Fréttablaðið - 12.08.2008, Qupperneq 4
4 12. ágúst 2008 ÞRIÐJUDAGUR
SLYS Bílstjórar þriggja bifreiða
sem lentu saman í harkalegum
árekstri á Suðurlandsvegi á móts
við Kirkjuferju á milli Hveragerð-
is og Selfoss á tíunda tímanum í
gærmorgun voru fluttir til
aðhlynningar á slysadeild Land-
spítalans. Bílstjóri jeppabifreiðar
slasaðist alvarlega og var haldið
sofandi í öndunarvél.
Jeppinn skall framan á rútu sem
á móti kom eftir að litlum sendi-
ferðabíl hafði verið ekið aftan á
hann. Óljóst er hvort um saknæmt
atferli sendiferðabílstjórans hafi
verið að ræða, að sögn lögreglu á
Selfossi. Umferð var beint inn á
Hvammsveg um tíma í gær meðan
bílhræin voru fjarlægð af Suður-
landsvegi.
Á milli þrjátíu og fjörutíu far-
þegar voru í rútunni og sluppu
þeir að mestu ómeiddir. Bílstjóri
rútunnar skrámaðist þó af brotnu
gleri úr framrúðunni.
Flestir farþegarnir fengu áfalla-
hjálp og hressingu hjá Rauða
krossi Íslands.
„[Farþegarnir] voru nokkuð
ró legir og yfirvegaðir. Þetta var
fólk frekar í yngri kantinum,“
segir Sólveig Ólafsdóttir, sviðs-
stjóri hjá Rauða krossinum. „Bíl-
stjórinn [rútunnar] kom eftir að
hann var búinn að fá aðhlynningu
á Borgarspítala. Það var mjög gott
bæði fyrir hann að hitta fólkið og
fólkið að sjá að hann væri í svona
góðu standi. Það var klappað fyrir
honum þegar hann mætti á svæðið
enda skilst mér að fólk hafi óttast
um tíma að rútan myndi fara út af
en hann náði að bjarga því.“
Farþegarnir voru ferðamenn af
ýmsu þjóðerni – meðal annars Þjóð-
verjar, Ítalir, Portúgalar og Kanada-
menn auk Íslendinga. Þeir voru á
leið austur í Skaftafell á vegum
Kynnisferða. Flestir farþeganna
lögðu aftur af stað austur í gær í
annarri rútu á vegum Kynnis ferða,
að sögn Agnars Daníels sonar,
rekstrar stjóra Kynnisferða.
gunnlaugurh@frettabladid.is
Alvarlega slasaður
eftir harðan árekstur
Þrír slösuðust í harkalegum árekstri þriggja bifreiða á Suðurlandsvegi í gær, þar
af einn alvarlega. Sendibíll lenti aftan á jeppa sem kastaðist framan á rútu. Far-
þegar rútunnar fengu áfallahjálp. Þeir þökkuðu fyrir snör viðbrögð bílstjórans.
RÚTAN OG JEPPINN Bílstjóri jeppans slasaðist mikið og bílstjóri rútunnar skrá-
maðist af brotnu gleri. MYND/EGILL
SENDIFERÐABÍLLINN Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
23°
21°
24°
22°
21°
23°
22°
26°
22°
33°
33°
24°
26°
26°
28°
32°
18°
Á MORGUN
Hægviðri. Líkur á
síðdegis skúrum.
FIMMTUDAGUR
Hægviðri.
12
12
9
12
12
10
11
12
12
11
8
2
3
2
1
1
3
3
6
3
2
2
12
10 10
11
13 12
12
14
14
13
VINDUR UM
HELGINA
Vindurinn hefur verið
í algjöru lágmarki
síðustu daga og
verður svo fram á
föstudag. Þá eru
horfur á að vindar
vaxi af suðri eða
suðvestri og að vest-
an til á landinu verði
strekkingur, annars
hægari. Lægir á
sunnudag. Enn frem-
ur er heldur meiri
vætu að sjá vestan
til á laugardag frá því
sem verið hefur.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
UMHVERFISMÁL 365, útgáfufélag
Fréttablaðsins, sendir í dag 1.200
Blaðbera til Fjarðabyggðar.
Blaðberar eru sérstakar endur-
vinnslutöskur fyrir dagblöð og
mun sveitarfélagið sjá um
dreifingu þeirra til íbúa.
Samkvæmt Unni Ásu Atla dóttur,
verkefnastjóra umhverfis- og
mannvirkjateymis Fjarðabyggðar,
var óskað eftir sendingunni vegna
mikillar eftirspurnar eftir
Blaðberanum í sveitarfélaginu.
„Þetta er frábært framtak hjá
Fréttablaðinu og liður í því að
koma endurvinnslumálum okkar í
gott horf,“ segir Unnur. Alls búa
um 5.000 manns í Fjarðabyggð, á
um 1.500 heimilum.
Fyrstu Blaðberunum var dreift
í apríl síðastliðnum og hafa þeir
hvarvetna fengið góðar viðtökur.
- kg
Eftirsóttar endurvinnslutöskur:
Blaðberinn til
Fjarðabyggðar
ÞARFAÞING Fjarðabyggð sér um dreif-
ingu Blaðberans til íbúa.
SJÁVARÚTVEGUR Meðalverð á öllum
afla í júlí var það hæsta sem sést
hefur, 184,66 krónur. Þetta er
rúmlega 25 prósent hærra
meðalverð en í fyrra, 147,46
krónur, sem er það næsthæsta.
Þetta kemur fram á vef Reikni-
stofu fiskmarkaða.
Met var einnig sett í sölumagni,
en seld voru 5.247 tonn sem er
það minnsta á fiskmörkuðum í
júlí nokkru sinni. Þetta er 19,1
prósent minna en í fyrra, þegar
6.488 tonn voru seld í júlí.
Verðmæti aflans sem seldur var á
fiskmörkuðunum í júlí var aftur á
móti það næstmesta sem sést
hefur, 969 milljónir króna. Það er
1,3 prósentum meira en árið 2007.
- shá
Fiskverð hátt í júlí:
Metverð fyrir
fisk á markaði
TAÍLAND, AP Handtökuskipun á
hendur fyrrverandi forsætisráð-
herra Taílands, Thaksin Shina-
watra, var
gefin út þar í
landi í gær.
Hann og kona
hans flúðu til
Bretlands til að
komast hjá
yfirheyrslum
fyrir spillingu.
Hjónin
komust undan
þegar þau
fengu leyfi til að fara til Kína á
opnunarhátíð Ólympíuleikanna.
Thaksin sagði í yfirlýsingu í gær
að hann myndi ekki snúa aftur
heim því þar fengi hann ekki
sanngjörn réttarhöld.
Hjónin hafa verið í útlegð í
Lundúnum síðan hann var hrakinn
frá völdum árið 2006. Þau sneru
aftur til þess að svara til saka en
flúðu þegar frúin fékk dóm. - hþj
Fyrrum ráðherra flýr Taíland:
Segir réttarhöld
ekki sanngjörn
FLÚINN Thaksin
Shinawatra.
HEILBRIGÐISMÁL „Allri fæðingar-
þjónustu, sængurlegu og
áhættumæðravernd verður
sinnt,“ segir Hildur Harðardóttir,
sviðsstjóri á kvennadeild
Landspítala.
Ljósmæður kjósa í þessari
viku um verkfallsaðgerðir sem
hefjast í byrjun september ef
kjarasamningar nást ekki.
Hildur segir að þó að til
verkfalla ljósmæðra komi verði
allri bráðaþjónustu á deildinni
sinnt. Bráðasónarskoðun verði
veitt ef upp komi vandamál en
reglubundinn sónar gæti mætt
afgangi.
- ht
Ljósmæður kjósa um verkföll:
Bráðaþjónusta
áfram veitt
HEILBRIGÐISMÁL „Ég er gengin 32
vikur og reyni því að hafa sem
minnstar áhyggjur en auðvitað er
þetta óþægilegt,“ segir Brynhildur
Björnsdóttir, sem á von á öðru barni
sínu hinn 5. október.
Ljósmæður kjósa í þessari viku
um hvort grípa eigi til verkfalls-
aðgerða ef ekki náist kjarasamn-
ingar við ríkið. Kosið er um fimm
sjálfstæð verkföll sem hæfust með
vinnustöðvun dagana 4. til 5.
september. Ef ljósmæður sam-
þykkja aðgerðirnar kemur til alls-
herjarverkfalls 29. september hafi
samningar ekki náðst.
„Ljósmæður eru lykilhópur í þjóð-
félaginu,“ segir Brynhildur. „Ef
þessari grundvallarþjónustu er
stefnt í hættu er fokið í flest skjól.“
Hún segir að þrátt fyrir að aðrar
heilbrigðisstéttir starfi með ljós-
mæðrum búi þær yfir mikil vægri
sérfræðiþekkingu og veiti mæðr-
um mikilvægan stuðning.
„Þegar ég eignaðist dóttur mína
hefði ég ekki viljað vera án ljós-
móður mér til halds og trausts,
þegar ég sat með eitthvað svona
dýrmætt og brothætt í höndunum
en vissi ekki hvað ég átti að gera
við það.“ - ht
Barnshafandi kona telur fokið í flest skjól sé þjónustu ljósmæðra stefnt í hættu:
Reynir að hafa ekki áhyggjur
BRYNHILDUR BJÖRNSDÓTTIR Á von á öðru
barni sínu í októberbyrjun og vill að samið
verði við ljósmæður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GENGIÐ 11.08.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
158,7652
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
81,27 81,65
156,11 156,87
121,95 122,63
16,344 16,440
15,239 15,329
12,986 13,062
0,7391 0,7435
129,01 129,77
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Röng mynd birtist af Ingibjörgu
Hinriksdóttur, yfirlækni á Heyrnar- og
talmeinastöð Íslands, í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
Í Fréttablaðinu í gær misritaðist að
ráðstefna Vinnuvistfræðisamtaka
Íslands og norrænu vinnuvistfræði-
samtakanna NES hefði farið fram
um helgina. Hið rétta er að fundur
alþjóðlegu vinnuvistfræðisamtakanna
IEA fór fram hér á landi um helgina
en ráðstefna NES hófst í gærmorgun.
LEIÐRÉTTING