Tíminn - 07.09.1982, Page 10
ÞREDJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982.
10
fréttafrásögn
■ Starfsréttindi bænda og annarra
stétta í landbúnaði hafa verið mikið til
umræðu á bændafundum undanfarin ár
og hefur verið um það rætt að gera þyrfti
ákveðnar kröfur um starfsreynslu og
menntun til þeirra sem' hel]a búskap. A
aðalfundi Stéttarsambands bænda í
Borgamesi var lögð fram tillaga starfs-
réttindanefndar um þessi mál og var hún
samþykkt.
Tillagan hljóðar svo:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda
1982 telur nauðsynlegt að komið verði
á löggjöf um atvinnuréttindi í land-
búnaði og lcggur til að eftirtalin
meginatriði verði lögð þar til grund-
vallar.
A. Starfssréttindi og réttur til atvinnu-
rekstrar (sjá lið B) veita m.a. aðgang
að eftirfarandi:
1. Fyrir bændur
1.1. Aðgang að lánasjóðum landbún-
aðarins
1.2 Aðgang að opinberum framlögum til
atvinnuvegarins.
1.3 Rétt til aðildar að félagssamtökum
■ Við háborðið á aðalfundi Stéttarsambandsins. Gunnar Guðbjartsson, Böðvar Pálsson, BúrfeUi, Þórarinn Þorvaldsson, Þóroddsstöðum og Gísli Andrésson,
Hálsi. Ingi Tryggason, formaður Stéttarsambandsins í ræðustól.
STARFSRÉTTINDI
í LANDBÚNAÐI
tillaga samþykkt á aðalfundi Stéttarsambands
bænda
landbúnaðarins og þeim réttindum og
fyrirgreiðslu sem þessi félög veita
enda uppfylla viðkomandi önnur
þau skilyrði sem sett eru um aðild.
1.4 Aðgang að ábúð á ríkisjörðum svo
og öðrum jörðum og jarðarpörtum,
sem ætlaðar eru til búvöruframleiðslu.
2. Fyrir launþega
2.1 Rétt til að starfa sem launþegi í
landbúnaði og njóti réttinda sem
slíkir.
2.2. Aðgang að störfum við afleysinga-
þjónustu landbúnaðarins.
2.3 Forgang að vinnu við landbúnað á
ríkisbúum og búum sem rekin eru af
búnaðarsamtökum.
B. Starfandi bændur þurfa ekki að sækja
um starfsréttindi í þcim grcinum sem
þeir hafa stundað eftir að þessar
reglur taka gildi. Þeir sem uppfylla
eftirtalin skilyrði geta sótt um atvinnu-
réttindi:
1. Bændur
1.1. Þeir sem lokið hafa námi frá
landbúnaðærskólum hér á landi eða
sambærilegu námi erlendis.
1.2 Þeir sem lokið hafa háskólanámi í
landbúnaði
1.3 Þeir sem lokið hafa annarrii
starfsmenntun en í landbúnaði svo
sem iðnnámi eða verslunarnámi sem
að gagni Itemur við dandbúnaðarstörf'
(minnst tveggja ára nám) eða
stúdentsprófi og auk þess starfað við
landbúnað minnst 2 ár á öllum tímum
árs eftir 16 ára aldur og lokið 3ja
mánaða námskeiði á vegum land-
búnaðarskóla.
1.4 Þeir sem alist hafa upp á sveitabæ
(lögbýli) frá barnsaldri átt þar heimili
og unnið að bústörfum ásamt skóla-
göngu til 20 ára aldurs eða lengur en
ekki hlotið fullgilda starfsmenntun
(sbr. framanskráð) öðlist réttindi til
búrekstrar í þeim greinum landbún-
aðarins sem voru (eru) á bvlinu með
því að Ijúka þriggja mánaða nám-
skeiði í landbúnaðarskóla.
1.5. Þeir sem sækja um að hefja
búrekstur eftir að 15 ár eru liðin frá
því að þeir öfluðu sér starfsmennt-
unar skal gert að Ijúka þriggja
mánaða framhaldsnámskeiði við land-
búnaðarskóla.
1.6. Við sérstakar aðstæður svo sem
fráfalla bónda skal veita nauðsynleg-
an frest til að einhver aðstandenda
geti aflað sér starfsréttinda.
2. Launþegar
2.1 Þeir sem öðlast hafa rétt til
atvinnurekstrar í landbúnaði skulu
einnig njóta starfsréttinda sem laun-
þegar.
2.2 Þeir sem lokið hafa prófi frá
landbúnaðarskólum hérlendis eða frá
sambærilegum skólum erlendis.
3. Réttur til atvinnurekstrar.
3.1. í vissum greinum landbúnaðar þarf
að setja sérákvæði.
3.2. Stéttarsamband bænda tekur
ákvörðun um hverjum skuli veita rétt
til atvinnurekstrar, Stéttarsambandið
leitar umsagnar þeirra sem geta gefið
nauðsynlegar upplýsingar þar að
lútandi.
Fundurinn felur stjórn Stéttarsam-
bandsins að leita eftir samstarfi við
landbúnaðarráðuneytið og Búnaðar-
félag íslands um samningu frumvarps að
lögum um atvinnuréttindi í landbúnaði.
Frumvarpið verði kynnt á kjörmanna-
fundum næsta ár og tekið til umfjöllunar
á aðalfundi Stéttarsambandsins 1983.
■ Ingi Tiyggvason, formaður Stéttarfélags bænda flytur ræðu sína á aðalfundinum.
■ Hermann Sigurjónsson, Rafliolti og Jón H. Bergs skiptast á skoðunum á
aðalfundinum. Á milli þeirra stendur Ingimar Sveinsson frá Egilsstöðum.
■ Þungt hugsi á aðaifundinum - frá vinstri: Bjarni Arason, ráðunautur, nafni hans Guðröðarson, Nesi í Reykholtsdal,
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, Einar Eiríksson, Miklaholtshelli, formaður sambands eggjafram
leiðenda, Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri í Borgamesi og Jóhann Jónasson í Sveinskoti, fyrrverandi formaður
Grænmetisverslunar rikisins. Tímamynd G.E.