Tíminn - 04.05.1982, Page 7
Þriðjudagur 4. mal 1982
7
erlent yfirlit
\ 11 ■ W
• ’ÉÍ má
■ Tveir af áhrifamestu fulltrúunum á hafréttarráðstefnunni, Jens Evensen og Hans G. Andersen.
Mikil samstaða
um hafréttarlög
Óverulegur ágreiningur um
nýtingu úthafsbotnsins
■ MIKILL fógnuður setti svip á
lokafund hafréttarráðstefn-
unnar eftir að nýr hafréttarsátt-
máli haföi verið samþykktur
með 130 atkvæöum gegn 4, en
fulltrúar 17 rikja höfðu setið hjá.
Menn klöppuðu lengi og risu Ur
sætum sinum til enn frekari á-
herzlu. öllum var ljóst, að náð
hafði verið mikilvægum áfanga
i alþjóðlegri lagasetningu og
alþjóðlegu samstarfi.
Dómur margra var sá, að
þetta væri merkasti atburður i
alþjóðlegu samstarfi siðan
Sameinuðu þjóðirnar voru
stofnaðar 1945.
Það dró ekki neitt að ráði Ur
fögnuðinum, þótt fjögur riki
hefðu greitt atkvæöi gegn sátt-
málanum. Sérástæöur réðu af-
stöðu þessara rikja. Bandarikin
voru ósátt við viss ákvæði
varðandi vinnslu á auðæfum
alþjóðlega Uthafsbotnsins, en
samþykk öðrum ákvæðum sátt-
málans. tsrael greiddi atkvæði
gegn sáttmálanum vegna þess
að i honum felst viss viðurkenn-
ing á frelsissamtökum Pale-
stinumanna. Aö öðru leyti var
Israel fylgjandi sáttmálanum.
Tyrkland og Venezúela greiddu
atkvæði gegn honum vegna þess
að bannað er aö gera fyrirvara
um einstök atriöi viö undirritun
hans.
Hjáseta 17 rikja olli nokkrum
vonbrigðum, en þó ekki veru-
legum.
Niu kommUnistariki (Sovét-
ríkin, Búlgana, Tékkóslóvakia,
Pólland, Mongólia, Ungverja-
land, Austur-Þýzkaland, Úkra-
ina, Hvita-RUssland) sátu hjá
og réði þar mestu ágreiningur,
sem reis á siöustu stundu, um
lögfræöilega skýringu á vissu á-
kvæði varöandi nýtingu úthafs-
botnsins. Eftir atkvæða-
greiðsluna gerðu flest þessi riki
grein fyrir hjásetunni á þá leið,
að reikna má meö að þau undir-
riti sáttmálann.
Sex riki Efnahagsbanda-
lagsins (Bretland, Italia,
Belgia, Holland, Vestur-Þýzka-
landog Luxemborg) sátu hjá til
að þóknast Bandarikjunum, en
munu sennilega flest eða öll
undirrita sáttmálann.
Auk framangreindra rikja
sátu Thailand ogSpánn hjá við
atkvæðagreiösluna. Þar réðu
sérástæður.
Reikna má með þvi, eins og
áður segir, aöflest þau riki, sem
sátu hjá, undirriti sáttmálann,
og vafalaust eiga Bandarikin
eftir að gera þaö innan
skammst tima. Óhyggileg þrá-
kelkni réði afstöðu þeirra að
sinni. Stjórn Carters var búin að
fallast á sáttmálann, en stjórn
Reagans breytti afstöðunni.
Talsvert var gengið til móts við
hana á fundinum nú og gerðu
menn sér þvf von um að Banda-
rikin létu sérnægja að sitja hjá.
EINS OG þegar hefur veriö
rakið, var sá ágreiningur, sem
kom fram á lokafundinum, ein-
göngu varðandi viss ákvæði um
nýtingu á auöæfum alþjóðlega
úthafsbotnsins. Segja má, að
fullt samkomulag hafi náðst um
öll atriði önnur, eða þaö, sem
hingað til hefur talizt til haf-
réttarlaga. Hér er um að ræða
lögsögu, efnahagslögsögu,
landgrunnslögsögu og siglingar.
Þannig var fullt samkomulag
um öll þau atriði, sem Island
varðar sérstaklega.
Til viðbótar náöist svo sam-
komulag um mikilvægar meng-
unarvarnir, en engar viður-
kenndar reglur hafa veriö um
þetta mál.
Merkilegust nýmæli i' þess-
um efnum eru án efa stækkun
landhelginnar I 12 milur og
viðurkenning á 200 milna efna-
hagslögsögustrandrikja. Þá eru
landgrunnsréttindi strandrikja
utan 200 milna efnahagslögsög-
unnar einnig mikilvæg. Akvæð-
in um mengunarvarnir eru lika
stórkostleg nýmæli.
Að dómi margra mun þó það
þykja einna sögulegast, að
náðst hefur samkomulag um að
telja auðæfi alþjóðlega úthafs-
botnsins sameign mannkynsins
og að nýta ben bau i þágu fá-
tækra þjóða. Til þess að tryggja
þetta, verður komió á fót sér-
stakri stofnun, sem hefur yfir-
umsjón með þessari vinnslu og
verður sjálf aðili að henni að
vissu marki.
Óhætt er að segja, að þetta sé
nýr þáttur i alþjóðlegu sam-
starfi og veltur á miklu, aö það
takist vel. Það mun taka veru-
legan tima, að koma þessari
stofnun á laggirnar, en hún
mun taka til starfa, þegar 60
riki hafa staðfest sáttmálann.
Sérstök undirbúningsnefnd
verðursettálaggirnar.þegar 50
riki hafa staðfest samninginn.
AKVEÐIÐ hefur verið að
undirritun hins nýja hafréttar-
samnings fari fram i Caracas i
Venezúela I desembermánuði
og lýkur ráöstefnunni þá form-
lega, þótt starfi hennar sé raun-
veriáega lokið. Þá verður hald-
inn tveggja daga fundur i sept-
ember til aö ganga frá tillögum
nefndar, sem hefurunnið að þvi
að lagfæra og samræma orðalag
textans, án efnisbreytinga.
Þegar undirritun hafréttar-
sáttmálans fer fram i Caracas,
verða rúmlega 15 ár liðin siðan
Arvid Pardo, fulltrúi Möltu,
reifaði þá hugmynd á alls-
herjaringi S.Þ. að auðæfi út-
hafsins ættu að teljast sam-
eiginleg arfleifð mannkynsins
og nýtast i samræmi við það.
Kosin var sérstök nefnd til að
vinna að þessari hugmynd, en
siöar var starf hennar aukið og
henni falið að fjalla um haf-
réttarmálin almennt. Nefndin
héltallmarga fundi, en 1973 var
störfum hennar komiö þaö vel á
veg, að ákveðið var að kalla
saman sérstaka hafréttarráð-
stefnu, sem hóf störf sin i New
York i desember 1973. Fyrsta
meiri háttar fund sinn hélt hún
svo iCaracas sumariö 1974. Alls
hefur ráðstefnan haldið ellefu
fundi á þessum tima, sem hafa
staðið samanlagt i 93 vikur.
Island hefur tekiö þátt bæði i
störfum undirbúningsnefndar-
innar og ráðstefnunnar. A öll-
um þessum fundum hefur Hans
G. Andersen verið aðalfulltrúi
tslands. óhætt er að segja, að
hann hafi veriö i röð þeirra
fulltrúa, sem notiö hafa mests
álits og áhrifa. Island hefur not-
ið góðs af þvi.
Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar yi
bridge
Vetrar-
starfinu
ad Ijúka
■ Félög bridgemanna
eru nú óðum að auglýsa
síðustu spilakvöld og
keppnir vetrarins. Svo
virðist sem flest félög
Ijúki vetrarstarfseminni
fyrir eða um miðjan
mánuðinn. Þessum
fréttardálkum Tímans
fer því einnig fækkandi,
þótt ekki sé enn Ijóst
hvort þeir verði einn eða
tveirtil viðbótar
Eins og fyrri sumur,
gefst spilurum á höfuð-
borgarsvæðinu tækifæri
til að spila bridge á
fimmtudagskvöldum i
sumar. Ekki hefur þó
enn verið ákveðið hvar
né heldur hvenær spila-
mennskan hefst, en ekki
er óliklegt að 27. maí
verði fyrir valinu. Þvi
miður munu vera ein-
hverjir erfiðleikar á því
að fá Domus Medica
fyrír þessa spila-
mennsku, þótt ekki hafi
það verið reynt til þraut-
ar. Bregðist Domus, þá
munu Hótel Hekla með
sína slæmu lýsingu og
loftræstingu en góðu
staðsetningu, eða þá
Hreyf ilshúsið koma
einna helst til greina —
nema betri uppástunga
komi fram.
Víkingur
Starfsemi bridgedeildar fé-
lagsins i vetur lauk með aðal-
sveitakeppni og sigraði sveit
Sigfúsar Sigurhjartarsonar
með 110 stig. 1 sveitinni eru
auk hans þeir Geiraröur Geir-
arðsson, Guðgeir Leifsson og
Sigfús örn Arnarson. I ööru
sæti varð sveit Björns Frið-
þjófssonar með 103 stig.
Bridgedeildin þakkar
spilurum fyrir samstarfið og
skemmtunina i vetur og von-
ast til að sjá sem flesta aftur
næsta vetur.
Breiðhoit
S.l. þriöjudag var spiluð hin
árlega firmakeppni félagsins
og var spilað um veglegan
farandbikar. Úrslit uröu
þannig, að Borgarprent
Vatnsstíg 3 (spilari Hreiðar
Hansson) sigraði með 130 stig,
Röð næstu fyrirtæki voru
2. Toyota umboðiö, spilari
Óskar Þráinsson, fékk 121
stig.
3. Bólstrun Sigurðar
Hermannssonar, spilari Guð-
jón Jónsson, fékk 113 stig.
4. Litaver Grensásvegi spil-
ari Bergur Ingimundarson,
fékk 103 stig.
1 kvöld verður svo seinasta
spilakvöld vetrarins. Er þá
spiluð létt rúbertukeppni, en
jafnframt veitt verðlaun fyrir
aðalkeppni vetrarins. Spilað
er i húsi Kjöts og fisks.
BR
Siðastliðinn miðvikudag var
fyrirhugað aö halda áfram
einmenningskeppni félagsins,
en þar sem ekki mættu nógu
margir til leiks i tvo riöla, var
brugðið á þaö ráð að spila tólf
para tvimenning. Úrslit uröu
þessi.
Gylfi Baldursson —
Sigurður B; Þorsteinss. 193
Aðalsteinn Jörgensen —
Þorlákur Jónsson 192
Böðvar Magnússon —
Rúnar Magnússon 181
Guðm. Hermannsson —
Þorgeir Eyjólfsson 181
Siðustu spilakvöld hjá félag-
inu á þessu starfsári verður á
morgun miðvikudag. Þá er
fyrirhugað að 16 efstu menn úr
fyrsta kvöldi einmennings-
keppninnar spili um titilinn
einmenningsmeistari BR 1982.
Aðrir spilarar, sem mæta
spila eins kvölds tvimenning.
Spilamennskan hefst i Domus
Medica kl. 19.30.
Hafnarf jörður
Nú fyrir skömmu lauk Baro-
meter-tvimenningskeppni BH.
Úrsliturðu:
1. Stefán Pálsson —
Ægir Magnússon 218
2. Dröfn Guðmundsd. —
Einar Sigurösson 182
3. Ragnar Magnússon —
Svavar Björnsson 159
4. Arni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon 137
5. Aðalst. Jörgensen —
Asgeir P. Asbjörnss. 117
6. Georg Sverrisson —
Rúnar Magnússon 113
7. Ragnar Halldórsson —
Þorsteinn. Þorsteinss. 53
8. óskar Karlsson —
Kjartan Markússon 52
Siðastliðinn mánudag hófst
svo tveggja kvölda hrað-
sveitakeppni með þátttöku niu
sveita.
1. Aðalsl. Jörgens 248 stig
2. Sæv'ar Magnússon 238 stig
3. Stefán Pálsson 225 stig
4. Ólafur Torfason 218 stig
Meðalskor 216
Bridgedeild
Skagfirðinga
Eftir fyrsta kvöldiö i þriggja
kvölda tvimenning eru þessi
pör efst:
A-riðill (10 pör)
1. Bjarni Pétursson —
Ragnar Björnsson 135
2. Guðrún Hinriksdóttir —
Haukur Hansson 132
3. Anton Sigurðsson —
Björn Árnason 130
B-riðill
1. Haukur Harðarson —
Sigrún Steind. 100
2-3. Jón Hermannss. —
Ragnar Hansen 92
2.-3. Sveinn Sveinsson —
Valdimar Jóhannss. 92
önnur umferð, veröur spiluð
i dag þriðjudaginn 4. mai I
Drangey, Siðumúla 35.
Hægt er að bæta við 4 pörum
I annarri umferð upp á
miðlung. Spilamennska hefst
klukkan 19.30 stundvislega
Magnús Ólafsson
skrifar