Fréttablaðið - 28.10.2008, Side 31
ÞRIÐJUDAGUR 28. október 2008 19
folk@frettabladid.is
> LEIKUR SJÁLFA SIG
Britney Spears mun að öllum lík-
indum leika sjálfa sig í kvikmynd
byggðri á lífshlaupi hennar. Gerð
myndarinnar er í höndum breska
leikstjórans Phils Griffin, en sam-
kvæmt heimildum breska blaðs-
ins Daily Mirror hafa framleiðend-
ur myndarinnar áhyggjur af því að
söngkonan sé ekki tilbúin til að tak-
ast á við hlutverkið vegna undan-
genginna erfiðleika. Britney er þó
sögð vera að ná tökum á lífi sínu
eftir að hafa misst forræðið yfir
sonum sínum tveimur.
Goðsögnin Jerry Lee Lewis
vonast til að Mick Jagger og
Keith Richards úr Rolling Stones
verði gestaspilarar á næstu plötu
sinni. „Ég hef þekkt þá síðan þeir
voru krakkar. Er það ekki
magnað? Þeir eru engir krakkar
núna,“ sagði Lewis, sem er 73 ára
og líklega þekktastur fyrir lagið
Great Balls of Fire.
Lewis er hvergi af baki dottinn,
enda á leið í tónleikaferð um
Evrópu. „Ég hef gaman af tónlist
og að spila fyrir framan fjölda
fólks. Ef það hættir að mæta þá
hætti ég bara að spila.“
Góðir gestir
hjá Jerry Lee
JAGGER OG RICHARDS Mick Jagger og
Keith Richards spila líklega á næstu
plötu Jerry Lee Lewis.
Knattspyrnulið Verslunar-
skóla Íslands og Stjörnu-
lið Egils „Gilzeneggers“
Einarssonar öttu kappi á
laugardaginn fyrir gott
málefni. 2.500 áhorfendur
horfðu hins vegar á stjörnu-
hrap Egils og félaga.
Góðgerðarnefnd Verslunarskól-
ans stóð fyrir þessum viðburði og
var tilgangurinn að safna fyrir
byggingu vatnsbrunna í Gíneu-
Bissá. Leikurinn stóð tvisvar sinn-
um 25 mínútur og var heldur
frjálslega farið með allar leikregl-
ur knattspyrnunnar. En það breytti
ekki þeirri staðreynd að lið Versl-
unarskólans mætti ekki með
stjörnur í augunum heldur lék á
als oddi, tóku stjörnurnar á köfl-
um í bakaríið og unnu leikinn
sannfærandi; 3-1.
Meðal þeirra sem reyndu að
leika listir sínar með knöttinn
voru alþingismaðurinn Sigurður
Kári Kristjánsson, kraftajötnarn-
ir Björn Leifsson og Ívar Guð-
mundsson og hundrað daga borg-
arstjórinn Dagur B. Eggertsson.
Auk þeirra voru sjónvarpsmenn-
irnir Helgi Seljan og Auðunn Blön-
dal meðal leikmanna en hinum síð-
arnefnda þótti ekki takast mjög
vel upp í leiknum.
freyrgigja@frettabladid.is
Stjörnuliðið niðurlægt í Kórnum
EINSTÖK TILÞRIF Maðurinn sem sá um
þessa hjólhestaspyrnu er enginn annar
en Rússlandsfarinn Geir Ólafsson.
NÁÐU EINU MARKI All-Star-liðið náði að
pota inn einu marki en mátti horfa á
Verslinga skora þrjú.
NIÐURLÚTUR Fyrirliði og þjálfari All-Star-
liðsins, Egill „Gillzenegger“, var niðurlút-
ur að leikslokum enda sárt að tapa.
STÆLTIR Í KÓRNUM Þótt All-Star-liðið hefði tapað þá er ljóst að það hefur ýmsilegt til brunns að bera. Frá vinstri má sjá Dísu í
World Class, Ívar Guðmundsson útvarpsmann og Bjössa í World Class. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SIGRINUM FAGNAÐ Verslingar voru að
vonum ánægðir með sigurinn og fögn-
uðu ákaft í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Börnin mín verða í skóla hérna
heima fram að jólum, en ég tek
þau með út eftir áramót og eflaust
mömmu líka,“ segir Harpa Ein-
arsdóttir, fatahönnuður og teikn-
ari, sem er að flytja til Bandaríkj-
anna. „Ég var að fara að flytja til
Boston og vinna hjá fyrirtækinu
Harmonic sem framleiðir meðal
annars tölvuleikina Rockband og
Guitar Hero, þegar CCP gerðu
mér atvinnutilboð í Atlanta sem
ég gat ekki hafnað,“ útskýrir
Harpa sem hefur hannað búninga
fyrir tölvuleikinn EVE online á
vegum CCP í eitt og hálft ár, en
hún mun nú verða yfirbúninga-
hönnuður í tölvuleiknum World of
Darkness. Þar mun hún teikna og
sjá um heildarútlit karakteranna
í leiknum.
Fyrir flutningana brá Harpa á
það ráð að selja meirihlutann af
búslóð sinni síðastliðinn laugar-
dag og auglýsti söluna á Facebook
síðu sinni, með góðum árangri.
„Ég hefði getað tekið allt með
mér, en ég lít á þetta sem nýtt
upphaf. Ég seldi rúmið, sófann,
tvö málverk, ýmsa húsmuni og
meirihlutann af fötunum mínum,
en ætli ég taki ekki restina með
út. Mig langaði að losa mig við
allt gamalt og fara inn í sólina í
Atlanta,“ útskýrir Harpa sem
flytur út 10. nóvember næstkom-
andi, en kemur þó aftur í desem-
ber til að verja jólunum á Íslandi.
„Manni líður svolítið eins og
maður sé að fara af sökkvandi
skútu núna og ég vona að fólk fari
ekki að flytja af landi brott í stór-
um stíl, en þegar maður er ein
með tvö börn munar öllu að fá
greitt í dollurum og þá er erfitt að
standast svona tilboð,“ segir
Harpa að lokum. - ag
Selur allt og flytur til Atlanta
FÉKK GOTT ATVINNUTILBOÐ Harpa
segist ekki hafa getað hafnað tilboði
CCP um að verða yfirbúningahönnuður
tölvuleiksins World of Darkness og flytur
til Atlanta 10. nóvember næstkomandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Við ætlum að láta reyna á þetta og gera
þetta eins flott og helst flottara í ár held-
ur en í fyrra. Við sláum ekkert af,“ segir
Björgvin Halldórsson um jólatónleika
sína sem verða haldnir í Laugardalshöll 6.
desember.
Stórskotalið söngvara mun stíga á svið
með Björgvini, þar á meðal börnin hans
Svala og Krummi, Kristján Jóhannsson,
Páll Óskar, Sigga Beinteins og Raggi
Bjarna.
Björgvin hélt þrenna jólatónleika í
Höllinni í fyrra frammi fyrir tíu þús-
und áheyrendum og ákvað að láta
kreppuna ekki koma í veg fyrir að
leikurinn yrði endurtekinn í ár.
„Það var alltaf hugmyndin að gera
þetta að árlegum viðburði því þetta
er búið að ganga svo vel. Svo gengu þessi
ósköp yfir okkur öll og þá voru menn
frekar óvissir um framhaldið. En við
ákváðum samt sökum hvatningar frá
fólki og annars að láta slag standa, halda
góða jólatónleika og reyna að þjappa fólki
saman,“ segir Björgvin, sem gefur á
næstunni út fjögurra diska safnbox með
jólaplötunum sínum. „Við verðum að
halda áfram þrátt fyrir áföllin. Við Íslend-
ingar erum ýmsu vanir og við eigum eftir
að taka þetta á okkar breiðu bök.“
Björgvin segist ekki hafa farið illa út
úr kreppunni og er þakklátur fyrir það.
„Ég var ekki að spila í þessu lottói en það
finna allir fyrir þessu. Þetta fer gífurlega
í pirrurnar á mér og öðrum hvernig hefur
spilast úr þessu, en hvað getur maður
gert?“
Forsala miða á tónleikana hefst á mánu-
daginn og er miðaverð á bilinu 4.900 til
9.900 krónur. - fb
Jólatónleikar þrátt fyrir áföll
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Björgvin hélt þrenna
jólatónleika í Laugardalshöll í fyrra sem heppn-
uðust einstaklega vel.
Rapparinn Curtis Jackson, betur
þekktur sem 50 Cent, vinnur nú
að eigin sjónvarpsþætti sem
kallast The Money and the power.
Í þættinum miðlar rapparinn
reynslu sinni af því að harka á
götum New York-borgar áður en
hann komst í sviðsljósið og munu
fjórtán keppendur reyna að feta í
fótspor hans. Þátturinn hefur
göngu sína vestanhafs 6. nóvem-
ber og er sagður vera eins konar
hiphop-útgáfa af sjónvarpsþátt-
unum Apprentice.
Verðlaunin eru ekki af verri
endanum því 50 Cent mun gefa
þeim sem sigrar 50.000 pund.
Gerir raun-
veruleikaþátt
GEFUR 50.000 PUND Sigurvegarinn í
þættinum The Money and the power
mun hljóta 50.000 pund frá 50 Cent.
Franski leikarinn Jean Reno
hefur tekið að sér hlutverk í
gamanmyndinni Couples Retreat.
Myndin fjallar um fjögur pör sem
ferðast til hitabeltiseyjar þar sem
þau þurfa að greiða úr ýmsum
persónulegum flækjum.
Meðal annarra leikara verða
Vince Vaughn, Jon Favreau,
Jason Bateman, Kristen Bellog
Kristin Davis úr þáttum Sex and
the City.
Jean Reno í
gamanmynd
Madonna hyggst nú ættleiða
annað barn. Samkvæmt heimild-
um breska blaðsins Daily Star
hefur Madonna fengið leyfi til að
ættleiða stúlku
að nafni Mercy
James frá
Malaví, en
þaðan er
drengurinn
David Banda
sem hún
ættleiddi árið
2006. Á þeim
tíma lék allt í
lyndi á milli
hennar og
Guys Ritchie, fyrrverandi
eiginmanns, en sögusagnir herma
að Ritchie hafi verið mótfallinn
því að ættleiða í annað sinn.
Afi Mercys James, Saxon
Maude, hefur lagt blessun sína
yfir ættleiðinguna og telur að
stúlkan verði komin í umsjá
Madonnu fyrir áramót.
Planar aðra
ættleiðingu
MADONNA