Tíminn - 25.05.1982, Qupperneq 9
Þriðjudagur 25. mai 1982
9
á vettvangi dagsins
frímerkjasafnarinn
Konur þinga
eftir Sólveigu Öldu Pétursdóttur
■ Kvenfélagasamband íslands hélt
sinn 15. formannafund i Reykjavík
dagana 16. 17. og 18. apríl 1982.
Fundinn sátu 22 formenn
jafnmargra Sambanda, auk stjómar
K.Í., gesta og starfsfólks.
Dagskrá fundarins var fjölbreytt:
Erindi flutt, hugmyndir ræddar og
samþykktar og tillögur gerðar.
Skýrslur formanna fluttar.
Erindi fluttu Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri, sem talaði um
framkvæmdir á „Ári aldraðra”,
Fríður Ólafsdóttir fatahönnuður,
sem ræddi
um starfsemi Leiðbeiningastöðvar
um þjóðbúninga, Bima Bjamadóttir
skólastjóri Bréfaskólans, er talaði
um starf skólans, einnig sagði
Sigurveig Sigurðardóttir frá starf-
semi Skálholtsskóla. Sigriður Har-
aldsdóttir deildarstjóri Verðlags-
stofnunar,sagði frá verksviði Verð-
lagsstofnunar og starfi sínu þar.
Ragnhildur Helgadóttir og Vigdís
Jónsdóttir ræddu hugmyndir um
framtíðarverkefni K.í.
Skýrslur vom fluttar og þá fyrst
skýrsla stjórnar K.Í., sem Maria
Pétursdóttir, formaður Kvenfélags-
sambandsins, flutti. Mun skýrslan
verða birt i heild i Húsfreyjunni
siðar. Einnigflutti Maria Pétursdótt-
ir skýrslu Norræna húsmæðrasamb-
andsins. Sigriður Kristjánsdóttir,
forstöðumaður Leiðbeiningastöðvar
húsmæðra, flutti skýrslu stöðvarinn-
ar. Sigriður Thorlacius, ritstjóri
Húsfreyjunnar flutti skýrslu
blaðsins, og ennfremur skýrslu
Alþjóða húsmæðrasambandsins.
Formenn héraðssambandanna gáfu
greiðargóðar skýrslur og var það að
vanda mikið og skemmtilegt mál.
í Kvenfélagasambandi íslands em
nú um 250 kvenfélög með um það
bil 22.540 félaga, og er það með
ólíkindum hvað þessi félög vinna
mikið og leggja mikið af mörkum til
umhverfis sins og þjóðfélagsins alls.
Á ári fatlaðra gáfu konur stórar og
miklar gjafir til heilbrigðismála. Þar
má fyrst telja gjöf Bandalags kvenna
í Reykjavík, Taugagreinir á
endurhæfingardeild Borgarspita-
lans. Ýmis félög úti á landi studdu
Bandalagskonuri söfnuninni. Víðar
vom gefin lækningatæki og rann-
sóknartæki t.d. blóðrannsóknartæki,
súrefniskassa fyrir ungabörn, kviðar-
holsspegill, þrekþj álfunartæki, hj art-
alinurita,
smásjár, hvildarstóla og sjúkrarúm
og ótal sjóðir fatlaðra og lamaðra
vom styrktir og stofnaðir.
í ár beinast kraftar þeirra „til
heilla öldruðum á íslandi”. Fjáröflun
til allra þessara gjafa er með ýmsu
móti. Gefin eru út minngar- og
tækifæriskort, haldnar kaffisölur,
basarar, bingó, tombólur, kartöfl-
uræktun og plöntusala og á einum
stað báru konur fúavarnarefni á
kindarétt og fengu kaup fyrir. Á
þessum fundi var ákveðin ein alls
herjar fjáröflunarleið og var þá haft
að leiðarljósi það framtak Kvenfé-
lags Bústaðasóknar að halda
vinnuvöku helgina 22.-24. október
1982. Ekki þarf að óttast að konur
verði í vandræðum að finna sér
verkefni á væntanlegri vinnuvöku
svo hugmyndaríkar sem kvenfélags-
konur eru.
Oftast er safnað i ákveðnum
tilgangi, en eigi kvenfélagið óvæntan
afgang er haldinn fundur í skyndi og
ákveðið hvert ágóðinn skuli renna,
því sjóðir kvenfélaga eru ekki digrir
þó mikið sé aflað. Þrátt fyrir annriki
við að afla fjár gefa konur sér tima
til að auðga huga og hönd og haldin
eru námskeið af ýmsu tagi, mætti þar
nefna saumaskap margskonar,
matreiðslunámskeið, notkun örbyl-
gjuofna og annarra nýtísku
matreiðslutækja. Þær læra erlend
tungumál, bókfærslu, vélritun, æfa
söng og hafa leiklistar-, framsagnar-
og félagsmálanámskeið. Þær læra að
skera út, mála á gler og tré, baka
laufabrauð, móta leirker, flosa
myndir, já og lífga úr dauðadái.
Á þessum formannafundi voru
gerðar ályktanir um atvinnumál
aldraðra.ennfremur sendi fundurinn
áskorun til Alþingis um að samþyk-
kja á þessu þingi frumvarp til laga
um þjónustu við aldraða.
Eins og að framan segir stóð
fundurinn i þrjá daga. Föstudag og
laugardag var fundurinn haldinn í
Nýja hjúkrunarskólanum og á
sunnudag fyrir hádegi að Hallveigar-
stöðum.
En þó dagskrá fundarins væri
ströng og fundarseta löng þá
gleymdist ekki að krydda hana með
heimsóknum og boðum. Á föstudag-
inn tók forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir á móti fundarkonum
á Bessastöðum og sama dag var setið
kvöldverðarboð á heimili Unnar
Ágústsdóttur, formanns Bandalags
kvenna i Reykjavík. Á laugardag
var hádegisverður í Ráðherrabúst-
i aðnum, í boði menntamálaráðherra.
Þessar siðbúnu fréttir af forma-
nnafundinum eru engan veginn
; tæmandi um allt sem þar fór fram -
og kannske er okkur konum ekki
lagið að láta á okkur bera en
vinnuglaðar og fórnfúsar hendur
22.540 félaga ættu að vera athygli
verðar.
Formaður Kvenfélagasambands
íslands er Maria Pétursdóttir,
Espigerði 2, Reykjavík, Sigurveig
Sigurðardóttir Kirkjuvegi 3, Selfossi
er varaformaður og Sólveig Alda
Pétursdóttir, Heiðargerði 39, Reykj-
avik, ritari. í varastjórn eru Þórunn
Eiríksdóttir, Kaðalstöðum, Borgarf-
irði, Sigurhanna Gunnarsdóttir,
Læk, Ölfusi og Helga Guðmunds-
dóttir, Klettahrauni 3, Hafnarfirði.
Sólveig Alda Pétursdóttir
menningarmál
Beethoventónleikar
■ Siðustu reglulegu tónleikar Sin-
fóniuhljómsveitarinnará þessum
vetri voru helgaðir Ludwig van
Beethoven: Jean-Pierre Jacquillat
stjórnaði flutningi 4. sinfóniunnar
og Messu í C-dúr op. 80. Fjórða
sinfónian er fjörleg og falleg - hún
þykir smáger og mannleg miðað við
stórsleginn guðdómleik 3. og 5. Ég
er einn þeirra sem tel að Jacquillat
sé prýðilegur Beethoven-maður fyr-
ir okkar hljómsveit, og að hans
fremur fjörlegi og rösklegi flutning-
ur eigi betur við fyrir hina fámennu
sveit en þungur hátiðleiki. Frægar
tónfléttur nutu sin vel i blásurunum,
enda valinn maður i hverju rúmi, og
sömuleiðis milli blásara og strengja.
Söngsveitin Fílharmónía, sem Ró-
bert A. Ottósson stofnaði einmitt i
þeim tilgangi að flytja stórverk fyrir
kór og hljómsveit, flutti C-dúr
messuna ásamt einsöngvurunum
Ólöfu K. Harðardóttur, Sigriði Ellu
Magnúsdóttur, Halldóri Vilhelms-
syni og Reyni Guðmundssyni. Kór-
stjóri Fílharmóniu er núna Krystyna
Cortes og kórinn í verulega finu
formi að öðru leyti en þvi, að
kvenraddirnar vilja bera hina ofur-
liði svo sem víðar í heimi hér. Þetta
er semsagt hreinn og lifandi flutning-
ur.
Allir einsöngvararnir utan einn
eru alkunnir í tónlistarlifi bæjarins,
og ekki sizt sópaði að þeim Sigríði
Ellu og Ólöfu i einsöngsaríum
þeirra. Reynir Guðmundsson hafði
verið fluttur hingað alla leið frá
Puerto Rico til að syngja tenórhlut-
verkið og verður sú ráðstöfun varla
skilin músikölskum skilningi, þvi
hann hefur fremur óhreinan, háan
baritón (þótt tenór væri kallaður),
sem ekki naut sin vel í einsöng og
átti þátt i vissum „kirkjukórs-biæ”
kvartettsöngsins. Hins vegar gefur
þetta litla sönghlutverk óglögga
mynd af söngvaranum og væri ósk-
andi að hann notaði ferðina, þessa
eða aðra, til að halda tónleika hér
Sigurður
Steinþórsson
skrifar um
tónlist
og sanna að „frægð i útlöndum” er
ekki alltaf nafnið tómt.
Þegar litið er til baka verður ekki
annað sagt en að Sinfóníuhljómleik-
amir hafi tekizt vel i vetur. Hins
vegar er það misráðið að halda þá
ekki reglulega annan hvern fimmtu-
dag, fremur en að hafa þá ýmist i
hverri viku um skeið og siðan lengri
hlé á milli. Þótt ótrúlegt megi viröast
eru fimmtudagarnir ennþá ásetnastir
allra virkra daga um hvers kyns fundi
og samkomur, og því er þetta
óreglulega tónleikahald bagalegt.
Því þrátt fyrir allt eru sinfóníutón-
leikarnir hin músíkalska kjölfesta
bæjarlifsins - á Sinfóníuhljómsveit
í'slands hvilir nær þvi allt hitt, það|
sem innlent er. 19.5.
HAUPFÉIAO ÞINUF.YINGA l«0 jt*A • l*M-l*M
ÍSLAND 1000
FU WHIfl VtíilANOS ÁfW «00
ÍSLAND
700
CESCHÖTCTEVÖGEL
CESCHUTZTE vöcee
I
ÍSLAND400
Nýju frimerkin.
NÝJAR ÚTGÁFUR
■ Þættinum hafa nú borist
myndir af nokkrum væntanleg-
um islenskum frimerkjum, sem
hér fylgja með. Þetta eru afmælis-
merki Bændaskólans á Hólum.
Hestamennska - útiiþrótt og Ár
aldraðra, Herðubreiðarmynd ís-
leifs Konráðssonar. (Myndir úr
Póst og Simafréttir).
Þá hafa og verið sendar myndir
af Evrópumerkjunum, húsdýrun-
um og 100 ára afmæli Kaupfélags
Þingeyinga.
Þar sem áður hefir verið skrif-
að um þessar útgáfur hér í
þættinum, látum við nægja að
þessu sinni að birta myndir
merkjanna.
Austur Þjóðverjar senda út 18.
maf samstæðu merkja með
myndum friðaðra fugla. Eru
þetta tvær arnartegundir.Steink-
ause og Uhus, teiknað af Hilmari
Zill i Rostock, sem einnig hefir
teiknað fyrstadagsumslag það
sem notað verður.
Þá hafa norðmenn sent myndir
Evrópumerkja sinna, en þau
bera að þessu sinni bæði myndir
I úr lífi Hákonar Noregskonungs.
Sú fyrri er frá landgöngu hans, er
hann tók við konungdómi i
Noregi.
Fyrri myndin er af því er
Hákon stigur á land úr Heimdal,
25. nóvember 1905 og tekur þá
við hinu nýja konungsriki. Seinni
myndin er hinsvegar af því er
Ólafur, þá krónprins tekur á
móti föður sínum úr útlegðinni í
Englandi á striðsárunum. Þá
kemur Hákon aftur til frjáls
Noregs, 7. júni 1945.
Kalla mætti þessi merki einnig
landgöngur Hákonar Noregskon-
ungs.
Islensku Evrópumerkin túlka
kannske líka hluti. Öndvegissúl-
um varpað og landnám íslands
874. Þar er um að ræða land-
göngu norðmannsins Ingólfs
Amarsonar. Síðan verða islend-
ingar til þess að finna og byggja
Grænland. Svo finna grænlend-
ingar Vinland. Eiginlega gætu
grænlendingar gefið út Evrópu-
merki með fundi Vinlands. Það
og með sama rétti og rökum og
við beitum er við segjum norð-
mönnum að Eiríkur rauði og
Leifur hafi verið íslcnskir en ekki
norskir. Þeir voru báðir i raun
grænlenskir. En i því hver hafi
verið hverrar þjóðar á þeim
árum, eru vist ekki alltaf greini-
leg skil. Við risum upp á aftur-
fótunum af hneykslan i hvert
skipti er norðmenn eigna sér Leif
eða Snorra. En hvar standa þau
rök er við notum, efgrænlending-
ar tækju að eigna sér Leif?
Það er alltaf mikið rætt um
hverjir geti verið einstaklingar
þeir, sem sjást á íslenskum
merkjum, sérstaklega vegna þess
að oft heyrist að myndir lifandi
manna megi ekki koma þar fram.
Eru menn sammála um að þeir
munu allir dánir, er sjást á
merkinu með myndinni frá af-
mæli Kaupfélags Þingeyinga. En
um daginn hringdi maður til mín
og spurði mig. „Hvers vegna er
verið að hafa mynd af Gunnari
ráðunaut þeysandi á hestafrí-
merkinu? Er hann að fara á
Hólahátíð?” Ég kem þessu hér
með áleiðis til einhverra þeirra er
svara kynnu.
Sigurður H. Þorsteinsson
Sigurður H.
Þorsteinsson skrifar
ISLEIFUR
KONRAÐSSON
HEROUBREJÐ
DROTTNING
ÖRÆFANNA
AR ALDRAÐRA
1982
ISLAND
800