Fréttablaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 56
32 14. desember 2008 SUNNUDAGUR
Mikilvægt skref í átt
að þínum frama
Marketing Management
Möguleg störf: Markaðsstjórnun, auglýsingaráðgjöf, viðskipta-
stjórnun, innkaupastjórnun og m. Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska eða danska.
Computer Science
Möguleg störf: Kershönnun, forritun, hugbúnaðarráðgjöf,
verkefnastjórnun, kersstjórnun
Námsstaður: Esbjerg eða Sønderborg – Tungumál: Enska
Multimedia Design & Communication
Möguleg störf: Vefsíðuhönnun, vefþróun, margmiðlunarráðgjöf,
skipulagning auglýsingamála, ráðstefnustjórnun
Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Enska.
Fashion Design
Möguleg störf: Skipulagning og eftirfylgni verkferla og verkefna í
fata og tauefnaiðnaði, með hönnun, framleiðslu og kaup & sölu.
Námsstaður: Sønderborg – Tungumál: Enska.
Technical Manager Offshore
Vertu með til að byggja upp íslenskan olíuiðnað.
3ja ára bachelornám sem gerir þig hæfan til að vinna með
Stjórnun og hönnun, ásamt daglegri starfsemi og viðhaldi
tækni og tækjamála.
Námsstaður: Esbjerg – Tungumál: Danska
STUDY IN DENMARK
ESBJERG
SØNDERBORG
ESBJERG
Sp. Kirkevej 103
DK-6700 Esbjerg
Tel + 45 7613 3200
SØNDERBORG
Grundtvigs Alle 88
DK-6400 Sønderborg
Tel + 45 7412 4141
NYTT!
Esbjerg og Sønderborg
hafa sameinast, fleiri
möguleikar, nýtt logo og
netfang - www.easv.dk
Nánari uppl. www.easv.dk
BUSINESS ACADEMY SOUTHWEST
AP Degree & Bachelor Programme
- we offer you the following programmes:
challenge & innovation
Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn er okkar
samstarfsaðili á Íslandi. Sjá nánar á www.ntv.is:
International
education
Enska úrvalsdeildin:
ASTON VILLA - BOLTON WANDERERS 4-2
0-1 Johan Elmander (16.), 1-1 Gabriel Agbonlahor
(24.), 2-1 Martin Laursen (39.), 3-1 Gabriel
Agbonlahor (67.), 4-1 Ashley Young (77.), 4-2
Kevin Davies (85.).
LIVERPOOL - HULL CITY 2-2
0-1 Paul McShane (11.), 0-2 Jamie Carragher
sjálfsm. (22.), 1-2 Steven Gerrard (23.), 2-2
Steven Gerrard (31.).
MIDDLESBROUGH - ARSENAL 1-1
0-1 Emmanuel Adebayor (16.), 1-1 Jeremie
Aliadiere (28.).
SUNDERLAND - WBA 4-0
1-0 Kenwyne Jones (22.), 2-0 Kenwyne Jones
(22.), 3-0 Andy Reid (38.), 4-0 Djibril Cisse (47.).
WIGAN ATHLETIC - BLACKBURN ROVERS 3-0
1-0 Emile Heskey (9.), 2-0 Antonio Valencia (11.),
3-0 Lee Cattermole (76.)
STOKE - FULHAM 0-0
ASTON VILLA - BOLTON 4-2
0-1 Johan Elmander (17.), 1-1 Gabriel Agbonlahor
(25.), 2-1 Kevin Davies, sjm (40.), 3-1 Gabriel
Agbonlahor (67.), 4-1 Ashley Young (78.), 4-2
Kevin Davies (86.).
TOTTENHAM - MAN. UTD 0-0
STAÐAN:
Liverpool 17 11 5 1 26-11 38
Chelsea 16 11 3 2 35-6 36
Man. United 16 9 5 2 27-10 32
Aston Villa 17 9 4 4 29-20 31
Arsenal 17 9 3 5 29-20 30
Hull City 17 7 6 4 26-27 27
Everton 17 7 4 6 23-25 25
Portsmouth 16 6 5 5 19-23 23
Wigan Athletic 17 6 4 7 21-20 22
Fulham 16 5 6 5 13-12 21
Bolton 17 6 2 9 20-23 20
Middlesbrough 17 5 5 7 17-24 20
Stoke City 17 5 5 7 17-27 20
Tottenham 17 5 4 8 19-21 19
Manchester City 17 5 3 9 30-25 18
West Ham 16 5 3 8 17-24 18
Sunderland 17 5 3 9 17-25 18
Newcastle 16 3 7 6 19-24 16
Blackburn 17 3 4 10 17-34 13
WBA 17 3 3 11 12-32 12
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns-
son skoraði tvö mörk fyrir
Burnley sem vann Southampton,
3-2, í ensku 1. deildinni. Mikilvæg
mörk fyrir Jóhannes sem hefur
þurft að verma bekkinn nokkuð í
síðustu leikjum.
Heiðar Helguson var fljótur að
opna markareikning sinn fyrir
QPR og skoraði eina mark liðsins
í 1-1 jafntefli gegn Plymouth. - hbg
Enska 1. deildin:
Jóhannes og
Heiðar skoruðu
FÓTBOLTI Didier Drogba segist
ekki vera á förum frá Chelsea í
janúar þó svo hann segist ætla að
setjast niður með forráðamönn-
um Chelsea næsta sumar til þess
að ræða framhaldið.
„Ég er búinn að tala við Scolari
og hann veit að ég vil spila.
Annars er ég bara að hugsa um
Chelsea í augnablikinu en í lok
tímabils mun ég ræða framtíðina.
Ég hef aldrei íhugað að yfirgefa
félagið í janúar. Minn draumur er
að vinna og berjast um titla með
Chelsea í vetur,“ sagði Drogba en
fjölmörg blöð hafa sagt hann vera
á förum í janúar en því hefur
Chelsea þráfaldlega neitað.
Nú hefur Drogba gert slíkt hið
sama og því má búast við að
sögusögnunum fækki á komandi
vikum. - hbg
Didier Drogba:
Ekki á förum í
janúar
DIDIDER DROGBA Klárar tímabilið með
Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Liverpool, Man. Utd og
Arsenal lentu öll í vandræðum í
gær og urðu að lokum öll að sætta
sig við aðeins eitt stig. Chelsea
getur þar með skotist á toppinn á
nýjan leik í dag er liðið tekur á
móti gömlu Chelsea-goðsögninni
Gianfranco Zola og lærisveinum
hans í West Ham.
Liverpool gengur ekki vel á
heimavelli sínum Anfield þessa
dagana en liðið gerði þriðja jafn-
teflið í röð þar í gær gegn Hull
City. Liverpool byrjaði leikinn
skelfilega og fékk tvö mörk á sig
snemma. Seinna markið var ævin-
týralegt sjálfsmark hjá Jamie
Carragher. Þá tók Steven nokkur
Gerrard til sinna ráða, skoraði tví-
vegis og sá til þess að Liverpool
fékk þó stig úr leiknum.
Rafael Benítez, stjóri Liverpool,
játaði að það væri sárt að sjá á
eftir öllum þessum stigum á
heimavelli. „Við byrjuðum vel en
síðan fórum við að gera of mörg
mistök. Eftir seinna markið voru
allir orðnir frekar stressaðir.
Steven Gerrard er afar ógnandi í
þessu hlutverki fyrir aftan fram-
herjann og við verðum að þakka
honum fyrir þennan leik. Ég verð
samt að segja að ég er mjög
ánægður með hvernig leikmenn-
irnir brugðust við erfiðri stöðu.
Strákarnir sýndu mikinn karakter.
Við verðum samt að vinna þessa
leiki. Við vitum það og ég er mjög
vonsvikinn rétt eins og leikmenn-
irnir. Heimaleikirnir eru að verða
erfiðir þar sem við höfum ekki
eins mikið pláss til þess að spila
þar sem andstæðingarnir verjast
djúpt á eigin vallarhelmingi,“
sagði Benítez hundsvekktur.
Phil Brown, stjóri Hull, sagði að
bæði mörk Liverpool hefðu aldrei
átt að fá að standa. „Það fellur ekk-
ert með manni fyrir framan Kop-
stúkuna. Það var samt klárlega
brotið á Michael Turner í báðum
mörkunum. Við þurftum að hafa
mikið fyrir þessu stigi og það er
súrt að fá á sig tvö mörk með þess-
um hætti. Annars fengum við stig
á velli þar sem enginn átti von á að
við næðum í stig,“ sagði Brown.
Endurkoma Dimitars Berbatov
á White Hart Lane var engin
frægðarför. Áhorfendur bauluðu á
hann, sjálfur gat hann ekki neitt
og United tókst þess utan ekki að
skora og fór því heim með aðeins
eitt stig. United var talsvert sterk-
ari aðilinn í leiknum en Heurelho
Gomes, markvörður Tottenham,
var í fantaformi og bjargaði á köfl-
um glæsilega. Hann hefur átt erf-
iða tíma í markinu og fagnaði því
leiknum.
„Strákarnir hafa verið duglegir
að hjálpa mér og styðja mig og
það hefur verið nauðsynlegt.
Þetta var erfiður leikur fyrir
mig en mér sýnist ég vera
kominn í frábært form,“ sagði
Gomes. Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man.Utd, var
pirraður að hafa ekki
klárað dæmið.
„Þetta er mjög pirrandi.
Mér fannst við eiga þenn-
an leik en vantaði smá
heppni,“ sagði
Ferguson og hrós-
aði svo Gomes.
Fyrsti
leikur dagsins var viðureign Midd-
lesbrough og Arsenal þar sem
Boro nældi í sætt jafntefli með
marki frá Jeremie Aliadiere, fyrr-
um leikmanni Arsenal. Honum
þótti augljóslega ekkert mjög leið-
inlegt að skora gegn sínu gamla
liði og fagnaði markinu innilega.
Þó svo að staða Arsenal hafi
veikst talsvert við jafnteflið neit-
ar knattspyrnustjóri félagsins,
Arsene Wenger, að gefast upp.
„Við trúum því að meistarar séu
þeir sem halda áfram á meðan
aðrir stoppa. Þannig getum við
sýnt fram á hvað við getum. Það
trúir enginn á okkur lengur en við
getum sýnt fólki að við erum ekki
hættir að trúa með því að halda
ótrauðir áfram,“ sagði Wenger en
Arsenal fékk vissulega færi til
þess að klára leikinn en nýtti þau
ekki.
Paul Ince segist ekki ætla að
hætta sem stjóri Blackburn eftir
háðulegt tap gegn Wigan í gær.
„Ég mun berjast áfram sem og
leikmennirnir sem verða að fá
trúna á nýjan leik,“ sagði Ince en
Blackburn hefur ekki unnið í síð-
ustu sex leikjum og situr í næst-
neðsta sætinu.
henry@frettabladid.is
Heimavallarvandræði á Liverpool
Liverpool varð að sjá á bak mikilvægum stigum á heimavelli þriðja leikinn í röð þegar Hull City kom í
heimsókn á Anfield. Arsenal tapaði einnig mikilvægum stigum og sjóðheitt er undir Paul Ince eftir enn
eitt tapið hjá Blackburn. Man. Utd endaði síðan jafnteflisdag toppliðanna í markalausum leik gegn Spurs.
BJARGVÆTTURINN
Steven Gerrard kom
Liverpool enn og
aftur til bjargar í gær
með tveim mörkum.
NORDIC PHOTOS/GETTY
IMAGES
SVEKKTUR Dimitar Berbatov náði sér ekki á strik á sínum gamla heimavelli þar sem
hann fékk óblíðar móttökur frá áhorfendum. NORDIC PHOTOS/AFP