Fréttablaðið - 30.11.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
30. nóvember 2008 — 328. tölublað — 8. árgangur
Opið 13-18
EMEBET MEKURIA SKILDI VIÐ OFBELDISFULLAN EIGINMANN
Ofbeldi gegn eþíópískum
konum ótrúlega algengt
12
ÉL NORÐVESTAN TIL Í dag verða
suðvestan 8-13 m/s norðvestan til
annars mun hægari. Él norðvestan
til en bjart með köflum sunnan- og
suðaustanlands. Dálítil snjómugga
vestan og norðan til síðdegis. Frost.
VEÐUR 4
-3
-3
-6
-6
-5
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
DESEMBER 2008
+ STOLLEN OG GLÖGG, LÚSÍUHÁTÍÐ Í STOKK Ó
NORÐUR EÐA VESTUR Á FÖSTUNNIMeðan krónan er veik er landsbyggðin sterkur kostur fyrir helgarferð
JÓLASTEMNING Í
KÖBEN
Jólamarkaðir og ómissandi Tívolíferð
MANNLÍF Í GLJÚFRUNUMIðandi líf allan ársins hring innan um skýjakljúfa og tré FY
LG
IR
Í
D
A
G
VEÐRIÐ Í DAG
FÓLK „Uppboðið var svo spennandi
að ég gat ekkert einbeitt mér að
náminu síðustu stundirnar sem á
því stóð,“ segir Tinna Daníelsdótt-
ir. Hún og móðir hennar, Hrefna
Lilja Valsdóttir, seldu aðgöngu-
miða frá tónleikum Led Zeppelin í
Laugardalshöll 1970 á uppboðs-
vefnum eBay. Það var Banda-
ríkjamaður sem bauð hæst, um 75
þúsund íslenskar krónur.
„Ég var rosa hrifin, en það var
ekkert djamm á manni enda var
ég bara 14 ára og saklaus og
seinþroska fermingarstelpa,“
segir Hrefna Lilja um upplifun
sína af tónleikunum. - drg / sjá síðu 30
Framtakssamar mæðgur:
Fengu 75
þúsund fyrir
tónleikamiða
VIÐSKIPTI Kaup einkahlutafélags-
ins Stíms í Glitni verða skoðuð hjá
Kauphöll Íslands eftir helgi, segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar. Hann vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um kaupin.
Augljóst er að reglur Kauphall-
ar Íslands voru þverbrotnar þegar
ekki var tilkynnt um 16,4 millj-
arða króna kaup Stíms á hluta-
bréfum í Glitni, segir Vilhjálmur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Samtaka fjárfesta. Tilgangurinn
hafi verið að hafa áhrif á markað-
inn og fegra stöðu Glitnis.
Jakob Valgeir Flosason, stjórn-
arformaður og eini stjórnarmaður
Stíms, sendi í gær frá sér yfirlýs-
ingu vegna umfjöllunar um félag-
ið í fjölmiðlum.
Félagið var stofnað 16. nóvem-
ber 2007. Stærsti hluthafinn í
félaginu var félag stofnað af
gamla Glitni sem ætlað var til end-
ursölu. Nafn þess kemur ekki
fram í yfirlýsingu Jakobs. Starfs-
menn Glitnis kynntu þetta við-
skiptatækifæri fyrir Jakobi og
öðrum fjárfestum.
Við stofnun Stíms fékk félagið
lán hjá Glitni til að kaupa 4,3 pró-
senta hlut í Glitni fyrir 16,4
milljarða króna. Félagið keypti
einnig 3,8 prósenta hlut í FL
Group, síðar Stoðum, fyrir 8,4
milljarða.
Þessi viðskipti hefði Glitnir átt
að tilkynna til Kauphallarinnar,
enda í raun Glitnir að kaupa eigin
bréf, segir Vilhjálmur. Hann segir
að með kaupum sem þessum hafi
markvisst verið höfð áhrif á mark-
aðinn. Þessi kaup gætu jafnvel
fallið undir lög um markaðsmis-
notkun, enda tilgangurinn að
hækka gengi bréfa í Glitni.
Glitnir lánaði Stími 79 prósent
af kaupverðinu í Glitni og FL
Group, 19,6 milljarða króna, með
veði í bréfunum. Jakob segir í
yfirlýsingunni að hann og aðrir
hafi vonast eftir því að bréfin
myndu hækka. Þær væntingar
hafi ekki gengið eftir. Því hafi
hluthafar í félaginu tapað um 21
prósenti eigin fjár, 5,2 milljörð-
um.
Jakob segist sjálfur hafa átt
samtals 7,5 prósenta hlut í Stími.
Hann hafi ekki fengið lán fyrir
þeim hlut og hafi tapað öllu hluta-
fé sínu í félaginu. Miðað við við-
skipti með bréf FL Group og Glitn-
is virðist tap Jakobs nema 390
milljónum króna hið minnsta.
Í yfirlýsingu Jakobs er fullyrt
að Stím hafi ekki verið leynifélag.
Þar er umfjöllun fjölmiða um
félagið einnig gagnrýnd.
- bj
Staða Glitnis fegruð
með kaupum Stíms
Reglur Kauphallarinnar voru brotnar þegar ekki var tilkynnt um kaup Stíms á
4,3 prósenta hlut í Glitni, segir framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta. Viðskiptin
verða skoðuð hjá Kauphöllinni eftir helgi segir forstjóri Kauphallar Íslands.
HLUTHAFAR Í STÍM EHF.
Félag gamla Glitnis* 32,5%
Gunnar Torfason 15%
SPV Fjárfesting hf. 10%
BLÓ ehf.** 10%
Ofjarl ehf*** 10%
Viðskiptavinir Saga Capital 8,75%
Saga Capital 6,25%
Jakob Valgeir Flosason 2,5%
Ástmar Ingvarsson 2,5%
Flosi Jakob Valgeirsson 2,5%
*Félag gamla Glitnis var ætlað til endursölu.
** félag í eigu Óskars Eyjólfssonar
*** félag í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar og
Ástmars Ingvarssonar
RÁÐAMÖNNUM SAGT UPP Almenningi sem mættur var á mótmælafund við Austurvöll í gær gafst kostur á að segja völdum ráðamönnum upp störfum með því að skrifa
undir uppsagnarbréf þeim til handa og haka við hvaða ráðamenn skyldu fjúka. Sjá síðu 4 FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
HNAKKINN MUN
ALDREI DEYJA
Singapor Sling spilar
ekki í jogginggalla
VIÐTAL 14