum á netinu. Þetta
olli miklu uppnámi á sjúkrahús-
inu þar sem um brot á siðareglum
er að ræða og er nú talið að
nokkrir starfsmenn kunni að
standa að baki birtingunni.
„Við erum svo leið yfir þessu að
ég get varla lýst því í orðum,“
hefur Aftonbladet eftir stjórn-
anda á sjúkrahúsinu. Sjúkrahúsið
hefur kannað hvort um lögbrot sé
að ræða en svo virðist ekki vera
þar sem andlit sjúklingsins er
ekki birt. - ghs
Facebook í Svíþjóð:
Myndir birtar
úr uppskurði