Fréttablaðið - 14.12.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
14. desember 2008 — 342. tölublað — 8. árgangur
dagar til jóla
Opið til 22
10
SJÓNVARP Leikstjórinn Óskar
Jónasson er með nýja sjónvarps-
mynd í burðarliðnum sem verður
byggð á skáldsögu
Braga Ólafssonar,
Gæludýrin. Ólafur
Darri Ólafsson
mun fara með
hlutverk aðalpers-
ónunnar Emils en
óvíst er hvenær
tökur hefjast.
„Þetta er
virkilega vel
skrifuð og
skemmtileg saga
sem á fullt erindi í sjónvarp,“ segir
Óskar. Hann hefur átt í viðræðum
við Ríkissjónvarpið um að sýna
myndina og er handritið komið
langt á veg. „Við höfum átt samtal
við þá um að koma þessu á koppinn
en það eru blikur á lofti þarna upp
frá, maður veit ekki hvað verður,“
segir hann. - fb / sjá síðu 38
Óskar Jónasson leikstjóri:
Sjónvarpsmynd
um Gæludýrin
ÓSKAR
JÓNASSON
BLESS, BLESS, BRUÐL!
Fréttablaðið tekur saman sparnaðar-
ráð hagsýnu húsmóðurinnar
20
-3 -4
-3
-5-3
BJART MEÐ KÖFLUM Í dag verður
víðast hæg suðlæg átt en heldur
stífari vestan til eftir hádegi. Víða
bjart með köflum en þykknar upp
með éljum sunnanlands og vestan
síðdegis. Áfram fremur kalt í veðri.
VEÐUR 4
FY
LG
IR
Í
D
A
G
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
UM MENNINGU OG LISTIR
]menning
desember 2008
STJÓRNMÁL „Miðað við hvernig
ástandið er getur verið skynsam-
legt að gera meira núna,“ segir
Geir H. Haarde forsætisráðherra
um niðurskurð í endurskoðuðu
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009.
Hann útilokar ekki hrókeringar í
ráðherrastólum um áramótin og
boðar að kjarabóta á almennum
vinnumarkaði og hjá ríkinu sé
ekki að vænta á næstunni.
Ríkisstjórnin hefur ekki kom-
ist að niðurstöðu um það hvort
45 milljarða niðurskurður á fjár-
lögum ársins 2009 sé endanleg
niðurstaða. Geir segir það geta
verið skynsamlegt að ganga lengra
og tekur þar undir orð Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð-
herra frá því á fimmtudag þegar
breytingartillögur við frumvarpið
voru kynntar.
Í viðtali við Fréttablaðið ræðir
Geir um mögulega uppstokkun í
ráðherraliði ríkisstjórnarinnar og
um Evrópumál. Hann segist gera
sér vonir um málamiðlun and-
stæðra sjónarmiða í afstöðu til Evr-
ópusambandsins á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins í janúar en óttast
ekki klofning í framhaldinu. „Ef
menn [...] eru ekki sáttir við niður-
stöðu Sjálfstæðisflokksins, ef hún
er þeim á móti skapi, þá eiga þeir
ekki aðra kosti en að ganga til liðs
við Vinstri græn og það eru nú ekki
margir sjálfstæðismenn held ég
sem færu rakleiðis yfir í Vinstri
græn.“
Ingibjörg Sólrún sagði í þættin-
um Vikulokin á Rás 1 í gærmorg-
un að stjórnarsamstarfinu væri
sjálfhætt ef sjálfstæðismenn lok-
uðu á Evrópusambandsaðild á
komandi landsfundi. Geir vildi
ekki tjá sig um þessi ummæli Ingi-
bjargar þegar eftir því var leitað í
gær. - ss, shá / sjá síðu 16
Geir útilokar ekki
frekari niðurskurð
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að í ljósi efnahagsástandsins geti verið
skynsamlegt að ganga lengra í niðurskurði í ríkisfjármálum en tillögur gera ráð
fyrir. Hann útilokar ekki uppstokkun í ríkisstjórninni strax um áramótin.
FÓLK 38
UPPLIFIR DRAUMINN
Egill Störe Einarsson
er á leið á pókermót í
Portúgal.
SKÓGRÆKT Um 1.600 manns lögðu
leið sína í Jólaskóginn í Heiðmörk
í gær til að velja sér jólatré.
„Þetta er það mesta sem hefur
verið á einum degi síðan við
byrjuðum með þetta fyrir fjórum
eða fimm árum síðan,“ segir
Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykja-
víkur. „Það var gríðarleg
stemning og svo gott og fallegt
veður. Það var svo gaman að sjá
fjölskyldurnar koma. Þarna voru
oft stórfjölskyldur, þjár kynslóðir
gjarnan saman og menn áttu
þarna alveg gríðarlega notalega
stund,“ segir hann.
Skógurinn var sérlega jólaleg-
ur í gær enda snævi þakinn og
vinalegur. Jólasveinar voru á
stjái, varðeldur logaði og boðið
var upp á heitt kakó og piparkök-
ur. Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri kom ásamt fjöl-
skyldu sinni og valdi sér fyrsta
jólatréð. -fb
Jólastemning í Heiðmörk:
1.600 manns
völdu jólatré
MEÐ RISAJÓLATRÉ Þessir tveir kumpánar voru afar lukkulegir með þetta risastóra jólatré sem þeir fundu í Heiðmörk. Hvort tréð
hafi síðan komist fyrir í stofunni er aftur á móti annað mál. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAMGÖNGUR Herjólfur varð vélar-
vana í um hálfa klukkustund þegar
hann var á siglingu frá Þorláks-
höfn til Vestmannaeyja í gær. Þar
að auki var skipið fjórum og hálf-
um klukkutíma lengur á ferð sinni
fram og til baka frá Eyjum vegna
vélarbilunar.
„Það var aldrei nein hætta, það
var gott í sjóinn og við vorum svo
langt frá landi og í raun rak okkur
lengra frá því,“ segir Hafsteinn
Hafsteinsson skipstjóri. Hann
segir að þegar skipið hafi lagt af
stað frá Eyjum hafi komið í ljós
bilun í varavél skipsins sem síðan
reyndist meiri en talið var í
fyrstu. Þegar komið var til Þor-
lákshafnar var kallað á viðgerð-
armenn frá Reykjavík sem gátu
ekki komist fyrr en um 15 mínút-
ur í þrjú eða 45 mínútum eftir að
skipið átti að vera lagt af stað
aftur til Eyja. Ekki tókst að fá
varavél í gang en á miðri leið bil-
aði síðan aðalvélin eins og fyrr
segir. Auk þess tafðist ferð skips-
ins þar sem það er hægfara þegar
það gengur á einni vél.
Hafsteinn segir að farþegar
hafi tekið því með mikilli rósemd
að koma í land fjórum og hálfum
tíma á eftir áætlun. „Auðvitað er
þetta alltaf leiðinlegt en allir far-
þegar sýndu þessu mikinn skiln-
ing,“ segir hann. - jse
Farþegar um borð í Herjólfi tóku vélarbilun og seinkun með jafnaðargeði:
Hægfara Herjólfur gekk á einni vél
VEÐRIÐ Í DAG