Fréttablaðið - 21.12.2008, Síða 37
matur 9
LostætiTVÆR EFTIRRÉTTAKÖKUR
Þessi baka er mjög einföld en það tekur einungis um tíu mín-útur að laga hana og fimmtán
mínútur að baka hana,“ segir Áslaug
Þorgeirsdóttir, heimilisfræðikenn-
ari.
Bakan hentar því vel þegar lítill
tími er til stefnu. „Síðan má laga
hana fyrirfram og bera fram ýmist
heita, volga eða kalda,“ segir Áslaug.
„Svo má í raun setja hvaða ávexti
sem er í hana. Bakan er til dæmis
góð með eplum eða rabarbara.“
Bakan minnir að mörgu leyti á
hjónabandssælu en er þó uppfinn-
ing Áslaugar. „Ég bæti við möndlum
og kókos og skipti stundum út blá-
berjunum fyrir rabarbara. Í haust
tíndi ég mikið af bláberjum sem ég
á í frystinum og rabarbarann tek ég
úr garðinum,“ segir hún og nefnir
að kakan sé bæði góð sem eftirrétt-
ur og á kaffiborðið. „Sumar kökur
eru að mínu mati alls ekki kökur á
kaffihlaðborð heldur bara eftirrétt-
ir, en þessi gengur í báðum tilfell-
um,“ segir hún og brosir. -hs
Gómsæt
bláberjabaka
Heitar ávaxtabökur henta einkar vel sem eftirréttur og
lumar heimilisfræðikennarinn Áslaug Þorgeirsdóttir á
einni góðri sem minnir um margt á hjónabandssælu.
Áslaug útbýr oft bláberjaböku fyrir ýmis
boð og tilefni og býst fastlega við því að
hún verði á boðstólum um jólin.
1½ dl hveiti
1 dl sykur
3 dl gróft haframjöl
½ tsk. matarsódi
150 g bráðið smjör
250–300 g bláber (fersk eða
frosin)
½ dl kókosmjöl
½–1 dl möndluflögur
Blandið hveiti, sykri, haframjöli
og matarsóda saman í skál. Setj-
ið bráðið smjör út í og hrær-
ið vel saman með sleif. Deig á
að vera sundurlaust. Setjið 2/3
af deigi í smurt eld fast form
(stærð um það bil 20 sinnum 30
sentimetrar), dreifið úr því en
þjappið ekki. Setjið bláber yfir.
Setjið kókos mjöl og möndlu-
flögur saman við afgang af deigi
og dreifið yfir bláberin. Bakið í
miðjum ofni við 180°C í 15 til 20
mínútur. Berið fram með þeytt-
um rjóma. Ekki þarf að láta fros-
in ber þiðna.
BLÁBERJABAKA ÁSLAUGAR
Bláberjabakan
er einföld en þó
afar bragðgóð,
sérstaklega
með þeyttum
rjóma eða ís.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R