Fréttablaðið - 28.10.2008, Page 30
18 28. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ahhh! Þetta
verður gleðilegt
síðdegi!
Ég veit ekki með ykkur en mér
finnst það gefandi að gera
eitthvað fyrir
samfélagið.
Að æfa sig fyrir opnum glugg-
um er ekki endilega eitthvað
sem samfélagið álítur þjónustu!
Minntu mig
á að biðja
nágrannana
afsökunar.
Nanook
fasteignasala
Opið
Selt
Selt
Hvað stendur
í dagatalinu
mínu í dag? Ó...
Já það er komið
að „hárkögguls-
þriðjudegi“!
Hvernig var í
skólanum í dag,
Hannes? Fínt!
Raggi og ég
stofnuðum klúbb.
Við köllum hann
„Gættu að þér!
Hér kemur það!“-
klúbbinn.
Núna erum við
komnir með þrjá,
uh... „meðlimi“.
Þetta skýrir bréfið
frá kennaranum.
Á Austurvelli stóðu nokkrar hræður. Vindur var kaldur og örfá snjókorn reyndu af miklum vanmætti að lita
jörðina hvíta. Maður gekk um með pitsu-
kassa og bauð öllum sneið. Rithöfundur stóð
inni í vörubíl og las af blaði. Þakkaði
auðjöfrum nærveru sína, þeir ættu jú sök á
því hvernig komið var fyrir þjóð hans. Í
fjölmiðlum þennan sama dag lýstu auð-
jöfrarnir því hins vegar yfir að þetta væri
ekkert þeim að kenna. Heldur stjórn-
völdum. Og þá sérstaklega þessum
seðlabankastjóra sem öllum er í nöp
við. Hann hefur bent á útrásarvíking-
ana sem blóraböggla en ríkisstjórnin
vill helst gefa öllum upp sakir.
Forystusauðir hennar skella skuldinni
nefnilega á útlendinga. Og þá
helst Breta.
„Áttu mótmælin ekki að
vera klukkan fjögur?“
Roskin kona kom af fjöllum og skildi ekki
hvað uppáhaldshöfundurinn hennar var að
vilja inni í vörubílnum. Hann átti ekki að
byrja að tala fyrr en eftir hálftíma. „Nei,
þetta eru önnur mótmæli. Hin eru klukkan
fjögur. Það er allt annað fólk.“ Konan gafst
upp og fór heim. Reiði hennar yfir glataða
sparifénu varð að bíða betri tíma. Og svo
var hún líka á báðum áttum. Var þetta allt
saman Davíð að kenna, eða Björgólfi? Ríkis-
stjórninni eða Bretum? Ekki gat hún farið
að mótmæla þessu öllu í einu.
Og þegar klukkan sló fjögur fór útvarps-
kona í pontu, svo skemmtikraftur og loks
fyrrverandi ráðherra. Undir lokin virtust
allir hafa sammælst um að breyta setning-
unni „Þú ert enginn fokkings borgarstjóri“ í
„Davíð burt“. Svo var eggi kastað í ráð-
herrabústaðinn og fáni brenndur.
Svona er hin týpíski íslenski her, höfuð-
laus með öllu.
Höfuðlaus her
Munum eftir að kveikja
á útiljósunum
Nú þegar farið er að myrkva úti
viljum við vinsamlega minna íbúa
á að hafa kveikt á útiljósum við
heimili sín til að auðvelda
blaðberum Fréttablaðsins
aðgengi að lúgu.
www.takk. is
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...