Fréttablaðið - 14.12.2008, Page 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Í dag er sunnudagurinn 14.
desember, 349. dagur ársins.
11.15 13.22 15.30
11.31 13.07 14.44
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Ef bókað er fyrir 1. febrúar 2009:
Flugsæti, með sköttum og öðrum greiðslum, sem gildir
fram og til baka til Köben, London eða Berlínar.
Bókunartímabil: 26. desember 2008 –31. janúar 2009.
Ferðatímabil: 15. janúar–15. maí 2009.
Takmarkað sætaframboð.
Ef bókað er eftir 1. febrúar 2009:
Jólagjafabréfið verður inneign að upphæð 25.900 kr.
Gildir til allra áfangastaða og gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
Jólagjöf handa þeim
sem elska að ferðast!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
með ánægju
Áttu vini og ættingja sem hafa gaman af ferðalögum? Jólagjafabréf
Iceland Express er skemmtileg leið til að gleðja þína nánustu um jólin.
Bókaðu vel heppnaða jólagjöf á www.icelandexpress.is
Jólagjafabréf Iceland Express hittir beint í mark
25.900 kr.
Verð:
Sölutímabili lýkur kl. 18.00, 24. desember 2008.
Ferðatímabilið er
frá 15. janúar
til 15. maí
2009
Sjálfur Guð er efstur á baugi á heimilinu þessa dagana, þar
sem tvær ungar systur eru að
kynnast sögunni af fæðingu Jesú-
barnsins. Systurnar finna heil
ósköp til með litla barninu sem
þurfti að fæðast í fjárhúsi af því
að engan gististað var að finna. En
svona var þetta í gamla daga segja
þær, þegar fólk sem er eldra en afi
var að fæðast. Eftir því sem árin
líða munu systurnar kannski
hugsa eins og mamma þeirra sem
hefur meiri samúð með Maríu,
enda virðist María hafa fætt við
þær aðstæður að engin var mænu-
deyfingin.
SAGAN af fæðingu Jesú er ekki
bara merkileg, hún er líka
skemmtileg. Ég held að öll börn
geti haft ánægju af því að heyra
söguna. Umræðan er stundum
þannig að trú eigi helst að fela
fyrir leikskóla– og skólabörnum,
að skólabörn eigi ekki að heim-
sækja kirkjuna og að prestar eigi
ekki erindi í leikskólann. Það eigi
ekki að innprenta börnum trú.
Mér finnst grundvallaratriði að
fjölskyldur hafi val, en umræða
um trú getur varla verið á þeim
forsendum að banna hana eða fela.
SYSTRUNUM finnst merkilegt
að Guð hafi skapað Jesúbarnið.
Eldri systirin hefur nú komist að
þeirri niðurstöðu að pabbi hafi
gert hægri hlið líkama hennar,
mamma vinstri en guð miðjuna.
Yngri systirin er á því að guð hafi
skapað naflann hennar. Og skýr-
ing stúlkunnar á ljómandi lukkuð-
um naflanum er sú að þegar guð
bjó til naflann vandaði hann sig
svo mikið að hann litaði ekkert út
fyrir. Í huga þriggja ára barns er
hámark vandvirkninnar nefnilega
að lita ekki út fyrir línurnar í lita-
bókinni. Þessi merkilega fæðing-
arsaga hefur jafnframt framkall-
að ný álitaefni, eins og hvar hurðin
á maga Maríu hafi verið, hvernig
Jesúbarnið komst út.
ALLA daga eru foreldrar að boða
gildi og skoðanir, stundum meðvit-
að en oft ómeðvitað. Á heimilinu
eru heimsóknir í kirkju hluti af
jólaundirbúningi barnanna sem og
sagan af fæðingu Jesúbarnsins.
Systurnar geta svo myndað sér
sína eigin skoðun á sögunni þegar
þær eldast. Og mér dettur ekki
annað í hug en að taka undir með
þeim að guð hafi vandað sig svo
mikið þegar hann skapaði naflann
að hann litaði ekkert út fyrir.
Að lokum þakka ég fyrir mig og
læt gott heita af bakþönkum.
Hver bjó
naflann til?