Fréttablaðið - 21.08.2008, Blaðsíða 60
40 21. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
ÚTSA
ÚTS
Ú
TSAL
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
A PARNIR
Íslensku
„Þetta var svakaferð,“ sagði
Símon Birgisson um leikför
Kreppuleikhússins með verk
hans Vini á Strandir og Ísafjörð.
Nú er sýning Þorleifs Arnarson-
ar komin í bæinn og verða sýn-
ingar í kvöld á Sölvhólsgötu og á
menningarnótt í Kassanum við
Lindargötu. Það er víst óvissu-
ferð fyrir ungan höfund að leggja
verk sitt fyrir leikendur, leik-
stjóra og áhorfendur. Fararheill
virðist ráða för Símonar enda er
hann reyndur á mörgum sviðum,
vel menntaður tónlistarmaður,
kunnur blaðamaður og glaðbeitt-
ur að eðlisfari. Verkið hans Vinir
er um margt gamaldags í upprifj-
un sinni á svikum tveggja ungra
manna sem vildu báðir komast
yfir sömu stelpuna, hliðarsaga
eru svik föður og sonar, og þessu
er blandað saman við kunnugleg
stef úr bernsku og unglingsárum
stráka úr Hafnarfirði. Efnið er
almennt og vel kunnuglegt, en
persónurnar lausar við sterk
klisju einkenni í meðförum leik-
ara sem eru mislangt komnir:
Vignir Rafn er að mótast hratt
sem listamaður og talsvert efni í
næman flytjanda á texta og svip,
meðan þau Walter Geir Grímsson
og Þórunn Arna Kristjánsdóttir
eru enn í hraðri mótun þótt bæði
hafi talverða reynslu. Það er eng-
inn viðvaningssvipur á leik í sýn-
ingunni.
Þorleifur hefur ugg-
laust tekið upphaf-
legan texta Símon-
ar og snúið honum
af þörfum: hér er
leikið sér með stefj-
un og klifun, svo
textapartar kastast
milli og verða
kunnuglegri
í stöðug-
um til-
brigða-
leik.
Textinn
er í grunninn hverdagslegur og
því er leikið áfram með klisjustef
sem fá nýjan mátt í hvert sinn.
Margt í sýningunni, ofbeldi, tál
og leiði, vatn og eintöl í míkrófón
skilar sínu þótt það sé margt
orðið æri ofnotað í íslenskum
sviðsetningum yngri leikstjóra.
Frumleikaþráin sækir oft í sama
farið hjá yngri leikstjórum eins
og öðrum. Míkrófónn sem ein-
talsfarvegur kom fram fyrir
rúmum áratug í sýningum Guð-
jóns Pedersen og hefur verið
margnotaður síðan. Til dæmis.
En þetta er snotur sýning um
lítið efni. Walter og Þórunn eru
enn að: hún er efnilegur starfs-
kraftur, raddörugg og styrk í
sínu, Walter meira reikull en
virðist boða ýmsa möguleika fái
hann að takast á við fjölbreytt
verkefni næstu misserin. Vignir
býður þess að fá stór hlutverk
sem gætu gert hann að afbragðs
leikara með sterkan persónuleg-
an svip.
Svo er bara að sjá hvað þeir
Símon og Þorleifur ætla sér.
Þeim virðast margir vegir
færir.
Páll Baldvin Baldvinsson
Stungið undan vini
sínum – óvart
LEIKLIST Símon
Birgisson leik-
skáld birtir sitt
fyrsta verk.
LEIKLIST
Vinir eftir Símon Birgisson
Leikstjóri: Þorleifur Arnarsson
Sviðsmynd og lýsing: Hlynur Páll
Pálsson
Búningar: Judith Amalía Jóhannsdóttir
★★
Smáverk en snoturlega unnið
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi,
hélt fund með starfsfólki og félagsmönnum
Leikfélagsins á mánudagskvöld þar sem
hann kynnti dagskrá vetrarins. Væntan-
legur er stór bæklingur upp á 40 síður þar
sem verkefnaskráin er kynnt. Magnús blæs
í lúðra á þessu fyrsta starfsári sínu, 111.
starfsári Leikfélagsins.
Mest nýnæmi í dagskránni er sú stefnubreyting
sem fylgir eftir fordæmi Leikfélags Akureyrar og
Þjóðleikhússins í seinni tíð að draga saman
sýningarskeið hverrar leiksýningar og þétta
sýningar. Bæði Tinna Gunnlaugsdóttir og Magnús
Geir stóðu fyrir samskonar breytingum nyrðra og
í Þjóðleikhúsi og er ekki enn séð fyrir endann á að
þær takist. Snarpari sýningartími, segir Magnús
og til að leggja áherslu á þessa breytingu er hverri
sviðsetningu markaður tiltekinn tími í almanaki:
Fyrstu sýningar haustsins eru arfur frá liðnum
vetri: Fló á skinni verður leikin á stóra sviðinu í
september og október, rétt eins og Gosi. Nýr
söngleikur eftir Ólaf Hauk Símonarson fær pláss á
stóra sviðinu frá því snemma í október til loka
desember í stjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur. Þá
kemur á fjalirnar sviðsetning Kjartans Ragnars-
sonar á Þeirri gömlu sem kemur í heimsókn sem
kallast nú Milljarðamærin snýr aftur. Íslenski
dansflokkurinn verður með sýningu á stóra sviðinu
í fáa daga í október og aftur í febrúar. Um miðjan
mars kemur söngleikurinn Söngvaseiður á svið en
hann hefur ekki verið fluttur hér síðan 1991.
Þórhallur Sigurðsson leikstýrir.
Á nýja sviði verða sjö verkefni á efnisskrá:
Fyrst er Fýsn eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur
Bachmann í leikstjórn Mörtu Nordal. Það verður
leikið í september og október. Í nóvember og
desember verður á nýja sviði verkið Vestrið eina
eftir Írann Martin McDonagh í leikstjórn Jón Páls
Eyjólfssonar en hann er annar af fastráðnum
leikstjórum við Borgarleikhúsið í vetur.
Í febrúar kemur loksins á svið hér á landi verk
eftir Söru Kane, Rústað, í leikstjórn Kristínar
Eysteinsdóttur og verða önnur verk Kane leiklesin
í framhaldi af því.
Ökutímar sem voru leiknir hjá LA í fyrra við
miklar vinsældir koma á nýja sviðið í mars og
apríl og deila þá sviðinu með sýningu sem Jón Páll
setur saman sem kallast Útlendingar.
Á litla sviðinu hefur Nemendaleikhúsið aðsetur í
október, Dauðasyndirnar, trúðleikur frá liðnu vori
kemur upp á ný í nóvember, en í kjölfar hans koma
á svið þrír einleikir og litla sviðið verður þá fært á
ný í það form sem var upphaflega ætlun hönnuða
hússins, leikið verður í miðju með áhorfendur á
alla vegu.
Verulegar breytingar verða á starfsmannahaldi í
húsinu og hefur fjöldi leikara komið þar til starfa
sem hafa ekki verið þar áður, bæði yngri og eldri.
Þá auglýsir Leikfélagið eftir kröftum úr hópi
áhugamanna en prufur verða í haust á krökkum
sem koma til álita í hlutverk barna í söngleikinn
Sound of Music - Söngvaseið, og söngvurum í kór
sem fram kemur í sýningunni.
Leikfélagið býður upp á leikhúsmiða í áskriftar-
pökkum sem gefa leikhúsáhugafólki góð kjör á
aðgöngumiðum. Er í boði áskrift á fjórar sýningar
að eigin vali og sérkjör eru í boði fyrir námsmenn.
Aðalstyrktaraðili Leikfélags Reykjavíkur er
Reykjavíkurborg en aðrir liðsinna félaginu við
rekstur í Borgarleikhúsi sem er stærsta og
fullkomnasta hús á landinu: ríkissjóður og fyrir-
tækin Spron, Orkuveita Reykjavíkur, Ölgerðin,
Síminn og VÍS.
pbb@frettabladid.is
Fjölbreyttur vetur fram
undan í Borgarleikhúsi
LEIKLIST Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags
Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu, byrjar sinn fyrsta vetur af mikl-
um krafti og stórum áætlunum.