Fréttablaðið - 30.11.2008, Side 30
6 FERÐALÖG
Þrátt fyrir að flestir sleppi nú
utanlandsferðunum vegna krank-
leika íslensku krónunn-
ar eru þeir örugglega
margir sem ekki geta
hugsað sér að sleppa
skíðaferðunum. Tími
þeirra er einmitt að
renna upp. Að þjóta
niður snævi þaktar
brekkur í frískandi háfjallalofti er
líka allra meina bót. Óþarft er að
láta sér leiðast eftir að skíða-
skónum sleppir. Í fjallaþorpunum
flestum er að finna ógrynni af
krám og veitingahús-
um. Meðal upplifana
umfram skíðaiðkun er að
bragða á heilu grilluðu
svíni, hlusta á fagra
tóna tírólahljómsveitar
og fara í hestasleðaferð
að kvöldlagi. Algengt
verð á skíðaferðum er 160 til 200
þúsund krónur á mann, miðað
við tveggja manna herbergi.
SNÆVI ÞAKIN FJÖLLIN BÍÐA
N
ú þegar jólamánuður-
inn fer í hönd streyma
Þjóðverjar og gestir á
jólamarkaði. Einn sá
þekktasti í Þýskalandi er jóla-
markaðurinn í Frankfurt, þar
sem finna má jólavörur á hundr-
uðum bása í miðaldaumhverfi
miðborgarinnar. Ljósumprýddur
markaðurinn. Þrisvar á dag,
klukkan 9, 12 og 17, klingja bjöll-
ur á svölum Nikolaikirche og
reglulega eru haldnir tónleikar
með jólalegu ívafi á Römerberg-
torginu.
Fyrir þá sem vilja leiðsögn sér-
fróðra er bent á að boðið er upp á
slíkar gönguferðir um markaðinn
þar sem skýrt er frá sögu hans og
leyndardómum, sérstaklega
þegar kemur að matar- og köku-
gerð. Hluti af göngunni er að fara
upp á þak Nikolaikirche (Nikulás-
arkirkju), en þaðan er útsýni yfir
allan markaðinn og nokkuð yfir
borgina. Ef fólk vill halda sig við
jörðina er einnig innifalin ferð í
gamaldags hringekju, sem heillar
jafnt unga sem aldna. Í lok ferð-
arinnar er svo boðið upp á heitan
bolla af jólaglöggi til að ylja jafnt
fingur sem að innan.
Fyrir þá sem vilja upplifa öðru-
vísi borgarstemningu er mælt
með borgunum Wiesbaden og
Heidelberg í nágrenni Frankfurt.
Í Heidelberg má finna fornar
rústir Heidelbergkastala og í
gamla miðbænum Alstadt má
finna mikið af verslunum, kaffi-
húsum og veitingastöðum.
Umhverfis borgina eru hins vegar
skógi vaxnar hæðir. - ss
STOLLEN&GLÖGG
Í Þýskalandi er þrennt sem nauðsynlegt er að gera í desember; fara á jólamarkað,
drekka glögg og næla sér í bita af hinni hefðbundnu jólaköku, Stollen. Hægt er að
sameina þetta þrennt á jólamarkaðinum í Frankfurt.
Jólamarkaðurinn í Frankfurt Það tekur margar klukkustundir að rannsaka hvern krók og
bás á jólamarkaðinum í Frankfurt. MYND/ TOURISMUS+CONGRESS GMBH FRANKFURT AM MAIN
PARÍS: Jólamarkaðurinn í borg
ljósanna á sér stað á vinstri
bakkanum á Boulvard Saint
Germain og Place Saint-Sulp-
ice. Njóttu þess að hitta
jólasveininn sem Frakkar kalla
Pére Noël og dreyptu á heitu
rauðvíni. (frá 5.-31. des.)
STOKKHÓLMUR: Það
eru margir jólamarkaðir í
Stokkhólmi en sá stærsti
er haldinn í Gamla Stan
á degi hverjum í aðdraganda
jóla. Helgarmarkaðurinn í Skans-
en á Djurgården-eyju er líka
stórskemmtilegur (til 24. des.).
STRASSBORG: Jólastemmning
svífur yfir vötnum í þessari
frönsku miðaldaborg en þessi
markaður, Christkindels-
marik, hefur verið haldinn
allt frá árinu 1570 við hlið
Notre-Dame kirkjunnar (til
24. des.).
VÍNARBORG: Austur-
ríkismenn eru þekktir
fyrir kósýheit um jól
og því eru jólamarkað-
ir í Vínarborg sérstaklega
huggulegir. Stærstu markaðirnir
eru haldnir fyrir framan ráðhúsið
og við háskólann.
BESTU JÓLAMARKAÐIRNIR
Ferðaávísun gildir
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
40
54
1
1/
08
HLUNNINDI SEM FYRIRTÆKJASAMNINGUR VEITIR:
• Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju fyrirtæki
• Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn - alla daga ársins
• Afsláttur sem býðst á fargjöldum til áfangastaða Icelandair
• Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum
+ Skráðu fyrirtækið þitt núna á www.icelandair.is
ÞJÓNUSTA SEM
SPARAR FYRIRTÆKJUM
TÍMA OG PENINGA
ER ÞITT FYRIRTÆKI MEÐ SAMNING?
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
DÜSSELDORF
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
NE
W
YO
RK
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
BO
ST
ON
REYKJAVÍK
Traustur íslenskur ferðafélagi