Tíminn - 06.03.1982, Blaðsíða 27
Sunnudagur 7. mars 1982
27
ensá,Speelman, varð aö siðustu i
2.-3. sæti. Þá stóð alþjóðameistar-
inn Jonathan Mestel sig einnig
vel, þó ekki næði hann stórmeist-
araáfanga sem var 8.5 vinningur.
Sagan segir reyndar aö Mestel
hafi þegar unnið rétt til stór-
meistaratitils en hafi neitað
breska skáksambandinu um leyfi
til að sækja um titilinn fyrir hans
hönd. Einnig voru Englendingar-
ánægðirmeð frammistöðu undra-
barnsins sins, Nigel Short, sem
aðeins er 16 ára, en var sá eini
sem vann sigurvegarann. Short
kom til leiks nýbúinn i prófum og
ætli skákstúdiur hafi ekki setið i
fyrirrúmi fyrir lexiunum þvi
hann féll i flestum greinum. Short
hefur að sögn litlar áhyggjur af
þvi og var að enda viö aö stofna
popp-hljómsveit, svo ef til vill
verður hann fyrsta poppstjarna
sem teflir skák. Hljómsveit hans
mun vera á pönk-linunni.
Englendingarnir Littlewood og
Taulbut stóöu sig einnig vel og sér
i lagi byr jaði Littlewood frábær-
lega, vann fyrstu fjórar skákir
sinar, en siöan ekki söguna meir.
Neðstu menn mótsins voru þrir
stórmeistarar. Slæm frammi-
staða hins unga bandarikja-
manns, Larry Christiansen,
vekur athygli en hann hefur stað-
ið sig öldungis frábærlega siöast-
liöiö hálft annaö ár eöa svo og
hætti af þeim sökum við að taka
sér fri frá skákinni til að fara i
skóla.
Nokkur óvissa hefur rikt um
framtiö Hastings-mótsins að
undanförnu, þvi vakti það ó-
skipta kátinu Englendinga þegar
ICL tölvufyrirtækið tilkynnti i
lokahófinu aö það myndi halda á-
fram að styrkja mótshald.
Timman heillum horfinn
Þrir keppenda á Hastings-mót-
inu voru einnig meö á Wijk aan
Zee mótinu i Hollandi sem hófst
nokkru siðar. Hollenski stór-
meistarinn Hans Ree og ny-
sjálenski alþjóðameistarinn
Murray Chandler skiptu um hlut-
verk, enLarry Christiansen gekk
illa sem fyrr. Kannski ætti hann
að drifa sig i skólann...
Annars var þetta mót ákaflega
sterkt, náði 13. styrkleikaflokki
(Hastings-mótið var i 11. flokki),
og meðal stigatala keppenda var
2556. Þeir sem liklegastirþóttu til
að vinna voru Jan Timman, ein-
hver öflugasti mótaskákmaður
heimssem er nú næststigahæstur
iheimi á eftir Anatóli Karpov, og
MikhailTal, fyrrum heimsmeist-
ari, semenn og aftur var kominn i
fremstu röð. Tal stóð sig frábær-
lega á árunum 1977-79 en aldeil-
is hræðilega 1980. Arið 1981 var
hann aftur kominn á kreik og
vann ein fimm sex skakmót i röð
án þess að tapa skák. Hvorki
Timman né Tal stóðu viö vonir
þærsem við þá voru bundnar. Tal
tapaði strax i fyrstu umferð fyrir
Chandler og eftir það var tafl-
mennska hans gloppótt i meira
lagi, Timman sá aftur á mótinu
aldrei til sólar og stóð sig undar-
lega illa. Innbyrðis skák þeirra
skýrir Bent Larsen i dálki sinum
hér við hliðina á.
Úrþví að Timman stóð sig illa
hélt alþjóðameistarinn John Van
der Wiel uppi merki Hollands, og
tókst bara vel upp. Hann var um
tima efstur á mótinu en þó honum
gengimiðurundirlokin tóksthon-
um að ná áfanga að stórmeistara-
titli.
Margt fjörugra skáka leit
dagsins ljós i Wijk aan Zee en
einnig mörg jafntefli. Litið til að
mynda á árangur Kavaleks sem
með þessum hætti tekst að halda
sér i hópi sterkustu skákmanna
heims. Og ekki var Hort skárri,
né Hubner. Balashov fyrirgefst
að þessu sinni af þvi hann sigraði
á mótinu, ásamtNunn, sem tefldi
manna best, og vann marga af
efstu mönnum meðan Balashov
lét sér nægja að vinna þá neðstu.
Timman stóð sig sem sagt illa.
Hann náöi sér rækilega á strik, á
móti i Buenos Aires sem er nýlok-
ið vann meö miklum yfirburðum,
varð einum og hálfum vinningi á
undan Portisch frá Ungverja-
landi og sigraði Anatóli Karpov i
þriðja sinn frá þvi sá siöarnefndi
varð heimsmeistari. Karpov gekk
reyndarmjög illa og tapaöieinnig
fyrir litt þekktum skákmanni frá
Argentinu, Garcia Padron.
SJi 'AÍ (II1
BúlgarttL*
Vikulega alla mánudaga frá 24. maí — 6. sept.,
um Kaupmannahöfn — morgunflug með þotum.
Hægt er að dveljast 1—2—3—4 vikur, fara í
hringferð um landið Sofia — Rila — Plovdiv —
V. Turnevo — Gabrovo — Varna, gista á sólar-
ströndinni, á Hótel Ambassador, Shipka eða
nýbyggðum smáhýsum eða á vináttuströndinni á
Grand Hotel Varna eða inni í borginni á Cherno
More. Hálft fæði (matarmiðar) gilda alls staðar
eins og peningar í vasa. Öll hótel með baði, WC,
svölum og öðrum þægindum. 50% uppbót á
gjaldeyri. Ódýrasta land Evrópu. Skoðunarferðir
um landið —sigling tillstanbul og Aþenu, um
eina fallegustu siglingarleið heimsins Bosporus —
Dardanellasund og Eyjahaf. Verð í 3 vikur með
hálfu fæði frákr. 8.750,- á mann — barnaaf-
sláttur. Hægt að stoppa í bakaleiðinni í Kaup-
mannahöfn.
Pantið tímanlega. —
Sendum bæklinga.
Ferdaskritstotc
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoóavog 44-104 Reykjavik - Simi 86255
Auglýsið í Tímanum
FORD TAUNUS1600 GL
Kostar aðeins krónur
135.000,-
Hvar færð þú meira Jyrir peningana?
Ford Taunus — Þýzkur gæðabíll
Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100