Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.10.2008, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.10.2008, Qupperneq 6
6 14. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR Ævintýrasmiðja - Ferðasmiðja - Viðburðasmiðja Opnunartímar SÓLNING Njarðvík, Fitjabraut 12, sími 421 1399 Selfoss, Gagnheiði 2, sími 482 2722 Skiptu á vetrardekkin í dag Virka daga 8.00–18.00 Laugardaga 10.00–13.00 VIÐSKIPTI Tryggingasjóður inn- stæðueigenda á samanlagt um þrettán milljarða króna. Auk þess eru sex milljarðar króna í ábyrgð- um frá bönkum. Samkvæmt lögum er lágmarks- stærð hans eitt prósent af innlán- um. Bankar greiða til sjóðsins. Samanlögð innlán stóru íslensku bankanna þriggja námu hátt í 4.500 milljörðum íslenskra króna um mitt árið, miðað við gengi krónunnar þá. Megnið af þessu fé hefur verið á innlánsreikningum erlendis. Sumt var í dótturfélög- um. Innstæður hjá dótturfélögum falla ekki á Tryggingasjóðinn. Innlán í Landsbanka námu 1.600 milljónum króna um mitt árið, miðað við þáverandi gengi. Þau falla að líkindum öll undir ábyrgð Tryggingasjóðsins. Þyngst vega innlán á svonefndum Icesave- reikningum. Innlán í Kaupþingi námu 1.848 milljörðum króna á sama tíma, á sama gengi. Nokkur hluti þess, að minnsta kosti innlán í Bretlandi, voru í höndum dótturfélaga þar og falla undir þarlendar trygging- ar. Eftir standa 1.099 milljarðar króna. Hjá Glitni var staðan þannig um mitt árið að 1.021 milljarður króna voru í innlánum. Um þriðj- ungur af því var í dótturfélögum í Noregi og Finnlandi. Eftir stóðu um mitt árið 681 milljarður króna. Samanlagt virðist mega ætla að innlán í bönkunum þremur, sem Tryggingasjóður innstæðueig- enda þarf að ábyrgjast, nemi 3.380 milljörðum króna. Miðað við skráð gengi evrunnar hjá Seðlabankanum nú nemur þessi upphæð 4.050 milljörðum króna. Með öðrum orðum vantar all- mikið í Tryggingasjóð innstæðu- eigenda. Þar er innan við helm- ingur af því sem þar ætti að vera. Sjóðurinn tryggir upphæðir hjá hverjum innstæðueiganda, að lágmarki ríflega tuttugu þúsund- ir evra. Einn viðmælandi innan „gamla“ bankakerfisins orðaði það svo að sennilega hefðu menn ekki leitt hugann að innstæðutryggingum, gagnvart erlendum innstæðu- eigendum. Eins prósents skilyrðið stóðst ekki í árslok 2007. Þá vantaði ríf- lega tvo og hálfan milljarð króna í sjóðinn, fyrir árið 2007. Auk þess settu bankarnir ábyrgðir fyrir ríflega sex milljörðum króna til viðbótar. Engin viðurlög eru við brotum á lögum um Tryggingasjóðinn eftir því sem næst verður komist. Jónas Þórðarson, framkvæmda- stjóri sjóðsins, upplýsti um það í Markaðnum síðasta miðvikudag að sjóðnum væri heimilt að taka lán til að mæta skuldbindingum sem falla á hann. Ekki náðist í Jónas við vinnslu fréttarinnar. ingimar@markadurinn.is ÚTIBÚ KAUPÞINGS VIÐ HLEMM Bankarnir þrír, Landsbankinn, Kaupþing og Glitnir, sem nú hafa verið þjóðnýttir stóðu ekki í skil- um við Tryggingasjóð innistæðueigenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Standa ekki í skilum við Tryggingasjóðinn Bankarnir hafa ekki sett eitt prósent af innlánum sínum í Tryggingasjóð. Þeir voru í milljarða mínus gagnvart sjóðnum í fyrra. Þrettán milljarðar króna eru í sjóðnum. Ætla má að þar ættu nú að vera að minnsta kosti fjörutíu milljarðar. Óttast þú matvælaskort á landinu? Já 18,7% Nei 81,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú eða einhver sem þú þekkir misst vinnuna vegna kreppunnar? Segðu skoðun þína á Vísir.is MENNING Tíu milljóna króna fram- lag Stoða til Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafði ekki verið greitt þegar félagið fór í þrot. Stoðir voru annar stærsti bakhjarl hljóm- sveitarinnar. Stærsti bakhjarlinn, Landsbankinn, hafði greitt sinn hluta áður en ríkið tók hann yfir. Framlag Stoða var eyrnamerkt starfi í grunnskólum. Hljóðfæra- leikarar hafa unnið með grunn- skólabörnum í viku og þeim boðið á tónleika í lok samstarfsins. „Pen- ingarnir frá Stoðum voru hugsaðir í þetta verkefni, svo það er í ákveðnu uppnámi,“ segir Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sin- fóníunnar. Fleira mun þyngja róðurinn hjá Sinfóníunni þetta árið. Hætt er við því að aðsókn minnki með versn- andi fjárhag. Þá er nokkuð stór hluti útgjalda hljómsveitarinnar í erlendri mynt. Þrátt fyrir það gerir Þröstur ekki ráð fyrir að rask verði á dagskrá Sinfóníunnar hér á landi á þessu starfsári. Allar líkur séu hins vegar á að svo verði næsta starfsár. Í lok þessa mánað- ar fer Sinfóníuhljómsveitin til Japans í boði japansks velunnara. Hætt hefur verið við aðrar ferð- ir sem fyrirhugaðar voru á starfs- árinu, annars vegar til Spánar og hins vegar til landa í Mið-Evrópu. - hhs SKÓLABÖRN OG SINFÓ Tíu milljóna króna framlag Stoða til Sinfóníuhljóm- sveitarinnar átti að standa undir starfi hennar með grunnskólabörnum. Stoðir áttu eftir að greiða tíu milljóna framlag til Sinfóníuhljómsveitar Íslands: Samstarf við skóla í uppnámi VIÐSKIPTI Mikil eftirsókn er nú eftir peningaskápum og þjónustu öryggisvarða og lífvarða. Ragnar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Öryggismiðstöðvar Íslands, telur að ekki megi nota orð eins og ver- tíð um það ástand sem nú ríkir í landinu. „Það hefur verið býsna mikið að gera svo ekki sé meira sagt,“ segir hann um stöðuna. „Peningaskápar seljast nú grimmt, salan er gríðarleg,“ segir Ragnar en eftir nýliðna atburði í íslensku samfélagi ríkir van- traust á bankakerfinu og fólk kýs frekar að geyma fé heima en í banka. Hann segir það valda fyrirtæki sínu þónokkrum vand- kvæðum að ekki sé hægt að kaupa fleiri skápa inn til landsins vegna stöðunnar en þó sé einhver lager til. Ástandið hafi einnig skapað aukna þörf á öryggisvörðum, svo sem á blaðamannafundum og í fjármálastofnunum. Auk þess hafi nú sést hve mikilvægt sé að hafa sérþjálfaða lífverði í röðum öryggisvarða. Ragnar segist þó ekki vilja gefa upp nákvæmar tölur og upplýsingar um sérþjálf- aða starfsmenn sína. Spurður hvort virkilega sé orðin raun- veruleg þörf fyrir þjónustu líf- varða segir hann svo vera og bætir við að auk þess þá vilji fólk ekki bíða og sjá hve mikil hún sé nákvæmlega. „Okkar starf snýst jú fyrst og fremst um forvarnir.“ Hann segir að enn sé ekki búið að taka ákvörðun um hvort ráða þurfi fleiri starfsmenn til starfa. Rykið þurfi að setjast í samfélag- inu áður en hægt sé að huga að því. - kdk Mikil eftirsókn er nú í peningaskápa og þjónustu lífvarða og öryggisvarða: Uppgangur í öryggisþjónustu FRAMKVÆMDASTJÓRINN Ragnar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Öryggismið- stöðvar Íslands, og starfsfólk hans hefur í mörgu að snúast þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Hringdu í síma ef blaðið berst ekki VIÐSKIPTI Kaupþing í Noregi seldi í gær tíu prósenta hlut sinn í norska tryggingarfyrirtækinu Storebrand í áskriftasölu í gær. Söluandvirði nemur 988 milljón- um norskra króna, jafnvirði sautján milljarða íslenskra. Salan var þvinguð eftir veðkall frá Royal Bank of Scotland sem kom bréfunum í verð með áskriftasölu í gegnum hollenska risabankann ABN Amro. Kaupþing á enn tíu prósenta hlut í Storebrand. Exista átti þar til á fimmtudag í síðustu viku tæpan níu prósenta hlut í Storebrand. Félagið seldi hann í lok vikunnar ásamt öðrum eignum. - jab Kaupþing selur í Storebrand: Salan þvinguð KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.