Tíminn - 26.09.1982, Síða 25

Tíminn - 26.09.1982, Síða 25
SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982 ■ Dr. Ingi Signrðsson sagnfiræðingur erhöfnnduraðritinu Upplýsingogsaga. ■ Jón Sigurðsson sendir frá sér íslandsráðherrann í tugthúsið. ■ NýljóðabókkemurfráJóniÓskarí. ■ Dr. Vilhjálmur Skúlason er höfund- nr nýs alfræðirits nm lyfjafræði. ■ önólfkr Thorladns rektor hefur samið alfræðirít um dýrafræði. Fjölbreytt bókaútgáfa Menningarsjóðs: Alfræðibækur um dýrafrædi og lyfjafræði væntanlegar ■ Enn höldum við áfram að segja frá bókum sem eru að koma út þessa dagana. Að þessu sinni slógum við á þráðinn til Hrólfs Halldórssonar hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Að venju eru væntanleg ársritin Almanak fýrir ísland 1983, reiknað hefur og búið til prentunar dr. Þorsteinn Sæmundsson stjömufræðingur; Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags, ritsjóri dr. Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, og fylgir því Arbók fyrir ísland 1981, sem Heimir Þorleifs- son menntaskólakennari hefur tekið saman. Þá er Andvari, tímarit Hins íslenskaþjóðvinafélags.að koma út. Að venju er aðalgreinin æviminning einstak- lings, að þessu sinni Ásmundar Guð- mundssonar biskups. Hana hefur ritað séra Gunnar Ámason í Kópavogi. Merkasta bókin er vafalaust annað bindi íslenskra sjávarhátta hið mikla sagnfræðirit Lúðvíks Kristjánssonar. Það er um 500 bls. að lengd í stóm broti prýtt fjölda litmynda og teikninga, einkum af bátum og frá verstövum. Tvö ný bindi koma út í ritröðinni Alfræði Menningarsjóðs: Dýrafræði eftir Ömólf Thorlacius rektor og Lyfjafræði eftir dr. Vilhjálm Skúlason. Eins og kunnugt er hafa áður komið út í þessari röð bækur um íslandssögu, tónlist, stjörnufræði, læknisfræði, íþrótt- ir o.fl. Ný ljóðabók Jóns Óskars kemur út. Heitir hún Næturferð og geymir um það bil 50 ljóð. Er engum blöðum um það að fletta að eftir þessari bók bíða íslenskir Ijóðaunnendur spenntir. f ritröðinni íslensk rit, sem gefin er út í samvinnu við Rannsóknarstofnun í bókmenntafræði við háskólann, kemur nú út bókin Upplýsing og saga. Þar er um að ræða safn islenskra annála á 17. og 18. öld í samantekt dr. Inga Sigurðssonar sagnfræðings, sem jafn- framt ritar ýtarlegar og vandaðar skýringar. f sömu ritröð hafa áður komið út bækur um ljóðskáldin Davíð Stefánsson, Jón frá Bægisá, Matthías Jochumsson o.fl. Að líkindum mun bók Jóns Sigurðs- sonar skólastjóra á Bifröst, og fyrmm ritsjóra Tímans, vekja mikla athygli. Hún heitir íslandsráðherrann í tugthúsið og fjallar um umfangsmikið fjárglæfra - og hneykslismál Albertis, sem um hríð var dómsmálaráðherra Dana, og þá um leið ráðherra íslandsmála. Þetta mál skók á sínum tíma danskt þjóðltf og hafði úrslitaáhrif í kosningum hér á landi 1908. Þess má geta að meðan Alberti var dómsmálaráðherra Dana fékk hann því framgengt að þeir fangar sem þess óskuðu sérstaklega skyldu þéraðir af fangavörðum sínum. Kannski hann hafi rennt í grun hver örlög biðu hans. Síðast en ekki síst er að geta nýs heftis af Studia Islandica. Að þessu sinni er fjallað um lestrarvenjur íslendinga og ber bókin, sem samin er af Ólafi Jónssyni bókmenntafræðingi og gagn- rýnanda, titilinn Bækur og lesendur. Þess má að lokum geta að um árabil hefur verið unnið að endurútgáfu Orðabókar Menningarsjóðs, og er þess nú að vænta að þetta mikla ritverk komi út fyrri hluta næsta árs. GM Tímarit Máls og menningar komið út: Agreiningur ritstefnu tímaritsins ■ Ádrepur í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar geyma að þessu sinni vísi að deilu um ritstefnu tímaritsins. Þar kveður Ástráður Eysteinsson bók- menntafræðingur sér hljóðs og lýsir andstöðu við sjónarmið sem dr. Svanur Kristjánsson háskólakennari hafði áður lýst á sama vettvangi. Svanur kvartaði yfir því að efni ritsins væri heldur einhæft og um of bundið við bókmenntir og bókmenntafræði. Hann hvatti til þess að ritið tæki í auknum mæli upp stjómmálaumræðu íslenskra sósíal- ista, þ.e. umfjöllun og skoðanaskipti um innanlandspólitík og vinstri stefnu. Ástráður bendir á hinn bóginn á að TMM sé tímarit bókaforlags og afar skiljanlegt að helsta viðfangsefni þess séu bókmenntir og umfjöllun þeirra. „Enn þyngra á metunum", skrifar hann, „vegur þó líklega sú staðreynd að auk rita sem aðeins koma einu sinni á ári er TMM eina íslenska tímaritið sem sinnir reglubundinni, alvarlegri bókmennta- umræðu. TMM hefur í þessu tilliti lykilhlutverki að gegna og kemur til móts við brýna þörf fyrir slíka umræðu í okkar þjóðfélagi. Þar er í mörg horn að líta; koma á framfæri frumsömdum og þýddum skáldskap, ljóðum og sögum, birta bókmenntaritgerðir, greinar og ritdóma, fjalla um erlendar bókmenntir." Ástráður spyr síðan Svan hvort umræða sú sem hann er að hvetja til eigi ekki frekar heima í Þjóðviljanum og tímaritinu Rétti. Kannski Svanur Kristjánsson láti frá sér heyra í næsta hefti? Þess má annars geta að 4. hefti TMM er að nokkrum hluta helgað leiklistar- málum. Peter Brook á þar grein sem nefnist „Dauða leikhúsið". Thomas Ahrens á grein sem nefnist „Pilturinn sem fór útí heim til að læra að hræðast“ og Ástráður Eysteinsson á viðamikla grein um íslenska dagblaðagagnrýni. í næsta hefti TMM munu væntanlega verða birt erindi þau um gagnrýni f fjölmiðlum sem flutt voru á málþingi gagnrýnenda og listamanna í Árnagarði á dögunum. - GM Þrjár nýjar bæk- ur frá Sögufélagi ■ Nýtt rit frá hendi séra Gunnars Benediktssonar er meðal væntanlegra útgáfubóka frá Sögufélaginu. Nefnist það Oddur frá Rósuhúsi og er þar sagt frá viðburðaríku og ævintýralegu lífi séra Odds Gíslasonar. Þá hefur Gísli Ágúst Gunnlaugsson sagnfræðingur samið bók sem nefnist Ómagar og utangarðsfólk. Fjallað er um félagsleg vandamál í Reykjavík, málefni hinna fátæku á 19. öld. Þar fléttast inn vaxtarsaga Reykjavíkur, saga atvinnu- vega, félagslegra breytinga og lífskjara bæjarbúa. Ritið verður fimmta bindið í Safni til sögu Reykjavíkur sem Sögu- félag gefur út í samvinnu við Reykja- víkurborg. Loks sendir Sögufélag frá sér 15. bindi Alþingisbóka íslands sem nær yfir tímabilið 1766-1780. Alþingisbækumar em gerðabækur hins forna Alþingis við Öxará 1570-1800 og em stórmerkar heimildir um löggjöf, dómsmál og stjórnmálaviðburði hér á landi. Sögufélag gefur einnig út tímaritið Sögu og í 20. bindi sem er að koma út verður m.a. birt flokkuð efnisskrá eldri árganga. Þess má geta að Sögufélag hefur einnig á prjónunum að gefa íslenska þýðingu á ferðalýsingu eftir tékkann Streyc sem hingað kom í upphafi 17. aldar. Helena Kadeckova mun rita ýtarlegan inngang að því verki. GM ■ Ný bók eftir síra Gunnar Benedikts- son er vœntanleg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.