Fréttablaðið - 02.09.2008, Síða 42
26 2. september 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabla-
6. september
á Ljósanótt í Reykjanesbæ
Flögu tímataka
Kort af
hlaupaleið
er á
hlaup.is
Hálfmaraþon (ræsing kl. 10:30)
10 km hlaup (ræsing kl. 11:15)
3,5 km skemmtiskokk (ræsing kl. 11:20)
Verðlauna afhending kl. ca. 13:00
Skráning
er hafin
í Lífsstíl
s: 420 7001
Kennsla hefst
15. september
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620
frá kl. 10-16.
www.schballett.is
> Viktor Unnar í utandeildina
Knattspyrnukappinn Viktor Unnar Illugason mun næsta
mánuðinn leika með enska utandeildarliðinu Eastbourne
Borough. Félag Viktors Unnars, Reading, féllst á að lána
Viktor þangað en hann vantar leikæfingu
eftir að hafa verið meiddur í nokkurn
tíma. Viktor ætlaði að spila með Þrótti
í sumar en ekkert varð af því þar sem
hann meiddist áður en hann kom til
landsins.
Línumaðurinn sterki Einar Ingi Hrafnsson fór í gær frá Fram og
samdi við HK til tveggja ára. Þessi tíðindi koma frekar mikið á
óvart enda var Einar Ingi einn af bestu línumönnum N1-deildar-
innar síðasta vetur, ef ekki sá besti.
„Það má bara segja að við Viggó höfum eiginlega ekki átt
samleið,“ sagði Einar Ingi við Fréttablaðið í gær aðspurður um
ástæður þess að hann væri að yfirgefa Safamýrina. „Ég spil-
aði nánast ekkert á Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi. Í
kjölfarið töluðum við Viggó saman í síma og í því samtali
kom í ljós að ég væri bara ekki inni í hans plönum. Hann
var bara heiðarlegur með það. Í kjölfarið spurði ég að
því hvort ég mætti leita mér að öðru félagi og hann sagði
ekkert vera því til fyrirstöðu. Það var engin dramatík í
þessu og ég er ánægður með að hafa bara fengið hrein-
skilin svör við minni stöðu hjá félaginu,“ sagði Einar Ingi.
Viggó virðist frekar ætla að veðja á hina línumenn félagsins,
Harald Þorvarðarson og Brján Bjarnason. „Hann er einfaldlega
að taka þá tvo fram yfir mig. Viggó ætlar líka að gera Brján að
sóknarmanni og hann er í raun að fá mitt hlutverk.“
Einar Ingi segir þessa framvindu mála hafa komið sér mjög á
óvart enda var hann í lykilhlutverki hjá Fram í fyrra og átti ekki
von á öðru en að svo yrði einnig í vetur.
„Þetta kom mér verulega á óvart og sérstaklega þar sem ég
stóð mig mjög vel í fyrra. Það var frekar erfitt að taka þessu.
Ég veit að það eru ekkert allir voða ánægðir með þetta en
svona er þetta stundum í boltanum. Menn eiga ekkert
alltaf samleið,“ sagði Einar Ingi, sem fundaði með
forráðamönnum HK og FH í gærkvöld og gengu málin
fljótt fyrir sig.
Einar átti eitt ár eftir af samningi sínum við Fram
og því ljóst að HK þurfti að greiða fyrir hann. Má gera
ráð fyrir að maður á borð við Einar hafi farið fyrir um
300-400 þúsund krónur.
Einar Ingi segist kveðja Safamýrina með nokkrum
söknuði.
„Þetta er líka leiðinlegt strákanna vegna sem mér líkar
afar vel við. Þetta kom ótrúlega flatt upp á mig og það
stóð aldrei til að yfirgefa félagið.“
LÍNUMAÐURINN EINAR INGI HRAFNSSON: MJÖG ÓVÆNT ÚR FRAM OG YFIR TIL HK Í KÓPAVOGI
Við Viggó áttum eiginlega ekki samleið
GOLF Hlynur Geir Hjartarson úr
GK og Ásta Birna Magnúsdóttir,
sem er einnig úr GK, urðu í gær
Íslandsmeistarar í holukeppni en
mótið fór fram á Korpúlfsstaða-
velli.
Selfyssingurinn Hlynur Geir
lagði Ottó Sigurðsson úr GR í
úrslitum en í undanúrslitum vann
Hlynur sigur á Arnóri Inga Finn-
björnssyni úr GR. Sigmundur
Einar Másson úr GKG varð þriðji
en hann lagði Arnór í bronsleikn-
um.
Sigur Ástu Birnu kom nokkuð á
óvart en hún gerði sér lítið fyrir
og lagði Ragnhildi Sigurðardóttur
úr GR í æsispennandi úrslitaleik
þar sem úrslit réðust á átjándu
holu. Ásta Birna lagði Valdísi Þóru
Jónsdóttur úr GL í undanúrslitum.
Valdís tapaði síðan fyrir Þórdísi
Geirsdóttur úr GK í leiknum um
þriðja sætið. - hbg
Úrslit réðust á Íslandsmótinu í holukeppni á Korpúlfsstaðavelli í gær:
Hlynur Geir og Ásta meistarar
SIGURREIF Þau Hlynur Geir
og Ásta Birna sjást hér með
verðlaun sín í Korpunni í gær.
MYND/KYLFINGUR.IS
FÓTBOLTI Það verður KR sem mætir
Fjölni í úrslitum Visa-bikarsins
eftir frækinn sigur á Breiðabliki
eftir framlengdan leik og víta-
spyrnukeppni. Markalaust var að
lokum venjulegs leiktíma og skor-
uðu liðin sitt markið hvort í fram-
lengingunni. KR skoraði fjögur
mörk gegn einu í vítakeppninni.
Mikilvægi leiksins kristallaðist
í varnarsinnuðum leikaðferðum
liðanna. KR-ingar voru öllu meira
með boltann framan af fyrri hálf-
leik en áttu ekki skot að marki
Breiðabliks allan hálfleikinn.
Sóknartilburðir Breiðabliks
voru örlítið skárri en helst skapað-
ist hætta við mark KR þegar lands-
liðsmarkvörðurinn Stefán Logi
Magnússon missti fyrirgjafir
Blika án þess að Kópavogsliðið
næði að nýta sér það.
Fyrsta markskot KR kom á
fimmtu mínútu síðari hálfleiks
þegar Casper Jacobsen varði
meistaralega frá Gunnari Erni af
stuttu færi. KR sótti af krafti
fyrstu tíu mínútur síðari hálfleiks
og lofaði byrjunin góðu.
Blikar svöruðu með fínum
spretti Jóhanns Bergs sem lagði
upp gott færi fyrir Marel sem
Stefán varði.
Eftir þessa fínu byrjun á síðari
hálfleik datt leikurinn niður á ný
og fyrir utan einstaka spretti Blika
gerðist fátt markvert þar til fimm
mínútur voru til leiksloka. Blikar
gerðu harða atlögu að marki KR
og áttu meðal annars skot í stöng
en allt kom fyrir ekki og fram-
lengja þurfti leikinn.
3.026 manns mættu til að sjá
skemmtilegan leik en urðu fyrir
sárum vonbrigðum. KR-ingar voru
mættir til að halda hreinu sem þeir
gerðu á kostnað sóknarleiksins.
Marel Jóhann Baldvinsson braut
ísinn á sjöttu mínútu framlenging-
ar með marki úr vítaspyrnu sem
Frosti Gunnarsson aðstoðardóm-
ari dæmdi. Strangur dómur en
Pétur Marteinsson braut á Marel.
Eftir markið þurftu KR-ingar að
færa sig framar og sækja og það
bar ávöxt sex mínútum eftir mark
Breiðabliks þegar Pétur bætti
fyrir vítaspyrnuna og skoraði af
stuttu færi eftir aukaspyrnu
Bjarna Guðjónssonar.
Framlengingin var töluvert líf-
legri en venjulegur leiktími og
fengu bæði lið færi til að tryggja
sér sæti í úrslitum. Engu að síður
urðu mörkin ekki fleiri og þurfti
því vítaspyrnukeppni til að knýja
fram úrslit.
Stefán Logi var hetja KR í víta-
spyrnukeppninni þegar hann varði
eina frá Arnari Grétarssyni á
sama tíma og KR nýtti allar fjórar
spyrnur sínar. - gmi
Stefán Logi var hetja KR-inga
KR tryggði sér sæti í úrslitum VISA-bikarsins er liðið lagði Breiðablik eftir vítaspyrnukeppni. Stefán Logi
Magnússon, markvörður KR, reyndist hetja KR-inga í vítaspyrnukeppninni. KR mætir Fjölni í úrslitum.
ÁTÖK OG HETJAN Það var hart tekist á hjá KR og Blikum í gær. Það fékk Björgólfur Takefusa að reyna líkt og sést á myndinni að
neðan. Á minni myndinni er hetja KR-inga, Stefán Logi Magnússon, sem varði vel í leiknum sem og í vítakeppninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VÍTASPYRNUKEPPNIN
KR - Breiðablik 1-1 e. framlengingu
0-1, Marel Baldvinsson 96.
1-1, Pétur Marteinsson 102.
2-1, Bjarni Guðjónsson mark
2-1, Arnar Grétarsson varið
3-1, Guðjón Baldvinsson mark
3-1, Alfreð Finnbogason yfir
4-1, Pétur Marteinsson mark
4-2, Arnór Aðalsteinsson mark
5-2, Jónas Guðni Sævarsson mark