Fréttablaðið - 12.08.2008, Blaðsíða 2
2 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Góð tilbreyting!
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
flugfelag.is
Flugvallarskattar innifaldir, takmarkað sætaframboð, einungis bókanlegt á netinu.
Ísafjörður frá 3.990 kr.
DÆGURMÁL Kveðjur sjómanna og
fjölskyldna þeirra, jafnvel
eldheitar ástarkveðjur elskenda,
voru ásamt óskalögum efni
vikulegs útvarpsþáttar um
áratuga skeið. Hann kallaðist Á
frívaktinni og hóf göngu sína árið
1956. Fyrsti stjórnandi hans var
Guðrún Erlendsdóttir, síðar
hæstaréttardómari. Hún segir
þáttinn strax hafa orðið ákaflega
vinsælan, ekki bara meðal
sjómannafjölskyldna heldur allra
landsmanna. „Það var svo lítið
um létt lög í útvarpinu þá,“ segir
Guðrún, sem setti plöturnar á
fóninn sjálf. Sjómannavalsinn og
Hraustir menn hljómuðu í
hverjum þætti.
- gun / sjá sérblað um sjávarútveg
Útvarpsþátturinn Á frívaktinni:
Hressti upp á
lífið í landinu
GUÐRÚN ERLENDSDÓTTIR Með ömmu-
drenginn Þorstein Ara Þorsteinsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIMBABVE, AP Viðræður sem miða
að því að fá Robert Mugabe,
forseta Simbabve, og stjórnar-
flokk hans til að deila völdum
með stjórnarandstöðunni í
landinu stóðu yfir í Harare frá
sunnudegi fram á gærdaginn án
þess að niðustaða næðist.
Sáttasemjarinn, Thabo Mbeki
Suður-Afríkuforseti, fékk
deiluaðila þó til að sættast á að
halda viðræðunum áfram.
Mugabe lét hafa eftir sér að
viðræðurnar yrðu leiddar til lykta
áður en gærdagurinn væri úti.
Mugabe og stjórnarandstöðu-
leiðtoginn Morgan Tsvangirai
segjast hvor um sig vera réttkjör-
inn leiðtogi landsins. - aa
Viðræður í Simbabve:
Áfram rætt um
þjóðstjórn
OFBELDI „Hefði ég komið að lokuð-
um dyrum á Kaffi Kúltúra væri
ég líklegast ekki á lífi,“ segir
Chilebúinn Miguel Angel Sepul-
veda Roman en hann varð fyrir
hnífstunguárás á gatnamótum
Ingólfsstrætis og Hverfisgötu
aðfaranótt föstudagsins 1. ágúst
síðastliðins.
Hann var stunginn í síðuna og
bak svo það blæddi inn á lunga og
hlaut að auki skurð á vinstri
handlegg. Eftir árásina hljóp
hann að veitingastaðnum Kaffi
Kúltúra þar sem félagi hans kall-
aði strax á sjúkrabíl og hlúði að
honum. Miguel Angel segir hann
hafa bjargað lífi sínu.
„Stungan var nálægt lunganu
svo það munaði mjóu og ég væri
varla hér hefði hún náð alla leið.
Mér er sagt að ég hafi misst um
lítra af blóði svo ef ég hefði ekki
fengið hjálp svona skjótt hefði
mér líklega blætt út. Núna er ég
afar máttlaus í hendinni og ég
hef ekkert getað hreyft litla fing-
ur. Ég get heldur ekki lyft neinu
með vinstri hendinni. Síðan er
það bara að sjá hvort ég get endur-
heimt fyrri getu í endurhæfingu
eða hvort ég verð að búa við þetta
alla ævi.“
Hann segist ekki muna vel eftir
atburðinum eða aðdraganda hans.
„En ég er alveg viss um að ég
hafi ekki verið að ögra þeim, ég
hef aldrei lagt slíkt í vana minn
og ég var heldur ekki í annarlegu
ástandi. En ég fór að ræða við
hóp drengja á Laugaveginum.
Svo hljóp ég af stað niður Ing-
ólfsstræti þegar eitthvað hitnaði
í kolunum. Þeir hlaupa mig síðan
uppi við gatnamótin og láta til
skarar skríða.“
Tveir menn voru handteknir í
kjölfarið og þeir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald. Tæpri viku síðar
var sá þriðji handtekin grunaður
um aðild. Í gær var síðan einn
þeirra látinn laus en gæsluvarð-
hald yfir hinum tveimur fram-
lengt til næsta fimmtudags.
„Ég veit ekki hvað vakti fyrir
þeim,“ segir Miguel Angel. „Ég
efast um að menn geri svona
lagað vegna andúðar á útlending-
um. Ég myndi ekki segja að
Íslendingar væru rasistar. Hins
vegar tel ég að til séu menn sem
sæki í ofbeldi þegar þeir eru
undir áhrifum fíkniefna og vissu-
lega eru þá útlendingar auðveld-
ari bráð þar sem tengslanet
þeirra hér á landi er ekki jafn
stórt og heimamanna.“
jse@frettabladid.is
Segir vin sinn hafa
bjargað lífi sínu
Miguel Angel, sem varð fyrir hnífaárás 1. ágúst, segist heppinn að vera á lífi.
Hann missti lítra af blóði og vonar að skaðinn sé ekki varanlegur. Gæsluvarð-
hald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um árásina var framlengt í gær.
ÞARNA ÁTTI ÁRÁSIN SÉR STAÐ Miguel Angel var á hlaupum niður Ingólfsstræti þegar
árásarmennirnir náðu honum. Þar eru uppi öryggismyndavélar svo lögreglan hefur
haldbær gögn við rannsókn málsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VERSLUN Velta í dagvöruverslun
jókst um 22,2 prósent í júlí miðað
við sama mánuð í fyrra á
breytilegu verðlagi. Hefur
vöxturinn aldrei verið meiri frá
því farið var að mæla smásölu-
vísitöluna árið 2001, samkvæmt
Rannsóknarsetri verslunarinnar.
Á föstu verðlagi jókst velta um
3,2 prósent miðað við sama tíma á
síðasta ári. Sala áfengis og fata
jókst milli ára, en skóverslun og
húsgagnaverslun dróst saman.
- kg
Verðlagsáhrif vega þungt:
Veltuaukning í
dagvöru met
KK, ertu búinn að pulsa þig
upp fyrir næstu plötu?
„Já, og hún verður með öllu.“
Tónlistarmaðurinn KK syngur lag sitt „Þú
og ég“ í nýrri auglýsingu Sláturfélags
Suðurlands. Ný plata með honum kemur
út í október.
SKIPULAGSMÁL „Við erum byrjaðir að rífa innan úr
húsinu svo hægt sé að athafna sig í kjallaranum,“
segir Páll Kolbeinsson, stjórnarformaður og einn
eigandi verslunar Sævars Karls, sem í félagi við
Íslenska eignafélagið hefur veg og vanda að
uppbyggingu hússins við Þingholtsstræti 2 til 4.
Húsið stendur á horni Bankastrætis og Þingholts-
strætis og er oft kennt við skemmtistaðinn Nellys
sem þar var til húsa. Til stendur að færa húsið sem
mest til upprunalegs útlits þótt stór hluti þess verði
endurnýjaður. Þá verður risið hækkað og kjallarinn
dýpkaður en endurgerð hússins er meðal annars
unnin í samráði við Húsafriðunarnefnd.
„Byggingateikningar eru núna hjá skipulagsnefnd
og við erum búnir að fá framkvæmdaleyfi,“ segir
Páll sem bætir við að verkið fari vel af stað. Hann
segir að á næstu dögum verði húsið klætt með dúk
með upplýsingum um húsið og myndum.
Áætlað er að verslunarrekstur verði á fyrstu
hæðum hússins en skrifstofur í risinu og segist Páll
gera ráð fyrir að hluti af verslunarrekstri Sævars
Karls verði í húsinu.
„Það tekur sinn tíma að byggja svona gamalt hús
upp,“ segir Páll en áætlanir gera ráð fyrir að
framkvæmdum ljúki á vordögum 2009. Hann segir
þá óhrædda við að ráðast í verkefnið. „Við trúum á
þessa staðsetningu, trúum því að miðbærinn eigi
eftir að eflast.“ - ovd
Framkvæmdir hafnar við endurgerð og uppbyggingu Þingholtsstrætis 2 til 4:
Óbilandi trú á miðbænum
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2-4 Húsið er bárujárnsklætt timburhús í
Sveitser-stíl, byggt árið 1884 og er kjallari, tvær hæðir og ris.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
JARÐSKJÁLFTI „Hvert og eitt mál
verður metið fyrir sig, án fyrir-
fram loforða um niðurstöður,“
segir Ólafur Örn Haraldsson,
verkefnisstjóri þjónustumið-
stöðvar vegna Suðurlandsskjálfta.
Alls hafa borist 55 erindi um
styrki eða stuðning vegna
ótryggðra tjóna af völdum skjálft-
anna 29. maí.
Hann segir að rífa þurfi vel á
þriðja tug húsa sem skemmdust í
skjálftunum. Nú þegar hafi sex-
tán manns óskað eftir stuðningi
vegna niðurrifs en ríkisstjórnin
ákvað að greiða fyrir niðurrif og
förgun húsa sem skemmdust í
skjálftunum.
Átján manns hafa leitað aðstoðar
vegna tjóns á innbúi sem ekki var
tryggt. „Síðan eru fjögur mál þar
sem mannvirki í byggingu voru
ekki með smíðatryggingar. Þar er
eitt mjög stórt tjón,“ segir Ólafur
Örn en um er að ræða einingahús
sem var í byggingu í Hveragerði.
Þá eru tíu mál skráð vegna
skemmda á stéttum, hellulögnum
og hleðslum við íbúðarhús. Loks
eru sjö óskilgreind mál þar sem
til dæmis bílar skemmdust þegar
hlutir féllu á þá.
„Nú liggur fyrir að við fundum
með ráðuneytisstjóra forsætis-
ráðuneytisins og sveitarstjórum á
svæðinu þar sem metið verður
hvernig tekið verður á þessum
málum. Við erum að láta meta
hvað þetta er mikið tjón með það
fyrir augum að sjá hvað hægt er
að gera. Það verður sest að hverju
máli fyrir sig og þau skoðuð.“ - ovd
Alls hafa 55 erindi borist vegna ótryggðra tjóna af völdum Suðurlandskjálfta:
Óska stuðnings ríkisstjórnar
VIÐ TRYGGVASKÁLA Ólafur Örn Haralds-
son verkefnastjóri framan við þjónustu-
miðstöðina á Selfossi. MYND/EB
BANDARÍKIN, AP Maður sem setið
hefur í átján ár í fangelsi fyrir að
nauðga tíu ára stúlku var látinn
laus í gær eftir að DNA-próf
sýndi fram á sakleysi hans.
Dómari í Ohio úrskurðaði að
maðurinn, sem í dag er 52 ára,
skyldi látinn laus úr fangelsi.
Hann var sakfelldur árið 1991
fyrir ódæðið, en hélt alltaf fram
sakleysi sínu.
„Þetta er ansi mikið að taka inn
á einum degi, að fá að ganga út úr
réttarsalnum frjáls maður, eftir
að hafa setið saklaus í fangelsi í
átján ár,“ segir Jennifer Berger-
on, lögmaður sem starfað hefur
fyrir manninn. - bj
Sat saklaus í fangelsi í 18 ár:
DNA-próf sann-
aði sakleysið
ÁREKSTUR Þriggja bíla árekstur
varð á sjötta tímanum í gærdag
við Skeiðarvogsbrú, á mótum
Skeiðarvogs og Miklubrautar.
Eldur kom upp í einum bílanna,
og var slökkvilið kallað á
vettvang. Lögreglu, með hjálp
vegfarenda, tókst þó að slökkva
eldinn með handslökkvitæki áður
en slökkvilið bar að garði.
Engin slys urðu á fólki en
Miklubraut var lokað um tíma
meðan lögreglu- og slökkviliðs-
menn sinntu störfum sínum á
vettvangi. - kg
Þriggja bíla árekstur:
Eldur í bíl á
Skeiðarvogsbrú
ÁREKSTUR Eldur kom upp í bílnum, en
engin slys urðu á fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPURNING DAGSINS