Tíminn - 24.10.1982, Blaðsíða 16
.
111
■
v/%'
smi
■ Þegar við flettum upp á öftustu
síðum dagblaðanna til þess að sjá hvað
er í bíó, þá höfum við gjama í huga þá
dóma sem gagnrýnendur hafa gefið
myndunum og auðvitað er stuðningur að
því, þegar úrvalið er orðið mikið, -
kannske þrjátíu myndir í gangi í senn í
bíóunum í Reykjavík. Gagnrýnendur
eru auðvitað með mismunandi smekk,
en þó leita þeir jafnan að því sama, - er
myndin vel gerð? Hvernig er takan?
Hvað um efnisþráðinn, - er eitthvað vit
í honum eða er þetta bara vella? Eru
einhverjir að vinna leiksigra í myndinni?
Hvernig er hljóðsetningin?
Fyrir 30-40 árum fóru menn ekki t' bíó
til þess að gá að svona hlutum, - það
var annað sem leitað var eftir þá, miklu
fremur en nú. Þá var það fyrst og fremst
ástin og fegurðin sem fólk leitaði eftir,
því þá var heimurinn ekki orðinn eins
gersneyddur rómantík og nú er.
Meira að segja heimsstyrjöldin hafði
ekki drepið rómantíkina. Það gerðu
aðrir síðar, svipþungir efasemdarmenn,
sem sáu ansk... í hverju horni og fussuðu
við öllum þessum yndislegu sveitastúlk-
um sem Hollywood framleiddi á færi-
bandi, fallega greiddum í blúndukjólum
með stífmálaðar varir. „Lífslygi og
glassúr," sögðu efasemdarmennirnir og
■ fullyrtu að meira að segja brilljantín-
greiðsla hlyti að ruglast í slagsmálum,
en það mátti hún aldrei gera í
Hollywoodmynd. Þar kom líka að
Hollywood lenti í mesta þrengingar-
skeiði, sem lauk ekki fyrr en farið var
að bjóða upp á myndir sem stóð-
ust öll próf andstyggðar raunveru-
leikans. Rómantíkin lá eftir stungin
svefnþorni eins og Mjallhvít og Guð má
vita hvort hún verður nokkru sinni vakin
upp aftur. Það vita víst allir nú hvað
heimurinn er Ijótur og best að sýna hann
svoleiðis. Það trúir enginn á fegurðina,
sakleysið og heppnina, eins og áður.
Árið 1945 kom út mikið og vandað
kvikmyndatímarit á fslandi. Það hét
„Stjörnur" og eins og sagði í fyrsta
tölublaðinu var tilgangurinn sá að
„kynna ýmsa kvikmyndaleikara og flytja
fréttir beint frá vöggu kvikmyndanna í
Hollywood." Þetta stóð blaðið dyggi-
lega við í átta ár, en það kom út til ársins
1953. í afdölum til sveita skoðuðu ungar
stúlkur á sér prófílinn í tveimur
smáspeglum til að vita hvort þær líktust
ekki Alexis Smith örlítið, eða þá
Dorothy Lamour og á kappreiðaböll-
unum brást ekki að þær komu auga á
einhvern sem var með eins nef og
Mickey Rooney á forsíðunni í „Stjörn-
ur“. Eða þá augu eins og Gregory Peck.
Um borð í togurum lásu ungu mennirnir
líka „Stjömur" á frívaktinni. Áyfirborð-
inu var það bara til að láta tímann líða,
en þeir hafa þó áreiðanlega gefið því
gætur hvort stæla mætti greiðsluna hans
Tyrone Power og gætt í laumi að hvort
þeim færi yfirskeggið hans Clark Gable.
Við koksmaskínur sveitanna og undir
dýnubotninum um borð í Agli Skalla-
grímssyni og Röðli norður á Halamiðum
velktust þessi skilaboð ofan af stjörnu-
himinum í Hollywood manna á meðal
og kyntu bál af þrám og unaðsdraumum
í hversdagsleikanum.
Við gerðum það okkur til gamans að
glugga dálítið í þessu gömlu rit, bæði til
þess að gleðja hin gömlu augu þeirra
sem voru ungir á þessum árum og þeim
til fróðleiks sem þá voru ekki til. Við
lítum líka í tvö önnur tímarit sem út
komu um þetta leyti og fylgdust vel með
draumaheimi kvikmyndanna, en það
voru „Bergmál" og „Blandaðir ávextir."
Þau rit eru hætt að koma út, eins og
„Stjömur.“ Mjallhvít rómantíkurinnar
tók þau með sér í kistuna, þar sem hún
mun líklega hvíla úr þessu, því það er
sagt að prinsinn hafi misst fæturna í
Kóreu og höfuðið í Víetnam.
og fagra
„Hin heppna
Alexis Smith“
„Megintilgangurinn er að auka nokk-
uð þau litlu kynni sem íslenskir
kvikmyndagestir hafa af ýmsum þeim
stjörnum sem skærast Ijóma á kvik-
myndahimninum,“ sögðu „Stjörnur"
um tilgang blaðsins í fyrsta tölublaði og
á sömu síðu brostu þau yndislega framan
í lesandann, Mickey Rooney, Shirley
Nei, í þá daga sigraði hið góða, sem nú
fer alls staðar halloka.
„Fögur stjarna í fáseðu umhverfi"
stendur til dæmis undir mynd af Betty
Grable, sem stendur innan í skeifu, -
tákni heppninnar, - og skeifan er
tindrandi af glimmer. „Betty Grable er
heimsfræg fyrir leik sinn og fegurð. Þó
mun hún vera frægust fyrir hinn
einstæða líkamsvöxt sinn en um hann
þarf í rauninni ekki að segja margt.
Hann kynnir sig best sjálfur. Lítið á
myndina og þér munuð sannfærast.
„Stjörnur“ munu síðar segja lesendum
sínum meira um hina frægu og dáðu
Betty Grable, líf hennar, baráttu og
sigra í heimi kvikmyndanna."
Þykir mest varið í að sofa
í rauðleitum náttfötum
„Stjörnur" voru ekki einar um hituna.
eins og áður segir.því á þeim tíma sem
blaðið kom út voru einnig á ferðinni
tímaritin „Blandaðir ávextir" sem komu
út 1953-54 og „Bergmál“ en það blað
kom út 1947-1957. Höfðu þessi tímarit
bæði góð sambönd vestur til Hollywood
og „Bergmál" náði að mynda Frank
Sinatra, þar sem hann gluggar í eintak
af blaðinu og ræddi eitt sinn við Walt
Disney. Myndir frægra leikara prýddu
síður þessara blaða eins og síður
„Stjarna" og nærri má geta að það var
handagangur í öskjunni, þegar Tyrone
Power kom til Reykjavíkur og skrifaði
í minningabækur ungu stúlknanna í
bænum.
„Stjörnur" höfðu svonetndau trétta-
ritara, sem birti stöðugt nýjar fréttir af
lífi hinna dáðu leikara og hér eru nokkur
sýnishorn:
„Hollywood 5. desember. Já, og það
er alveg satt. - Nora Eddington (kona
Eroll Flynn) hefur verið prófuð og það
er mjög mikil ástæða til að halda að
innan skamms fáum við að sjá hana á
tjaldinu. Og því ekki það, - hún er
sérstaklega falleg og hún myndast svo
vel að slíks eru fá dæmi.“
„Þegar Betty Grable var lítil stúlka
var hún kölluð „Ruth“. Hér um daginn
var hún kölluð þessu ágæta nafni, en þá
brast hún reið við og sagðist hata
nafnið...Betty hefur engan einkaritara
og labbar sjálf í bankann með aurana
sína, án þess jafnvel að tala við
fjármálaráðunaut sinn... Hún notar
sjaldan sama lit af varalit meira en einu
sinni, en gerir alltaf nýjar tilraunir í
hvert sinn sem hún býr sig um... Henni
þykir mest varið í að sofa í rauðleitum
náttfötum."
„Enginn hefði haldið að Helmut
Dantine mundi slá Frank Sinatra út og
hafa stúlkurnar sveimandi í kring um
sig, þegar hann kæmi fram opinberlega
í New York, en það er nákvæmlega það
sem gerðist. Helmut sem virðist bara
venjulegur ungur maður hérna vestur
frá, var sannarlega ekki líklegur til að
yfirvinna stúlkurnar. En hvað gerði
hann ekki!“
„Susan Peters hefur verið talsvert veik
undanfarið, en læknar hafa von um að
hún nái sér bráðlega."
„Barbara Hutton hefur verið að fara
einkennilega oft út að skemmta sér með
Phil Reed, en á sama tíma fer hinn
fyrrverandi eiginmaður Barböru Carry
Grant, dálítið oft á skemmtigöngu með
Betty Hensel.“
„Einhver mesti kunningsskapur sem
talað er um í Hollywood er þessi á milli
Lana Turner og Frankie Sinatra. Þau
kynntust þegar Lana var að leika með
Tommy Dorsey, sem þá var húsbóndi
Frankie. En nú er Lana bara gift Steve
Crane og nú verða þau þrjú, - Lana,
Steve og Frankie - að skemmta sér
saman. Þetta sýnist allt ganga afskaplega
vel.“
Þetta látum við gott heita um þessa
góðu gömlu daga, þegar fólk trúði enn
á heppnina og hamingjuna. Kannske
trúum við enn á þetta, þótt við látum
það ekki eins frjálslega uppi og pabbi og
mamma gerðu. Kannske er þetta ennþá
il, - hver veit, en sjaldnast við. næsta
ljósastaur, eins og þau héldu gömlu
hjónin, þegar þau voru ung. En þá er
bara að labba lengra og athuga þarnæsta
Ijósastaur...
AM tók saman
SUNNUDAGUR 24. OKTOBER 1982
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982
BLANDAÐIR ÁVEXTIR
Temple og Paramountleikarinn Bing
Crosby.
í blaðinu er grein um Tyrone Power
og mynd af þeim Maureen O’Hara í
kvikmyndinni „Svarti svanurinn" og enn
kynning á Alexis Smith, með ýmsum
upplýsingum um þessa leikkonu.
Um Tyrone Power segir:
„Þeir sem hafa orðið þeirrar ánægju
aðnjótandi að kynnast Tyrone Power
tala mikið um fegurð hans og sérstakt
jafnvægi. Hann hefur það viðmót, þá
menntun og það útlit sem kvikmynda-
framleiðendur og stjórnendur sækjast
sífellt eftir. Hann heillar alla með alúð
sinni og einlægum áhuga og hann hefur
þann sérstaka hæfileika að gefa sam-
ræðum leikandi líf...“
Alexis Smith fær ævisögu sína rakta í
„Stjörnum”:
„Alexis Smith er fædd í Canada en
fluttist með foreldrum sínum til Holly-
wood, þegar hún var fimm ára. Hér er
ævisaga hennar í stuttu máli:
10 ára: Þá er hún álitin sérstök í
píanóleik sínum.
11 ára: Bætti söng og dansi við list
sína.
13 ára: Sýndi listdans í hinu fræga
skemmtihúsi „Hollywood Bowl.“
16 ára: Vann fegurðarsamkeppni í
Californíu.
17 ára: Stundaði leiklistarnám í Los
Angeles háskóla.
19 ára: Ágætur leikari.
20 ára: Mikil kvikmyndastjarna.
Faðir Alexis var gullgrafari í Canada,
afi hennar gróf eftir gulli í Afríku og
langafi hennar gróf eftir því sama í
Alaska. Sjálf grefur hún í Hollywood og
finnur gnótt. Samt lifir hún sparlega og
segir að peningar geti komið sér vel
seinna.
Alexis segir að steik sé uppáhalds-
matur sinn. Skauta og badminton-
íþróttaiðkanir eru aðal tómstundagaman
hennar, en mest þykir henni gaman að
horfa á fótbolta. Hún segist trúa því að
fólk geti bæði verið heppið og óheppið.
Eiginmaður Alexis heitir Cragis Stev-
ens og giftu þau sig 1944, eftir að hann
hafði fengið undanþágu frá herþjón-
ustu. Alexis er fædd 8. júní 1921 vegur
114 pund, er 168 sm. á hæð, Ijóshærð og
með fallega blá augu.“
Ung og saklaus ofan úr
sveit...
Lýsingar eins og þessar á Alexis Smith
hafa sem nærri má geta snortið viðkvæm
hjörtu rómantískra unglinga í Bárðardal
og á Freyjugötunni og kynt undir
þránum á böllunum sem haldin voru í
Mjólkursamsölunni og í Vetrargarð-
inum, eða í mismunandi þrifalegum
bröggum og skýlum sem notaðir voru til
samkomuhalds víða um land, t.d. gamla
bragganum á Raufarhöfn eða Kross-
inum í Keflavík.
Boðskapur kvikmyndanna frá Holly-
wood var líka sá að það gerði ekkert til
þótt maður væri peningalaus og ætti ekki
nema eitt pils og eina peysu eða gömul
og lúin jakkaföt, - maður þurfti aðeins
að vera svolítið FALLEGUR og svolítið
HEPPINN, þá var ekki ólíklegt að dís
HAMINGJUNNAR slægi mann sprota
sínum einn daginn. Dæmi um það var
maður eins og Gregory Peck..:
„Kynnist Gregory Peck“ segja
„Stjörnur" í einu tölublaða annars
árgangs: „Jafnvel hin vandláta Holiy-
wood fann það og íbúar borgarinnar
töluðu um það með hrifningu, - hinn
stóri dökkeygi ungi maður er hinn fyrsti
þar í borg til að gera samning við fjögur
félög í einu. Hann lofaði að leika í 12
myndum á skömmum tíma. Allir vildu
fá Gregory Peck..."
Blaðið rekur nú ævisögu þessa heppna
og laglega manns, hvernig hann fyrir
tilviljun varð starfsmaður í kvikmynda-
veri, gerðist „kallari" á senu og fékk loks
smáhlutverk, sem sýndi að hann var
„fæddur til að leika." Eftir það var
brautin bein.
Með allar þessar upplýsingar í
vasanum átti enginn að þurfa að koma
af fjöllum sem fór að sjá jólamyndirnar
í Reykjavík 1946: Tjarnarbíó sýndi
„Unaðsóma," ævisögu Chopin, Gamla
bíó „The Three Cabelleros" og Nýja bíó
„Home in Indiana." Þegar maður kom
út aftur fannst manni að frægðin hlyti
að bíða við næsta ljósastaur, eða þá sú
hamingja sem fylgir fyrirbrigðinu „True
Love,“ sem mjög var fjallað um í
Hollywood. Dæmið af Grcgory Peck
sýndi það og líka ævi Dorothy Lamour.
Söng á milli lyftuferðanna
Já, Dorothy Lamour. Sú stúlka
fæddist nú ekki með gullskeið í
munninum. Hún varð að vinna fyrir sér
sem lyftustúlka í vöruhúsi í Chicago og
þeyttist upp og niður í lyftunni frá
morgni til kvölds. En í frístundum söng
hún söngvana sína og svo fallega að ailir
sem heyrðu hrifust af og voru „vissir um
að brátt hlyti hún að hverfa frá lyftunni
til söngsins..." eins og segir í „Stjörn-
um.“
Á árunum fyrir og eftir 1950 tindruðu
stjörnurnar og blikuðu sem aldrei fyrr
og þetta voru engir urðarmánar og
villutungl sem sjónhverfingamenn raun-
veruleikans nú á dögum nota til þess að
gera fólk svartsýnt og „deprímerað” yfir
harðneskju, grimmd og ruddaskap
morfínista, hóra og annars illþýðis sem
oftar en ekki ber sigur af hólmi í lokin.
■ AnnSouthern. Hvaða karlmaður gat staðist þessi augu? Menn stálust til að strjúka ■ „Blandaðir ávextir“ fluttu tíðindi úr kvikmyndaheiminum. Forsíðuna prýðir ■ Góðar fréttir í „Stjömum“: “Glark Gable hvarf frá kvikmyndunum meðan á ■ Ungar Reykjavíkurmeyjar létu mynda sig hjá Lofti á þessum ámm og margar
framanúrsérsaltiðogkíkjaíspegilbrotiðumborðí AgliSkallaogtogaranumRöðli. mynd af leikkonunni Ann Southern. styrjöldinni stóð, en nú er hann farinn að leika aftur.“ bestu mynda sinna birti Ijósmyndastofan í „Stjömum“. Þekkir einhver ekki hana
mömmu sína á þessum myndum?
EF DIS BAMINGJUNNAR SNERT-
IR NG MEÐ SPROTA SÍNUM....”
Helgar-Tíminn rifjar upp daga Hollywoodstjarnanna eins og afi og amma muna eftir þeim, - þá daga
þegar heppnin og hamingjan réðu ríkjum
„Séð í gegn um skráargatið“, á síðum „Bergmáls.“
■ Astin og hamingjan: „Betty Grable er einhver vinsselasta leikkona heimsins. ■ „Bergmál" kom út í tíu ár, síðast 1947.
Hún hefur fyrir nokkra síðan eignast dóttur, sem sést hér með henni. Samt er hún
ekki búin. að snúa bakinu við leiksviðinu."
ARMEN MIRANDA
«^d l»u, og 0~,„ „ b.„ 6U> nMUiania. . iÍ9Mm
V.líu hctur vtriiV til lcikkofta, «m svipaS hcfut til u •
tmci. Mirjftda, „g „ lalf , Hun *f **“» vinnutorkur og ktur ckki i
■•■■' i íúttpor hcnrur L,u levo VCrfecfnin
Huu hcfur ildrc, vcrið ir(S í ua,,.;.. . "" dagsvcrki loknu kf« hún að hufa t
'_tyca nu»um ý •**»“ í kvikrnynduni. „hcrtv .... ZiJ? t*ll"]}ún «kk*rt það, scm raska kr
Samkvæmt ósk aðdáanda á Siglufirði.,