Fréttablaðið - 12.08.2008, Page 43

Fréttablaðið - 12.08.2008, Page 43
ÞRIÐJUDAGUR 12. ágúst 2008 27 Fjölnisvöllur, áhorf.: 1184 Fjölnir Valur TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 18–11 (8–6) Varin skot Þórður 3 – Kjartan 6 Horn 2–2 Aukaspyrnur fengnar 14–13 Rangstöður 4–0 VALUR 4–4–2 *Kjartan Sturluson 8 Rasmus Hansen 5 Atli Sv. Þórarinsson 7 Barry Smith 5 Rene Carlsen 6 Henrik Eggerts 4 (80 Hafþór Vilhjálms. -) Sigurbjörn Hreiðars. 6 Baldur Bett 5 Bjarni Ól. Eiríksson 4 (70. Baldur Aðalstei. 5) Guðmundur Ben. 6 Albert Ingason 6 *Maður leiksins FJÖLNIR 4–5–1 Þórður Ingason 6 Magnús I. Einarsson 6 Óli St. Flóventsson 6 Kristján Hauksson 6 Gunnar Gunnarsson 6 (88. Davíð Rúnarsson -) Ólafur P. Snorrason 7 Heimir S. Guðmunds. 6 Ólafur Páll Johnson 5 (67. Ásgeir Ásgeirss. 6) Gunnar M. Guðm. 8 Pétur Georg Markan 6 (85. Andri V. Ívarsson -) Tómas Leifsson 7 0-1 Albert B. Ingason (12.), 1-1 Pétur Markan (49.), 1-2 Atli S. Þórarins. (56.) 2-2 Gunnar Már Guðmundsson (61.), 2-3 Sigurbjörn Hreiðarsson (83.) 2-3 Þorvaldur Árnason (6) GRINDAVÍK 2-2 BREIÐABLIK 1-0 Scott Ramsay (6.), 2-0 Tomasz Stolpa (45.), 2-1 Marel Baldvinsson (56.), 2-2 Jóhann Berg Guðmunds. (90). Grindavíkurvöllur, áhorf.: 953 Þóroddur Hjaltalín Jr. (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 11–14 (7–7) Varin skot Zankarlo 5 – Casper 4 Horn 5–10 Aukaspyrnur fengnar 12–10 Rangstöður 3–0 Grindavík 4–5–1 Zankarlo Simunic 6, Ray A. Jónsson 6 (46. Marinko Skaricic 6), Zoran Stamenic 8, Eysteinn Húni Hauksson 7, Jósef Jósefsson 6 (67. Bogi Einarsson 5), Scott Ramsay 7, Orri Freyr Hjaltalín 7, Ajosa Gluhovic 6, Andri S. Birgisson 4, Tomasz Stolpa 5 (59. Jóhann Helgason 5), Grétar Hjartarson 6. Breiðablik 4–4–2 Casper Jacobsen 6, Arnór Sv. Aðalsteinsson 5, Finnur Orri Margeirsson 7, Srdjan Gasic 6, Kristinn Jónsson 6 (84. Guðmann Þórisson -), *Jóhann Berg Guðmundsson 8, Guðmundur Kristjánsson 6, Nenad Petrovic 5 (61. Prince Rajcom- ar 5), Nenad Zivanovic 4, Magnús Gunnarsson 4 (79.) Steinþór Þorsteins -), Marel Baldvinsson 6. PEKING 2008 Sigrún Brá Sverris- dóttir náði sér ekki á strik í 200 metra skriðsundi í gær frekar en aðrir íslenskir sundmenn á Ólympíuleikunum. Sigrún kom í mark á 2:04,82 mínútum sem er um einni og hálfri sekúndu frá Íslandsmeti hennar sem er 2:03,35 mínútur. Sigrún varð neðst í sínum riðli og hafnaði í 45. sæti af 46 keppendum. „Ég er alls ekki nógu sátt við þetta. Það er ekkert langt síðan ég setti þetta met og maður bjóst alveg við því að sundið gæti farið í aðra hvora áttina. Því miður gekk þetta ekki í dag,“ sagði Sigrún Brá dauðþreytt skömmu eftir sundið. „Ég var aðeins stressuð en hef samt oft verið verri á taugum. Ég var svolítið stíf og þreytt þegar ég var að synda. Stundum kemur þetta bara ekki og það eru ekki margir sem koma hingað og toppa tímana sína. Það var gaman að prufa þetta og ég veit hvernig þetta er næst þegar ég kem á Ólympíuleika,“ sagði Sigrún, sem ætlar að taka sér langþráð frí í kjölfarið. - hbg Sigrún Brá náði sér ekki á strik: Ég var svolítið stíf og þreytt FR ÉT T A B LA Ð IÐ /V IL H EL M Kópavogsvöllur, áhorf.: 743 HK Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–13 (3–6) Varin skot Gunnleifur 5 – Fjalar 2 Horn 5–8 Aukaspyrnur fengnar 13–12 Rangstöður 3–4 FYLKIR. 4–5–1 Fjalar Þorgeirsson 6 Andrés Jóhannsson 5 Kristján Valdimarsson 6 Ólafur Ingi Stígsson 5 Þórir Hannesson 7 Halldór Hilmisson 5 (72 Ingim. Óskarsson -) Valur Fannar Gíslason 4 Ian Jeffs 5 Allan Dyring 5 (80. Jóhann Þórhalls. -) Peter Gravesen 6 Haukur I. Guðnason 6 (80 Hermann Aðalg. -) *Maður leiksins HK 4–4–2 Gunnleifur Gunnleifs. 8 Finnbogi Llorens 6 Ásgrímur Albertsson 7 Erdzan Beciri 7 Hörður Árnason 6 Mitja Brulc 7 (72. Hörður Magnús. -) Goran Brajkovic 7 Finnur Ólafsson 7 Hörður M. Magnúss. 5 Sinisa Kekic 8 Iddi Alkhag 7 1-0. Mitja Brulc (65., víti) 1-1 Þórir Hannesson (90.) 1-1 Garðar Örn Hinriksson (6) Lögmál 4: Bikarinn er fullur og froðutoppurinn rís upp yfir brúnina. Þá er froðusveðjan tekin. Henni er beint frá líkamanum og strokið lárétt með 45 gráðu halla, hársbreidd yfir brúninni. Stærstu loftbólurnar hafa leitað efst í froðuna og mistakist þetta skref munu þær springa þeim afleiðingum að froðan fellur hratt. Án froðunnar er ölið varnar- laust og verður flatt á skammri stundu. Lögmál 5: Að lokum verður að tryggja að froðu- toppurinn sé af nákvæmlega réttri þykkt. Fullkomnunin felst í smáatriðunum: Í 33 cl bikar skal froðan vera nákvæmlega 3 cm. Hvorki meira né minna. Þetta samsvarar samanlagðri breidd vísifingurs og löngutangar þess sem njóta skal. FÓTBOLTI Annan leikinn í röð fengu HK-ingar á sig mark í uppbótar- tíma en þeir tóku á móti Fylki í sannkölluðum botnslag í gær. Allt stefndi í að HK væri að komast upp úr botnsætinu þegar Þórir Hannesson skoraði laglegt mark og tryggði Fylki mikilvægt jafn- tefli 1-1. „Hvert stig er dýrmætt og það var við hæfi að maðurinn með lengstu lappir vallarins næði að komast í boltann. Við áttum að klára þennan leik í fyrri hálfleik. Gunnleifur náði að verja einu sinni frá Hauki á hreint ótrúleg- an hátt, teygði sig í boltann eins og kolkrabbi. Síðan fáum við á okkur mark en sýndum karakter og jöfnuðum,“ sagði Leifur Garð- arsson, þjálfari Fylkis, eftir leik. Fyrri hálfleikurinn í gær var mjög tíðindalítill þar sem áður- nefnda markvörslu Gunnleifs bar hæst. Það lá ekkert í loftinu þegar dæmd var vítaspyrna en Ólafur Stígsson var dæmdur brotlegur. Á punktinn fór Mitja Brulc og skoraði af öryggi. Fylkismönnum gekk erfiðlega að skapa sér færi eftir markið en voru þó mun meira með boltann. Undir blálokin náðu þeir þó góðri pressu og Þórir kom til bjargar. Garðar Örn Hinriksson flautaði til leiksloka um leið og HK tók miðjuna. „Við verðum að fara að vinna einhverja leiki. Við mætum Skaganum á sunnudag og þar ætlum við okkur ekkert annað en þrjú stig,“ sagði Leifur. Fylkismenn voru nokkuð kaflaskiptir í gær, náðu nokkrum góðum sprett- um en á heildina litið voru þeir bitlausir og lítið flæði var í gegn- um miðjuna. Vörn HK-liðsins virkaði mjög traust en náði þó ekki að halda nægilega lengi út. Koma Sinisa Kekic gefur nýjar víddir í sóknarleik liðsins en nánast allar sóknirnar koma í gegnum hann. Enn eru átta stig upp úr fallsæt- inu en þrátt fyrir það er enginn uppgjafartónn í þjálfara liðsins, Rúnari Páli Sig- mundssyni. „Vonin er ekki úti enn, við erum ekki búnir að gefast upp. Það er nóg eftir af mótinu og við höfum verið að spila vel síðustu leiki án þess að ná að inn- byrða sigur. Lið- sandinn og sam- heldnin í liðinu er góð og það er eitt- hvað til að byggja á. Þetta er ekki búið,“ sagði Rúnar. - egm Botnlið HK missti niður unninn leik í uppbótartíma gegn Fylki: Rennblaut tuska í andlit HK FÓTBOLTI Grindavík og Breiðablik skildu jöfn, 2-2, í hörkuleik þar sem Jóhann Berg Guðmundsson tryggði Blikum stig með glæsilegu marki þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Níu mörk voru skoruð í fyrri leik liðanna og gaf byrjunin vísbending- ar um að annar markaleikur væri í uppsiglingu þegar Scott Ramsay skoraði fyrsta markið fyrir Grinda- vík beint úr aukaspyrnu strax á sjöttu mínútu. Sólin skein skært í Grindavík og virtist hitinn frá sólinni draga kraft úr leikmönnum því fyrri hálfleikur var ótrúlega hægur eftir markið. Breiðablik var meira með boltann en átti í erfiðleikum með að skapa sér færi en liðið lék án Arnars Grétars sonar leikstjórnanda síns sem meiddist lítillega á síðustu æfingu fyrir leik. Grindvíkingar drógu sig fljótt aftarlega á völlinn en juku samt forystuna í tvö mörk rétt fyrir leik- hlé þegar Tomasz Stolpa skoraði eftir góða skyndisókn upp hægri kantinn. Grindvíkingar voru kraftlausir í síðari hálfleik og drógu sig enn aftar á völlinn. Þrátt fyrir það var Marel Baldvinsson aleinn í miðjum markteignum þegar ellefu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum. Marel fékk þá boltann frá Kristni Jónssyni og skoraði auðveldlega og galopnaði leikinn. Þrátt fyrir mikla yfirburði náðu Blikar ekki að jafna metin fyrr en rétt áður en flautað var til leiksloka með glæsilegu marki Jóhanns. „Þetta var frekar skemmtilegur dagur. Fyrst að vera valinn bestur og svo leikurinn en við vorum eins og hálfvitar í fyrri hálfleik. Ég veit ekki hvað var í gangi. Svo yfirspil- um við þá í síðari hálfleik og það var ansi sætt að sjá hann inni þarna í lokin,“ sagði Jóhann. Jóhann hefur leikið frábærlega í sumar en hann segist þó ekkert velta því fyrir sér hvort hann verði í landsliðshópnum sem tilkynntur verður í hádeginu í dag fyrir æfingaleik gegn Aserbaídsjan. Orri Freyr Hjaltalín fyrirliði Grindavíkur var að vonum vonsvik- inn að hafa misst af sigrinum. „Það var grátlega sárt að fá jöfnunar- mark á sig svona í blálokin eftir að hafa barist eins og brjálæðingar allan seinni hálfleikinn,“ sagði Orri Freyr. Grindvíkingar urðu fyrir mikilli blóðtöku í leiknum þegar Ray Anthony Jónsson, Jósef Jósefsson og Grétar Ólafur Hjartarson urðu að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og sá síðast nefndi fór af leikvelli eftir að Grindavík var búið með allar sínar skiptingar í leiknum. „Það voru miklar hræringar á liðinu allan seinni hálfleikinn og við náðum aldrei að fóta okkur. Þeir voru mjög sterkir í dag og létu bolt- ann ganga vel en það munaði mjög litlu að það hefði hafist.“ „Við vorum orðnir mjög þreyttir inni á miðjunni og búnir með skipt- ingarnar. Þá var ekkert annað að gera en að bakka í vörn og verja markið. Það var grátlega nálægt því að lenda okkar megin.“ - gmi Breiðablik náði stigi í Grindavík eftir að hafa lent tveimur mörkum undir: Glæsimark Jóhanns tryggði Blikum stig SKOT AÐ MARKI Grétar Hjartarson skýtur hér að marki í gær en skot hans geigaði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V ÍK U R FR ÉT TI R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.