Fréttablaðið - 21.10.2008, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. október 2008
VINNUMARKAÐUR Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson, dósent við HÍ, sendi
nýlega aðildarfélögum BHM tölvu-
póst þar sem hann bendir á
að enginn fulltrúi frá
Háskóla Íslands, „sem hefur
jú í 50 ár verið „útungunar-
stöð“ fyrir BHM og helsta
miðstöð háskólamenntunar
á Íslandi“, sé á fyrirhuguðu
afmælismálþingi BHM, Far-
seðill til framtíðar.
„Mér þykir það einkenni-
legt þegar BHM er að halda
upp á 50 ára afmæli með
málþingi um menntun að þá
skuli enginn vera frá
Háskóla Íslands til að tala,“
segir Gylfi.
Í tölvupósti sínum bendir hann á
að rektor Háskólans í Reykjavík og
formaður Samtaka atvinnulífsins
séu með innlegg og varpar því fram
hvort þetta sé „fyrirboði um fram-
tíðina – ekki bara farseðill – hver
veit...,“ segir í tölvupóstinum.
Gylfi segist hafa fengið mikil
viðbrögð, fólki þyki þetta athyglis-
vert. Hann bendir á að HÍ eigi
marga góða menn til að flytja erindi
á svona málþingi. Undar-
legt þyki til dæmis að for-
maður SA tali þarna en SA
hafi gagnrýnt hið opinbera
fyrir að þenjast út og að
opinberir starfsmenn séu of
margir.
Stefán Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri BHM,
segir að óskað hafi verið
eftir því við rektor HÍ að
hann ávarpaði samkomuna
en hann hafi neitað. „Mér
þykja þetta undarlegar
athugasemdir,“ segir hann.
„Ætli þeir sem tala á mál-
þinginu hafi ekki hlotið hluta sinn-
ar menntunar við HÍ.“
Stefán bendir á að BHM sé
bandalag háskólamanna, ekki
bandalag háskólamenntaðra starfs-
manna ríkisins. Horft hafi verið til
þess að þeir sem flytji ávörp hafi
eitthvað fram að færa. - ghs
Auglýsingasími
– Mest lesið
GYLFI DALMANN
AÐALSTEINSSON.
Dósent við HÍ gerir athugasemd við BHM:
Ekki boðaðir á málþing
SKÁK Vladimír Kramnik
beið ósigur í fimmtu
skák heimsmeistaraein-
vígisins við Viswanathan
Anand. Heimsmeistar-
inn Anand er því kominn
með tveggja vinninga
forskot.
Kramnik á aðeins eftir
að vera með hvítt í þrem-
ur skákum og hann hefur
aldrei unnið Anand með
svörtu í kappskák, það er
skák með löngum
umhugsunartíma. Staða
hans er því orðin erfið.
Kramnik var með hvítt
og tefldi sömu byrjun og
í þriðju skákinni sem
hann tapaði einnig.
Anand varð fyrri til að
breyta út af þeirri skák
og var Kramnik fljótt
kominn með verri tíma.
Kramnik sást síðan
yfir glæsilega manns-
fórn Anands og gafst upp
eftir 34 leiki. - pal
Anand kominn með tveggja vinninga forskot:
Kramnik tapaði á ný
ANAND Vann aftur
með svörtu í gær.