Fréttablaðið - 21.08.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er fimmtudagurinn 21.
ágúst, 234. dagur ársins.
5.38 13.31 21.21
5.14 13.16 21.15
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Engin
útborgun!
Frábær símatilboð hjá Vodafone. Þú borgar ekkert út,
afborganir dreifast á 12 mánuði á kreditkort. Auk þess
færðu 2.000 kr. inneign í hverjum mánuði í heilt ár.
Lifðu núna
Sony Ericcsson W890i
• Afborgun 4.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr inneign á mánuði í 1 ár
• 500 MB niðurhal á mánuði í 1 ár*
0 kr. út
Nokia 6120
• Afborgun 2.000 kr. á mánuði í 1 ár
• 2.000 kr inneign á mánuði í 1 ár
0 kr. út
*Gildir um gagnaflutninga innanlands.
Tilboðið gildir til 20. september 2008.
Þú færð 2.000 kr. inneign á mánuði!
Eitt sinn sagði mér sagnfræðing-ur sem hafði sérhæft sig í dag-
bókum að fyrsta staðreyndin um
slíkar bækur væri sú að þær væru
yfirleitt ekki til. Flestar þeirra
væru jú eyðilagðar af eigendum
sínum þar sem þeir kærðu sig ekki
um að aðrir gægðust inn í þeirra
hugarheim.
EINHVERJIR kynnu að furða sig
á slíkri skemmdarverkastarfsemi.
Jafnvel gæti einhver haldið því
fram að fólk nú á tímum sé mun
opnara með tilfinningar sínar,
óteljandi bloggfærslur séu skýrt
dæmi um það. Það tel ég þó ekki
vera enda mikill munur á því
hvernig við skrifum fyrir okkur
sjálf um eigin hugsanir, samskipti
við aðra eða skoðanir okkar á
mönnum eða málefnum líðandi
stundar og svo því hvernig við
skrifum fyrir alþjóð. Það segir sig
sjálft að síðari skrifin eru leik-
stýrðari.
SAGNFRÆÐINGURINN sagði
mér einnig að í dagbókum bænda
frá 19. öld mætti aðallega finna
veðurfarslýsingar. Því næst skrif-
uðu þeir um ærnar og heilsufar
hjúa. Flest allt væri í tengslum við
aðalatvinnuveg þess tíma; búskap-
inn. Tilfinningalega útrás þeirra
mætti svo sjá í bundnu máli svo
sem í kvæðum um soninn sem lést
um veturinn eða annað sem ekki
þótti við hæfi að vera lausmálgur
um. Til dæmis ástina.
Í bókinni Átakadagar ræðir Kol-
brún Bergþórsdóttir við Elínu
Torfadóttur, ekkju Guðmundar
Jaka, en hún starfaði lengi sem
fóstra. Hún skráði samskipti sín
við margan manninn og börn þeirra
skilmerkilega niður. Hún sagði til
dæmis frá tilraunum hennar við að
hressa Markús Örn Antonsson við
eftir að litla dóttir hans hafði kvart-
að við þær um að hann væri leiðin-
legur. Löngu síðar, í ræðu á afmæli
leikskólans, sagði hann svo: „Í
þessu húsi var mér kennd sam-
skiptaumgengni sem hefur komið
mér mjög vel í pólitíkinni.“ Varla
hefur Markús Örn orðið Elínu reið-
ur fyrir frásögnina. Sjálfur hefði
hann lýst samskiptum sínum við
Elínu á allt aðra lund.
EINA dagbókarfærsla mín var
skráð með tengiskrift í fallega bók
með litlum hengilás á í byrjun
tíunda áratugarins. Hún innihélt
svæsnar lýsingar á því hve mjög
mér fannst ég hlunnfarin af systur
minni við fóðurgjöf í bernsku. Mér
fannst ég nefnilega þurfa að gefa
hænunum mun oftar en hún vegna
leti hennar og ómennsku. Þess má
geta að þessi bók er nú löngu glöt-
uð og þarf systir mín því ekki að
kvíða opinberun.
Samskipti og
dagbækur