Fréttablaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 34
22 28. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Veigar Páll Gunnarsson
og Pálmi Rafn Pálmason urðu um
helgina sjöundu og áttundu
íslensku knattspyrnumennirnir
sem ná að vinna norsku úrvals-
deildina í knattspyrnu, þegar þeir
skoruðu saman fjögur af sex
mörkum Stabæk í 6-2 sigri á Vål-
erenga.
Veigar Páll Gunnarsson hefur
átt frábært tímabil með Stabæk
og er sá leikmaður sem hefur
gefið flestar stoðsendingar (14) og
komið að flestum mörkum (24)
þegar aðeins ein umferð er eftir.
Veigar Páll skoraði þrennu í sigr-
inum um helgina og varð þar með
fyrsti íslenski leikmaðurinn sem
nær að skora tíu mörk fyrir meist-
aralið í Noregi. Pálmi Rafn Pálma-
son var keyptur til liðsins á miðju
sumri og hann hefur skorað mörk
í síðustu tveimur leikjum aðeins
nokkrum mínútum eftir að hafa
komið inn á sem varamaður.
Það er ekki nóg með að Íslend-
ingar séu í aðalhlutverki hjá
norsku meisturunum annað árið í
röð heldur er þetta annað árið í
röð þar sem silfurliðið, nú Fre-
drikstad, hefur einnig Íslend-
ing innan sinna raða. Í fyrra
var það Veigar Páll
Gunnarsson og félag-
ar í Stabæk sem
urðu í öðru sæti
en í ár eru það
Garðar
Jóhannsson og
félagar í Fre-
drikstad sem
vinna silfrið.
Íslendingar hafa
reyndar hreppt silfrið
í norsku úrvalsdeildinni
undanfarin fimm tímabil
og þrjú skipti af þessum
fimm hefur Íslendingaliðið gert
betur árið eftir og tryggt sér
meistaratitilinn.
Þannig var það hjá Stabæk í ár
og Brann í fyrra en eins unnu Árni
Gautur Arason og félagar í Våler-
enga norsku deildina árið 2005
eftir að hafa endað í 2. sæti á
minnsta markamun árið á undan.
Það verður því fróðlegt að fylgjast
með Garðari og félögum í Fredrik-
stad á næsta tímabili.
Kristinn Björnsson varð fyrsti
íslenski knattspyrnumaðurinn til
að verða norskur meistari þegar
hann var í herbúðum Vålerenga
1981. Kristinn fótbrotnaði reynd-
ar í upphafi tímabils og fékk ekki
mikið að spreyta sig eftir að hann
kom aftur úr meiðslum. Hann er
engu síður frumkvöðull í vel-
gengni íslenskra knatt-
spyrnumanna í norska
fótboltanum.
Gunnar Gíslason
varð næstur á eftir
Kristni til að vinna
norska meistara-
titilinn en það gerði
hann með Moss árið
1987. Gunnar var
þarna á sínu fyrsta
ári með liðinu
sem voru
nýliðar í deildinni.
Það liðu síðan ellefu
ár þar til íslenskur
leikmaður varð
norskur meistari en
þá kom Árni Gaut-
ur Arason inn í
hina ótrúlegu sig-
urgöngu Rosen-
borg og varð Nor-
egsmeistari sex
ár í röð þar af
þrisvar sem aðal-
markvörður liðs-
ins. Þjálfari
bæði Gunnars
og Árna Gauts
var Nils Arne
Eggen sem alls
gerði þrettán lið að
norskum meisturum
frá 1987 til 2002.
Árni Gautur náði
einnig að vinna
norska titilinn með
Vålerenga 2005 og
hefur sjö sinnum orðið
norskur meistari en
hann er eini Íslending-
urinn sem hefur unnið
hann oftar en tvisvar.
Ísland hefur einnig eignast
meistara í kvennaboltanum. Katr-
ín Jónsdóttir náði því að verða
norskur meistari með Kolbotn
árið 2002. Katrín skoraði þá 8
mörk í 18 leikjum og var í stóru
hlutverki hjá liðinu.
Fjórtán íslenskir leikmenn spil-
uðu í norsku úrvalsdeildinni á
þessu tímabili og ekki að ástæðu-
lausu því það er ekki nóg með að
þeir finni sig vel í norska boltan-
um heldur hafa þeir sannkölluð
meistaraáhrif á sín lið. ooj@frettabla-
did.is
Meistaraáhrif Íslendinga í Noregi
Níu af síðustu ellefu meistaraliðum í Noregi hafa verið með íslenskan leikmann í sínum liðum. Fimm ís-
lenskir leikmenn orðið norskir meistarar á síðustu tveimur tímabilum, þar af tveir í ár með Stabæk-liðinu.
MEÐ BIKARINN Pálmi Rafn Pálmason og Veigar Páll Gunnarsson fagna norska
titlinum sem þeir unnu með Stabæk á sunnudaginn. MYND/JOHAN STUB
SJÖFALDUR MEISTARI Árni Gautur Arason hefur
unnið norska titilinn sjö sinnum á sínum ferli en
hann vann norsku 1. deildina með Odd Grenland
um helgina. SCANPIX
ÍSLENSKIR MEISTARAR Í
NORSKU DEILDINNI
Kristinn Björnsson Vålerenga 1981
Gunnar Gíslason Moss 1987
Árni G. Arason Rosenborg 6 sinnum
(1998, 1999, 2000, 2001, 2002, 2003)
Árni Gautur Arason Vålerenga 2005
Kristján Örn Sigurðsson Brann 2007
Ólafur Örn Bjarnason Brann 2007
Ármann Smári Björnss. Brann 2007
Veigar Páll Gunnarss. Stabæk 2008
Pálmi Rafn Pálmason Stabæk 2008
FÓTBOLTI Svo gæti farið að síðari
leikur Íslands og Írlands í umspili
EM geti ekki farið fram á fimmtu-
dag. Völlurinn er frosinn og ekki í
leikhæfu ástandi sem stendur.
„Snjórinn sem féll síðast á völl-
inn er frosinn í grasinu og í raun
bara klaki. Það er spáð rigningu
eða slyddu á miðvikudag og ef því
fylgir hiti yfir frostmarki gæti
þetta sloppið fyrir horn,“ sagði
Jóhann G. Kristinsson vallarstjóri
en hann og vaskar hjálparhellur
mokuðu völlinn er snjór féll á
hann fyrir bikarúrslitaleikinn og
hann fór því fram á settum tíma.
„Þá féll snjór ofan á mjúkan
völlinn og því ekkert mál að moka
hann. Sá snjór sem er á vellinum
núna er aftur á móti frosinn í gras-
inu og því í raun ekkert sem við
getum gert.
Við getum ekki einu sinni farið
út á völlinn því þá gætum við
skemmt grasið,“ sagði Jóhann sem
er hæfilega bjartsýnn á að leikur-
inn fari fram á fimmtudag. Gangi
það ekki eftir verður aftur reynt á
föstudag og síðan á laugardag.
„Við vonum það besta og munum
gera allt sem við getum til að leik-
urinn fari fram á áætluðum tíma,“
sagði Jóhann að lokum.
- hbg
Leikur Íslands og Írlands á fimmtudag í uppnámi:
Laugardalsvöllur frosinn
SKAUTASVELL Laugardalsvöllur er ekki í leikhæfu ástandi í dag. Snjórinn á vellinum
er frosinn og ekkert hægt að gera sem stendur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Kvennalið Hamars er á toppnum í Iceland Express-deildinni í körfu-
bolta eftir að hafa unnið þrjá fyrstu leiki tímabilsins. Dúfa Dröfn
Ásbjörnsdóttir er ekki gömul (26 ára) en tekur samt að sér hlutverk
reynsluboltans í hinu unga liði Hvergerðinga.
„Þetta er frábær byrjun og við ætlum að halda alveg ótrauðar áfram.
Við höfum verið að bæta varnarleikinn leik frá leik. Við stefnum á að
bæta vörnina og þá kemur hitt með,“ segir Dúfa sem er
fyrirliði liðsins.
„Það hefur orðið ákveðin
hugarfarsbreyting í liðinu,
stelpurnar í liðinu eru farnar
að vilja ná árangri og þess vegna
farnar að leggja meira á sig til þess
að hann komi. Sigurinn á móti KR var
rosalega stór og gaf liðinu mikið sjálfstraust
enda sýndi þetta okkur að þetta er alveg hægt
og þessi lið eru ekki ósigrandi,” segir Dúfa sem er
sá leikmaður í deildinni sem skilar af bekknum í fyrstu
þremur umferðum deildarinnar. Dúfa sættir sig alveg
við það hlutverk að vera ekki í byrjunarliðinu. „Það er bara þjálfarinn
sem ræður og ef hann vill að ég sé í þessu hlutverki þá skilar maður
bara sínum mínútum. Á meðan maður skilar einhverju til liðsins þá
er það bara gott mál að koma inn af bekknum,“ segir Dúfa og bætir
við. „Mitt hlutverk er meira að reyna að miðla minni reynslu til
yngri leikmannanna og vera þeim innan handar ef það er
eitthvað. Ég mun reyna að halda leikmönnunum niðri á
jörðinni af því að þær hafa aldrei lent í því áður að vera í
efsta sæti eftir þrjá leiki.“
Dúfa segir kvennaliðið fá mikla athygli
í bænum. „Við finnum fyrir miklu meiri
áhuga á liðinu og maður heyrir að allir séu
að fylgjast með. Það eru líka allir jákvæðir
sem veitir ekki af á þessum tímum. Við erum
eiginlega gleðigjafarnir í blómabænum þessa
dagana,“sagði Dúfa í léttum tóni. Hamar heimsækir
Grindavík í næsta leik. „Næstu leikir skipta öllu máli. Ef
við förum að tapa næstu leikjum þá skiptir
byrjunin engu máli og gleymist bara.“
DÚFA DRÖFN ÁSBJÖRNSDÓTTIR, FYRIRLIÐI HAMARS: HAMAR Í TOPPSÆTINU Í KVENNAKÖRFUNNI
Erum gleðigjafarnir í blómabænum þessa dagana
MYND/KAREN ÓSK
GUÐMUNDSDÓTTIR
FÓTBOLTI Heimaliðunum gekk ekki
vel um helgina í fyrri leikjum
sínum í umspili Evrópukeppni
kvenna í Finnlandi 2009.
Jafntefli Íra gegn Íslendingum
var besti árangur heimaliðs í
þessum fimm umspilsleikjum því
í öllum hinum leikjunum vann
„sterkara“ liðið sigur á útivelli.
Ítalir unnu í Tékklandi (1-0),
Hollendingar unnu á Spáni (2-0),
Úkraína vann í Slóveníu (3-0) og
Rússar unnu í Skotlandi (3-2).
Ítalir voru í riðli með Írlandi og
unnu báða leikina, 2-1 í Dublin og
svo 4-1 á heimavelli. Slóvenar
voru aftur á móti með íslenska
liðinu í riðli.
Seinni leikur Íslands og Írlands
fer fram á Laugardalsvellinum
klukkan 18.10 á fimmtudag. - óój
Ísland í umspili fyrir EM:
Eina útiliðið
sem vann ekki
ALLT UNDIR Í NÆSTA LEIK Dóra María
Lárusdóttir í landsleik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
verður ekki í leikmannahópi
Barcelona sem sækir Benidorm
heim í spænska bikarnum í kvöld.
Þetta verður því fjórði leikur-
inn í röð sem Eiður missir af
vegna meiðsla sem hann varð
fyrir í landsleiknum á móti
Makedónum. Eiður missti einnig
af deildarleikjum á móti Bilbao
(1-0) og Almeria (5-0) og var
heldur ekki með í 5-0 sigri á Basel
í Meistaradeildinni.
Þjálfarinn Pep Guardiola hefur
ákveðið að hvíla þá Victor Valdés,
Rafael Márquez, Carles Puyol,
Xavi, Andrés Iniesta og Lionel
Messi í þessum leik en auk Eiðs
Smára þá glíma einnig Gabriel
Milito, Pedro og Seydou Keita við
meiðsli. - óój
Bikarleikur hjá Barcelona:
Eiður missir af
fleiri leikjum
MEIDDUR Eiður Smári missir af fjórða
leiknum í röð í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
> Ian Jeffs til Vals
Valsmenn tilkynntu í gærkvöldi að þeir hefðu gert
samning við miðjumanninn Ian David Jeffs. Sá hefur
leikið í mörg ár hér á landi, fyrst með ÍBV og nú síðast
með Fylki. Jeffs hefur staðið sig afar vel
og mun styrkja Valsliðið talsvert. Þetta er
annar leikmaðurinn sem Valur semur við
á skömmum tíma því varnarmaðurinn
Reynir Leósson gekk í raðir þeirra
fyrir nokkrum dögum síðan. Vals-
menn seldu tvo sterka leikmenn
frá félaginu í sumar og virðast
vera eina félagið sem er ekki í
krepputeygjunum þessi misserin
því ekkert annað félag hefur verið
að styrkja sig.