Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 10
10 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR Ráðherra segir af sér Dómsmálaráðherra Póllands, Zbigniew Cwiakalski, hefur sagt af sér í kjölfar meints sjálfsvígs fanga í pólsku fang- elsi. Fanginn, Robert Pazik, var þriðji maðurinn sem stytti sér aldur úr hópi manna sem dæmdir voru árið 2001 fyrir að ræna og myrða son auðugs kaupsýslumanns. Cwiakalski bauðst til að víkja vegna „móðursýkislegra viðbragða“ við dauða Paziks í fjöl- miðlum og stjórnmálum í landinu. PÓLLAND Innbrot í raftækjaverslun Innbrot var framið í raftækjaverslun í Skútuvogi í Reykjavík í fyrrinótt. Þjóf- urinn komst undan með sjónvarp. LÖGREGLUFRÉTTIR Flutningabíll lokaði veginum Ökumaður flutningabíls lenti í erfið- leikum í Bakkaselsbrekku í Öxnadal í gærmorgun. Mjög slæmt veður var á heiðinni og lokaði flutningabíllinn veginum að hluta til. Litlir bílar kom- ust þó fram hjá bílnum. VINNUMARKAÐUR Formenn aðildarfélaga ASÍ ræddu á fundi í gær að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á vor. Vinnuveitendur vilja segja upp samningn- um eða fresta hækkunum fram undir lok samnings- tímabilsins. Ákvörðun verður tekin í febrúar. „Ef menn vilja standa við samninginn og vinnu- veitendur segja samningnum upp þá blasir við að fólk fær lítið sem ekkert, auk þess að missa það sem eftir er í samningnum, til dæmis orlofsaukningu í sumar og launahækkun um næstu áramót. Eins og staðan er í þjóðfélaginu nú sjá menn ekki fram á að semja aftur fyrr en guð má vita hvenær. Menn næðu ekki einu sinni fram því sem er í þessum framleng- ingarákvæðum þannig að það er þá betra að halda í vonina. Niðurstaða fundarins er að kanna vel hvort hægt sé að halda í samninginn gegn því að fresta þessari launahækkun frekar en að láta vinnuveitend- ur segja samningnum upp,“ segir Guðmundur Gunn- arsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Kjarasamningur ASÍ og SA er í fyrsta skipti upp- segjanlegur á báða bóga. Guðmundur segir að þríhliða samkomulag ríkis- valds, launþegasamtaka og atvinnurekenda sé nauð- synlegt. - ghs Formenn aðildarfélaga ASÍ fóru yfir stöðuna í endurskoðun kjarasamninga: Vilja fresta endurskoðun SAMÞYKKJA BOÐIÐ Hátt í hundrað formenn aðildarfélaga ASÍ ákváðu í gær að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á vor eins og SA hefur ljáð máls á. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SERBÍA, AP Ratko Mladic nýtur enn mikilla vinsælda og stuðn- ings í Serbíu, þrátt fyrir að hafa verið eftirlýstur stríðsglæpa- maður í meira en áratug. Samkvæmt nýrri skoðana- könnun myndu nærri tveir af hverjum þremur Serbum alls ekki veita stjórnvöldum upplýs- ingar, sem leiddu til handtöku hans, jafnvel þótt ein milljón evra sé í boði sem lausnargjald. Einungis 14 prósent sögðust hiklaust veita slíkar upplýsing- ar, en aðrir sögðust ekki viss- ir um hvað þeir myndu gera ef þeir byggju yfir slíkri vitn- eskju. - gb Serbar dá Mladic: Örfáir myndu framselja hann NOREGUR, AP Lögregluþjónn í Tromsö í Noregi skaut í gær fyrr- verandi sambýliskonu sína til bana á bílastæði fyrir utan barnaskóla þar sem hún vann. Því næst gerði hann tilraun til að svipta sig lífi. Lögreglumaðurinn, sem er 53 ára, var ekki á vakt og að því er fram kemur í norskum miðlum var morðvopnið byssa sem hann stal frá vinnufélaga. Konan, sem var um tíu árum yngri, hafði slitið sambúð við manninn viku fyrr. - aa Morð í Norður-Noregi: Lögregluþjónn skaut unnustu Uppsagnir hjá Ericsson Sænska símafyrirtækið Ericsson ætlar að segja upp fimm þúsund starfs- mönnum um allan heim, þar á meðal eitt þúsund í Svíþjóð. SVÍÞJÓÐ BÆNAHALD Í JERÚSALEM Palestínskur múslimi lagðist á bæn fyrir framan vígalegan hóp ísraelskra hermanna sem hindruðu aðgang að Al Aksa- moskunni í Jerúsalem. NORDICPHOTOS/AFP BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti átti í gær fundi með þingmönnum beggja flokka og hvatti þá til að styðja efnahagsað- gerðir sínar. Ástandið í efnahags- lífi þjóðarinnar krefjist þess að þingið taki til sinna ráða, jafnvel þótt sumum þingmönnum hugnist ekki sumir hlutar aðgerðanna. „Ég átta mig á að enn er ein- hver ágreiningur,“ sagði hann, en flokksbræður hans í Demókrata- flokknum hafa gefið honum fyr- irheit um að hann geti undirritað lögin um miðjan febrúar. Obama hefur haft í nógu að snú- ast síðan hann tók við embætti á þriðjudag. Efnahagsmálin eru stærsta áhyggjuefni Bandaríkja- manna um þessar mundir, en áður en hann sneri sér að þeim málum í gær hafði hann kynnt nokkrar af ráðstöfunum sínum í utanríkismál- um, svo sem að fangabúðunum ill- ræmdu við Guantánamo á Kúbu yrði lokað innan árs. Á fimmtudag skipaði Obama einnig tvo gamalreynda samninga- menn sendifulltrúa sína í Austur- löndum nær og fjær. Richard Hol- brooke, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, fær það hlutverk að samhæfa stefnu Bandaríkjanna gagnvart Afganistan og Pakistan, en George J. Mitchell, fyrrverandi leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjanna, verður fulltrúi Bandaríkjanna í Mið-Austurlönd- um. - gb Obama hefur haft í nógu að snúast fyrstu daga sína í embætti: Snýr sér að efnahagsmálum Á FUNDI MEÐ LEIÐTOGUM ÞINGSINS Barack Obama hvatti þingið til að fallast á efnahagsráðstafanir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VINNUMARKAÐUR Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ, segir að staðan í kjaramálunum verði rædd í aðildarfélögum ASÍ á næstu vikum. Formennirnir hitt- ist síðan aftur á formannafundi fyrir lok febrúar til að taka upp- lýsta afstöðu til óskar SA um að fresta endurnýjun kjarasamn- inga. Atvinnurekendur hafa óskað eftir sveigjanleika til að geta staðið við kjarasamning- ana. Gylfi segir að ríkisstjórnin þurfi að koma að borðinu. „Ég hef óskað eftir því að félögin taki líka afstöðu til þess hvort ASÍ sé til- búið til að framlengja kjarasamn- ing án þess að ríkið komi þar að. Það vorum við ekki fyrir þennan fund. Það hefur verið alveg skýr afstaða. Skilaboð hreyfingarinn- ar hafa verið þau að til að fram- lengja kjarasamninginn þurfum við mjög sterka aðkomu ríkis- stjórnar varðandi atvinnumálin og stöðu heimilanna,“ segir hann. Gylfi telur að ef fresta eigi kauphækkunum, sem eiga að koma 1. mars, til áramóta eins og SA vill þá sé allt eins hægt að segja upp samningunum. - ghs Forseti ASÍ: Ræðum að- komu ríkis- stjórnarinnar GYLFI ARNBJÖRNSSON Hann segir að ætli SA að fresta kauphækkunum sé allt eins hægt að segja upp samningunum. Snjóflóð á Ólafsfjarðarvegi Snjóflóð féll á Ólafsfjarðarveg milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur upp úr mið- nætti í fyrrinótt. Að sögn lögreglu var flóðið nokkuð stórt. Engin umferð var á veginum þegar það féll. Vegagerðar- menn ruddu veginn í gærmorgun.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.