Tíminn - 25.05.1982, Page 24
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Simi <HI> 7- 75-51, (91 ) 7 - 80-30.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
HEDD HF.
Mikið úrval
Opið virka daga
9 19 • Laugar
daga 10-16
HEDD HF,
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
HöGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Simi 36510
■ Ofan viö sjávarmálið við
Ægissiðuna má á góðviðrisdög-
um sjá hvar dálitill hópur af önd-
um vappar á milli þúfna og gæðir
sér á grastoppunum, er óðum eru
að taka á sig græna litinn með ný-
byrjuöu sumri. Undir kinnungi
grásleppubáta i uppsátri stað-
næmast þær öðru hverju við leir-
uga polla, dýfa nefinu niður i þá
og lyfta höfði til himins á eftir, til
þess aö svaladrykkurinn renni
ljúflegar niður.
En hvernig stendur á þessum
blessuðum fuglum við eina af um-
ferðargötum borgarinnar. Eru
þetta kannske villiendur? Nei,
ekki er þaö nú, heldur eru hér
komnar siðustu leifar búskapar á
Grimsstaðaholtinu, búskapar
sem þar þreifst i margar aldir, en
sifellt færri muna eftir. Þannig
minna endurnar á þá tima þegar
búið var á Grimsstöðum, Bjarna-
stöðum, Einarsstöðum, Signýjar-
stöðum og i Austurkoti en
skammt til Garða og Lambhóls.
Þá var Grimsstaðaholtið tún og
heyjað við Ægissiðuna. Þeir sem
þarna bjuggu áttu auðvitað allir
bátshorn og reru til fiskjar eink-
um þó eftir grásleppu og rauö-
maga á vorin.
mmm
Þriðjudagur 25. mai 1982
fréttir
Þaðer lika einn búenda af Holt- mynd G.E.)
■ Guörún Guðjónsdóttir situr löngum við gluggann þar sem útsýni er gott I vesturátt út yfir Flóann og
ekki spillir að þaðan getur hún einnig fylgst með hvað endurnar hafa fyrir stafni. A neðri myndinni eru
endurnar á þingi I vagni undan einum grásleppubátanna, sem var á sjó, þegar myndin er tekin. (Tíma-
„Þfl VAR MIKIÐ HLEGIÐ
OG SKEMMT SER OG
KOSTAÐI EKKI NEITF
Rætt við Guðrúnu Gudjónsdóttur, sem stundar búskap við Ægissíduna
inu sem á andahópinn og þaö er
Guðrún Guðjónsdóttir, ekkja
Guðjóns Bjarnasonar i Austur-
koti. Við stöldruðum við hjá henni
stundarkorn á mánudaginn og
spuröum hana um þessa liðnu
daga, en hún segist verða 86 ára á
Jónsmessunni.
„Já, ég hef alltaf haft fugla,
lengst þó hænsni. Endur hef ég
liklega átt i 30 ár. Skárra væri það
lika, þetta var hér rétt eins og
gengur og gerist i sveitum. Siðast
varég með 20 hænur, en lét slátra
þeim öllum i haust sem leið.
Já, þaö var gaman að búa hér á
Holtinu i þá daga, hér voru góðir
dropar
grannar og allir þekktust. Það
var nefnilega ekkert siður gaman
að lifa hér áður fyrr, mikiö hlegið
og skemmt sér og kostaði ekki
neitt.
Nú, svo hafði ég lika hesta, átti
alltaf einn góöan hest. Þá var
farið i útreiðartúra hér eitthvað
uppfyrir bæinn þegar vel viðraði.
Nei, ég er ekki fædd hér á
Grimsstaöaholti. Ég er fædd i
Kumbaravogi á Stokkseyri en
flutti til Reykjavikur 1916. Þá var
ég vinnukona hjá B.H. Bjarnason
kaupmanni og konu hans Stein-
unni. Ég bjó upplundir risi i hús-
inu við Aðalstræti og ég man enn
eftir frostavetrinum 1918 og hvað
mér var kalt uppi i risinu. Ég fæ
enn hroll i mig, ef ég lit upp i
gluggana þar. En svo gifti ég mig
og flutti hingað á Holtið að
Bjarnastöðum, þar sem ég bjó
alla tiö. Maðurinn minn var Guö-
jón Bjarnason, sonur Bjarna
Grimssonar af Nesjavallaættinni,
sem Bjarnastaðirnir voru kennd-
ir við. Bærinn stæði við Tómasar-
hagann ef hann væri enn uppi-
standandi.
Já, nú er svipurinn á Grims-
staðaholtinu breyttur. Við flutt-
um úr Bjarnastaðabænum i húsið
hérna 1956. Já, ég hafði aöeins
fuglana með mér. Það hefur
gengiðfurðuvel meðþá! Endurn-
ar vilja ramba inn i garðana öðru
hverju en það er samt aldrei
kvartað yfir þeim. Þær eru lik-
lega á eftir ánamaðkinum þótt
þær hafi nóg brauð niðri við kof-
ann. Ég átti fyrir nokkru gæs sem
passaði svo ágætlega upp á
endurnar og hélt þeim saman en
nú er hún dauð, var orðin 16 eða 17
ára gömul. Ég er lika sjálf hætt
að geta sinnt þessu neitt og hef
konu hérna hjá mér sem annast
um þær fyrir mig, — já og mig
lika.
—AM
Engin
breyting á
Selfossi og
á Sauðár-
króki
■ Lokið var viö
endurtalningu at-
kvæöa á Selfossi
skömmu eftir kl. 21 i
gærkvöldi og var
niðurstaðan kosn-
inganna óbreytt. Það
var M-listi sem hlaut
engan mann kjörinn
en 168 atkvæði, sem
vonaði að endurtaln-
ing gæti leitt til þess
aö D-listi tapaði 4.
manni sinum. Talið
var i Gagnfræðaskól-
anum á Selfossi.
Skömmu fyrir kl. 22
i gærkvöldi lauk svo
endurtalningu at-
kvæöa á Sauðárkróki
og þar varð engin
breyting. Endur-
talningin fór fram að
kröfu fulltrúa A-lista,
sem hlaut engan full-
trúa.
Sem kunnugt er var
B-listi sigurvegari
kosninganna á
Sauðárkróki og ræddi
Timinn við 4. mann
flokksins i gærkvöldi,
Pétur Pétursson: „Við
erum auövitað i sjö-
unda himni,” sagði
Pétur. „Okkur finnst
þetta góöur árangur
miðað við að óháða
framboðið var sett
fram til höfuös
okkur.” Framsóknar-
menn bættu við sig at-
kvæðum, en þess ber
að geta aö fjölgun
hefur orðiö á Krókn-
um siöan um siðustu
kosningar og þannig
hækkaði hlutfall
þeirra i greiddum at-
kvæðum ekki. „Við
áttum aö visu ekki von
á að fá svona marga
fulltrúa á þennan at-
kvæðafjölda, en
fögnum þvi að svo
varð.”
AM/SV
„Kætist
ungi...”
■ G.Þ.H. sendi okkur
þessa I tilefni kosningaúr-
slitanna:
A tækni lipurs ’ tungu-
brodds
„töffinn” aftur sneri.
Kætist ungi Geirs og
Odds,
auðvaldssárið geri.
Straumrof?
B t DV I gær gat að iita
þessa fyrirsögn: „Skoð-
anakönnun DV sýndi
straumana”. Var ekki
annað að skilja á fréttinni
enaöþeirá DV væru bara
nokkuð ánægðir með það
hversu nærri kosningaúr-
slitin fóru niðurstöðunum
af skoðanakönnun blaðs-
ins, sem birtíst þremur
dögum fyrir kjördag. Af
einhverjum ástæðum láö-
ist þó DV að birta tölur
um mismuninn á niður-
stöðum könnunarinnar og
kosningaúrsiitunum. Við
bætum þvl úr þvf hér:
Alþýöuflokkurinn fékk
29% meira fylgi en skoð-
anakönnun DV sagði til
um. Framsóknarflokkur-
inn fékk 111% meira fylgi
en skoðanakönnun DV
sagði til um. Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk 17%
minna fylgi en skoöana-
könnun DV sagði til um.
Alþýðubandalagiö fékk
36% meira fylgi en skoð-
anakönnun DV sagöi til
um. Kvennalistinn fékk
9% minna fylgi en skoð-
anakönnun DV sagði til
um.
Það var þetta meö aö
sýna straumana...
Það má kannski bæta
þvf við f þessu sambandi
að við hér á Tfmanum
gerðum okkur það til
dundurs siðasta föstudag
að veðja um kosningaúr- .
slitin. Friðrik Indriöason,
blaðamaður, hirti pottinn
með glæsibrag, en hans
spá var svohljóðandi (úr-
slit kosninganna innan
sviga): Alþýöuflokkurinn
10.4% (8%), Framsókn-
arflokkur 9,5% (9.5%),
Sjálfstæðisflokkur 51.9%
(52.5%), Alþýöubandalag
17.6% (19%), Kvenna-
framboð 10.6% (10.9%).
Bara nokkuö vel af sér
vikið — ekki satt!
Krummi ...
er á þvl að borgarbúar
hafi gleymt þvl hvert
hlutskipti borgar Davlös
hefur verið gegnum aid-
irnar.