Fréttablaðið - 02.09.2008, Page 10

Fréttablaðið - 02.09.2008, Page 10
10 2. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR SKIPULAGSMÁL „Tillagan gengur út á einn samfelldan stokk en að verkinu verði hugsanlega áfanga- skipt,“ segir Hanna Birna Kristj- ánsdóttir borgar stjóri um fyrirhugaðan umferðarstokk undir Geirsgötu og Mýrargötu. Hanna Birna segir að fyrst verði ráðist í gerð umferðar- stokks framan við tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem síðar verði lengdur undir Mýrargötu og út í Ánanaust. „Markmiðið er að stokkurinn verði samfelldur enda er það miklu hagkvæmara á þessu svæði,“ segir Hanna Birna. Hún segir enga stefnubreytingu í málinu þrátt fyrir meirihluta- skiptin í borginni. Tillagan hafi fengið umfjöllun í skipulagsráði, samgönguráði og hjá Faxaflóa- höfnum auk borgarráðs. Fulltrúar allra flokka, utan Vinstri grænna, hafi samþykkt að fara umrædda leið. Þá var samþykkt í borgarráði fyrir skemmstu að fela borgar- stjóra að eiga samtöl við sam- gönguráðherra um tillöguna og væntanlegan kostnað ríkis og borgar. Hanna Birna segist fljótlega ætla að óska eftir fundi með ráð- herra til að ræða áhuga borgar- yfirvalda á að fara þessa leið. - ovd Umferðarstokkar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið eru enn á dagskrá meirihlutans í borginni: Borgarstjóri og ráðherra funda um stokk HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚS Fyrirhugaðir eru umferðarstokkar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið og undir Mýrargötu út að Ánanaustum. MENNING Vinna er hafin við gerð nýrrar leikinnar kvikmyndar um ævi Bítilsins Johns Lennon. Verður áhersla lögð á æsku- og unglingsár Lennons í fæðingarborg sinni, Liverpool á Englandi. Listakonan Sam Taylor- Wood mun leikstýra kvikmyndinni, sem hefur hlotið nafnið Nowhere Man, eftir Bítlalaginu vinsæla. Matt Green- halgh mun sjá um handritsgerð. Hann skrifaði einnig handritið að myndinni Control, sem fjallar um ævi Ians Curtis, söngvara hljóm- sveitarinnar Joy Division. Myndin verður öll tekin upp á æskuslóðum Lennons í Liverpool. - kg Æskuár Bítils fest á filmu: Ný kvikmynd um Lennon JOHN LENNON SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi er stærsti kvótahafinn og er fyrir- tækinu úthlutað tæplega 22.700 þorskígildistonnum fyrir nýtt fisk- veiðiár sem hófst í gær. Heildar- aflaheimildir HB Granda nema um 8,97 prósentum af útgefnum kvóta. Fimm kvótahæstu útgerðirnar fá 31 prósent af útgefnum heimildum og tíu stærstu um helming samtals. Alls hafa tuttugu stærstu útgerð- irnar um 66 prósent allra veiði- heimilda og þrjátíu stærstu 75 pró- sent. Þær þrjár útgerðir sem fá mestu úthlutað auk HB Granda eru Brim hf. með 6,33 prósent og Samherji með 5,95 prósent. Þorbjörn hf. og Vísir hf. eru í fjórða og fimmta sæti. Reykjavík er heimahöfn fyrirtækja með 12,04 prósent kvót- ans en Vestmannaeyjar eru í öðru sæti með 11,56 prósent. Grindavík er handhafi 9,91 prósent heimilda og Akureyri 4,73 prósent. Skipum sem úthlutað er kvóta á þessu fiskveiðiári hefur fækkað um 58. Nú fá 709 skip kvóta en þau voru 767 í fyrra. Skip sem fá úthlut- að aflamarki á grunni aflahlut- deilda eru 312 talsins og aflamark þeirra er 222.233 tonn. Það er rúm- lega 17 prósenta samdráttur frá fyrra fiskveiðiári. Í krókaafla- marki eru 397 bátar og er þeim úthlutað á grunni krókaaflahlut- deilda 30.400 þorskígildistonnum. Það er rúmlega níu prósenta sam- dráttur frá fyrra fiskveiðiári. Alls er úthlutað 252.634 þorskígildis- tonnum sem er sextán prósenta samdráttur á milli ára. - shá Fiskistofa úthlutar kvóta fyrir fiskveiðiárið 2008-2009: Tíu með um helming kvótans GRANDASKIP HB Grandi í Reykjavík er kvótahæsta útgerð landsins eins og undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TENDRUÐ LJÓS Í MYRKRINU Indversk- ur sikhi tendrar olíulampa fyrir framan Gullna hofið í Amrítsar í gær. Þá var minnst 404 ára sögu hinnar helgu bókar Guru Granth Sahib, helgirits síkha. Söfnuðurinn varð til í Punjab á 15. öld. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Útivistartími barna og unglinga hefur tekið breyting- um. Nú mega tólf ára börn og yngri vera úti til klukkan átta á kvöldin. Þrettán til sextán ára unglingar mega vera úti til klukkan tíu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að bregða megi út af reglunum fyrir síðarnefnda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Einnig segir að útivistarreglunum sé ætlað að tryggja börnum og unglingum nægan svefn. Ætla megi að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi tíu tíma svefn á nóttu. - kg Börn og unglingar: Breyttur útivist- artími í gildi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.