Fréttablaðið - 28.10.2008, Side 8
8 28. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL „Sú for-
senda að stjórnun á auð-
lindinni verði ekki færð
frá landanum ræður
algjörlega afstöðu útvegs-
manna um aðildarviðræð-
ur við Evrópusambandið,“
segir Björgólfur Jóhann-
esson, formaður LÍÚ.
Björgólfur segir engar
líkur á að útvegsmenn taki
afstöðu með upptöku evru á aðal-
fundi LÍÚ sem haldinn verður
fimmtudag og föstudag næstkom-
andi. Engin sérstök tilhneiging sé
hjá útvegsmönnum að horfa til Evr-
ópu nú. „Það gæti breyst ef lægi
fyrir að Íslendingar héldu fullum
yfirráðum yfir auðlindinni. Það
bendir ekkert til þess.“
Að undanförnu hefur
Friðrik Már Baldursson,
prófessor við Háskólann í
Reykjavík, farið fyrir
nefnd sem skoðar kosti og
galla upptöku evru út frá
hagsmunum sjávarút-
vegsins. Hvað sem út úr
því kemur segir Björgólf-
ur að afdráttarlaus
afstaða verði ekki tekin
undir núverandi kringumstæð-
um. „Það verður ekki á þessum
tímamótum. Það er aldrei hollt að
taka svona stóra ákvörðun fyrir
land og þjóð í slíkri óvissuaðstöðu
sem við erum nú í. Við hljótum að
þurfa að vega það og meta við allt
aðrar aðstæður.“
- hhs
Komdu við hjá
Artic Trucks, Kletthálsi 3,
og láttu fagmenn
sjá um dekkin á
jeppanum þínum.
pnunartímar
Jeppadekkjum
Sólning og Arctic Trucks hafa hafi ð samstarf í þjónustu við jeppa eigendur.
Arctic Trucks bjóða breiða vöru línu jeppadekkja frá Sólningu ásamt
hefðbundinni dekkja þjónustu fyrir jeppa.
Sérfræðingar í
SÓLNING
K ó p a v o g u r, S m i ð j u v e g i 6 8 - 7 0, s í m i 5 4 4 5 0 0 0
N j a r ð v í k , F it jabraut 12, sími 421 1399
S e l f o s s, Gagnhe ið i 2 , s ími 482 2722
Nýbarði , Lyngás i 8 , s ími 565 8600
Smurstöðin Klöpp , Vegmúla 4 , s ími 553 0440
Smur- bón og dekkjaþjónustan
Sætún i 4 , 562 6066
Aðrir söluaðilar:
Reykjavík , K le t thá ls i 3 , s ími 540 4900
1. Hversu margir erlendir
brotamenn og hælisleitendur
hafa verið sendir úr landi í lög-
reglufylgd það sem af er árinu?
2. Hvað heitir óháði forseta-
frambjóðandinn í Bandaríkj-
unum?
3. Hvaða Íslendingur skoraði
þrennu í sigurleik Stabæk gegn
Vålerenga á sunnudaginn?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 26
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNESSON
BANDARÍKIN, AP Réttarhöld yfir Ali
Hamsa Al-Bahlul, sem hefur verið
í haldi Bandaríkjahers við
Guantanamo á Kúbu síðan árið
2002, neitar að taka þátt í réttar-
höldum sem áttu að hefjast í gær.
Hann vill fá að verja sig sjálfur
og neitar að þiggja aðstoð
lögmanns sem bandaríska
varnarmálaráðuneytið útvegaði
honum. Lögmaðurinn, David
Frakt, skýrði frá þessu við upphaf
réttarhaldanna og sagðist virða
óskir skjólstæðings síns. Lögmað-
urinn hefur því einnig setið þögull
við réttarhöldin sem óvíst er
hvort geti haldið áfram.
- gb
Réttarhöld í Guantanamo:
Fanginn þegir
þunnu hljóði
Aðalfundur Landssambands útvegsmanna:
Engar líkur á stuðn-
ingi við evrunaLÖGREGLUMÁL Lögregla telur að árásarmennirnir sem réðust inn
á landa sína á Hverfisgötu um
helgina séu fleiri en upphaflega
var talið, eða sex til átta talsins.
Einn hinna grunuðu, maður á
þrítugsaldri situr nú inni. Ekki
hafði verið tekið ákvörðun
síðdegis í gær um hvort gæslu-
varðhalds yrði krafist. Bæði
meintir árásarmenn og fórnar-
lömbin eru frá Lettlandi.
Mennirnir ruddust grímu-
klæddir inn í hús við Hverfis-
götu um nýliðna helgi. Þeir
réðust með bareflum á fjóra
menn sem þar voru inni. Tveir
þeirra sem ráðist var á voru
fluttir á slysadeild með áverka
eftir bareflin. Hinir tveir voru
einnig með áverka en þáðu ekki
aðstoð lögreglu við að leita sér
læknis.
- jss
Árásin á Hverfisgötu:
Fleiri árásar-
manna leitað
SÝRLAND, AP Bandaríski herinn
gerði á sunnudag skyndiárás á
þorpið Sukkiraya í Sýrlandi,
skammt frá landamærum Íraks.
Sýrlensk stjórnvöld fordæma
árásina og segja átta manns hafa
látið lífið, þar af fjögur börn.
„Við erum að taka málin í okkar
hendur,“ segir heimildarmaður
AP-fréttastofunnar, sem er yfir-
maður í bandaríska hernum í
Washington, en vill þó ekki láta
nafns síns getið. Hann staðfestir
að sérsveitir Bandaríkjahers hafi
ráðist á þorpið á sunnudag og
segir árásina merki um breyttar
áherslur í stríði Bandaríkjahers
gegn hryðjuverkamönnum.
Árásin hafi beinst að erlendum
vígamönnum tengdum Al-Kaída,
sem fari um Sýrland til Íraks að
taka þátt í stríðinu þar. Árásin var
gerð skammt frá landamæraborg-
inni Qaim í Írak.
Sýrlendingar segja að banda-
rískir hermenn hafi komið á fjór-
um þyrlum, gert árásina og haldið
strax aftur á brott.
Árásin þykir minna á aðra árás
bandaríska hersins, hinn 3. sept-
ember í haust, innan landamæra
Pakistans. Í þeirri árás létu á
þriðja tug manna lífið og meðal
þeirra voru almennir borgarar.
Stjórnvöld í Pakistan hafa harð-
lega gagnrýnt þessa árás, en fram
hefur komið að í júlí síðastliðnum
heimilaði George W. Bush árásir á
skotmörk innan landamæra Pak-
istans. - gb
Sýrlensk stjórnvöld fordæma árás Bandaríkjahers á þorp í Sýrlandi um helgina:
Fjögur börn sögð hafa látist
ÚTFÖR ÞEIRRA SEM FÉLLU Í gær voru
átta manns, þar af fjögur börn, borin til
grafar í Sýrlandi, daginn eftir árásina.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Norrænu forsætis-
ráðherrarnir ákváðu á fundi sínum
á Norðurlandaráðsþingi í Finn-
landi í gær að skipa starfshóp til
að vinna að tillögum um hvernig
norrænu þjóðirnar geti á sam-
ræmdan hátt aðstoðað Íslendinga
við að vinna á efnahagsvandanum.
Þetta verður gert í samstarfi við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og fleiri
þjóðir, til dæmis Japana. Norrænu
forsætisráðherrarnir nefna ekki
neinar lánsupphæðir. Geir H.
Haarde forsætisráðherra segir að
Íslendingar hafi óskað formlega
eftir stuðningi hinna Norðurlanda-
þjóðanna á föstudaginn var en vill
ekki greina í smáatriðum frá því
hvað beðið var um.
Geir segist vera ánægður með
niðurstöðu fundar forsætisráð-
herranna og bendir á að nú sé
málið komið í farveg. „Það er
skammt síðan við ákváðum að
ganga til liðs við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn og þess vegna var ekki
við því að búast að það kæmu
ákveðnar tölur út úr þessum fundi.
Viðbrögðin eru jákvæð. Menn
hafa skilning á okkar vandamál-
um. Ráðherrarnir ætla í gegnum
þá embættismannanefnd sem við
höfum ákveðið að setja á laggirn-
ar að reyna að finna niðurstöðu
sem öllum líkar,“ segir hann.
Seðlabanki Íslands hefur skrif-
að seðlabönkum hinna Norður-
landaþjóðanna bréf og óskað eftir
aðstoð. Geir segir að bankarnir
njóti mikils sjálfstæðis og verði
sjálfir að komast að niðurstöðu.
„Það má segja að það sé verið að
vinna þetta mál á tveimur víg-
stöðvum í hverju landi fyrir sig,“
segir hann.
Geir segir sjálfsagt að skoða
Evrópumálin þegar þjóðin er
komin í gegnum fjármálakrepp-
una. Hann telur að aðild að Evr-
ópusambandinu sé ekki svar við
vandamálunum. Hann telur held-
ur ekki að þjóðin hefði verið í ann-
arri stöðu ef Íslendingar hefðu
verið innan ESB. „Ég held að við
ættum að leggja Evrópumálin til
hliðar í bili og reyna að leysa
aðsteðjandi vanda,“ segir hann og
bendir á að stjórnvöld séu að vinna
í því að koma gjaldeyrismarkaðn-
um af stað þannig að eðlilegt gengi
myndist fyrir krónuna.
„Það er okkar verkefni núna.
Spurningum um Evrópumál og
myntina er ekki hægt að svara
fyrr en eftir nokkur ár. Ég vil þó
bæta því við að ég tel mikilvægt
fyrir okkur núna að setja okkur
það markmið að uppfylla Maastr-
icht-skilyrðin eins fljótt og við
getum vegna þess að það er
almennt skynsamleg efnahags-
pólitík að gera það,“ segir hann.
Geir var spurður að því í dag
hverjir beri ábyrgðina á þróun-
inni. Hann segir að Íslendingar
muni ræða hverjir bera ábyrgðina
þegar þjóðin sé komin í gegnum
kreppuna. Nú sé unnið í að leysa
vandamálin frá degi til dags.
Margir beri ábyrgð, þar á meðal
hann sjálfur, en hann sé ekki
ábyrgur fyrir alþjóðlegu fjármála-
kreppunni. „Ég get borið ábyrgð-
ina á því að hafa ekki séð nógu
langt fram í tímann,“ segir hann.
ghs@frettabladid.is
Ísland upp-
fylli skilyrði
Maastricht
Íslensk stjórnvöld hafa óskað formlega eftir láni frá
hinum Norðurlandaþjóðunum. Óvíst hve há upp-
hæðin er. Forsætisráðherra vill að Íslendingar setji
sér markmið um að uppfylla Maastricht-skilyrðin.
GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra segist geta borið ábyrgðina á því að hafa ekki séð
nógu langt fram í tímann. MYND/NORDEN.ORG
VEISTU SVARIÐ?