Fréttablaðið - 13.10.2008, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 13. október 2008 23
FÓTBOLTI Framarinn Auðun Helga-
son er besti leikmaður Lands-
bankadeildar karla 2008 hjá
Fréttablaðinu. Auðun var með 6,86
í meðaleinkunn úr 21 leik en í 2. til
3. sæti komu þeir Gunnleifur
Gunnleifsson hjá HK og Hallgrím-
ur Jónasson hjá Keflavík. Hólmar
Örn Rúnarsson úr Keflavík var
besti miðjumaðurinn og Guðjón
Baldvinsson úr KR stóð sig best af
sóknarmönnunum.
Auðun lék alla deildarleiki Fram
í sumar nema einn og hann tapað-
ist 0-2 fyrir KR. Auðun var fjórum
sinnum valinn maður leiksins og
fékk 8 í einkunn fyrir sjö af þess-
um leikjum. Auðun fékk mjög
góða einkunn (7 eða hærra) í
fimmtán af deildarleikjum Fram í
sumar.
Mikilvægara hlutverk en 2005
„Ég fann það í vorleikjunum að ég
var kominn í ágætis stand. Þegar
leið á tímabilið fann ég að ég var
kominn í mitt gamla og góða form
eins og 2005. Þá skoraði ég mun
fleiri mörk en ég held að ég hafi
verið í mikilvægara hlutverki
núna en heldur jafnvel 2005,“
segir Auðun sem var nú búinn að
ná sér að fullu eftir krossbanda-
slitin.
Auðun varð fyrir því óláni að
slíta krossbönd í hné í febrúar
2006 og missti af öllu tímabilinu.
Honum gekk einnig illa að komast
aftur inn í hið sterka lið FH og var
aðeins í byrjunarliðinu í tveimur
leikjum í fyrra. „Ég fann alveg að
styrkurinn var kominn,“ segir
Auðunn enn fremur.
Auðun fékk ekki nýjan samning
hjá FH-ingum eftir vonbrigða-
tímabil í fyrra en þessi 34 ára
gamli miðvörður var ekki af baki
dottinn og átti mikinn þátt í að
koma Framliðinu aftur til veg-
semdar og virðingar á nýjan leik.
„Ég var ósáttur með mína stöðu
í fyrra. Maður vill alltaf mikið,
vill spila og vera fremstur í flokki.
Það var til þess að maður tók þess-
arri áskorun að fara í Fram. Hún
gekk algjörlega eftir,“ sagði
Auðun.
Þorvaldur Örlygsson gerði frá-
bæra hluti með Framliðið í sumar
og tók varnarleikinn í gegn. Auðun
var ekki eini liðsstyrkurinn fyrir
varnarleik liðsins því vinstri bak-
vörðurinn Sam Tillen kom frá
Englandi og Þorvaldur tók með
sér varnartengiliðinn Halldór
Hermann Jónsson úr Fjarða-
byggð.
Þorvaldur fann réttu blönduna
„Ég man þegar við settumst niður
fyrir ári þá var ég mjög hrifinn af
því að Þorvaldur ætlaði að gera
ákveðnar breytingar. Það var búið
að ganga svo illa undanfarið og
hann vildi fá mig til að greina og
koma skikki á varnarleikinn. Ekki
bara varnarleik öftustu línu held-
ur alls liðsins,“ segir Auðun.
„Ég og Þorvaldur höfum átt
mjög gott samstarf og við höfum
rætt ýmsa hluti í gegnum allt
tímabilið. Hann fann algjörlega
réttu blönduna í sumar,“ segir
Auðun. „Þorvaldur skapaði alveg
gríðarlega góðan móral í hópnum.
Hann er ekki með neinar yfirlýs-
ingar heldur vinnur sína vinnu
mjög vel. Hann pælir mikið í þessu
en er ekki mikið að gaspra út á
við,“ segir Auðun um þjálfarann
sinn.
Framarar sýndu styrk sinn á
lokasprettinum þegar þeir unnu
sannfærandi sigur á verðandi
Íslandsmeisturum í FH og höfðu
síðan Íslandsmeistaratitilinn af
Keflvíkingum með því að vinna þá
í lokaumferðinni. Keflavík hafði
unnið fimm heimaleiki í röð, með
markatölunni 15-3, fyrir þennan
leik. Sigurinn á Fram í lokaum-
ferðinni færði hans gamla liði
Íslandsmeistaratitilinn.
Frábær niðurstaða
„Það má kannski segja það að
fyrst ég fór að skipta um lið á gam-
alsaldri þá var þetta kannski frá-
bær niðurstaða fyrir mig. Ég
er fæddur og uppalinn FH-
ingur og það er frábært að
titilinn fór í Hafnarfjörðinn
því þeir áttu það svo sannar-
lega skilið. Því miður fyrir
Keflvíkingana þá voru
þeir ekki alveg nógu
sterkir á lokasprettin-
um. Þetta snýst um að
halda jafnt út og þeir
gerðu það ekki. Það
var fullkominn endir
fyrir mig á frábæru
tímabili að titillinn
færi í Hafnarfjörð-
inn og að við tækjum
Evrópusætið,“ segir
Auðun.
Leiðinlegi boltinn
Auðun segir að gagnrýnin
á leiðinlega spilamennsku
Framliðsins hafi ekki haft
nein áhrif á liðið.
„Við vissum alveg að við
vorum á réttu róli. Það var
verið að tala um að við spil-
uðum leiðinlegan fótbolta
og það má vel vera að við
höfum gert það inn á milli.
Svo held ég að við höfum
sannað okkur í seinni umferð-
inni og mér fannst við vera að
spila besta boltann í seinni
umferðinni,“ segir Auðunn.
Það töluðu líka fáir um leið-
inlega spilamennsku þegar
leið á tímabilið. „Þetta var í
raun bara ævintýri líkast.
Þegar Keflavíkurleikurinn
var búinn þá hugsaði
maður að við værum
komnir lengra en maður
hafði þorað að vona.
Maður hefur ágætis
reynslu í þessu og
maður veit að það tekur
tíma að koma þessum
hlutum í lag. Það tókst
alveg ótrúlega hratt og
vel,“ sagði Auðun. Hann
var mjög sáttur við að
sóknarleikurinn hefði farið
í gang eftir mitt mót.
Glimrandi sóknarleikur
„Seinni umferðin var alveg
frábær hjá okkur og þá
kemur sóknarleikurinn.
Hann hafði ekki orðið nógu
beittur í fyrri umferðinni en
svo þegar leið á mótið þá kom
hann. Varnarleikurinn var
búinn að vera alveg frábær
frá fyrsta degi. Það gaf okkur
ákveðið öryggi og traust og við
héldum því allt sumarið. Svo
kemur alveg glimrandi sóknar-
leikur í seinni umferðinni,“
segir Auðun en það var vörnin
sem allt byggðist á.
„Við spiluðum varnarleikinn
eins og meistaralið. Það að fá á sig
21 mark í 22 leikjum er rosalega
gott,“ segir Auðun.
Fram er komið í Evrópukeppni í
fyrsta sinn í næstum sautján ár
eða síðan liðið var með í Evrópu-
keppni félagsliða haustið 1992. Lið
Fram hefur ekki verið meðal
þriggja efstu liða síðan sumarið
1991 en liðið endaði þá í 2. sæti
sem var enn fremur sjötta tíma-
bilið í röð þar sem Safamýrarliðið
var meðal þriggja efstu. Síðan
hefur Framliðið ofast verið í fall-
baráttu og tvisvar sinnum þurft að
sætta sig við að falla úr deildinni.
„Það er frábært fyrir félagið.
Þetta er gríðarlega mikilvægt
skref fyrir Fram,“ segir Auðun
„og árangur sumarsins er langtum
betri en allir bjuggust við.“
Vinnum ekki titil með sama lið
Hann veit að það gæti orðið erf-
iðar að halda Fram í hópi efstu
liða. „Það á margt eftir að breytast
í vetur en ef við tökum deildina
eins og hún er þá erum við ekki að
fara vinna þessa deild með sama
lið. Ég veit hvað þarf til að vinna
svona deild. Markmiðið hjá okkur
verður að ná jafngóðum árangri ef
ekki betri. Þriðja sætið á næsta ári
væri frábær árangur og að fara
líka lengra í bikar. Við erum í Evr-
ópukeppni líka þannig að það verð-
ur meira álag. Að ná þiðja sæti á
næsta ári er enn meira afrek en að
ná þriðja sæti núna því það verður
meira álag,“ segir Auðun.
Er alls ekki hættur
Hann sjálfur er klár í slaginn og
er ekkert að fara að leggja skóna á
hilluna. „Þetta var lengsta tímabil-
ið hjá mér í langan tíma. Ég var
orðinn verulega þreytur eftir síð-
asta leik. Nú er bara gott frí. Ég á
mér ákveðin markmið fyrir næsta
sumar sem eiga eftir að koma í
ljós,“ segir Auðun sem er orðinn
34 ára gamall.
„Ég er alls ekki hættur og fann
hvað ég hafði gaman af þessu núna
í sumar. Það var líka nýtt hlutverk
hjá mér að gefa af sér. Þegar
maður er kominn á þennan aldur
þá reynir maður meira að miðla af
þekkingu og reynslu. Það gefur
manni rosalega mikið,“ segir þessi
frábæri varnarmaður að lokum.
ooj@frettabladid.is
Spiluðum varnarleikinn eins og meistaralið
Auðun Helgason, leiðtogi bestu varnarinnar í Landsbankadeild karla, er besti leikmaður Landsbankadeildar karla hjá Fréttablaðinu.
Hann segir tímabilið ævintýri líkast, gengi Fram hafi verið betra en nokkur þorði að vona. Auðun sér ekki eftir að hafa yfirgefið FH.
Á MÓTI GÖMLU FÉLÖGUNUM Í FH Auðun Helgason sést hér í baráttunni við Jónas Grana Garðarsson í leik Fram og FH í Kapla-
krika í sumar. Þeir skiptu um lið fyrir tímabilið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BESTI LEIKMAÐURINN:
Auðun Helgason, Fram 6,86
Gunnleifur Gunnleifsson, HK 6,81
Hallgrímur Jónasson , Keflavík 6,81
Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík 6,80
Freyr Bjarnason, FH 6,64
Guðjón Baldvinsson, KR 6,62
Guðmundur Steinarsson , Keflav 6,57
Hannes Þór Halldórsson , Fram 6,55
Guðjón Árni Antoníusson, Keflav. 6,50
Gunnar Már Guðmundss., Fjölni 6,45
Paul McShane, Fram 6,43
Davíð Þór Viðarsson, FH 6,43
Finnur Orri Margeirsson Breiðab. 6,43
Pétur Marteinsson, KR 6,43
Zoran Stamenic, Grindavík 6,41
Kenneth Gustafsson, Keflavík 6,41
Ómar Jóhannsson, Keflavík 6,41
Grétar Sigurðarson, KR 6,33
Scott Ramsay, Grindavík 6,33
Fjalar Þorgeirsson, Fylkir 6,32
Viktor Bjarki Arnarsson, KR 6,32
Jónas Guðni Sævarsson, KR 6,27
Símun Samuelsen, Keflavík 6,24
Samuel Tillen, Fram 6,24
Jóhann Berg Guðmundss., Breið. 6,23
Pálmi Rafn Pálmason, Val 6,17
Reynir Leósson, Fram 6,15
Kjartan Sturluson, Val 6,14
Guðmundur Benediktsson, Val 6,13
Ingvar Þór Ólason, Fram 6,11
Óli Stefán Flóventsson, Fjölni 6,11
Tryggvi Guðmundsson, FH 6,10
Halldór Hermann Jónsson, Fram 6,09
Guðmundur Kristjánss., Breið. 6,07
Casper Jacobsen, Breiðabliki 6,05
Heiðar Geir Júlíusson, Fram 6,05
Hjörtur Logi Valgarðsson, FH 6,05
Þórður Ingason, Fjölni 6,05
Kristján Hauksson, Fjölnir 6,05
Patrik Redo, Keflavík 6,05
BESTU MARKMENN
Gunnleifur Gunnleifsson, HK 6,81
Hannes Þór Halldórsson , Fram 6,55
Ómar Jóhannsson, Keflavík 6,41
Fjalar Þorgeirsson, Fylki 6,32
Kjartan Sturluson, Val 6,14
Casper Jacobsen, Breiðabliki 6,05
Þórður Ingason, Fjölni 6,05
BESTU VARNARMENN
Auðun Helgason, Fram 6,86
Hallgrímur Jónasson, Keflavík 6,81
Freyr Bjarnason, FH 6,64
Guðjón Árni Antoníuss., Keflavík 6,50
Finnur Orri Margeirsson, Breiðab. 6,43
Pétur Marteinsson, KR 6,43
BESTU MIÐJUMENN
Hólmar Örn Rúnarsson , Keflavík 6,80
Gunnar Már Guðmundss. , Fjölni 6,45
Paul McShane, Fram 6,43
Davíð Þór Viðarsson, FH 6,43
Scott Ramsay, Grindavík 6,33
Viktor Bjarki Arnarsson, KR 6,32
BESTU SÓKNARMENN
Guðjón Baldvinsson, KR 6,62
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 6,57
Jóhann Berg Guðm., Breiðabliki 6,23
Guðmundur Benediktsson , Val 6,13
Tryggvi Guðmundsson, FH 6,10
Patrik Redo, Keflavík 6,05