Fréttablaðið - 28.10.2008, Síða 2
2 28. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Við þurfum 70
blóðgjafa á dag
Við skorum á þig að koma og gefa blóð.
Taktu með þér vin, vinnufélaga eða ættingja
og gerðu heimsókn í Blóðbankann að
fastri venju.
Vertu hetja – gefðu blóð!
Bjarni, ætlið þið að gera ykkur
mat úr gullinu?
„Við ætlum að minnsta kosti að
auka gjaldeyrisforðann.“
Íslenska kokkalandsliðið vann tvenn
gullverðlaun og jafnmörg silfur á Ólymp-
íuleikum matreiðslumeistara. Bjarni
Gunnar Kristinsson er landsliðsfyrirliði.
SAMGÖNGUR Bílaumferð í Reykja-
vík dróst meira saman í október
en á sama árstíma undanfarin ár,
samkvæmt upplýsingum frá
umhverfis- og samgöngusviði
Reykjavíkurborgar. Um leið hefur
farþegum á helstu leiðum Strætós
bs. fjölgað um allt að fjórðung.
Björg Helgadóttir, landfræðing-
ur á samgönguskrifstofu umhverf-
is- og samgöngusviðs Reykjavík-
urborgar, segir umferðina á
höfuðborgarsvæðinu ávallt aukast
í upphafi skólaárs en dragast
saman þegar líður á haustið. Hins
vegar hafi dregið meira úr umferð
nú en undanfarin ár. „Á sama tíma
í fyrra mældust til dæmis 91.400
bílar á sólarhring í Ártúnsbrekku.
Í október fóru þeir alveg niður í 82
þúsund bíla en fjölgaði aftur upp í
84 þúsund bíla í síðustu viku, sem
bendir til að umferðin minnki ekki
meira í bili.“
Björg segir ýmsa þætti skýra
minnkunina, sem flesta megi rekja
til efnahagsástandsins. Mælingar
sýni að fjölgað hefur í hverjum
bíl; sennilega þurfi færri að sækja
vinnu í miðborgina eftir uppsagna-
hrinu, og svo virðist sem fleiri séu
farnir að hjóla í vinnuna.
Um leið hefur farþegum á
helstu leiðum Strætós bs. fjölgað
um allt að fjórðung frá því í fyrra.
Svo er komið að í helstu álags-
ferðum er ekki hægt að treysta á
að komast með vögnunum vegna
aðsóknar.
Reynir Jónsson, forstjóri
Strætós bs., segir að ekki sé búið
að greina allar tölur. Allt bendi þó
til að orsök fjölgunar sé bæði
aukin notkun nemakorta sem og
fjölgun nýrra farþega. „Þetta er
nokkur fjölgun hjá okkur, sérstak-
lega á meginleiðunum. Við áttum
alltaf von á fjölgun vegna elds-
neytishækkunar og nú virðist
efnahagsástandið spila inn í.“
Hann segir þá stöðu komna upp
að vagnar séu stundum yfirfullir á
álagstímum á morgnana og síð-
degis og þeir sem gætu ættu
kannski að huga að því að taka
næsta vagn á undan eða eftir.
Stjórn Strætós samþykkti
nýverið að hefja viðræður við rík-
isvaldið um aðkomu þess að
rekstrinum. Ljóst er að reksturinn
er þungur og í sumar voru þeir
möguleikar viðraðir að skerða
þjónustuna vegna þessa.
„Það er nokkuð þungt ef við
þurfum að skerða þjónustu vegna
fjárskorts um leið og fjölgun er á
farþegum. Ég skil þá stöðu sem
allur rekstur er í en þessa þjón-
ustu verður að styðja, ekki síst í
slæmu árferði,“ segir Reynir.
bergsteinn@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
Umferð minnkar og
snarfjölgar í strætó
Bílaumferð í Reykjavík dróst meira saman í október en á sama árstíma undan-
farin ár. Farþegum á helstu stofnleiðum Strætós bs. hefur fjölgað um allt að
fjórðung. Forstjóri Strætós varar við skerðingu á almenningssamgöngum.
STRÆTÓ Vagnar eru nú
oft yfirfullir á álagstímum
á morgnana og síðdegis.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
Ó
R
LÖGREGLUMÁL Ráðist var inn á mann á níræðisaldri
nú um helgina og gerð tilraun til að ræna hann.
Atvikið átti sér stað um þrjúleytið aðfaranótt
sunnudagsins í miðborg Reykjavíkur. Hringt var á
dyrabjöllu hjá gamla manninum og fór hann til dyra.
Skipti engum togum að ungur maður sem úti fyrir
stóð réðst á húsráðanda og sló hann. Við þetta
vankaðist gamli maðurinn og að auki höfðu gleraug-
un dottið af honum við höggið.
Árásarmaðurinn ruddist síðan inn í íbúðina og
heimtaði peninga af manninum. Þegar honum
skildist að ekkert slíkt væri að hafa fór hann eins og
stormsveipur um íbúðina til að leita að verðmætum
og tíndi í poka það sem honum þótti eigulegast.
Að því búnu seig á hann höfgi svo hann ákvað að
hvíla sig.
Hann settist í stól í íbúðinni og datt þar út af.
Gamli maðurinn náði að hringja í lögregluna sem
brá skjótt við og tók árásarmanninn þar sem hann
steinsvaf í stólnum. Hann var færður á lögreglustöð
og yfirheyrður. Að því búnu var hann úrskurðaður í
gæsluvarðhald fram á föstudag. - jss
Í gæsluvarðhaldi eftir að hafa ráðist inn á mann á níræðisaldri:
Var tekinn sofandi á ránsstað
MIÐBORG REYKJAVÍKUR Aldraður maður hringdi á lögreglu,
eftir að ráðist var á hann heima hjá sér.
EFNAHAGSMÁL Íslenskir aðalverk-
takar sögðu í gær upp 151 manns.
Nítján starfsmönnum voru boðin
önnur störf eða lækkað starfs-
hlutfall. Eftir vinna um fjögur
hundruð manns hjá fyrirtækinu.
Uppsagnirnar ná til starfsmanna
úr öllum starfsstéttum innan
félagsins, samkvæmt tilkynningu.
„Á örfáum mánuðum hafa
rekstrarforsendur fyrirtækja í
verktaka- og byggingariðnaði
snúist hratt til verri vegar“, segir
í tilkynningunni. Eftir fall
bankanna hafi staðan versnað enn
frekar og ríkir óvissa um
framhald margra verkefna. - hhs
Íslenskir aðalverktakar:
151 sagt upp
HÖFUÐSTÖÐVAR ÍAV Íslenskir aðalverk-
takar segja upp 151 starfsmanni um
næstu mánaðamót. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÓLAMÁL Engin börn hafa hætt
námi hjá Austurbæjarskóla til að
snúa aftur til heimalandsins
síðustu daga.
„Á nemendum okkar er ekki að
heyra að sérstakur hugur sé í fólki
að snúa til baka,“ segir Guðmund-
ur Sighvatsson, skólastjóri Aust-
urbæjarskóla. „Ég hygg hins
vegar að ástandið taki ekki á sig
ákveðna mynd fyrr en eftir mán-
aðamót. Fólk sé enn að gera upp
hug sinn.“
Í Austurbæjarskóla eru 120
nemendur í nýbúadeild. Innan
hennar eru erlendir nemendur
sem hafa íslensku sem annað
tungumál. - hhs
Nýnemar í Austurbæjarskóla:
Enginn hættur
námi og farinn
BANDARÍKIN, AP Átta ára drengur
lést á sunnudag eftir að hafa
fyrir slysni skotið á sjálfan sig
úr hríðskotabyssu á skotvopna-
sýningu í Westfield í Massa-
chussetts.
Fullorðinn maður, með full
réttindi, var að leiðbeina
drengnum, en þegar skot hljóp
úr byssunni missti drengurinn
vald á henni. Hann fékk skot í
höfuðið og lést á sjúkrahúsi
skömmu síðar.
Á sýningunni var almenningi
boðið að skjóta úr ýmiss konar
skotvopnum á bifreiðar, grasker
og fleiri skotmörk.
- gb
Voðaskot í Bandaríkjunum:
Átta ára dreng-
ur lætur lífið
VIÐSKIPTI Útgefendur dagblaða í
Bandaríkjunum óttast að yfir-
standandi efnahagskreppa kunni
að flýta fyrir samdrætti í
dagblaðalestri. Að meðaltali
skruppu upplög bandarískra
dagblaða saman um 4,6 prósent
frá 2007 til 2008, en samdráttur-
inn á milli áranna 2006 og 2007
var aðeins 2,6 prósent.
Á sama tíma hafa auglýsingar í
dagblöðum einnig dregist saman,
en auglýsendur hafa í auknum
mæli flutt sig á ýmsa netmiðla.
Verst gengur dagblöðum sem eru
bundin við ákveðnar borgir, en
þau hafa orðið sérstaklega illa úti
í samkeppni við ókeypis stórborg-
arblöð og netmiðla, en smáauglýs-
ingar, sem borgarblöð reiddu sig
á, hafa nánast alfarið flust á
vefinn. - msh
Bandarískir fjölmiðlar:
Lestur dagblaða
dregst saman
EFNAHAGSMÁL Jens Stoltenberg,
forsætisráðherra Noregs, segir að
Norðmenn séu mjög jákvæðir
gagnvart norrænum stuðningi við
Íslendinga í samstarfi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og aðrar
þjóðir.
Hann segir að Íslendingar
ákveði sjálfir við hverja þeir ræði
um lán en norrænu forsætisráð-
herrarnir hafi rætt um að mörg
lönd gætu lagt sitt af mörkum í
aðstoð við Íslendinga, fyrst
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og svo
norrænu löndin; Noregur, Svíþjóð
og Danmörk og síðan komi í ljós
hvaða önnur lönd komi að málinu.
Spurður um hvort Rússalán geti
haft áhrif á norræna öryggispólit-
ík svarar hann að þegar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn leggi sitt af
mörkum og önnur lönd komi að
málinu þá hafi hann ekki miklar
áhyggjur af því. - ghs
Forsætisráðherra Noregs:
Mörg lönd komi
að aðstoðinni
LÖGREGLUMÁL Átta manns tóku þátt í árás á tvo
lögreglumenn í Hraunbæ með einum eða öðrum
hætti um næstsíðustu helgi. Rannsókn málsins
hefur gengið vel og liggja fyrir játningar að aðild
málsins, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Lögreglumennirnir höfðu verið kvaddir að
húsnæði í Hraunbænum vegna hávaða. Þeir voru
komnir út úr íbúðinni þegar ráðist var á þá. Annar
þeirra hlaut skurð á höfði sem sauma þurfti
saman. Báðir lögreglumennirnir voru með
skrámur og mar eftir högg og spörk.
Samtals voru tólf manns færðir á lögreglustöð
vegna málsins. Gæsluvarðhald átti að renna út yfir
fimm þeirra í gær, en rannsókn hafði miðað það
vel að þeim var sleppt á föstudaginn.
Menn úr hópnum sem lögregla hefur yfirheyrt
hafa margoft komið við sögu lögreglu hér á landi,
einkum vegna ofbeldisbrota.
Um er að ræða gengi Filipps eyinga, sem kom
meðal annars við sögu í síendurteknum átökum
hópa í Breiðholti fyrir nokkrum árum. Sumir
þessara manna eru íslenskir ríkisborgarar, aðrir
ekki. Þeir eru á þrítugs- og fertugsaldri.
Rannsókn á Hraunbæjarárásinni er á lokastigi:
Átta menn réðust á lögreglu
LÖGREGLAN Lögreglumennirnir sem ráðist var á náðu að nota
neyðarhnapp á talstöð og barst þá fljótlega liðsauki.
SPURNING DAGSINS