Tíminn - 06.03.1982, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.03.1982, Blaðsíða 9
Sunnudagur 7. mars 1982 menn og málefni Atvinnuleysi og glundroða hefur verið afstýrt ■ Frá fundi borgarstjórnar Reykjavikur. Mikilvægur árangur Forustugreinar Mbl. bera þess ótvirætt merki, aö þaö tel- ur Framsoknarflokkinn hafa bezta póliti'ska stööu af þeim flokkum, sem Sfjálfstæðisflokk- urinn á i höggi við. Þess vegna beinir það árásum sinum nú einkum gegn honum. Þetta kemur ekki á óvart. Framsóknarflokkurinn er sterkasta afliö i niíverandi stjórnarsamstarfi og þvi má mest þakka honum þann árang- ur, sem ríkisstjórnin hefur náð. Mikilvægasti árangurinn er tvimælalaust sá, að hér hefur verið nægatvinna tvö undanfar- in ár, eða siðan núv. rikisstjorn var mynduð. Þessi árangur hef- ur náðst á sama tima og at- vinnuleysi hefur stóraukizt i flestum löndum öðrum og þó einkum þeim, þar sem skoðana- bræður Sjálfstæðisflokksins ráða. Það er heldur ekki litill árangur, að hér hefur tekizt á þessum tima að tryggja nokk- um veginn stöðugan kaupmátt verkamannalauna. í flestum öðrum löndum hefur kaupmátt- ur þessara launa rýrnað veru- lega. Þá er þess að geta, að hlutur þeirra, sem áður voru verst settir, sparifjáreigenda, hefur verið stórlega bættur. Komið hefur verið f veg fyrir, að fjár- munir þeirra eyddust i eldi verðbólgunnar eins og gerðist áður. Um allt land hefur verið hald- ið uppi margháttuðum framför- um, sem styrkja hag og af- komumöguleika þjóðarinnar i framtiðinni. Framkvæmdir I landinu hafa sjaldan eða aldrei verið meiri. Þannig mættihalda áfram að telja upp þann árangur, sem náöst hefur af störfum rikis- stjórnarinnar. Hagstæður samanburður Af hálfu Morgunblaðsins er talsvert talið á þeim áróðri, að ekki hafi tekizt að ná þvi marki að telja verðbólguna niður á þann hátt, sem heitið var i stjórnarsáttmálanum. Það er rétt. Þar hafa komið til sögu efnahagserfiðleikar, sem ekki voru séðir fyrir, bæði af erlend- um toga og innlendum. Við- skiptakjörin við útlönd hafa verið óhagstæð. Þrýstihdpar og stjórnarandstaða hafa samein- azt um að spyrna gegn hjöðnun verðbólgunnar. Þrátt fyrir þetta náðist sá árangur af niðurtalningunni á siðastliðnu ári, að verðbólgan varð ekki nema rúm 40% f stað þess, að hiín varð tæp 60% árið áður. Þegarsamanburður er gerður á þróun atvinnumála og efna- hagsmála he'rlendis og erlendis á undanfórnum tveimur árum, getur Framsdknarflokkurinn vissulega unað vel sinum hlut. Það var vissulega áhættu- samt að ráðast i stjórnarsam- vinnu með aðilum, sem gátu reynzt ótraustir, eins og Fram- sóknarflokkurinn gerði I febrú- ar 1980. Um annað var ekki að velja,ef ekki átti að koma til al- gert stjórnleysi. Sannarlega hefur þetta tekizt betur en margir þorðu að vona þá. Glundroða afstýrt á Alþingi Morgunblaðið beinir spjótum sinum gegn Framsóknarflokkn- um af fleiri ástæðum ei þeim, að stjórnarsamstarfið hefur tekizt betur en menn þorðu yfir- leitt að vona. Morgunblaðið ger- ir sér ljóst, að sú kenning þess er endanlega hrunin til grunna, að glundroði sé óhjákvæmilegur á Alþingi og i borgarstjórn Reykjavi"kur, ef ekki njóti við forustu Arvakursdeildar Sjálf- stæðisflokksins. Morgunblaðiö kennir Fram- sóknarflokknum réttilega um það, að þessar kenningar þess eru ekki frambærilegar lengur. Bæði i núverandi rikisstjórn og borgarstjórn Reykjavikur hafa Framsóknarmenn átt mestan þátt i' þvi, að tekizt hefur heilla- rikt samstarf, þótt Arvakurs- deild Sjálfstæðisfíokksins komi þar hvergi nærri, heldur sé I fýlu og reyni að vera Þrándur i Götu eftir þvi, sem helzt verður við komið. Núverandi rikisstjórn var mynduð eftir langt stjórnar- myndunarþóf, sem virtist ætla að ljúka með algeru stjórnleysi. Framsóknarflokkurinn tók þá áhættuna af þvi að taka þátt i ríkisstjóm, sem margir spáðu þá fárra lifdaga. Reynslan hef- ur orðið önnur, og árangur betri en flestir þorðu að vona. Is- lendingarhafa komiztbetur af á undangengnum tveimur árum en flestar þjóðir aðrar, þrátt fyrir óbilgjarna stjórnarand- stöðu og stuðning hennar- við hvers konar þrýstihópa. Glundroða afstýrt í borgarstjórn Svipað hefur gerzt i borgar- stjórn Reykjavilcur. Sjálfstæðis- flokkurinn missti þar meiri- hluta sinn i borgarstjómar- kosningunum 1978. Arvakurs- menn reyndu að hugga sig með þvi', að nú myndi glundroða- kenning þeirra sannast i verki. Hinir þrir andstöðuflokkar Sjálfst æöisflokk si ns , sem mynduðu oröið meirihluta i borgarstjórninni, myndu ekki koma sér saman og flest lenda i öngþveiti og vitleysu. Aður en ár væri liðið myndi þurfa að kjósa aftur og þá myndu Reyk- vikingar reka glundroðaflokk- ana af höndum sér. Ekkert af þessu hefur rætzt. Framsóknarflokkur, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag komu sér saman um að stjórna borginni og ráöa ópólitiskan mann til aðgegna borgarstjóra- embættinu. Fjölmargt I rekstri borgarinnar hefur snúizt til betri vegar, fjármálastjórn hennar verið traust og fram- kvæmdir með meira móti. Ýmislegt stendur þó enn til bóta, enda fjögur ár of stuttur timi til að leiðrétta allt, sem miöur fór eftir hálfrar aldar stjórn Sjálfstæðisflokksins. Margt ágætt fólk úr öllum þessum þremur fiokkum hefur átt þátt I þvi, að þessi árangur hefur náðst og glundroðakenn- ing Sjálfstæðisflokksins þannig endanlega kveðin niður. óum- deilanlega á Kristján Bene- diktsson einn stærsta eða stærsta hlutinn i þvi, að þetta hefur tekizt. Það undrar þvi engan, þótt vonbrigði og óánægja Morgunblaðsins bitni númjög á honum. Það á eftir að vera borgarbúum góður leiðar- visir. íhaldið klofnaði 28 sinnum Kristinn Hallgrimsson blaða- maður birti nýlega hér i blaðinu itarlegt yfirlit um afgreiðslu mála i borgarráði Reykjavíkur á árinu 1981. Samkvæmt þvi höfðu alls verið afgreidd 2252 mál og höföu 2203 þeirra verið afgreidd samhljóða. Agreining- ur hafði einungis verið um 49 mál. Afgreiðsla 10 þessara mála féll á þann veg, að meirihlutinn (Framsóknarflokkurinn, Al- þýðuflokkurinn og Alþýðu- bandalag) samþykkti þau, en minnihlutinn (Sjálfstæðisflokk- urinn) var á móti. t átta ágrein- ingsmálum klofnaði meirihlut- inn. í 28 ágreiningsmálum klofnaði hins vegar minnihlut- inn, þ.e. fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins voru ósammála um afgreiðsluna. Bókanir eruóljós- ar um afgreiðslu þriggja ágreiningsmála. Þetta yfirlit leiðir margt i ljós. Þó er athyglisverðast, að hafi verið hægt að tala um glundroöa i borgarráðinu, kem- ur hann aðallega fram isambúö borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Minnihluti Sjálf- stæðisflokksinsklofnar rúmlega þrisvar sinnum oftar en meiri- hlutinn. Af þvi mætti vel álykta, að svokallaður glundroði i borgar- ráði og borgarstjóm myndi meira en þrefaldast, ef svo slysalega tækist til, að Sjálf- stæðisflokkurinn fengi meiri- hluta i' borgarstjórnarkosning- unum I vor. Mesta vandamálið Nýlega voru birtar tölur um, að atvinnuleysingjar i löndum Efnahagsbandalags Evrópu væru orðnir rúmlega tiu milljónir. Þvi var jafnframt spáð, að þeimmyndienn fjölga. 1 vaxandi mæli er deilt um hvaða leiðir muni heppilegastar tilútrýmingar á atvinnuleysinu. Sumir telja vænlegast að dregið sé úr ríkisafskiptum, skattar lækkaðir og fyrst og fremst verði treyst á hagnaðar- von hinna áræðnu og heppnu einstaklinga sem driffjöður at- hafna og framkvæmda. Þetta er hin svonefnda leiftur- sóknarleið, eða það nafn hefur hún hlotiö hér á landi. Nú er verið aöreyna hana i Bretlandi og Bandarikjunum . Ekki verður sagt aö hún hafi reynzt vel til þessa. Aðrir telja þvi vænlegast að hafna henni og treysta á aukin ríkisafskipti, og frumkvæði hins opinbera um atvinnufram- kvæmdir.en þvihljóta að fylgja hækkandi skattaálögur. Þessi stefna hefur einnig veriö reynd, en með misjöfnum árangri. En þótt þannigsé deiltum það út i heimi, hvaða aðferðir séu vænlegastar til að draga úr at- vinnuleysinu, eru allir á einu máli um, að þaö sé eitthvert mesta böl, sem hugsazt geti. Riflegir atvinnuleysisstyrkir fullnægi ekki heilbrigöum ein- staklingi. Það brjóti þá niður andlega og likamlega. Mönnum er ekki aðeins hollt, heldur nauðsynlegt að hafa starfi að gegna. Af þessum ástæöum er I vax- andi mæli rætt um atvinnuleys- ið, sem mesta vandamál niunda áratugarins i hinum vestrænu iðnaöarrikjum. Aldrei atvinnuleysi Ef til vill gera Islendingar sér ekki nægjanlega ljóst, hvilíkt böl atvinnuleysið er, þviaðþeir hafa ekki reynt það I neinum mæli á siðari áratugum. Góðu heilli var ekki haldið inn á leiftursóknarbrautina eftir sið- ustu alþingiskosningar og hér hefur þvi' ekki orðið atvinnuleysi i likingu við þaö, sem er hjá Reagan og Thatcher. Það tókst að koma i veg fyrir stjórnleysi og mynda rikisstjórn, sem hefur reynzt fær um aö halda atvinnu- leysisvofunni utan landstein- anna. Sú reynsla, sem fengin er af þessum málum, er ekki sizt sú, að eigi að verjast atvinnuleysi sé ekkert ráð öruggara en aö láta það aldrei koma til sögunn- ar. Kenningin um að hæfilegt atvinnuleysi sé jafnvel æskilegt, hefur reynzt argasta falskenn- ing. Hæfilegt atvinnuleysi leiðir án teljandi undantekninga til óviðráðanlegs atvinnuleysis. Það var eitt af aöalsmerk jum framsóknaráratugarins á Is- landi aö halda atvinnuleysinu utan landssteinanna. Það tókst. Þetta þarfað vera áfram aöals- merki nfunda áratugarins á Is- landi. Næstum hvað sem það kostar þurfa íslendingar að forðast vandamálið, sem nú þjáir vestrænu rikin mest. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar Kkll

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.