Tíminn - 24.10.1982, Blaðsíða 26

Tíminn - 24.10.1982, Blaðsíða 26
. r* , . . ; * v . Vt> 26 itái SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982 nútíminn Umsjón: Friðrik Indriðason og Eirlkur S. Eiríksson OHAÐI VINSÆLDA- LISTINN — byggður á söln í STUÐ-búðinni ■ Tvær nýjar hljómsveitir ná inn á listann að þessu sinni en það eru Defunkt mcð „kjarnorkusvita“ sinn og hljómsveitin Art Bears með „heiminn eins og hann er í dag“. Á litla listanum er GBH ehn í efsta sæti en góðkunningjar okkar Comsat Angels og súpergrúppan Pink Floyd ná tveimur næstu sætum að þessu sinni. Purrkurinn fellur hinsvegar út og höfum við heyrt að upplag þeirrar plötu sé á þrotum. 1. Ðire Straits/ •FRI Love Over Goid 2. Crass/ Christ The Album 3. Peter Gabriel/ 4 4. Cure/ Phomography 5. Jonec Jonee/ Svonatorrek 6. Tappi tíkarrass/ Bitið fast í vitið 7. Dcad Kennedys/ In God We Trust Inc. 8. Cabaret Voltaire/ 2X45 9. Defunkt/ Thcrino Nuclear Sweat 10. Art Bears/ „ The World As It Is To Day 1. G.B.H./ Sick Boy 2. Comsat Angels/ Indepentant Day 3. Pink Floyd/ When The Tiger Broke Free Ránar fastnr í E6Ö ■ Ný plata mcð hljómsveitinní EGÓ mun væntanlega koma á markaöinn hcrlendis áður en langt um líður og mun sveitin fara í heljarmikla landsreisu eftir útkomu plötunnar. Rúnar Erlingsson bassa- lcikari (Utangarðsmanna, Bodies) var session maður á nýju plötunni en Nútíminn hcfur heyrt að hann sé orðinn fastur meðlimur EGÓ og kemur hann inn í stað Þorgeirs sem var rekinn úr sveitinni. -FRI „Þetta er metnaðar ■ Bjöm með nýju sólóplötu sína Svif sem nýlega er komin út. segir Björn Thoroddsen um nýja söló- plötn sína „Svif” ■ „Þetta er metnaðarplata hjá mér, verk sem mig hefur lengi langað til að gera“ sagði Björn Thoroddsen gítar- leikari í stuttu samtali við Nútímann um nýja sólóplötu sína „Svif“. Öll lögin á plötunni eru „instrumentaP', enginn söngur, en Björn hefur fengið til liðs við sig marga af bestu hljóðfæraleikurum landsins á sviði popps/jazz við gerð hennar. Björn semur sjálfur öll ellefu lög plötunnar utan eitt sem samið er af Mikael Berglund og vill hann lýsa þeim sem Fönk-Jazz en auk hans koma við sögu á plötunni landi hans Hans Rolin (báðir frá Svíþjóð), Jakob Magnússon, Eyþór Gunnarsson, Guð- mundur Ingólfsson, Hjörtur Howser,, Kristinn Svavarsson, Árni Scheving og Pétur Grétarsson. Af þessari upptalningu sést að þarna er komið megnið af hljómsveit Björgvins Halldórssonar sem tók Rússa með trompi fyrir skömmu og. frægt er orðið en Bjöm var með í þeirri ferð og lýsir henni sem ógleyman- legum atburði. Björn hitti Svíana báða í Holly- wood, er þeir voru á sama skóla þar en Björn nam í Guitar Institute of Technology. Sá skóli mun vera við hliðina á hinu þekkta kínverska veitingahúsi, en Bjöm lætur þess getið að hann hafi nú ekki labbað þangað með steypufötu eins og öðrum stjörn- um er tamt að gera. „Við Svíarnir gerðum „demó“ að plötunni í mars s.l. en Jakob var einnig með í því, Jónasi R. leist svo vel á upptökuna að úr varð að við kæmum heim og gerðum plötuna en það varð síðan upphafið að því að við fórum að leika með Björgvin Halldórs." segir Björn. _FRI plata” Zappa og hans verri maður — umdeildir „tvíburar” í blíðu og stríðu ■ Furðufuglinn og tónlistarsnillingur- inn Frank Zappa er maður umdeildur svo ekki sé meira sagt. Zappa skaut upp á sjónarsviðið með hljómsveitinni Moth- ers of invention hér fyrr á árum, en síðan sú sveit leystist upp hefur hann komið fram ásamt hljómsveit sinni á milli þess sem hann vinnur að plötum sínum. Frægur er Zappa fyrir að „leysa úr skjóðunni" á David Jones úr Monkees á sviði, en einnig er mönnum í fersku minni útreið sú er gyðingar og kaþólikkar fengu í lögunum „Jewish Princess" og „Catholic girls“ á nýlegum plötum Zappa. Hljómleikar kappans eru einnig óútreiknanlegir og t.a.m. kom hann einu sinni fram á tvennum hljómleikum í röð í Osló. Á fyrri hljómleikunum var ekki hálfur salur, en konsertinn þótti engu að síður takast frábærlega vel. Það spurðist út og á seinni hljómleikunum var troðfullt hús. Þá var stund hefndarinnar runnin upp og Zappa spilaði ekkert nema „sveita- lög“ í anda Hank Williams hljómleikana ■ Frank Zappa röflar í hljóðnemann á hljómleikum í Drammenshallen. Hans „verri helmingur“ fylgist með og er greinilega viðbúinn öllu. Að minnsta kosti var hann á þessari stundu búinn að troða logandi sígarettunni á bak við hægra eyrað til að hafa „frjálsar hendur". Tímamynd ESE út í gegn. Það er því aldrei neitt logn í kringum persónuna Frank Zappa og ekki undarlegt að „meistarinn“ bregði sér aldrei bæjarleið án þess að hafa lífivörð sinn með í ferðum. Sá hefur fylgt Zappa í gegnum þykkt og þunnt í mörg ár og er haft fyrir satt að hann gæti kappans það vel að ekki sé hægt að koma nærri honum án þess að hið alsjáandi auga lífsvarðarins komi auga á það. Lífvörðurinn er eirmig hið mesta fól og allur hinn groddalegasti. Á hljómleikum sem tíðindamaður Nútímans var við- staddur í Drammenshallen í Norégi, kom „mannkærleiki" lífvarðarins vel í Ijós, en þá hafði hann ekki mikið fyrir að grýta fólki sem „villtist" upp á sviðið öfugu út í salinn aftur ofan af tveggja metra hSú sviðinu og mest var ánægja/ hans ef einhverjir urðu fyrir þessum sendingum. Hljómleikarnir voru hins vegar stuttir og lélegir og vakti það athygli að á þeim tók Zappa aðeins eitt af sínum þekktustu lögum, nefnilega „Bobby Brown“en það var eina aukalag hans á hljómleikunum. - ESE Hvar eru „súltanar sveiflunnar”? Dire Straits / Love over gold Fálkinn hf í svita og striti dagsins ,»Á pnttannm / Þorgeir Ástvaldsson lítgefandi Fálkinn hf ■ Þá er hún loksins komin hin fjórða og langþráða plata Dire Straits. Platan nefnist „Love over gold“ og hefur henni verið feikivel tekið heims um ból. Mark Knopfler er samur við sig og scm lagasamiður cr hann einstak'ur. Frá því að fyrsta plata Ðire Straits, með laginu „Sultans of swing" kom út hefur. mikið vatn runnið til sjávar. Bæði „Comminique“ og „Making movies“ stóðu vel fyrir sínu og sérstaklega þótti mér sú síðar- nefnda skemmtilcg. Þá plötu eignaðist ég ekki fyrr en hún var orðin nokkuð aldurhnigin, en það skipti engu máli, platan vann stöðugt á og ég hafði gaman af. „Love ovcr gold“ er öðru vísi plata. Lögin af þessu sinni eru mun minna rokkuð og „sveifla soldánanna-1 virðist fyrir bý. Þá eru lögin hræðilega löng og t.a.m. eru tvö af bestu iögunum rúmlega sjö og fjórtán mínútna löng (Tele- graph road, sem reyndar er . besta lag plötunnar). Það þarf þó enginn að efast um gæði þessarar plöju. Hún er stór- góð, en samt scm áður alltof kraftlítil (fyrir minn smekk). Mark Knopfler hefur með „Love over gold“ sýnt og sannað að hann er einn fremsti lagasmiður heims og að þessu sinni er einnig vel þess virði að gefa textanum gaum. En mætti ég samt biðja um meira rokk. -ESE ■ Þá hefur Þorgeir Ástvalds- son, sem gjarnan hefur vcrið nefndur „Alþýðuhetja" gefið út sína fyrstu sólóplötu og nefnist hún „Á puttanum“. Þó að þetta sé frumraun Þorgeirs á einsöngsbrautinni, þá er hann síður en svo nokkur byrjandi á sviði söngkúnstarinnar og hann hefur bæði sungið með karlakórnum Fóstbræðrum og raulað með Sumargleðinni áð- ur en hann réðist í þessa plötuútgáfu. „Á puttanum" er dæmigerð skemmtiplata, með léttum og skemmtilegum lögum og þó hún verði aldrei sögð frumieg, þá bæta góðir textar og góð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.