Fréttablaðið - 21.10.2008, Side 10
10 21. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Ungir jafnaðarmenn
krefjast þess að ríkisstjórnin
tryggi að námsmönnum verði
gert kleift að kaupa gjaldeyri.
Þá vilja þeir að reglum LÍN
verði breytt og að námslán verði
greidd út mánaðarlega.
Þeir gera jafnframt þá kröfu
að lánin haldi í við verðbólgu.
Ljóst er að lánin munu lækka að
raunvirði verði ekkert aðhafst.
Í ályktun sem ungir jafnaðar-
menn hafa sent frá sér segir að
háskólamenntað fólk muni
gegna lykilhlutverki í uppbygg-
ingu landsins og því sé mikil-
vægt að hvetja fólk til náms
erlendis. - ks
Kröfur ungra jafnaðarmanna:
Námsmenn
treysta á lán
SAMFÉLAGSMÁL 66° Norður hefur
gefið flóttafólkinu á Akranesi
hlýjan vetrarfatnað.
Að sögn mun fólkið afskaplega
fegið aðstoðinni. Það voru þær
Shyamali Gitosh verkefnisstjóri
og Anna Lára Steindal fram-
kvæmdastjóri sem tóku á móti
gjöfunum. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem fyrirtækið lætur gott af
sér leiða með fatagjöfum, meðal
annars hafa Mæðrastyrksnefnd á
Akureyri og Fjölskylduhjálpin
fengið fatnað gefins. - þg
Veglegar gjafir á Skagann:
Flóttafólk fær
vetrarfatnað
SKIPULAGSMÁL „Þessu var mjög vel
tekið,“ segir Sigurður Magnússon,
bæjarstjóri á Álftanesi, sem á
fimmtudagskvöld kynnti breyting-
ar á umdeildri tillögu um skipulag
við Vestur-Skógtjörn.
Íbúar á Skógtjarnarsvæðinu
gerðu margir athugasemdir við
fyrirhugað deiliskipulag. Fyrst og
fremst voru eigendur húsa á sjávar-
lóðum ósáttir við áform um göngu-
stíga í fjörukambinum. Sigurður
bæjarstjóri segir að strandstígar
hafi lengi verið á aðalskipulagi en
að slíkt sé viðkvæmt þar sem
gömul og þétt byggð sé fyrir.
„Eftir að hafa hlustað á íbúana
tókum við ákvörðun um að leggja
ekki stíga í fjörkantinum heldur
gera það sem kallað er stiklur. Þær
leiða fólk um ströndina með upp-
lýsingum um náttúrufar og það
sem gaman er skoða á svæðinu án
þess að raska jarðvegi með því að
leggja stíga,“ útskýrir Sigurður.
Uppnám varð á fundinum þegar
eigendur sjávarlóðar í Miðskógum
8 gerðu harða hríð að bæjarstjór-
anum vegna deilu við bæjaryfir-
völd sem ekki hafa viljað heimila
byggingu húss á lóðinni. Sló í svo
heiftarlega brýnu að margir gestir
hurfu frá fundinum sem leystist
upp í kjölfarið.
„Íbúarnir voru ósköp leiðir yfir
því hvernig þetta fólk kom fram en
það má segja að það hafi verið búið
að kynna flest af því sem þurfti,“
segir bæjarstjórinn. - gar
Öldur lægðar við sjávarlóðir hjá Skógtjörn á Álftanesi:
Hætt við umdeilda fjörustíga
FUNDARMENN Á ÁLFTANESI Kynning-
arfundur sem Sigurður Magnússon
bæjarstjóri boðaði til um deiliskipulag
Vestur-Skógtjarnarsvæðis var mjög vel
sóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FJÖLDASKÍRN Í JÓRDAN Þessur kristnu
pílagrímar frá Brasilíu gerðu sér ferð til
Ísraels nú í vikunni til að láta skíra sig í
ánni Jórdan. NORDICPHOTOS/AFP
Kynjajafnræði í bankaráðum
Stjórn kvennahreyfingar Samfylking-
arinnar skorar á forystu flokksins og
ríkisstjórn að hafa jafnræði kynja að
leiðarljósi við skipan í bankaráð hinna
nýju banka.
STJÓRNMÁL
DANMÖRK Átökin milli Hell‘s Ang-
els og nokkurra innflytjendaklíkna
í Danmörku virðast engan enda
ætla að taka. Að minnsta kosti
þremur byssukúlum var skotið á
höfuðstöðvar Hell‘s Angels á Svan-
evej í Kaupmannahöfn á mánu-
dagskvöld. Enginn særðist í
árásinni.
Deilurnar milli gengjanna hófust
formlega í ágúst með morðinu á
hinum nítján ára gamla Osman
Nuri Dogan, sem var skotinn niður
í Tingbjerg-hverfinu. Síðan hafa
átökin geisað linnulítið og hafa
gengin meðal annars gripið til skot-
vopna og handsprengna.
Í síðustu viku sagði Danny
Abdalla, leiðtogi innflytjendaklík-
unnar Den Internationale Klub
(DIK), sem afplánar nú átta ára
dóm fyrir ofbeldi og fjárkúgun, að
átökin gætu aðeins tekið enda ef
Hell‘s Angels framseldu þrjá með-
limi sína sem grunaðir eru um
morðið á Dogan. Abdalla vill þó
ekki selja Vítisenglana í hendur
lögreglunnar, heldur innflytjenda í
Tingbjerg-hverfinu þar sem Dogan
var skotinn, því þeir eigi rétt á að
ákveða hver örlög morðingjanna
verði. Abdalla vill auk þess að
Hell‘s Angels greiði fjölskyldu
Dogans skaðabætur upp á fjórar
milljónir danskra króna, andvirði
um 73 milljóna íslenskra króna.
Talsmenn Hell‘s Angels láta ekk-
ert hafa eftir sér um málið.
- kg
Leiðtogi innflytjendaklíku í Danmörku hefur lausn á deilunni við Hell‘s Angels:
Fer fram á framsal og skaðabætur
UPPHAF ÁTAKANNA Osman Nuri Dogan
var myrtur í Tingbjerg-hverfinu í Kaup-
mannahöfn. Leiðtogi DIK-klíkunnar vill
að þeir sem grunaðir eru um morðið
verði framseldir til íbúa hverfisins.
MYND/TEITUR JÓNASSON