Fréttablaðið - 02.09.2008, Blaðsíða 2
2 2. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt.
Sækjum og sendum
– hratt og örugglega
á hagstæðu verði.
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
Til/frá Reykjavík
Akureyri 8-12 ferðir á dag
Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag
Ísafjörður 2-3 ferðir á dag
Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag
DÓMSMÁL Davíð Smári Helenarson hefur verið
ákærður fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir þar sem
þrír menn slösuðust verulega. Málið var þingfest
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ákærði neitaði
sök.
Hann er ákærður fyrir að hafa í ágúst í fyrra
ráðist að manni á gervigrasvellinum í Mosfellsbæ.
Árásarmaðurinn reif í hinn og sparkaði í fætur hans
þannig að hann féll á hliðina. Fórnarlambið rifbeins-
brotnaði og hlaut mar á hægri upphandlegg.
Þá er maðurinn ákærður fyrir aðra líkamsárás á
Hverfisbarnum í Reykjavík í desember.
Honum er gefið að sök að hafa ráðist þar á annan
mann og ítrekað slegið hann í andlitið. Er hinn féll í
sófa inni á skemmtistaðnum hélt árásarmaðurinn
áfram að kýla hann. Fórnarlambið hlaut heilahrist-
ing, glóðaraugu og brot í framvegg hægri kinnbeins-
holu sem gekk upp í augntóftarbrún, brot í kinn-
beinsboga og sprungu í ennisbeini hægra megin. Þá
hlaut hann áverka á tönn.
Þriðja líkamsárásin átti sér stað í desember á Apó-
tekinu. Manninum er gefið að sök að hafa ráðist þar
á annan mann, slegið hann niður og þá hoppað á
vinstri fót hans þannig að fórnarlambið ökklabrotn-
aði og hlaut rof á liðböndum. - jss
APÓTEKIÐ Ein árásin átti sér stað í skemmtistaðnum Apótek-
inu í miðborg Reykjavíkur í vetur.
Karlmaður á þrítugsaldri fyrir dóm vegna þriggja ofbeldisbrota:
Maður ákærður fyrir að kýla
og beinbrjóta þrjá menn
UMHVERFISMÁL Vandamál sem
fylgja myndu loftlagsbreytingum
gætu jafnvel leitt til átaka eða
styrjalda milli ríkja. Meðal slíkra
vandamála eru skortur á neyslu-
vatni, landeyðing og fjölgun flótta-
manna.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, gerði þetta að umtals-
efni í ræðu á alþjóðlegu þingi um
loftlagsbreytingar sem lauk í
Bangladess um helgina.
Benti hann á að í meirihluta
hinna viðkvæmu Mið-Austurlanda
væru engar vatnsuppsprettur og
að vatnsbirgðir Ísraels gætu rýrn-
að um sextíu prósent á þessari
öld.
Í ræðunni kynnti Ólafur Ragnar
hugmynd sína um stofnun sér-
staks Himalaya-ráðs sem yrði
samstarfsvettvangur ríkja í og við
Himalaya-fjöll um loftlagsbreyt-
ingar. Gætu þau starfað með hlið-
stæðum hætti og Norðurskauts-
ráðið gerir.
Í heimsókninni ræddi Ólafur
Ragnar við helstu forystumenn í
stjórnmálum í Bangladess sem
ítrekuðu stuðning við framboð
Íslands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Þá hitti hann Muhammad
Yunus, stofnanda Grameen-bank-
ans sem lánar til fátækra.
Ólafur Ragnar kynnti sér einnig
náttúrufar í Bangladess. Hann
flaug suður undir Bengalflóa og
sigldi svo um Sundarban sem er
stærsti flotskógur veraldar. - bþs
Forseti Íslands varaði við afleiðingum loftslagsbreytinga á alþjóðlegri ráðstefnu:
Styrjaldir geta hlotist af hlýnun jarðar
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON benti á
að hlýnun jarðar gæti haft alvarlegar
afleiðingar í Mið-Austurlöndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Baldur, eiga þingmenn að
koma út úr skápnum með
svona lagað?
„Já endilega, og þeir ættu í kjölfarið
að vera með sérstakan þingmanna-
vagn á næstu Hinsegin dögum.“
Drög að reglum um skráningu á
fjárhagslegum hagsmunatengslum
alþingismanna hafa verið í forsætisnefnd
frá því í mars 2007. Baldur Þórhallsson
telur að kjósendur eigi að vita hverjir eru
bakhjarlar þingmanna og það eigi ekki
að vera feimnismál.
FORSETI Heildarkostnaður vegna
ferðar forsetahjóna og forsetarit-
ara á Ólympíuleikana í Peking
var 2.777.276 krónur. Ferð forseta
var frá 18. til 26. ágúst.
Kostnaðurinn skiptist þannig að
fargjöld voru kr. 1.472.220,
gisting kr. 896.880 og dagpening-
ar forseta og forsetaritara kr.
408.176. Forsetafrú þáði ekki
dagpeninga. Hótelkostnaðurinn
var meiri en að jafnaði í ferðum
forseta þar sem kínversk
stjórnvöld áskildu að þjóðhöfð-
ingjar gistu á sérvöldum hótelum.
Ferðir menntamálaráðherra til
Peking ásamt maka sínum,
ráðuneytisstjóra og maka hans
námu hins vegar tæpum fimm
milljónum. - vsp
Kostnaður forsetans á ÓL:
Forseti ódýrari
en ráðherra
ÓLYMPÍULEIKARNIR Forsetahjónin léku
á als oddi á Ólympíuleikunum. Hér sjást
þau ásamt Guðmundi Guðmundssyni
landsliðsþjálfara. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Samfylkingin mælist
með mest fylgi allra stjórnmála-
flokka í nýrri skoðanakönnun
Gallup, prósentustigi ofar
Sjálfstæðisflokknum.
Meirihluti Reykvíkinga, 56
prósent, er óánægður með nýjan
meirihluta borgarstjórnar, en
hann er þó ekki eins stór og sá
sem sagðist vera óánægður með
þann síðasta. Samfylking var með
33 prósenta fylgi á landsvísu,
samkvæmt könnuninni, Sjálf-
stæðisflokkur 32 prósent, VG er
með 19 prósenta fylgi og Fram-
sókn með 10. Frjálslyndir eru
með 4 prósent og Íslandshreyfing
með 2. - kóþ
Skoðanakönnun Gallup:
Samfylkingin
vinsælust allra
HAFNARFJÖRÐUR Foreldrar barna í
Hvaleyrarskóla safna undirskrift-
um til að mótmæla nýju deili-
skipulagi sem heimilar tengingu
Suðurbrautar og Reykjanesbraut-
ar neðan við Hvaleyrarskóla.
Foreldrar áttu fund með
bæjarstjóra, formanni skipulags-
ráðs og lögmanni bæjarins í gær.
Á fundinum kom fram að
foreldrum yrði ekki veittur
frestur til að kynna sér umhverfis-
matsskýrslu og álit Skipulags-
stofnunar frá í ágúst. - ghs
Foreldrar í Hafnarfirði:
Undirskriftir
gegn tengingu
MÓTMÆLA TENGINGU Foreldrar barna
í Hvaleyrarskóla hafa hengt upp mót-
mælaborða í nágrenni við skólann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Nítján ára menntaskóla-
piltur hefur verið dæmdur í 45
daga fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára, fyrir að hafa mjög
gróft barnaklám í tölvu sinni.
Pilturinn var ákærður fyrir
kynferðisbrot. Í tölvu hans á
heimavist Menntaskólans á
Ísafirði fannst á hörðum diski ein
ljósmynd sem sýnir barn á
kynferðislegan og klámfenginn
hátt og 89 hreyfimyndir sem sýna
börn á kynferðislegan eða
klámfenginn hátt. Þar af var ein
hreyfimynd af barni í kynferðis-
athöfnum með dýri. Þessar
myndir hafði pilturinn náð í á
netinu og vistað í tölvu sinni. - jss
Menntaskólanemi dæmdur:
Nítján ára með
barnaklám
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar, telur að heppilegast sé að
reglur um skráningu á fjárhags-
legum hagsmunatengslum þing-
manna verði almennar, þannig að
þær gildi fyrir alla þingmenn.
„Ég geri ráð fyrir því að þetta sé
almennt viðhorf í þingflokknum,“
segir hún.
Fram hefur komið í Fréttablaðinu
síðustu daga að drög að reglum um
skráningu á fjárhagslegum hags-
munatengslum þingmanna séu til
meðferðar á Alþingi. Þau hafa taf-
ist þar í tæpa átján mánuði.
Rætt er um að
reglurnar verði
annað hvort
valkvæðar eða
skylda. Einnig
er álitamál
hvort þær skuli
lögbinda, svo
kæra megi fyrir
brot á þeim.
Þingflokks-
formaður
sjálfstæðis manna hefur lýst því að
hún sjái enga ástæðu til lögbind-
ingar, en Ingibjörg segir það vel
koma til álita.
Oddviti sjálfstæðismanna í for-
sætisnefnd, Sturla Böðvarsson,
vill sem minnst tjá sig um málið
fyrr en það hefur verið rætt í þing-
flokknum.
„Ég vil ekki lýsa persónulegum
skoðunum mínum að svo stöddu,
en ég vona að vel gangi að ná sátt
um þetta mál, og við stefnum á að
það klárist á kjörtímabilinu,“ segir
Sturla.
Ögmundur Jónasson, þing-
flokksformaður VG, segir skjóta
skökku við að Samfylkingin, sem
„gali hæst“ um gegnsæi, birti enn
ekki upplýsingar um eignir þing-
manna sinna og ráðherra.
„Við birtum þessar upplýsingar
nú þegar á heimasíðu okkar. En
við myndum vilja sjá fleiri sýna
viljann í verki, áður en til
lagaþvingunar kemur,“ segir
Ögmundur.
Hann sér ekki tilgang með því
að setja reglur um valkvæða upp-
lýsingaskyldu þingmanna.
„Til hvers að setja reglur um að
þú megir gera hvað sem þú vilt?“
spyr Ögmundur.
Spurð hvers vegna Samfylking
hafi ekki gengið fram fyrir
skjöldu og birt þessar upplýsingar,
segir Ingibjörg að almennt hafi
verið talið í þingflokknum að um
þetta ættu að gilda reglur, sem
allir flokkar færu eftir. Hún úti-
lokar þó ekki að upplýsingarnar
verði birtar áður en reglurnar
taka gildi.
klemens@frettabladid.is
Reglur verði settar
fyrir alla þingmenn
Formaður Samfylkingarinnar segir heppilegra að reglur um hagsmunatengsl
og eignir þingmanna verði ekki valkvæðar, heldur þurfi allir að fara eftir þeim.
Þingflokksformaður VG er sammála en forseti Alþingis tjáir sig sem minnst.
STURLA
BÖÐVARSSON
ÖGMUNDUR OG INGIBJÖRG Þingflokksformaður VG saknar þess að Samfylkingin
birti upplýsingar um eignir og hugsanleg hagsmunatengsl þingmanna sinna.
Formaður Samfylkingar segir sitt fólk hafa beðið þess að reglur yrðu settar, en
útilokar ekki að þetta verði gert, áður en til þeirra kemur.
DÓMSMÁL Tvítugur maður sem
ákærður er fyrir hættulega
líkamsárás neitaði sök fyrir dómi.
Málið var þingfest í gær.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa kastað glerglasi í andlit
annars manns síðasta haust.
Glasið brotnaði með þeim
afleiðingum að fórnarlambið
hlaut meðal annars tvo skurði. - jss
Tvítugur maður fyrir dóm:
Braut glas á
andliti annars
SPURNING DAGSINS