Fréttablaðið - 13.10.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 13.10.2008, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 13. október 2008 19 Söngleikurinn Fólkið í blokkinni var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á föstu- dagskvöld. Gestir kunnu vel að meta verkið og var aðstandenum vel fagnað að sýningu lokinni. Fólkið í blokkinni er eftir Ólaf Hauk Símonarson. Meðal leikara eru Guðjón Davíð Karlsson, Hall- dór Gylfason, Halldóra Geirharðs- dóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jóhann Sigurðarson, Jóhanna Vig- dís Arnardóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Magnús Guð- mundsson. Unnur Ösp Stefáns- dóttir er leikstjóri og Geirfugl- arnir sjá um tónlistina í sýningunni. Ljósmyndari Fréttablaðsins fékk að kíkja baksviðs skömmu fyrir frumsýninguna á föstudags- kvöld og var góð stemning meðal leikaranna. Leikhúsgestir voru sömuleiðis spenntir að sjá útkom- una. Fólkinu í blokkinni fagnað folk@frettabladid.is > Í NÝRRI GAMANMYND Leikarinn Seth Rogen, úr 40 Year Old Virgin og Knocked Up, hefur samþykkt að framleiða og fara með aukahlutverk í gamanmyndinni I´m With Canc- er. Handritshöfundur myndar- innar er sjónvarpsframleiðand- inn Will Reiser sem greindist með krabbamein á þrítugs- aldri. Í myndinni verður reynt að finna spaugilegar hliðar á þessum alvarlega sjúkdómi. „Já það kostar svo lítið á þetta að fólk er á fullu að skrá sig,“ segir Friðrik Rafnsson, forseti Alliance Francaise, um súkkulaðismökkunarnámskeið sem samtökin standa fyrir á morgun, þriðjudag. Á námskeiðinu verður farið yfir sögu súkkulaðis og þátttakendum boðið að smakka átta tegundir af hinu franska Valrhona-súkkulaði undir leiðsögn Viggós Vigfússonar kokka- landsliðsmanns og súkkulaðimeistara. „Þetta er hluti af þessum lífsnautna- námskeiðum sem við höfum verið með og munu halda áfram, líkt og vínsmökk- un og ilmvatnsnámskeið. Það er mikill menningarheimur á bak við þetta sem við þekkjum takmarkað. Þótt ýmislegt gangi á í efnahagslífinu þarf fólk að halda áfram að lifa og þarf einmitt núna ástæðu til að njóta lífsins. Súkkulaði er gleðigjafi, er sagt vinna á þunglyndi og veita svipaða vellíðunartilfinningu og þegar fólk er ástfangið,“ segir Friðrik og Viggó tekur í sama streng. „Ég held að þetta sé tilvalin leið til að fá smá gott í kroppinn og vera jákvæð- ur. Við munum sýna hvernig kakó er búið til, frá akri til verksmiðju, og fara yfir hvernig á að smakka súkkulaði. Það eru mikil fræði á bak við súkkulaði og gríðarlega mikill áhugi fyrir þessu. Þurfa ekki allir á einhverju sætu að halda núna?“. - ag Súkkulaðismökkun á krepputíma SÚKKULAÐI GEGN ÞUNGLYNDI Friðrik Rafnsson segir súkkulaði vera mikinn gleðigjafa og fólk þurfi að halda áfram að njóta lífsins þrátt fyrir storminn sem geisar í efnahagslífinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BROSMILD Í BORGARLEIKHÚSI Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri ásamt leikkonunum Esther Talíu Casey og Maríönnu Clöru Lúthersdóttur. Þær Esther og Maríanna eru skólasystur leikstjórans, Unnar Aspar, úr Leiklistarskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STOLT Þórunn Sigurðardóttir og Stefán Baldursson, foreldrar leikstjórans Unnar Aspar, sjást hér með Magnúsi Geir leikhússtjóra. SPENNA Leikararnir slógu á létta strengi baksviðs skömmu fyrir frumsýningu. Í STÓLNUM Freyr Eyjólfsson úr Geir- fuglunum er hér gerður sviðshæfur í förðunarstólnum. Söngvarinn Bryan Ferry var brjál- aður út í Paris Hilton fyrir að spila harðkjarna techno tónlist á alltof miklum styrk á Jalouse klúbbnum í London á dögunum. Þar var gamli Roxy Music söngvarinn staddur ásamt sonum sínum, Tara og Merl- in. Dj Paris var að leysa af fyrir- sætuna Daisy Lowe sem hafði spil- að tónlist að skapi Bryans. Þegar gauragangurinn í Paris byrjaði flúði Bryan með synina eins langt og hann komst frá hátölurunum. Viðstaddir voru sammála um að viðbjóðurinn hefði ekki leynt sér í svipbrigðum Bryans, enda er hann annálaður fagurkeri. Dj Paris Hilton böggar Bryan Ferry Tónlistarmaðurinn Jóhannes Birgir Pálmason, sem kallar sig Rain, er að gefa út sína fimmtu sólóplötu, No Strings Attached. Rain gaf út tvær plötur á síðasta ári sem voru báðar á íslensku en sú nýja er aftur á móti á ensku. „Þessi plata er líka ólík hinum vegna þess að hún er mjög mikið spiluð „live“. Hiphop er yfirleitt samplað en ég held að þetta sé fyrsta hiphop-platan á Íslandi sem er spiluð „live“,“ segir hann. Átta gítarleikarar koma við sögu á plötunni og tveir bassaleikarar, auk söngkonunnar Elínar Eyþórs- dóttur og Braga úr hljómsveitinni Johnny and the Rest. Lýsir Rain plötunni sem blöndu af hiphoppi, blús og kántrítónlist. Útgáfutónleikar vegna plötunnar eru fyrirhugaðir í nóvember. Fyrst mun Rain þó spila á Iceland Airwa- ves-tónlistarhátíðinni sem hefst í næstu viku. - fb Lifandi hiphop Playboy-kóngurinn Hugh Hefner er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að tvær úr kvennabúri hans; Holly Madison og Kendra Wilkinson, hafi nú yfirgefið hinn roskna klámkóng. Hefner virðist hafa úr nógu að moða þegar kemur að kvenmönn- um og nýjustu fréttir herma að þær tvær sem verði við hliðina á Hef næstu daga séu tvíburarnir Kristina og Karissa Shannon. Þær systur sátu nýverið fyrir fáklædd- ar á síðum Playboy-tímaritsins og heilluðu hinn aldna höfðingja upp úr skónum. Þeim hefur víst verið boðið að búa á Playboy-setrinu en það er þó aðeins fyrsta inntöku- skilyrðið fyrir sambúð með Hugh. Hefner hefur um árabil búið með þremur Playboy-kanínum á heimili sínu en þær hafa síðustu daga flúið í arma annarra og yngri manna. Hefner ku víst vera niður- brotinn eftir að Holly hvarf á braut en er, eins og venjulega, ekki lengi að ná sér á strik í ásta- málum sínum. Hugh Hefner ekki af baki dottinn FJÖRUGUR KARL Hefner er fjörugur karl á níræðisaldri sem hefur bætt tvíbura- systrum í safn sitt. HÁVAÐASEGGUR Paris Hilton RAIN Tónlistarmaðurinn Rain er að gefa út sína fimmtu sólóplötu, No Strings Attached.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.