Fréttablaðið - 28.10.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
28. október 2008 — 295. tölublað — 8. árgangur
Árskort í tækjasal
aðeins 3.333 kr.
á mánuði*
* Skuldbinding í ár.
www.heilsuakademian.is - sími: 594 9666
Heilsuakademían í Egillshöll - frábær tækjasalur,
opnir tímar og landsins mesta úrval námskeiða
Ertu með eitthvaðgott á pjónunum?
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
María Grétarsdóttir starfar sem
verkefnastjóri hjá hugbúnaðar-
fyrirtækinu Applicon en lætur
vinnuna ekki hindra sig í því að
stunda líkamsrækt af miklum
dugnaðr og sækir pallaleikfimi-
tíma í Baðhúsinu þrisvar sinnumí viku. María stund ðilí
stöðvum en alltaf endað aftur í
Baðhúsinu.
„Ég hef prófað aðrar líkams-
ræktarstöðvar og þótt þar hafi
alls staðar verið frábær aðstaða
þá finn ég mig bara best íhúsi
mat og að fjölskyldan borði alltaf
saman á kvöldin. Jafnframt er ég
formaður í barna- og unglinga-
starfi Stjörnunnar í Garðabæenda er ég ð
Heilbrigður lífsstíll kall-ar fram jafnvægi í lífinuMaría Grétarsdóttir, verkefnastjóri hjá Applicon, leggur áherslu á líkamsrækt og hreyfingu í daglegu lífi.
Hún er dugleg að æfa í Baðhúsinu og hreyfir sig að auki reglulega með fjölskyldu sinni og hundi.
María Grétarsdóttir sést hér í pallaleikfimitíma í Baðhúsinu. Hún sækir slíka tíma þrisvar í viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna
og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn,
sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og
prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð,
miðvikudaginn 29. október kl. 16-18 .Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist
reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að
taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn
í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn-
unni og með því.
Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626
ÚTIHLAUP að vetri er góð heilsubót. Hafa þarf þó í huga
að klæða sig vel, sérstaklega á höfði og höndum. Til að verjast
beinhimnubólgu í fótleggjum er ráð að hlaupa í legghlífum og
ekki er verra að þær séu úr ull.
VEÐRIÐ Í DAG
fyrirtækjagjafirÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
SKAPLEGT VEÐUR Í dag verða
víða sunnan 5-10 m/s, lægir á Aust-
urlandi með deginum. Dálítil slydda
eða snjókoma vestan til síðdegis og
í kvöld. Hiti um og undir frostmarki,
minnst frost vestan til.
VEÐUR 4
2
0 -2
-4
0
MARÍA GRÉTARSDÓTTIR
Leggur áherslu á
heilbrigða lífshætti
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fleiri sóknarfæri
Leikfélag Kópavogs hef-
ur tekið nýtt húsnæði í
notkun.
TÍMAMÓT 17
FYRIRTÆKJAGJAFIR
Hagsýni og notagildi
haft í fyrirrúmi í ár
Sérblað um fyrirtækjagjafir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
Heldur jólatónleika
þrátt fyrir áföll
Spilaði ekki í góðærislottóinu
FÓLK 19
Skiptar skoðanir
Breskir gagnrýnendur
telja nýju James Bond-
myndina lakari en síð-
ustu mynd. Bandaríkja-
menn eru ánægðir
með útkomuna.
KVIKMYNDIR 20
Fólk framtíðarinnar
„Núna tökum við heimabakað
brauð úr frystinum, bökum vöfflur
og kökur“, skrifar Jónína Michaels-
dóttir.
Í DAG 14
HANDBOLTI Danski skartgripasal-
inn Jesper Nielsen ætlar að gera
danska liðið AG Håndbold að
stórveldi í evrópskum handbolta.
Fyrsta skrefið í þá átt er að semja
við Ólaf Stefánsson.
Stefna C-deildarliðsins AG er
klár en liðið ætlar upp í úrvals-
deild á tveim árum, komast í
Meistaradeild á fyrsta ári í efstu
deild, verða danskur meistari árið
2012 og keppa síðan við bestu
félagslið Evrópu á jafnréttis-
grundvelli í kjölfarið.
Þessi metnaður kostar sitt og
Nielsen á nóg af peningum. Hann
vonast til þess að koma Ólafs
muni trekkja fleiri stjörnur til
félagsins. - hbg / nánar á síðu 23
Daninn sem vill fá Ólaf:
Ólafur fyrsta
púslið í stórveldi
Íslendingar
gulls ígildi
Níu af síð-
ustu ellefu
meistaraliðum
í norska fót-
boltanum voru með
Íslending í sínu liði.
ÍÞRÓTTIR 22
EFNAHAGSMÁL Íslensk stjórnvöld
óskuðu í gær formlega eftir láni
frá hinum Norðurlandaþjóðunum.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði í gær að hann vildi ekki
nefna neinar lánsupphæðir þar
sem hann vildi ekki setja pressu á
kollega sína á Norðurlöndunum.
Í viðtali við Reuters-fréttastof-
una í gær sagði hann að lánsþörf-
in væri fjórir milljarðar dala, eða
um 480 milljarðar íslenskra króna,
umfram þá tvo milljarða dala sem
reiknað er með frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum.
„Ég get ímyndað mér að Norð-
urlöndin verði mjög mikilvæg, en
við höfum einnig rætt við Rúss-
land, Japan og fleiri,“ hefur Reut-
ers-fréttastofan eftir Geir. Aðrir
mögulegir lánveitendur væru
Evrópski og Bandaríski seðla-
bankinn.
Norrænu forsætisráðherrarnir
ákváðu á fundi sínum á Norður-
landaráðsþingi í gær að skipa
starfshóp til að vinna að tillögum
um hvernig hægt sé að aðstoða
Íslendinga í efnahagsvandanum.
- ghs/ ss / sjá síðu 8
Leitað til Rússlands, Japans og Evrópska og Bandaríska seðlabankans:
Óskað eftir láni frá Norðurlöndunum
SLYS Einn unglingur liggur á gjör-
gæsludeild og aðrir fimm á bruna-
deild eftir gassprengingu á níunda
tímanum í gærkvöldi í vinnuskúr í
Melgerði. Að sögn lögreglunnar
eru fjögur þeirra mikið brennd.
Unglingarnir hlupu á brott í
örvinglan og fannst einn þeirra illa
slasaður í Skeifunni, um hálfum
kílómetra frá slysstað. Annar
fannst hjá Grímsbæ, verslunar-
kjarnanum við Bústaðaveg.
Lögreglan telur að um tíu til tólf
aðrir unglingar hafi verið við skúr-
inn þegar sprengingin varð. Hlupu
þeir einnig í örvinglan og var mikil
leit 70 til 80 björgunarsveitar-
manna eftir þeim í gangi þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Talið var
að sumir þeirra kynnu að vera slas-
aðir en eins töldu lögregla og
slökkvilið mikilvægt að koma þeim
til aðstoðar eftir áfallið.
„Ég var að stíga upp úr baðinu
þegar sprengingin varð og jörðin
lék á reiðiskjálfi. Ég leit út um
gluggann, sá hvar allt var logandi
og heyrði öskrin svo ég fór út í
hendingskasti,“ sagði Halla Arnar,
íbúi í Melgerði. Hún kom tveimur
slösuðum stúlkum til hjálpar en
þær voru illa brenndar í andliti og á
höndum. Það var ljótt umhorfs
þegar blaðamaður Fréttablaðsins
kom á vettvang. Blóð var á götunni
og skúrinn illa brunninn.
Slökkviliðið beindi þeim tilmæl-
um til þeirra sem voru á slysstað
þegar eldurinn kom upp að mæta í
Bústaðakirkju þar sem veitt yrði
sálræn aðstoð. Enginn þeirra sem
var við skúrinn hafði komið í kirkj-
una þegar Fréttablaðið fór í prent-
un. Þangað komu þó nokkrir ungl-
ingar sem þekktu til hinna slösuðu.
„Þau eru vissulega skelkuð yfir
þessu en eins forvitin eins og títt er
með fólk á þessum aldri,“ sagði
Pálmi Matthíasson, prestur í
Bústaðakirkju.
Talið er að gasleki hafi verið í
skúrnum og eldur hafi komist í
snertingu við gasið sem olli spreng-
ingunni. -jse/hhs
Sex slösuðust í sprengingu
Unglingur liggur á gjörgæslu og fimm á brunadeild eftir gassprengingu í vinnuskúr í Smáíbúðahverfinu í
gærkvöldi. Björgunarsveitir leituðu að öðrum unglingum sem kynnu að vera slasaðir eða þjáðir.
GRÍÐARLEG EYÐILEGGING Veggurinn á skúrnum í Grundargarði í Smáíbúðahverfinu splundraðist í sprengingunni í gær. Sprengingin var það öflugt að jörðin skalf segir íbúi í
Smáíbúðahverfinu. Einn unglingur var lagður inn á gjörgæslu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hlúði að særðri unglingsstúlku
„Það heyrðist hvellur og svo var bankað hressilega á dyrnar. Það var augljóst
að eitthvað alvarlegt hafði komið fyrir. Fyrir utan stóð maður sem sagði mér
að koma mér strax út úr húsinu. Það hefði orðið sprenging og húsið væri í
hættu,“ segir Jórunn Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og íbúi við Melgerði.
Þegar Jórunn kom út voru sjúkrabílar komnir á vettvang.
„Ég fór inn í næsta sjúkrabíl til að hjálpa sjúkraflutningamönnunum sem
voru að hlúa að stúlku sem hafði brunnið í andliti og á höndum,” segir Jór-
unn sem hefur unnið á slysadeild í fjölda ára. „Ég reyndi að veita henni and-
legan stuðning þar til hún fór á gjörgæsluna.“ - kh