Tíminn - 04.05.1982, Síða 5
Þriðjudagur 4. maí 1982
5
fréttir
Framkvæmdastjórar BÚR greiddu skrif-
stofufólki í heimildarleysi 20% kaupauka:
„GREINILEGA ER UIH MIS-
FERU f STARFI AÐ RÆBA”
— segir Páll Jónsson, útgerðarráðsmaður.
,,Gert án minnar vitundar’% segir Björgvin
Guðmundsson, framkvæmdastjóri BÚR
■ „Þarna virðast skrifstofu-
stjóri og framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins hafa gert hluti, sem
jieir hafa leynt stjórn fyrirtækis-
ins. Það er ekki hægt annað en að
bregðast hart við þessu. Ég hafði
t.d. ekki hugmynd um þetta fyrr
en nú um helgina. Þarna er þvi
greinilega um misferli i starfi að
ræða. Það er sfðan allt annað mál
hvort fólkið eigi skilið betri laun.
Amælisverði hlutinn er hvernig
að þessu er staðið”.
Þetta sagði Páll Jónsson, sem
er fulltrúi i útgerðarráði Bæjar-
útgerðar Reykjavikur sem fer
með yfirstjórn fyrirtækisins, i
samtali við Timann i gær.
Ummæli Páls koma i framhaldi
af upplýsingum sem fram hafa
komið siðustu daga um að fram-
kvæmdastjórar og skrifstofu-
stjóri BÚR hafi án nokkurs sam-
ráðs við útgerðarráð , launa-
málanefnd borgarinnar né önnur
borgaryfirvöld, ákveðið að greiða
um tuttugu manns á skrifstofu
fyrjrtækisins sem eru i Starfs-
mannafélagi Reykjavikurborgar
sérstakan 20% kaupauka ofaná
venjuleg laun.
„Timabundinn kaup-
auki”
Það var 1. ágúst sl. sem þessu
fyrirkomulagi var komið á. En
hversvegna? „Það var mjög al-
varlegt ástand hjá okkur á þess-
um tima. Við vorum að missa frá
okkur fólk, sem bauðst betri laun
annars staðar, og fengum ekki
annað i þess stað”, sagði einn af
hlutaðeigandi aðilum i samtali
við Timann i gær. Til að sporna
við þessu var samið um 20%
„timabundinn kaupauka” til
þessa fólks. Akvörðunin var tekin
af Vigfúsi Aðalsteinssyni, skrif-
stofustjóra, og Einari Sveinssyni,
framkvæmdastjóra. Ekki er taíið
að Marteinn Jónasson sem þá var
einnig framkvæmdastjóri við fyr-
irtækið hafi átt þar hlut að máli,
en samkvæmt verkaskiptingu
milli hans og Einars sá hann ein-
göngu um rekstur togaranna.
Hins vegar mun honum hafa ver-
iðkunnugt um þessa ákvörðun, en
ekki talið hana koma sér við.
Var þessi ákvörðun tekin, eítir
þvi sem Timinn kemst næst, án
minnstu vitundar útgerðarráðs,
eða formanns þess, sem þá var
Björgvin Guðmundsson, sem nú
er annar framkvæmdastjóri
BÚR, né launamálanefndar borg-
arinnar, sem þó með réttu hefði
átt að f jalla um málið, eða a.m.k.
leggja blessun sina yfir það. Sum-
ir kunnugir telja með ólikindum
að formaður útgerðarráðs hafi
ekki af þessu vitað. Þetta hafa
framkvæmdastjórar og skrif-
stofustjóri borið til baka. Einn
þeirra sagði i samtali við Tim-
ann: „Hann vissi ekkert um
þetta. Viðvildum ekkiláta hann i
þá aðstöðu að annaðhvort neita
eða játa þessu, þvi hvort tveggja
sem hann hefði gert hefðu verið
vandræði”.
Samkomulagiö sem umdeilt er
orðið gekk eins og fyrr segir út á
það að skrifstofufólki var greidd-
ur 20% kaupauki sem kallaður
var „timabundinn” samkvæmt
samningnum. Átti samkomulagið
að gilda frá 1. ágúst sl. þar til
næstu kjarasamningar yrðu gerð-
ir milli BSRB og Reykjavikur-
borgar. Slikir samningar voru
gerðir um sl. áramót, en greiðslur
samkvæmt kaupaukasamningn-
um héldu áfram. Samkomulagið
var uppsegjanlegt fyrirvaralaust
hvenær sem er.
Þeir sem stóðu að samkomu-
laginu afsaka það sem fyrr segir,
með þvi að fólk hafi verið að
hætta, og eins hafi vinnuálag á
skrifstofufólki aukist mikið, þar
sem starfsmönnum hefði ekki
verið fjölgað eðlilega miðað við
viðbótarverkefni sem á það hefði
lagst. Þeir vildu meina að raun-
verulega væru þeir að láta fólkið
fá bónus á móti þvi að mannskap
yrði ekki fjölgað. Enda er sá fyr-
irvari tekinn fram i samningnum
að ekki verði um f jölgun aö ræða
á skrifstofu.
Sagan kvisast út
Siðan er það i marsmánuði sl.
að það fer að kvisast út að starfs-
fólk á skrifstofu BÚR njóti sér-
stakra launakjara. Þegar það
spyrst á borgarskrifstofurnar er
gerð fyrirspurn vegna þessa
máls, og þá kemur i ljós að hún á
við rök að styðjast. i framhaldi af
þvierbeitt heimildi samningnum
um „tímabundinn kaupauka” og
honum sagt upp íyrirvaralaust
frá 1. april sl. að telja.
En hvernig stendur á þvi að
ekki verður vart viö þessar heim-
ildarlausu launagreiöslur fyrr en
átta mánuðum eftir að þeim er
komið á? Aðalskýringin felst i
þvi, að BÚR er eina stofnun borg-
arinnar sem alfarið sér sjálf um
launagreiðslur sinar. „Þetta er
aleina stofnun borgarinnar sem
keyrir sin laun úti i bæ, al' þeirri
ástæðu að f rystihúsin hafa privat-
launakerfi fyrir bónusinn. Ég hef
þvi ekkert i höndunum um launa-
greiðslur BÚR. Allar aðrar borg-
arstofnanir eru undir járnaga hjá
mér, og þar þarftu ekki að leita að
neinu, sem ekki er eins og það á
að vera”, sagði Magnús Óskars-
son, vinnumálastjóri borgarinn-
ar, isamtali viðTimann.
Lokaöur fundur
iborgarráði
Samkvæmt heimildum Timans
þá hefur þrisvar verið fjallað um
þetta mál i borgarráði, og þá i öll
skiptin sem trúnaðarmál, án þess
að nokkuð væri um það bókað. Nú
siðast á föstudaginn var haldin'n
sérstakur lokaður fundur um
þetta mál.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin i borgarráði hvernig bregð-
ast eigi viö þessu máli. Þegar Sig-
urjón Pétursson, forseti borgar-
stjórnar og formaður borgarráðs
var inntur eftir þvi hver hans
skoðun væri á þessu máli og
hvernig ætti að bregðast við þvi
sagði hann: „Ég get ekki gefið
upp neina slika aistöðu i dag.”
Benti hann á að fundur yrði hald-
inn i borgarráði i dag, þar sem
málið um „timabundna
kaupaukann” yrði aftur tekiö á
dagskrá. „Það eina sem ég vil
segja er að málefni Bæjarútgerð-
ar Reykjavikur voru rædd á lok-
uðum fundi sl. föstudag, og
ákveðið er að halda þeirri um-
ræðu áfram á næsta fundi þess.”
Eins og kemur fram i orðum
Páls Jónssonar útgeröarmanns,
hér að íraman, tala sumir aðilar
sem tengjast þessu máli um að
gripa verði hart á þvi. En hvaða
viðbrögð koma til greina. 1 fyrsta
lagi er hægt aö hugsa sér þá
niðurstöðu að máliö veröi látiö
niður falla án lrekari umræðna.
Sú niðurstaða mun þó vera frekar
ótrúleg, miðað við þær heimildir
sem Timinn hefur aliað sér, sem
flestar ganga i þá veru aö þeir
sem tóku hina umdeildu ákvörðun
verði ekki látnir sleppa með
skrekkinn.
Þeir sem ganga harðast lram i
málinu leggja til að fram-
kvæmdastjóranum þ.e. Einari
Sveinssyni og skrifstofustjóran
um, Vigfúsi Aðalsteinssyni verði
vikið úr starli um stundarsakir,
meðan máiið er skoðað ofan i
kjölinn, en þeim siðan sagt upp
endanlega, ef máliö er i pottinn
búið eins og lýst hefur veriö hér
að framan. Aðrir hallast að væg-
ari leiðum t.d. að borgarstjóra
verðifaliðað gefa þeim alvarlega
áminningu, eða borgarráð geri
sérstaka bókun að þessu tilefni,
þar sem ákvörðun þeirra verði
vitt.
Eins og fyrr segir kemur borg-
arráð til fundar i dag, þar sem
málið verður tekið i fjórða sinn
á dagskrá, og þá væntanlega op-
inberlega i fyrsta sinn. Vel getur
svo farið að endanleg ákvörðun
um lyktir málsins veröi tekin á
þeim íundi. Hins vegar hefur út-
gerðarráð ekkerl fjallað um mál-
ið. Til stendur að halda fund i ráð-
inu á morgun, ef reikningar fyrir-
tækisins, lrá siðasta ári liggja þá
fyrir, en ellegar stendur til að
fresta honum um viku.
Hins vegar hafa menn litið vilj-
að láta hala eftir sér um þetta
mál. Borgarráösmenn telja sig
bundna þagmælsku vegna þess að
eingöngu hafi veriö íjallað um
það á lokuöum fundum. Aðrir
sem málelnið snertir hafa iitiö
viljað hala sig i írammi, fyrr en
ákvörðun heíur verið tekin i borg-
arráði til að styggja ekki borg-
arráð.
—Kás
Kristins Guð-
mundssonar
minnst á þingi
■ Jón Helgason forseti Samein-
aös þings kvaddi sér hljóðs á
þingi i gær og minntist Kristins
Guðmundssonar sem er nýlátinn.
„Kristinn Guðmundsson fyrr-
verandi utanrikisráðherra and-
aðist siðastliðinn föstudag, 30.
april á áttugasta og fimmta
aldursári. Hann tök sæti hér á
Alþingi tvisvar skamma stund
sem varaþingmaður, á árunum
1947— og 1949, en átti siöan setu á
Alþingi sem utanþingsráðherra
þrjú þing, á kjörtimabilinu
1953—1956.
Kristinn Guðmundsson var
fæddur 14. október 1897 að Króki á
Rauðasandi. Foreldrar hans voru
Guðmundur bóndi og hreppstjóri
þar, siðar i Lögmannshli’ð i' Glæsi-
bæjarhreppi, Sigfreðsson og Guð-
rúnJúli'ana kona hans Einarsdótt-
irThoroddsens.
Kristinn las lögfræði við
Háskóla tslands veturinn
1920— 1921, ennam siðan hagfræði
og lögfræði við háskólann i Kiel
1921 og 1923—1926 og i Berlin
1921— 1923. Arið 1926 lauk hann
doktorsprófi við háskólann i Ki'el.
A árunum 1926—1929 vann hann
við einkakennslu og verslun i
Reykjavik og Hamborg. Fastur
kennari viö Menntaskólann á Ak-
ureyri og Hamborg. Fastur kenn-
ari við Menntaskólann á Akureyri
var hann 1929—1944 og stunda-
kennari þar 1944—1953, en var á
þeim árum að aðalstarfi skatt-
stjóri á Akureyri. Haustiö 1953
var hann utanrikisráðherra og
gegndi ráðherrastörfum fram i
júU 1956. Nokkru siðar var hann
skipaður sendiherra Islands i
Stóra-Bretlandi og i ársbyrjun
1961 varð hann sendiherra i
Sovétrikjunum. Af sendiherra-
störfum léthann sjötugur i árslok
1967 og átti upp frá þvi heimili i
Reykjavik.
Kristinn Guömundsson var frá
æskuárum mikill námsmaður,
jafnt i skólum sem utan skóla.
Meö aldri varð hann fjölfróður
menntamaöur og miölaöi náms-
mönnum af vfðtækum fróðleik
sinum og þekkingu. A starfsárum
sinum i Sovétrikjunum á sjötugs-
aldri hóf hann af kappi nám i
rússnesku. Á Akureyri voru hon-
um falin ýmis störf i þágu bæjar-
félagsins og þar var hann bæjar-
fulltrúi 1950—1953. Hann var
ágætur liðsmaður i stjórnmála-
flokkiog honum voru falin vanda-
söm ráðherrastörf á umbrotatim-
um. Með góðvild og drengskap
ávann hann sér hvarvetna vin-
sældir i störfum. Gilti það um
kennslustörf, skattheimtu,
stjörnmálabaráttu og ráðherra-
dóm. Siðasta áratug starfsævi
sinnar gegndi hann með sæmd og
háttprýði mikilvægum störfum
fyrir þjóð sina á erlendum vett-
vangi.
Ég vil biðja háttvirta alþing-
ismenn aö minnast Kristins Guð-
mundssonar meö þvi að risa úr
sætum”
BIIASVNING AKUREYRI
Kynnum OPELMXn - OPELASCONA - OPELREKORD
ISUZU PKKUP - /SUZUTR00KR
í nýjum og glæsilegum húsakynnum Véladeildar KEA viö Óseyri2
Laugardag kl.10-17 og sunnudag kl. 10-17
VÉIADEIID KEA