Fréttablaðið - 14.12.2008, Blaðsíða 26
MENNING 6
Þ
að eru fjögur ár síðan
Friðrik Þór Friðriksson
gerði síðast mynd í fullri
lengd með leikurum. Í
þessum mánuði hefur
hann töku á nýrri kvikmynd í fullri
lengd, Mömmu Gógó, sem hann
framleiðir sjálfur. Þá er hann að
sjá fyrir endann á heimildarmynd í
fullri lengd, Sólkskinsdrengnum,
sem verður frumsýnd í janúar. Þar
vitjar hann þess forms kvikmynda
sem hann tókst á við í byrjun með
verkum á borð við Eldsmiðinn,
Rokk í Reykjavík og Kúreka norð-
ursins. Eftir langt hlé sem hefur
verið markað gjaldþroti og per-
sónulegum vandræðum er hann
því að komast á skrið á ný og er
hvergi banginn: „Já, það eru fjögur
ár síðan. það var líka fjögurra ára
hlé frá Skyttunum til Barna náttúr-
unnar.“
Friðrik segir ástæðurnar fyrir
þessum hléum þær sömu: „Það var
bara peningaskortur. Tilurð kvik-
mynda á Íslandi snýst bara um það
að til séu peningar til að hefjast
handa. Menn fara ekki alveg jafn
bratt út í sjálfsmorðið eins og þeir
gerðu. Ég sé ekki ástæðu til að fara
út í kvikmynd í dag nema ég sé með
hana fullfjármagnaða. Áður gerði
maður það og brenndi sig svolítið á
því, sem er kannski ástæðan fyrir
þessum hléum. Síðasta hlé var
þyngra. Niceland var gerð um svip-
að leyti og Samsteypan verður
gjaldþrota. Ég framleiddi ekki
Niceland. Það eru alger forréttindi
að framleiða sjálfur. Munurinn á
því að framleiða sjálfur er að þú
þarft aldrei að spyrja hvort það séu
til peningar, þú gerir bara myndina
eins og þú hefur séð hana fyrir þér.
Hjá öðrum er verið að horfa í aur-
inn og jafnvel skera niður atriði
sem þú hafðir séð fyrir þér. Það var
ekkert mikið um það í Niceland en
samt sem áður svona smáatriði
sem var sleppt.“
Ákveðið stress
Friðrik viðurkennir að þessi tími
hafi tekið á þegar hann er spurður
hvort kvikmyndabransinn kalli á
einstaklinga sem eru samvisku-
lausir: „Því er til að svara af því ég
vann einu sinni í kirkjugarði við að
reisa fallna legsteina, svo við vitn-
um í fallega þýðingu Helga Hálf-
danarsonar á grafarasenunni í
Hamlet þegar spurt er af hverju
þeir hlæja grafararnir: „það er af
því þeir hafa sigg á sálinni.“ Maður
fær svona sigg á sálina við að
standa í þessu rugli. Þegar það eru
svona uppboðshaldarar og lögfræð-
ingaskari hérna á tröppunum á
kvöldin með útburðarbréf og
skeyti, þá er svona ákveðið stress.
Það fer ekkert mikið af skapandi
hugsun í gegnum hausinn á manni í
svoleiðis ástandi.
Þetta hefur allt frá Rokk í Reykja-
vík verið ákveðinn lífróður þótt það
hafi gengið vel í kringum Börn nátt-
úrunnar og Bíódaga sem var vel
fjármögnuð mynd. Þetta var orðið
erfitt strax í kringum Djöflaeyju í
bönkunum. Þetta voru dýrar mynd-
ir. Í Djöflaeyjunni þurfti maður að
byrja ári fyrr að byggja leikmynd
en styrkinn fær maður ekki fyrr en
á fyrsta tökudegi þannig að fjár-
magnskostnaður hefur verið undar-
lega dýr í því umhverfi sem við
höfum lifað í undanfarin ár. Og það
er ekki að batna. Hann er að nálgast
30 prósent.“
Helvítis þökin
Hefur Friðrik eitthvað að segja við
þann fjölda sem nú horfir uppá að
missa lífssparnað sinni í húseign-
um í kjaft dýrra lána: „Ég get ekki
sagt þetta reddast einhvern veg-
inn. Maður stendur aftur í þessu
enn eina ferðina: til að ná myndun-
um mínum aftur og húsinu þurfti
ég að taka lán svo þetta er komið
upp aftur enn eina ferðina. Maður
segir bara eins og Magga Vilhjálms
segir í Fálkum: It´s only money,
honey. Það er svo margt annað
merkilegra í lífinu en helvítis
þökin. Það er bara að einblína meira
á það en stressa sig á þakinu.“
Fjármagnið í Mömmu Gógó
kemur frá Kvikmyndamiðstöð,
Norræna sjónvarps- og kvikmynda-
sjóðnum, Eurimage, norskum með-
framleiðanda og þýskum og íslensk-
um fjárfestum. Kostnaður við
verkið er um 200 milljónir. Við
spyrjum af hverju myndin sé þetta
dýr, hún gerist í samtíma okkar,
persónur eru fáar: „Það er bara svo
hrikalega dýrt að komast af stað.
Fjármagnskostnaðurinn maður.“
Besti tíminn
Friðrik klárar tökur á Mömmu
Gógó fyrir sumarbyrjun og ætlar
að frumsýna í haust. Hann segir
haustið besta tímann til frumsýn-
inga hér á landi: „Ég hef vitað það
síðan í kvikmyndaklúbbnum að
kvikmyndaáhuginn er mestur
þegar saman fer rökkrið er kvölda
tekur og rökkrið í kvikmyndasaln-
um. Þegar dimmir svona hratt eins
og í september og maður verður
var við myrkrið eins og þegar fer
að dimma í bíósal og lífið fer að
vakna á tjaldinu.“ Friðrik segir
Mömmu Gógó ekki vera alveg
sjálfsævisögulegt verk, það tengist
Bíódögum og Börnum náttúrunnar
mikið: „Það sem er sjálfsævisögu-
legt er að móðir mín fékk alzheim-
er og er með alzheimer, hefur verið
greindur alzheimer-sjúklingur í tíu
ár, en ég nota mikið af sögum af
henni, en eins og ég gerði í Bíódög-
um þá þjappa ég saman raunveru-
leikanum, þær sögur sem ég nota í
handritinu gerðust ekki eins þétt í
raunverulegu lífi.
Ég nota þessi samskipti, sumt
sem bróðir minn hefur upplifað,
annað skálda ég alveg, annað eru
alzheimer-sögur sem mér hafa
verið sagðar. Svo gerist myndin í
nútíma, en samt er leikstjórinn í
myndinni, sonur konunnar, að
frumsýna Börn Náttúrunnar og
koma mömmu sinni á elliheimili á
sama tíma. Ég nota svona tilfinn-
ingar sem spruttu upp úr gjaldþrot-
inu, vörslusviftingar á bílum og
svona. Við erum samt að sjá húm-
orísku hliðina á svona málum þó
þetta séu alveg grafalvarleg mál:
gjaldþrot og alzheimer. Vonandi
skemmtir fólk sér samt á mynd-
inni. Alveg eins og í Börnum nátt-
úrunnar, það var mikið hlegið á
henni út um allan heim.
Sólskinsdrengurinn
Þegar Friðrik frumsýnir heimild-
armyndina um sólskinsdrenginn
segist hann vera búinn að vera upp
á viku tvö ár í einhverfunni: „Það
er ansi fróðlegur og skemmtilegur
tími. Mikill ævintýrabragur yfir
öllu kringum einhverfuna, eins og
einhverfan er. Hún er mjög dular-
AÐ STRESSA SIG á þakinu
Friðrik í snjódrífunni milli
funda í síðustu viku.
M
Y
N
D
F
R
É
T
TA
B
L
A
Ð
IÐ
/
A
R
N
Þ
Ó
R
Mamma Gógó fer í tökur
síðar í mánuðinum. Í
janúar verður Sólskins-
drengurinn frumsýndur.
Leikstjórinn og fram-
leiðandinn Friðrik Þór
Friðriksson er kominn
á ról snemma dags í
desembersnjónum og er
brattur.
KVIKMYNDIR PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
Framhald á bls. 8
Friðrik við tökur á sólskinsdrengnum
ásamt gömlum samverkamanni sínum
Jóni Karli Helgasyni.