Fréttablaðið - 21.09.2008, Side 53
SUNNUDAGUR 21. september 2008
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Einstakt tækifæri - hrífandi leikhúsveisla
l e i k r i t ið Eng i sp re t tu r a f tu r á sv ið
PBB Fréttablaðið
Athugið aðeins fimm sýningar:
fös 26/9, lau 27/9, sun 5/10, fim 9/10, fös 10/10
eftir Biljana Srbljanovic
Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir
Miðasala í
síma 551 1200
www.leikhusid.is
Fjöldi tónlistarmanna
kemur fram á styrktar-
tónleikum fyrir samtökin
Umhyggju á Nordica hóteli
28. september.
Á meðal þeirra sem stíga á svið á
tónleikunum verða Ragnar Bjarna-
son, Egill Ólafsson, Stefán Hilm-
arsson, Sigga Beinteins, Friðrik
Ómar, Regína Ósk og Hörður
Torfason.
Arnhildur S. Magnúsdóttir, nudd-
ari og jógakennari, skipuleggur
tónleikana með aðstoð tónlistar-
mannsins Geirs Ólafssonar sem
treður einnig upp. Þetta er í fyrsta
sinn sem hún kemur nálægt tón-
leikahaldi en lætur það ekki aftra
sér. „Ég er búin að ganga með
þetta í maganum síðan í fyrra-
haust,“ segir Arnhildur. „Ég hef
verið að vinna með fólki á sambýl-
um sem er búið að vera langveikt
og það er lítið gert fyrir þetta fólk.
Mér finnst þetta alveg sjálfsagt og
það mættu fleiri gera þetta.“
Arnhildur greindist sjálf með
krabbamein sem hún er nú laus
við og veit því vel um hvað málið
snýst. „Það er ekkert sjálfgefið að
sleppa svona auðveldlega og ég
þakka fyrir að fá að vera lifandi,“
segir hún og er jafnframt þakklát
þeim tónlistarmönnum sem sam-
þykktu að gefa vinnu sína. Hvetur
hún almenning til að leggja mál-
efninu lið og mæta á tónleikana,
en Umhyggja er félag sem vinnur
að bættum hag sjúkra barna og
fjölskyldna þeirra.
Miðasalan fer fram á midi.is og er
miðaverð 2.000 krónur. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 20. - fb
Nuddari með
styrktartónleika
ARNHILDUR S. MAGNÚSDÓTTIR
Arnhildur hvetur almenning til
að mæta á tónleikana, skemmta
sér og styrkja Umhyggju í
leiðinni.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N